32024R3234

Regulation (EU) 2024/3234 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards provisions relating to the date of application


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með reglugerðinni er framkvæmd helstu ákvæða reglugerðar (ESB) 2023/1115 um að bjóða fram á markaði Sambandsins og flytja út frá Sambandinu tilteknar hrávörur og vörur sem tengjast eyðingu og hnignun skóga (EUDR) frestað tímabundið. Jafnframt eru gerðar samsvarandi breytingar á bráðabirgðaákvæðum og frestum sem tengjast brottfalli reglugerðar (ESB) nr. 995/2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin breytir EUDR með það að markmiði að veita aðildarríkjum, rekstraraðilum og kaupmönnum lengri aðlögunartíma áður en skyldur samkvæmt reglugerðinni koma til framkvæmda. Þannig er framkvæmd ákvæða um skyldur rekstraraðila, kaupmanna og lögbærra yfirvalda frestað til 30. desember 2025. Þá er frestur framkvæmdastjórnarinnar til að birta áhættuflokkun landa eða hluta þeirra framlengdur um sex mánuði,  til 30. júní 2025. Í ljósi þessara breytinga er einnig brottfalli reglugerðar (ESB) nr. 995/2010 frestað til 30. desember 2025. Reglugerðin gildir þó áfram til 31. desember 2028 um tiltekið timbur og timburvörur sem voru framleidd fyrir 29. júní 2023 og sett á markað frá 30. desember 2025.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R3234
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3234, 23.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2024) 452
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

COM(2024) 452
52024PC0452
adopts Regulation (EU) 2024/3234 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 amending Regulation (EU) 2023/1115 as regards provisions relating to the date of application Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32023R1115 amends Regulation (EU) 2023/1115 of the European Parliament and of the Council of 31 May 2023 on the making available on the Union market and the export from the Union of certain commodities and products associated with deforestation and forest degradation and repealing Regulation (EU) No 995/2010 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
12016E192 based on