32025R0133

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/133 of 28 January 2025 amending Regulation (EU) No 965/2012 as regards non-commercial operations conducted in visual flight rules conditions with gyroplanes


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/133 frá 28. janúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar starfrækslu þyrilflugna, sem er ekki í ábataskyni, við sjónflugsskilyrði
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 143/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með setningu reglugerðarinnar er að tryggja örugga og samræmda starfsemi nýrra tegunda þyrilfluga sem hafa hámarksflugtaksmassa yfir 600 kg. Því er reglugerð (ESB) 965/2012 breytt þannig að hún nær til loftfara af þessari tegund. Þau hafa ekki verið sérstaklega tilgreind í reglum hingað til. Komi til þess að slík loftför verði skráð á Íslandi verður kostnaður fyrir Samgöngustofu fyrst og fremst fólgin í eftirliti. Engin loftför af þessu tagi eru á skrá hér á landi. Gera má ráð fyrir að með því að kostnaður verði á bilinu 3.547.400 - 7.000.000 á ári. Kostnaðurinn mun falla undir reglubundna starfsemi Samgöngustofu.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með setningu reglugerðarinnar er að tryggja örugga og samræmda starfsemi nýrra tegunda þyrilfluga sem hafa hámarksflugtaksmassa yfir 600 kg.Efnisútdráttur: Með þessari reglugerð er breytt reglugerð (ESB) 965/2012 þannig að hún nær til loftfara af þessari tegund. Þau hafa ekki verið sérstaklega tilgreind í reglum hingað til.Þá eru skilgreindar kröfur fyrir starfrækslu þyrilfluga, e. gyroplanes, með hámarksflugtaksþunga yfir 600 kg. Sú starfsemi verður ekki heimil í hagnaðarskyni og skal vera í samræmi við viðbæti VII í reglugerð ESB nr. 965/2012.Þessu til viðbótar er gerð breyting á notkun hugtaksins þyrlu e. helicopter og það útvíkkað með því að nota hugtakið þyrilvængja e. rotorcraft.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Töluverð áhrif verða á þá aðila sem starfrækja þyrilflugur af þeirri tegund sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Litlar sem engar reglur hafa gilt um sérstaklega um starfrækslu slíkra loftfara sem eru þyngri en 600 kg á Íslandi fram til þessa, aðrar en reglugerð um flugreglur.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Komi til þess að slík loftför verði skráð á Íslandi verður kostnaður fyrir Samgöngustofu fyrst og fremst fólgin í eftirliti. Með gildistöku reglugerðarinnar eru gerðar kröfur um eftirlit af hálfu Samgöngustofu, sbr. ARO kröfur 965/2012. Engin loftför af þessu tagi eru á skrá hér á landi. Gera má ráð fyrir að með því að fella slík loftför undir framangreinda reglugerð að fjöldi vinnustunda verði sem nemur 0,2 stöðugildum á ársgrundvelli. Það mun síðan aukast í beinu hlutfalli við fjölda slíkra loftfara. Kostnaður er metinn á bilinu 3.547.400 - 7.000.000 á ári. Kostnaðurinn mun falla undir reglubundna starfsemi Samgöngustofu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Eigendur, flugmenn og rekstraraðilar þyrilfluga, e. gyroplanes.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0133
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/133, 29.1.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 48
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1823, 2.10.2025

Breytir (Modifies)

32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012R0965 amends Commission Regulation (EU) No 965/2012 of 5 October 2012 laying down technical requirements and administrative procedures related to air operations pursuant to Regulation (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)