Framseld reglugerð ESB 2025/2551 um skilyrði fyrir vottun og faggildingu fyrir aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis. - 32025R2551

Commission Delegated Regulation (EU) 2025/2551 of 20 November 2025 supplementing Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council by specifying the conditions for granting accreditation to verifiers, for the control and oversight of accredited verifiers, for the withdrawal of accreditation and for mutual recognition and peer evaluation of accreditation bodies


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð sú sem hér er til greiningar fjallar um faggildingu vottunaraðila sem votta innbyggða losun frá starfsemi sem fellur undir reglugerð ESB 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM).Tilgreind eru skilyrði fyrir veitingu faggildingar til vottunaraðila, fyrir eftirlit með faggildum vottunaraðilum, hvaða kröfur þarf að uppfylla til að hægt sé að fá faggildingu sem og afturköllun faggildingar. Einnig koma fram reglur um gagnkvæma viðurkenningu og jafningjamat á faggildingastofum aðildarríkja (e. National accrediation body (NAB), hér eftir faggildingastofa).  Með reglugerðinni er tryggt samræmi milli krafa sem gerðar eru til faggildingar og vottunar í CBAM kerfinu og viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS kerfið).  Vottunaraðilar sem eru með faggildingu fyrir vottun í ETS kerfinu ættu að geta sótt um útvíkkun gildissvið faggildingar sinnar til að sinna samsvarandi CBAM vottun. Reglur um framlagningu á umsókn um faggildingu eru lagðar fram til að tryggja skilvirkt umóknarferli. Vottunaraðilar í þriðju löndum geta til að mynda sótt um faggildingu hjá hvaða faggildingastofu sem er hjá aðildarríkjunum. Að öðru leiti skulu vottunaraðilar sækja um í því aðildarríki sem þeir eru búsettir í, að því gefnu að til staðar sé í ríkinu faggildingastofa aðildarríkis sem hefur hæfni til þess að gefa út viðeigandi faggildingu skv. reglugerð þessari. Einnig skulu faggildingarstofur inna af hendi eftirlitsstarfsemi og þar með geta afturkallað, fellt niður eða dregið úr gildissviði faggildingar ef framkvæmd vottana er ekki skv. reglugerðum.  Þau aðildarríki sem eru ekki með faggilda vottunaraðila fyrir CBAM (sem mun líklega eiga við um Ísland) skulu tilkynna allar kvartanir sem berast varðandi vottunaraðila til viðeigandi faggildingastofu í gegnum CBAM skráningakerfið.  

Nánari efnisumfjöllun

Kröfur eru settar fram í gerðinni um hæfni og þekkingu vottunaraðila og þá starfsemi sem þeir geta vottað til að tryggja að einungis vottunaraðilar sem geta vottað innbyggða losun í samræmi við reglugerð 2023/956 fái viðkomandi faggildingu. Faggildingarstofur skulu sjá til þess að vottunaraðilar sem sækja um faggildingu fyrir vottun á starfsemi sem fellur undir CBAM uppfylli þær hæfnikröfur sem settar eru fram í viðauka II og framkvæmi vottanir í samræmi við þessa reglugerð, reglugerð ESB 2023/956 og 2025/2546.  Aðilar sem sækja um faggildingu til vottunar skulu sækja um til þess aðildarríkis sem þeir hafa starfsemi í. Fram koma undanþágur þar á en einnig má sækja til annars aðildarríkis ef aðildaríki vottunaraðila hefur ekki komið á fót faggildingastofu, ef faggildingastofnun ríkisins hefur ekki hæfni til þess að gefa út faggildinguna eða ef hún hefur ekki gengist undir jafningjamat með góðum árangri. Einnig geta vottunaraðilar frá ríkjum utan löggjafar aðildarríkis ESB sótt um faggildingu hjá fagildingastofum í aðildarríkjum ESB.  Vottunaraðilar með faggildingu skv. reglugerð ESB 2018/2067 um vottun og faggildingu vegna vottana starfsstöðva í ETS kerfinu geta beðið um framlengingu á faggildingunni svo hún nái yfir CBAM starfsemi. Settar eru fram reglur um hvað faggildingastofa aðildarríkis þarf að framkvæma í faggildingarferlinu, hvenær skal gefa út faggildingaskírteini, innihald þess og gildistími sem og reglur um endurnýjun faggildingarinnar, útvíkkun gildissviðs þess og endurmat vegna framlengingar á faggildingunni.  Í ákveðnum tilfellum getur faggildingastofa fellt niður, afturkallað eða minnkað umfang faggildingar ef í ljós kemur að vottunaraðili uppfylli ekki þær kröfur sem koma fram í þessari reglugerð, reglugerð ESB 2023/956 eða ESB 2025/2546. Lagðar eru fram reglur fyrir faggildingarstofur er varða upplýsingargjöf, trúnað og þagnaskyldu. Faggildingarstofur skulu gera viðeigandi ráðstafanir varðandi trúnaðarupplýsingar sem fram koma við matsstarfsemi en faggildingarnar sjálfar skulu þó gerðar opinberar. Upplýsingar sem fram koma í losunarskýrslum og vottunarskýrslum í matsferli eiga að falla undir þagnaskyldu faggildingastofa. Faggildingastofur skulu senda allar fyrirhugaðar vottanir til viðeigandi lögbærs yfirvalds sem og niðurstöður eftirlits með starfseminni. Lögbært yfirvald skal deila þessum upplýsingum með Framkvæmdastjórn ESB og öðrum lögbærum stjórnvöldum í gegnum CBAM skráningarkerfið. Einnig skal lögbært yfirvald deila upplýsingum vegna yfirferðar á vottunarskýrslum með viðeigandi faggildingastofnun. Faggildingarstofa aðildarríkis skal framkvæma árlegt eftirlit með þeim vottunaraðilum sem hún hefur gefið faggildingu til og eru reglur um framkvæmd eftirlitsins settar fram. Einnig skal faggildingarstofa sinna kvörtunum vegna vinnu vottunaraðila eftir ákveðnu ferli sem sett er fram í reglugerðinni.  Aðildarríkin skulu sjá til þess gott flæði upplýsinga og samstarf sé á milli þeirra, faggildingastofa og lögbærs stjórnvalds og framkvæmdarstjórnar ESB. Lögbært stjórnvald skal til að mynda ekki sjaldnar en árlega upplýsa faggildingarstofu aðildarríkis síns um viðeigandi niðurstöður, brot vottunaraðila á reglufylgni og kvartanir vegna yfirferða á losunarskýrslum og vottunarskýrslum.  Til þessa skal nota rafrænt sniðmát gefið út af framkvæmdastjórn ESB.   Aðildarríkin og lögbært yfirvald skulu viðurkenna jafngildi þjónustu sem veitt er af faggildingastofu sem hafa gengist undir jafningjamat en faggildarstofur skulu reglulega gangast undir slíkt mat. Niðurstöður matsins skulu birtar opinberlega. Hægt er að sækja um undanþágur fyrir jafningjamati að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.  Aðildarríkin skulu sinna eftirliti með faggildingarstofum síns ríkis til að tryggja að þær uppfylli kröfur settar fram í reglugerð þessari og er faggildingastofum skylt að hætta starfsemi í tengslum við reglugerð þessa ef útkoma jafningjamats er talin ófullnægjandi þar til bætt hefur verið úr vanköntum.   Viðauki I – Umfang faggildingar Viðauki I inniheldur töflu með CBAM starfssviðshópum / virkinihópum (e. Activity groups.), hvaða starfsemi hver CBAM hópur tilheyrir og hver samsvarandi starfssviðshópur er í ETS kerfinu skv. Reglugerð ESB 2018/2067 um vottun og faggildingu.   Viðauki II - Kröfur vottunaraðila Viðauki II inniheldur upptalningu á þeim kröfum og þeirri þekkingu sem vottunaraðilar þurfa að geta uppfyllt til að geta fengið faggildingu skv. reglugerð þessari. Einnig er þar að finna reglur um hvernig vottunarferlið skal fara fram, samskipti og gagnasöfnun, hlutleysi, áhættugreining, vottunaráætlun, gagnavottun, aðferðarfræði vöktunar, vottunarskýrslur, sýnataka, heimsóknir á starfsstöð og fleira skuli háttað. Faggildingarstofan skal tryggja að vottunaraðili geti framkvæmt vottun skv. þeim kröfum sem settar eru fram í viðaukanum. Reglugerðin öðlast gildi á þriðja degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum ESB. Reglugerðin gildir frá og með 1. Janúar 2026, reglugerðin er bindandi í heild sinni og gildir án frekari löggildingar í öllum aðildarríkjum.     

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin er tengd aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM) enn það stendur að setja lög í sambandi við kerfið.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2551
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2551, 22.12.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)7845
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R0956 based on, completes Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi