Framkvæmdarreglugerð um framsetningu sönnunargagna vegna áhrifa loftslagsbreytinga og arfleifðaráhrifa fyrri landnýtingar á lífrænum jarðvegi samkvæmt LULUCF. - 32025R2043
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2043 of 10 October 2025 on the structure, technical details and process for submitting evidence about the impact of climate change and the legacy effects on organic soils pursuant to Regulation (EU) 2018/841 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Landnotkunarsveigjanleiki (e. Land Use Mechanism) samkvæmt gr. 13b reglugerðar (ESB) 2018/841 með breytingum skv. reglugerð (ESB) 2023/839 felur í sér þrepaskipt úrræði sem ríkjum er heimilt að nýta þegar þau uppfylla ekki skuldbindingar sínar samkvæmt markmiðum í LULUCF-geiranum á tímabilinu 2026–2030:Í fyrsta þrepi er heimilt að nýta allt að 50% af hámarksmagni sveigjanleikaheimildana samkvæmt VII. viðauka reglugerðarinnar (gr.13b.2-4)Að uppfylltum nánari skilyrðum er í öðru þrepi unnt að fá viðbótarheimild vegna áhrifa náttúrulegra raskana (e. natural disturbances), að því marki sem ónýttar heimildir annarra ríkja eru tiltækar fyrir tímabilið 2026–2030 (gr.13b.5)Í þriðja þrepi er unnt að fá frekari viðbótarheimild vegna langtímaáhrifa loftslagsbreytinga eða arfleifðaráhrifa fyrri landnýtingar á lífrænum jarðvegi, að því marki sem ónýttar heimildir eru tiltækar fyrir tímabilið 2021–2030, þó að hámarki 50 milljónir tonna CO₂-ígilda fyrir sambandið í heild, og að því gefnu að tilgreind sveigjanleikaúrræði hafi verið fullnýtt og önnur skilyrði 6. mgr. gr. 13b séu uppfyllt.Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/2043 varðar þriðja þrep hér að ofan og kveður á um samræmda uppbyggingu, tæknilegar kröfur og ferli við framlagningu gagna sem sýna annað hvort: (i) langtímaáhrif loftslagsbreytinga sem leiða til umframlosunar eða minnkandi kolefnisbindingar sem aðildarríkið ræður ekki við (2.gr); eða (ii) áhrif þess að hlutfall lífræns jarðvegs á stýrðu landi sé óvenjulega hátt miðað við meðaltal ESB, sem leiðir til umframlosunar (3.gr). Ríki sem hyggjast nýta sér þessar viðbótarheimildir verða að tilkynna það til Framkvæmdarstjórnar ESB eigi síðar en 30. nóvember 2026 (gr. 5.1 í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2043). Breytingarreglugerð (ESB) 2023/839 sem innleiddi ofangreindan landnotkunarsveigjanleika hefur ekki verið formlega felld inn í EES samninginn og þarf því að gæta þess að þessi dagsetning verði aðlöguð eftir þörfum þegar reglugerðin verður tekin upp í EES samninginn.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin er sett með stoð í gr. 13b(10) LULUCF-reglugerðarinnar ((ESB) 2018/841) með breytingum skv. reglugerð (ESB) 2023/839. Hún skilgreinir hvaða upplýsingar aðildarríki þurfa að leggja fram ef þau hyggjast nýta landnotkunarsveigjanleika skv. gr.13b(6) til að sýna fram á:að aukin losun eða samdráttur í bindingu kolefnis sé afleiðing langtímaáhrifa loftslagsbreytinga sem eru utan stjórnunar ríkisins,að áhrifin teljist ekki náttúruhamfarir samkvæmt öðrum ákvæðum LULUCF-regluverksins,eða að um sé að ræða varanleg áhrif fyrri landnýtingar á svæðum með hátt hlutfall lífræns jarðvegs.Við mat á langtímaáhrifum loftslagsbreytinga er einkum byggt á þurrkstuðli (e. aridity index), en heimilt er að nota aðra stuðla að því gefnu að notkun þeirra sé rökstudd og sýnt sé fram á tengsl loftslagsbreytinga við skerta getu viðkomandi svæðis til kolefnisbindingar. Jafnframt eru sett viðmið og kröfur um sönnunargögn vegna arfleifðaráhrifa á lífrænan jarðveg í ríkjum þar sem hlutfall slíks jarðvegs á nytjalandi telst óvenjuhátt.Þau ríki sem sækjast eftir því að nýta sveigjanleikaúrræðin þurfa þar að auki að sýna fram á að gripið hafi verið til aðgerða til að bæta loftslagsárangur (e. climate performance) á þessum svæðum, þ.e. að draga úr losun eða auka bindingu gróðurhúsalofttegunda (e. climate mitigation) og auka þanþol (e. resilience) þeirra gagnvart loftslagsbreytingum. Á meðal aðgerða ættu að vera sjálfbær landnýting og stýring á vatnshæð eða sambærilegar aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum.Ríki sem hyggjast nýta viðbótarheimild skulu senda framkvæmdastjórninni beiðni þar að lútandi eigi síðar en 30. nóvember 2026, ásamt viðeigandi gögnum samkvæmt 2. eða 3. gr. reglugerðar. Framkvæmdastjórnin skal tilkynna niðurstöðu yfirferðar innan þriggja mánaða frá móttöku fullnægjandi beiðni. Að lokinni yfirferð skulu viðkomandi ríki leggja fram frekari sönnunargögn samkvæmt 4. gr. eigi síðar en 15. janúar 2032. Frá og með 31. maí 2027 skulu þau jafnframt árlega uppfæra tiltekin gögn um framvindu aðgerða til að auka kolefnisbindingu og viðnámsþrótt gagnvart loftslagsbreytingum.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Óvíst á þessu stigi. Líklegt er að innleiðing fari fram með breytingu á reglugerðum sem gilda um framkvæmd EES-reglna um loftslagsmál og LULUCF-bókhald. Meta þarf nánar við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Nauðsynlegt er að ljúka innleiðingu á breytingarreglugerð (ESB) 2023/839 því hún er grundvöllurinn að innleiðingu reglugerðarinnar sem um ræðir, (ESB) 2025/2043. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Land og skógur |
| Niðurstöður samráðs | Land og skógur hefur yfirfarið greininguna, bætt við nauðsynlegum upplýsingum og tryggt að allar staðreyndir sem snúa beint að LULUCF-hluta losunarbókhaldsins séu réttar. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Kostnaður myndi líklega aðallega falla á Land og Skóg, með mögulegri aðkomu starfsfólks Umhverfis- og orkustofnunar að skýrslugerð og gagnaskilum. Það er þó ekki gert ráð fyrir verulegum aukakostnaði vegna þessarar vinnu. Land og skógur er nú þegar að safna gögnum og stunda rannsóknir og vöktun vegna loftslagsbókhaldsins sem myndi nýtast við þessa vinnu. Aukin kostnaður væri því aðallega vegna aukinnar úrvinnslu og hugsanlega einstakra rannsókna. Sveigjanleikaúrræðin sem reglugerðin innleiðir gætu hins vegar dregið úr kostnaði vegna umframlosunar sem yrði annars að greiða fyrir með kaupum á einingum frá öðrum ríkjum. Það fer þó eftir því hvort Ísland muni þurfa á þeim einingum að halda, hvort Ísland uppfylli skilyrði reglugerðarinnar og hvort losunarúthlutanir verði í boði fyrir þessi tilteknu sveigjanleikaúrræði (fyrri þrep ganga fyrir, sjá útdrátt reglugerðar hér fyrir ofan). |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Umrædd reglugerð (ESB) 2025/2043 skilgreinir nánar hvernig ríki geta sótt um sveigjanleikaúrræði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum ef þau standast ekki skuldbindingar sínar á uppgjörstímabilinu 2026-2030. Ekki er ljóst hvort Ísland muni standast skuldbindingar sínar á því uppgjörstímabili en það veltur m.a. á árangri aðgerða og hvert markmið Íslands verður skv. Reglugerð (ESB) 2023/839 (sem verður háð því hvort Other land (jöklar, auðnir) verði hluti af okkar skuldbindingum). Það er því Íslandi í hag að eiga þess kost að nýta sér sveigjanleikaúrræði ef nokkrar líkur eru taldar á því að Ísland geti uppfyllt skilyrðin. Reglugerðin býður upp á tvenns konar sveigjanleikaúrræði: A. Þar sem langtíma afleiðingar loftslagsbreytingar valda aukningu í losun eða þverrandi bindingu sem ríkið hefur enga stjórn á. B. Þar sem gætir áhrifa af arfleifð fyrri landnýtingar í ríkjum með sérstaklega hátt hlutfall af lífrænum jarðvegi Varðandi sveigjanleikaúrræði A, þá virðist það eiga fyrst og fremst við ríki sem eru að þorna upp vegna langtímaáhrifa loftslagsbreytinga. Til að ákvarða hvort ríki uppfylli skilyrðin er stuðst við þurrkstuðul en heimilt er að styðjast við aðra vísa ef sýnt er fram á tengingu milli langtímaafleiðinga loftslagsbreytinga og aukningar í losun eða þverrandi bindingu. Nýlegar rannsóknir (Guðmundsson o.fl., 2026) sýna að losun frá framræstum óræktuðum votlendum er verulega háð hitastigi, sérstaklega jarðvegshita. Um er að ræða stærsta einstaka losunarþáttinn í losunarbókhaldi Íslands og því gæti hnattræn hlýnun orðið ráðandi þáttur í því hvernig losun Íslands þróast. Unnið er að því að draga úr þessari losun með endurheimt votlendis en aðeins er raunhæft að endurheimta hluta af því votlendi sem hefur verið ræst fram. Því munu langtímaafleiðingar loftslagsbreytinga valda aukningu í losun á Íslandi sem Ísland hefur litla sem enga stjórn á. Ísland ætti því að geta sótt um sveigjanleikaúrræði A þannig komið verði til móts við Ísland í þessu. Varðandi sveigjanleikaúrræði B, þá er því lýst í reglugerðinni hvað telst vera sérstaklega hátt hlutfall lífræns jarðvegs af stýrðu landi. Nánar tiltekið þar sem lífrænn jarðvegur sem hlutfall af stýrðu landi er jafn eða hærri en 85. hundraðshluti tíðnidreifingar fyrir slíkt hlutfall hjá öllum aðildarríkjunum. Þegar hlutfallið er reiknað er ekki skýrt (í reglugerðinni) hvort reikna eigi með heildarflatarmáli lífræns jarðvegs eða aðeins flatarmáli stýrðs lífræns jarðvegs. i) Sé heildarflatarmál lífræns jarðvegs deilt með flatarmáli stýrðs lands fæst hlutfallið 15,10%, sem setur Ísland í 85. hundraðshluta meðal aðildarríkja (m.v. skil á losunarbókhaldi 2024). ii) Sé flatarmál stýrðs lífræns jarðvegs deilt með flatarmáli stýrðs lands fæst hlutfallið 8,99%, sem setur Ísland í 78. hundraðshluta meðal aðildarríkja (m.v. skil á losunarbókhaldi 2024). Það fer því eftir túlkun á reglugerðinni hvort Ísland eigi rétt á nýtingu sveigjanleikaúrræðis B, þar sem Ísland er öðru hvoru megin við mörkin. Það er í hag Íslands að túlkun (i) sé notuð, því þá uppfyllir Ísland aðalskilyrðið fyrir úrræðinu og verður því mikilvægt að kanna hvernig útreikningar myndu verða framkvæmdir fyrir Ísland við upptöku reglugerðarinnar. Um er að ræða umtalsverða fjármuni sem Ísland gæti sparað sér í kaupum á kolefniseiningum ef Ísland verður í þeirri stöðu að þurfa að nýta sér sveigjanleikaúrræði A eða B og getur nýtt sér þau. Það eru því hagsmunir Íslands að innleiða þessa reglugerð og sækja um sveigjanleikaúrræðin. Það er þó vert að ítreka að hvort sveigjanleikaúrræði A/B verði yfir höfuð í boði mun vera háð því hvernig ESB og EES ríkjum gangi að ná LULUCF skuldbindingunum sínum, og hversu mikið af heimildum tengdum landnotkunarsveigjanleika verða notaðar skv. gr. 13b.4 og 13b.5. Ef ákveðið verður að Ísland þurfi á þessum sveigjanleika að halda gætu eftirfarandi þættir skapað aukna vinnu fyrir LULUCF sérfræðinga hjá Land og skógi: • auknar kröfur um rekjanleika gagna, • aukin þörf fyrir langtímaraðir loftslags- og landnotkunargagna, • möguleg þróun aðferða við rakningu breytinga í kolefnisupptöku, • aukin skjalfesting í landsskýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda (NID), • möguleg þörf á frekari óvissugreiningum og QA/QC-ferlum. Jafnframt mun Ísland þurfa að uppfæra árlega tiltekin gögn um framvindu aðgerða til að auka kolefnisbindingu og viðnámsþrótt gagnvart loftslagsbreytingum. Einnig þarf að athuga hvernig tímalína innleiðingar á þessari reglugerð verður, sér í lagi m.t.t. dagsetningar um fyrstu beiðni um nýtingu á viðbótarheimild sem skv. reglugerð þessari þarf að berast til Framkvæmdarstjórnar eigi siðar en 30. nóvember 2026. Þar sem tímalínan á innleiðingum allra LULUCF-tengdra reglugerða er óljós þarf að tryggja að nægur tími gefist til að safna þeim gögnum sem þarf, ef talið er æskilegt að þessi þáttur landnýtingarsveigjanleika verði mikilvægur fyrir Ísland. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R2043 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2043, 13.10.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32018R0841 | based on | Regulation (EU) 2018/841 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on the inclusion of greenhouse gas emissions and removals from land use, land use change and forestry in the 2030 climate and energy framework, and amending Regulation (EU) No 525/2013 and Decision No 529/2013/EU | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
