32025R2203
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2203 of 31 October 2025 amending Implementing Regulation (EU) 2023/564 as regards the transfer into electronic format of the records of plant protection products kept by professional users
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er verið að breyta 3. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2023/564.
Reglugerðin tók gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandins.
Reglugerðin tók gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandins.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð (ESB) nr. 2023/564 setur fram reglur um innihald og framsetningu fyrir skrár fyrir plöntuverndarvörur sem notaðar eru í atvinnuskyni skv. 1. mgr. 67. gr. í reglugerð (EB) nr. 1107/2009. Vakin er athygli á því að innleiðing reglugerðar (ESB) nr. 2023/564 er ekki hafin. Samanber 3. gr. reglugerðar (ESB) nr. 2023/564 ber að koma gögnum um notkun plöntuverndarvara í atvinnuskyni, sem ekki eru upphaflega til á rafrænu formi, á rafrænt form ekki síðar en 30 dögum eftir hverja notkun plöntuverndarvara. Áformað var að þetta ákvæði tæki gildi í ESB 1. janúar 2026. Þar sem fyrirséð er að nokkur aðildarríki þurfa lengri aðlögunartíma til að uppfylla þetta ákvæði hefur verið ákveðið að fresta gildistöku þess til 1. janúar 2027.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Innleiðing reglugerðarinnar hefur í sjálfu sér engin áhrif. Hins vegar hefur innleiðing reglugerðar (ESB) nr. 2023/564 áhrif og vísast til greiningar þeirrar gerðar til nánari lýsingar á mati af áhrifum innleiðingar hennar. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R2203 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2203, 3.11.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D109981/02 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32023R0564 | amends | Commission Implementing Regulation (EU) 2023/564 of 10 March 2023 as regards the content and format of the records of plant protection products kept by professional users pursuant to Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32009R1107 | based on | Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and the Council of 21 October 2009 concerning the placing of plant protection products on the market and repealing Council Directives 79/117/EEC and 91/414/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
