Málsmeðferðarreglur um sameiginlegt klínískt mat lækningatækja - 32025R2086

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2086 of 17 October 2025 laying down, pursuant to Regulation (EU) 2021/2282 on health technology assessment, procedural rules for the interaction during, exchange of information on, and participation in, the preparation and update of joint clinical assessments of medical devices and in vitro diagnostic medical devices at Union level, as well as templates for those joint clinical assessments


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2086 frá 17. október 2025 um að mæla fyrir um, samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/2282 um mat á heilbrigðistækni, reglur um málsmeðferð við samspil varðandi, upplýsingaskipti um og þátttöku í að taka saman og uppfæra sameiginleg klínísk möt á lækningatækjum og lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi á vettvangi Sambandsins sem og um snið fyrir þessi sameiginlegu klínísku möt
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.13 Lyf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 131/2026
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2025/2086 setur ítarlegar málsmeðferðarreglur um framkvæmd sameiginlegs klíníks mats (joint clinical assessment – JCA) á lækningatækjum og lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi. Markmið gerðarinnar er að tryggja samræmda, gagnsæja og skilvirka framkvæmd sameiginlegs klíníks mats, forðast tvíverknað milli aðildarríkja og tryggja að mat hefjist tímanlega í kjölfar vottunar tækis samkvæmt reglugerðum um lækningatæki, (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin kveður á um ítarlegar verklagsreglur um sameiginlegt klínískt mat, að því er varðar: (a) samvinnu Samræmingarhóps aðildarríkjanna um mat á heilbrigðistækni, (e. Coordination Group) og framkvæmdastjórnar ESB sem gegnir hlutverki ritara Samræmingarhópsins (e. HTA secretariat) við tilkynnta aðila (e. notified bodies) sem tilnefndir eru í samræmi við reglugerð (ESB) 2017/745 eða reglugerð (ESB) 2017/746 og við sérfræðingahópa sem tilnefndir eru í samræmi við 106. gr. (1) reglugerðar (ESB) 2017/745 í formi upplýsingaskipta að því er varðar undirbúning og uppfærslu sameiginlegra klínískra mata, (b) samskipti, þar með talið tímasetning þeirra, við og milli Samræmingarhópsins, undirhópa hans og þróunaraðila heilbrigðistækni, sjúklinga, klínískra sérfræðinga og annarra viðeigandi sérfræðinga við sameiginleg klínísk mat og uppfærslur á þeim,(c) almennar verklagsreglur um val og samráð hagsmunaaðila og einstakra sérfræðinga í sameiginlegum klínískum mötum,(d) snið og sniðmát fyrir skjöl með upplýsingum, gögnum, greiningum og öðrum sönnunargögnum sem þróunaraðilar heilbrigðistækni skulu leggja fram fyrir sameiginleg klínísk mat, og(e) snið og sniðmát fyrir sameiginlegar klínískar matsskýrslur og samantektarskýrslur.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Verður innleidd með reglugerð með stoð í 59. gr. lyfjalaga nr. 100/2020.
Innleidd í rgl. 1090/2025, sbr. https://island.is/stjornartidindi/nr/1ed869fc-3c5b-4e88-afbc-97e61108b477
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Heilbrigðisráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2086
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2086, 20.10.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D109605/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 48, 23.7.2026, p. 40
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1486, 23.7.2026

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Flokkun (Classifications)