Reglugerð um aðferðafræði við útreikning á endurnýtingar- og endurvinnsluhlutföllum rafhlaðna og rafgeyma. - 32025R0606
Commission Delegated Regulation (EU) 2025/606 of 21 March 2025 supplementing Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council by establishing the methodology for calculation and verification of rates for recycling efficiency and recovery of materials from waste batteries, and the format for the documentation
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framseld reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Lagðar eru fram reiknireglur um endurvinnslu og endurnýtingarhlutföll rafhlaðna og rafgeyma í samræmi við reglugerð (ESB) 2023/1542.
Nánari efnisumfjöllun
Í nýlegri reglugerð Evrópusambandsins um rafhlöðu- og rafgeymaúrgang er kveðið á um endurvinnslumarkmið fyrir mismunandi gerðir rafhlaðna og rafgeyma. Samkvæmt grein 71(4) á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að setja framselda gerð um reiknireglur sem nota á til að ákvarða og sannreyna endurvinnslu- og endurnýtingarhlutföll rafhlaðna- og rafgeymaúrgangs. Þetta er sú gerð.Reglugerðin er bara tvær greinar og viðauki. 1. grein kveður á um að nota skuli þær reiknireglur sem birtar eru í viðauka við reglugerðina. 2. grein fjallar um gildistöku reglugerðarinnar.Í viðaukanum eru lagðar fram mismunandi reiknireglur eftir því af hvaða gerð rafhlöðurnar eða rafgeymarnir eru, til dæmis hvort um sé að ræða blýsýrurafgeyma, liþíumrafhlöður, nikkel-kadmíum rafgeyma eða aðrar gerðir. Gögnum er haldið aðskildum fyrir þessar mismunandi gerðir rafhlaðna og rafgeyma.Einnig er fjallað um endurheimt ýmissa efna sem eru ýmist hættuleg umhverfi og heilsu manna og/eða teljast til þýðingarmikilla hráefna (e. critical raw materials). Dæmi um slík efni eru kóbolt, kopar, blý, liþíum og nikkel.Endurvinnsluaðilar skulu halda tölfræði yfir rafhlöður og rafgeyma sem fara í gegnum endurnýtingarferli samkvæmt viðaukanum. Þær upplýsingar sem endurvinnsluaðilar skrá eru til dæmis uppruni úrgangsins. Endurvinnsluaðilar senda ítarlegar tilkynningar til stjórnvalda síns ríkis um móttöku og endurvinnslu rafhlaðna og rafgeyma. Þau stjórnvöld senda svo árlega skýrslu til stjórnvalda þeirra ríkja sem úrgangurinn er upprunninn frá. Þótt reglugerðin hafi ekki tekið gildi, er strax ljóst að erfitt, ef ekki ógerlegt, verður fyrir endurvinnsluaðila að skrá uppruna úrgangsins með fullri vissu.Stjórnvöld skulu yfirfara og sannreyna (e. audit) skráningar sem þeim berast með það fyrir augum hvort einhverjar upplýsingar vanti, hvort gögn séu rétt, hvort gögn séu áreiðanleg og rekjanleg. Einnig geti stjórnvöld sóst eftir gögnum um flutning úrgangsins eða heimsótt endurvinnslustöðvar við eftirlit.Liþíumrafhlöður verða fyrir miklum áhrifum af reiknireglunum, einkum liþíumraflöður af tveimur gerðum: liþíum-járnfosfatrafhlöður og nikkel-mangan-kóbolt liþíumrafhlöður.Í reglugerðinni kemur fram að valfrjálst er hvort járn og fosfór úr liþíum-járnfosfatrafhlöðum séu talin til við útreikninga á endurvinnsluhlutfalli eða ekki. Með þessu er búinn til hvati til að endurvinna ekki þessi efni og líklegt er að umtalsvert magn bæði járns og fosfórs muni rata í urðun við endurvinnslu liþíum-járnfosfatrafhlaðna. Þetta er í töluverðu ósamræmi við markmið íslenskra laga um meðhöndlun úrgangs 55/2003 og regluverks Evrópusambandsins, til dæmis reglugerðar (ESB) 2023/1542 (sem hefur ekki enn verið innleidd á Íslandi) og reglugerðar um þýðingarmikil hráefni (ESB) 2024/1252 sem er í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum, þar sem fosfór er skilgreindur sem þýðingarmikið hráefni.Einnig er líklegt að rafhlöður grænþvoist við endurvinnsluferlið þar sem ekki verður gerð krafa um að taka valkvæða úrgangsstrauma með í endurvinnsluútreikningana og því getur endurvinnsluhlutfall litið út fyrir að vera mun hærra en raunendurvinnslan segir til um. Í stað þess að markmiðin sem lögð eru fram í reglugerðinni leiði til aukinnar endurvinnslu er líklegt að markmiðin leiði til þess að menn finni undanþágur í reiknireglunum fyrir valkvæða endurvinnslustrauma.Valfrjáls skýrslugjöf, eins og sú sem nær yfir járnfosfat frá liþíum-járnfosfatrafhlöðurm, býr einnig til flækjustig í úrgangstölfræði Íslands sem er ekki augljóst hvernig verður leyst. Umhverfis- og orkustofnun fær tölur yfir endurvinnsluhlutfall rafhlaðna frá stjórnvöldum erlendis. Ef tölfræðigögn byggja á magni úrgangs og endurvinnsluhlutfalli, getur tölfræðin látið líta út fyrir að valfrjálsir efnisstraumar hafi í raun verið endurunnir þegar þeir voru það ekki endilega. Þetta mun leiða til þess að opinber gögn á Íslandi yfir endurvinnslu rafhlaðna og rafgeyma verða líkleg til að innihalda töluvert hærri endurvinnslu heldur en raun á sér stað, jafnvel tvöfalt hærri fyrir liþíum-járnfosfatrafhlöður og helmingi hærri fyrir nikkel-mangan-kóbolt liþíumrafhlöður (Li-NMC).Að öðru leyti inniheldur reglugerðin ítarlega útlistun á reiknireglum og skýrsluskilum í töflum sem birtar eru í viðauka.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þarf reglugerð (ESB) 2023/1542 sem undanfara þessarar reglugerðar. Þessi reglugerð á stoð í gr. 71(4) í reglugerð (ESB) 2023/1542. Lagastoð er sú sama og fyrir reglugerð 1020/2011. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Niðurstöður samráðs |
Ekki gafst tími til samráðs. Evrópusambandið efndi til samráðs um reglugerðina. Alls bárust 44 umsagnir, um þrír fjórðu umsagna bárust frá fyrirtækjum eða samtökum fyrirtækja og nærri helmingur umsagna barst frá belgískum aðilum. Engin umsögn barst frá Íslandi. Töluverð gagnrýni kom fram á reiknireglurnar í samráði Evrópusambandsins, einkum hvað varðar efnisstrauma sem valfrjálst er að telja til, t.d. járn, fosfór og súrefni í liþíum-járnfosfatrafhlöðum. Farið var fram á að járn og fosfór yrðu efnisstraumar sem skylt yrði að telja til (en ekki valfrjálst) en ekki var fallist á það í birtri reglugerð. Einnig var töluvert gagnrýnt að samkvæmt reglugerðinni geti svartmassi (e. black mass) ekki talist sem afurð úr endurvinnsluferli heldur aðeins sem tímabundið efni (e. intermediary fraction). Farið var fram á að svartmassi sem væri nothæfur gæti talist sem endurunnin afurð, enda sé nú þegar til staðar nokkur markaður með hann í Evrópu, en ekki var fallist á það í birtri reglugerð. Reiknireglurnar voru gagnrýndar fyrir að vera letjandi til framfara í endurvinnsluiðnaðinum og að þær samræmdust illa anda ýmissa reglugerða Evrópusambandsins. Sömuleiðis að þær skekktu samkeppnisstöðu fyrirtækja með því að hygla sumum gerðum rafhlaðna en ekki öðrum. Reglugerðin byggir á skýrslu JRC sem unnin var í samráði við hagaðila: https://dx.doi.org/10.2760/9781567 |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Enginn kostnaður fylgir reglugerðinni umfram stjórnsýsluferla við innleiðingu. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Bein áhrif í lágmarki þar sem engin eiginleg endurvinnsla rafhlaðna og rafgeyma á sér stað á Íslandi. Reglugerðin er líkleg til að ýkja endurvinnslunýtni liþíumrafhlaðna nokkuð umfram raunendurvinnslu en ýkir endurvinnslunýtni liþíum-járnfosfatrafhlaðna mun meira en NMC-rafhlaðna. NMC-rafhlöður eru stundum álitnar vera evrópsk-amerísk tækni en liþíum-járnfosfat kínversk tækni. Þar sem Ísland er með fríverslunarsamning við Kína, gætu skekktar reiknireglur fyrir liþíum-járnfosfatrafhlöður haft lítilleg áhrif á Ísland umfram þau áhrif sem koma fram í öðrum aðildarríkjum, til dæmis með því að rafhlöður sem keyptar eru frá Kína komi betur út í endurvinnslutölfræði en þær sem keyptar eru frá Evrópu, þó með þeim takmörkunum að stór hluti liþíumhrafhlaðna kemur úr rafmagnsbílum. Reglugerðin fellur ekki vel að markmiðum laga 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og er ekki vel til þess fallin að ná þeim markmiðum sem finna má í 8.gr.a í reglugerð 303/2008 um úrvinnslu ökutækja. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R0606 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/606, 4.7.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2025)1674 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32023R1542 | based on, completes | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32023R1542 | Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
