Bann við notkun bisfenóls A (BPA) í matvælasnertiefni - 32024R3190

Commission Regulation (EU) 2024/3190 of 19 December 2024 on the use of bisphenol A (BPA) and other bisphenols and bisphenol derivatives with harmonised classification for specific hazardous properties in certain materials and articles intended to come into contact with food, amending Regulation (EU) No 10/2011 and repealing Regulation (EU) 2018/213


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3190 frá 19. desember 2024 um notkun á bisfenóli A (BPA) og öðrum bisfenólum og bisfenólafleiðum með samræmda flokkun að því er varðar tiltekna hættulega eiginleika í tiltekna efniviði og hluti sem er ætlað að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 2018/213
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 127/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3190 frá 19. desember um notkun á bisfenól A (BPA) og annara bisfenóla og bisfenól afleiða með samræmda flokkun vegna tiltekinna hættulegra eiginleika í efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu matvæli og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um brottfall á reglugerð (EU) 2018/213

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar breytingar á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Reglugerð 10/2011 setur sérstakar reglur um plast sem ætlað er til snertingar við matvæli. Reglugerðinni fylgir skrá Evrópusambandsins yfir efni sem leyfilegt er að nota við framleiðslu á plasti.Bifsfenól A  (BPA) er notað sem einliða í framleiðslu á ýmsum plastefnum m.a. polycarbonat plasti og í lökk og yfirborðsmeðhöndlunarefni sem notuð eru m.a. inni í niðursuðudósir. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur nokkrum sinnum gert áhættumat á BPA. EFSA hefur nú endurskoðað áhættumatið og gefið út nýtt viðmiðunargildi 2023 fyrir þolanlega daglega inntöku (TDI) á bisfenol A. Þetta nýja gildi er 0,2 nanógrömm á kg líkamsþunga sem er 20 000 sinnum lægra en tímabundið TDA gildi sem sen áður var miðað við.Vegna þess hversu lágt þetta nýja TDI gildi er, er ekki hægt með núgildandi mæliaðferðum að mæla flæði BPA yfir í matvæli. Því er ekki hægt að setja ný sértæk flæðimörk fyrir BPA. Til þess að lágmarka váhrif efnisins er því er bannað að nota BPA í matvælasnertiefni.Fyrirtæki sem nota BPA, önnur hættuleg bisfenól eða hættulegar afleiður bisfenóls eiga að upplýsa framkvæmdastjórnina um stöðu hugsanlegra annara efna sem geta komið í stað BPA.  Í reglugerð 2024/3190 er kveðið á um eftirfarandi breytingar á reglugerð 10/2011:Notkun á BPA og sölt af þeim í eftirfarandi matvælasnertiefni er bönnuð:  límgúmmíjónskipta resínplastefniprentlitisílíkonlökk og húðunarefniÞrátt fyrir ákvæði 1. málsgreinar  er hægt að veita undanþágu og má nota BPA og sölt þess  í framleiðslu á matvælasnertiefnum fyrir sérstaka notkun sem tilgreind er í viðauka II og með þeim skilyrðum sem þar eru sett.Matvælasnertiefni sem hafa verið framleidd með öðrum bisfenólum eða bisfenólafleiðum mega ekki innihalda leifar af BPA.Bannað er að framleiða og markaðssetja  matvælasnertiefni sem framleidd eru úr öðrum hættulegum bisfenólum eða bisfenólafleiðum.Þrátt fyrir ákvæði málsgreinar 1.3 er hægt að veita undanþágu fyrir notkun annara bisfenóla og afleiðum þeirra við framleiðslu á matvælasnertiefnum fyrir sérstaka notkun samkvæmt sérstökum skilyrðum sem koma fram í  6. gr. reglugerðarinnar og II. viðauka I og með þeim skilyrðum sem þar eru sett.Notkun annara hættulegra bisfenóla og afleiðum þeirra sem ekki hafa verið leyfð samkvæmt 6. gr. má nota við framleiðslu á matvælasnertiefnum fyrir sérstaka notkun samkvæmt ákveðnum skilyrðum í reglugerðinni.Öllum matvælasnertiefnum sem falla undir ákvæði þessarar reglugerðar á að fylgja samræmisyfirlýsing á öllum stigum framleiðslu að undanteknu smásölustigi, sbr. 16 gr. í reglugerð 1935/2004.Reglugerð 10/2011 ber því að breyta í samræmi við þessa reglugerð, jafnframt fellur reglugerð (ESB) 2018/213 úr gildi.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd með breytingareglugerð við reglugerð (ESB) nr. 10/2011 og mmeð stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Breytingin hefur ekki áhrif á sérstaka hagsmuni Íslands

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R3190
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3190, 31.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D097818/03
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 22
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1824, 2.10.2025

Breytt af (Modified by)

32026R0250 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32018R0213 repeals Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32011R0010 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)