CBAM-reglugerðin - 32023R0956
Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 287/2026 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2023/956 um að koma á fót kerfi um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (hér eftir „reglugerðin“) snýr að því að setja á laggirnar kerfi um kolefnisaðlögunargjald vegna innflutnings á vörum inn á tollsvæði ESB. Evrópusambandið hefur lagt fram aðgerðapakka sem nefnist “fit for 55”. Kerfið um kolefnisjöfnunargjald við landamæri (e. Carbon Border Adjustment Mechanism eða „CBAM“) á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með gjaldi sem byggir á kolefnislosun vöru eða framleiðslu. Í stuttu máli þá mun CBAM sjá til þess að innflutningur beri álíka kostnað af losun kolefnis og framleiðsla innanlands. Með því móti fyrirbyggir CBAM kolefnisleka en það er þegar rekstraraðilar færa starfsemi sína þangað sem regluverk er minna til þess að komast hjá kolefnisálögum eða þegar vörur með stærra kolefnisspor koma í staðinn fyrir vörur sem bera kolefnisálögur.
Nánari efnisumfjöllun
Evrópusambandið hefur lagt línurnar um græn umskipti líkt og Parísarsáttmálin kveður á um. Þær felast í 55% samdrætti á losun kolefnis fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. CBAM er ein af mörgum leiðum Evrópusambandsins í þeirri vegferð. Reglugerðin er í raun kolefnisjöfnunargjald sem mun ná þvert yfir landamæri og mun framan af virka samhliða viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (hér eftir „ETS“). Kerfið mun jafnframt vinna í samræmi við samþykktir alþjóðlegu viðskiptastofnunarinnar (e. World Trade Organization). Markmiðið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með skattlagningu sem byggir á kolefnislosun vöru og/eða framleiðslu þvert á landamæri. Þá mun CBAM sjá til þess að innflutningur beri álíka kostnað af losun kolefnis og framleiðsla innanlands. Með því móti fyrirbyggir CBAM kolefnisleka en það er þegar rekstraraðilar færa starfsemi sína þangað sem regluverk er minna til þess að komast hjá kolefnisálögum eða þegar vörur með stærra kolefnisspor koma í staðinn fyrir vörur sem bera kolefnisálögur heima fyrir. Lagt er upp með að rekstraraðilar sjái að miklu leyti um framkvæmd CBAM kerfisins og að kolefnisinnihald vöru og framleiðslu verði höfuðáherslan í kerfinu frekar en losun einstakra einstakra ríkja. Innflutningsaðilar kaupa kolefnisskírteini og verð þeirra mun samsvara þeim kolefnisálögum sem leggjast á framleiðendur heima fyrir. Verð kolefnisskírteinanna mun byggja á vikulegu meðaluppboðsverði ETS heimilda. Innflutningaraðilar gefa upp innflutt magn varnings og undirliggjandi kolefnislosun og því næst gefa þeir frá sér kolefnisskírteini sem því nemur. Rekstraraðilar sem flytja inn vörur er falla undir CBAM munu fá upplýsingar um undirliggjandi kolefnislosun varningsins hjá framleiðendum. Ef upplýsingarnar vantar geta þeir notast við uppgefin gildi (e. default values) frá Evrópusambandinu til þess að reikna út þann fjölda CBAM skírteina sem þeir þurfa að kaupa. Ef rekstraraðili utan ESB sýnir fram á að hann hafi greitt álögur fyrir losun kolefnis í heimalandi sínu er hægt að draga þann kostnað frá CBAM skattinum. CBAM mun þannig stuðla að minni kolefnisleka og grænni framleiðsluferlum hjá rekstraraðilum sem selja vörur innan ESB og EES. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar mun CBAM virka samhliða ETS með því að beita samsvarandi reglum um innflutning á tollsvæði Sambandsins á þeim vörum sem getið er um í 2. gr. reglugerðarinnar. Þá kemur einnig fram í 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar að CBAM eigi að taka við af núgildandi ráðstöfunum ETS kerfisins um kolefnisleka og úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda í samræmi við 10. gr. a. tilskipunar (ESB) 2003/87/EB (hér eftir „ETS tilskipunin“). Fyrsti fasi CBAM hefst 1. október 2023 og mun enda í lok árs 2025, sbr. 32. gr. reglugerðarinnar. Á því stigi verður eftirliti og reglum kerfisins komið í framkvæmd. Áætlað er að CBAM kerfið verði komið að fullu til framkvæmda árið 2026 og á að koma í staðinn fyrir endurgjaldslausar losunarheimildir sem úthlutað er innan viðskiptakerfisins. Í fyrstu verður megináhersla lögð á iðnað þar sem er meiri hætta á kolefnisleka og kolefnislosun er hvað mest. Heyra þar eftirfarandi geirar undir: Sement, járn og stál, ál, áburður, vetni og rafmagn, sbr. 1. mgr. 2. gr. Þá mun kerfið ná utan um beina kolefnislosun í framleiðsluferlum og óbeina kolefnislosun sem kemur fram í viðauka I í reglugerðinni. Viðbúið er að framkvæmdar verði fleiri rannsóknir til að ná betur utan um óbeina kolefnislosun þegar kerfið er komið á. Umfang og gildissvið CBAM kerfisins Reglugerðin nær til vara í þriðja landi sem útlistaðar eru í viðauka I og eru fluttar inn á tollasvæði ESB. Þetta gildir um vörur og aðföng sem koma til í framleiðsluferlum sbr. grein 256 í reglugerð 952/2013. Sú reglugerð hefur ekki verið innleidd í EES-samninginn. Þetta gildir um vörur sem eru fluttar inn á tollasvæði ESB, sbr. 1. mgr. 2. gr. Reglugerðarinnar. Í 3. mgr. 2. gr. eru tilgreindar vörur sem eru undanþegnar gildissviði CBAM reglugerðarinnar. Þær eru: Vörur í viðauka I sem eru fluttar inn á tollasvæði ESB geta verið undanskildar ef virði vörunnar í hverri sendingu er minna en útlistað er í 23. grein reglugerðar (ESB) nr. 1186/2009.Vörur í farangri fólks sem kemur frá þriðja landi utan tollasvæðis ESB gegn því að verðmæti vörunnar sé nógu lítið sbr. 23 grein reglugerðar (ESB) nr. 1186/2009.Vörur sem eru ætlaðar eða tengjast hernaði á einhvern hátt sbr. 23 grein í reglugerðar (ESB) 1186/2009. CBAM reglugerðin nær ekki til vara frá þriðju löndum og svæða sem útlistuð eru í viðauka III, sbr. 4. mgr. 2. gr. Þriðju ríki eða svæði þurfa þó að uppfylla eftirfarandi skilyrði til þess að falla undir viðauka III: Landið eða svæðið fellur undir ETS kerfið eða það er til samningur sem tengir losunarkerfi landsins eða svæðisins við ETS kerfið. Það er greitt kolefnisgjald í upprunalandi vörunnar sem nær utan um undirliggjandi losun gróðurhúsalofttegunda án nokkurrar endurgreiðslu umfram það sem hefði viðgengist í ETS kerfinu. Ef þriðja land eða svæði með raforkumarkað sem er samofinn innri markaði ESB með rafmagn, og engin hagnýt lausn er til staðar til að koma rafmagni þaðan inn á tollasvæði ESB, má undanskilja landið eða svæðið frá CBAM reglum er varða raforkumarkað. Framkvæmdastjórnin skal meta hvort þriðju ríki eða yfirráðasvæði sem hér heyra undir, uppfylli skilyrði þess efnis í 7. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar. Framkvæmdarstjórn hefur völd til þess að fjarlægja eða bæta við landi eða svæði á lista í viðauka III, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sbr. 6., 7. og 9. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar. Réttindi og skyldur CBAM framteljenda Vörur skulu einungis fluttar inn á tollasvæði Sambandsins af viðurkenndum CBAM tilkynnanda, sbr. 4. gr. reglugerðarinnar. Þá þurfa allir innflutningsaðilar í aðildarríkjum ESB sem flytja vörur inn á tollasvæði ESB að sækja um CBAM skírteini, sbr. 1. mgr. 5. gr. Í sömu grein kemur jafnframt fram að innflutningsaðili þarf að skipa óháðan (e. indirect) tollafulltrúa líkt og er útlistað í 18. grein reglugerðar (ESB) 952/2013, en líkt og rakið er hér að framan er sú reglugerð ekki innleidd í EES-samninginn. Ef innflutningsaðili er ekki í aðildarríki ESB þarf hann að skipa óháðan tollafulltrúa sem sækir um vottun fyrir starfsemina. Öll faggilding fer í gegnum CBAM skráningarkerfið. Framkvæmdastjórn getur innleitt reglur er snúa að samskiptum milli tilkynnanda (e. CBAM declarant), lögbærs stjórnvalds og framkvæmdastjórnar. CBAM skírteini Frá 31. maí 2027 þurfa tilkynnendur (e. CBAM declarant) að nota CBAM skráningarkerfið og skila inn skírteinum fyrir árið undangengið almanaksár, sbr. 1. mgr. 6. gr. 2. mgr. sama ákvæðis kemur jafnframt fram að CBAM gagnaskil þurfi að innihalda eftirfarandi upplýsingar: Heildarmagn af hverri vöru á hverju almanaksári niður á megavattstund af rafmagni og í tonnum fyrir aðrar vörur. Heildar undirliggjandi kolefnislosun, þ.e. óbeina losun, í tonnum kolefnislosunar niður á megavattstund eða í tonnum kolefnislosunar niður á tonn af vöru. Heildarfjöldi CBAM skírteina sem nemur heildar kolefnislosun miðað við hið áðurnefnda eftir að búið er að draga frá kolefnisgjald sem greitt var í upprunalandi vörunnar. Kolefnisverðið í upprunalandinu er frádráttarbært frá fjölda CBAM skírteina.Heildarfjöldi CBAM skírteina sem nemur undirliggjandi kolefnislosun eftir frádrátt frá kolefnisgjaldi í heimalandi. Fjölda CBAM skírteina þarf að laga að úthlutun losunarheimilda ETS kerfisins. Framkvæmdastjórnin mun innleiða útreikningsreglur fyrir aðlögun CBAM skírteina að ETS kerfinu. Útreikningur og vottun kolefnislosunar Í 7. og 8. gr. reglugerðarinnar er að finna ákvæði um útreikning og vottun á kolefnislosun. Þar segir að óbeina kolefnislosun skuli reikna í samræmi við aðferðafræði í viðauka IV. Einungis þarf að reikna beina kolefnislosun fyrir vörur í viðauka II. Undirliggjandi kolefnislosun, að rafmagni frátöldu, þarf að nálgast út frá eiginlegri losun í samræmi við aðferðarfræði í viðauka IV. Þar sem mælingum verður ekki viðkomið þarf að nota uppgefna losunarstuðla (e. default values), sem fram koma í viðauka IV. CBAM tilkynnandi skal einnig halda utan um gögn sem þarf til að reikna undirliggjandi kolefnislosun í samræmi við kröfur í viðauka IV, sbr. 5. mgr. 7. gr. Gögnin eiga að vera nógu ítarleg til að eftirlitsaðilar geti vottað undirliggjandi kolefnislosun og svo að framkvæmdastjórn ESB og lögbært stjórnvald geti yfirfarið og gert upp CBAM skírteinin. CBAM tilkynnandi þarf að sjá til þess að heildar undirliggjandi kolefnislosun sem nemur fjölda CBAM skírteina sé vottuð af fagaðila skv. vottunarstöðlum. Kolefnisgjald greitt í þriðja landi Ef rekstraraðili í þriðja landi hefur í reynd greitt kolefnisgjald í sínu heimalandi fyrir undirliggjandi kolefnislosun getur CBAM tilkynnandi dregið það frá fjölda CBAM skírteina sem rekstraraðilinn myndi að öðru óbreyttu kaupa, sbr. 9. gr. reglugerðarinnar. Þar kemur fram að CBAM tilkynnandi þurfi að halda utan um öll gögn er þetta varðar en gögnin þarf einnig að votta af óháðum þriðja aðila, þ.e. óháðum frá CBAM tilkynnanda og upprunalandi vörunnar. Framkvæmdastjórn ESB hefur völd til að ákvarða framkvæmdina fyrir umbreytingu á árlegu meðalverði kolefnis í frádrátt á fjölda CBAM skírteina og einnig hvernig kolefnisverð sem greitt er í þriðja landi er yfirfært yfir í árlegt meðalgengi evru. Framkvæmdastjórnin ákvarðar enn fremur hæfnikröfur óháðra matsaðila og hvaða gögn þarf til að sanna að kolefnisverð hafi verið greitt í upprunalandi. Skráning rekstraraðila í þriðja landi Samkvæmt 10. gr. reglugerðarinnar skráir framkvæmdastjórn rekstraraðila í þriðja landi að beiðni þeirra inn í CBAM skráningakerfi. Rekstraraðili þarf m.a. gefa upp nafn, heimilisfang, hnit og megin starfsemi fyrirtækisins. Skráning í CBAM kerfinu gildir til fimm ára en rekstraraðili þarf tafarlaust að láta framkvæmdarstjórn vita ef hann þarf að afskrá sig. Rekstraraðili þarf að reikna út undirliggjandi kolefnislosun í samræmi við aðferðir í viðauka VI. Auk þess þarf losunin að vera vottuð af samþykktum vottunaraðila í samræmi við kröfur í viðauka VI. Rekstraraðili þarf að halda utan um gögn á borð við staðfestingarskýrslu og allar þær upplýsingar sem hann þarf til að reikna út undirliggjandi kolefnislosun. Lögbært stjórnvald, framkvæmdastjórnin Í 11. gr. reglugerðarinnar kemur fram að hvert aðildarríki skipar lögbært stjórnvald til að framfylgja ákvæðum reglugerðarinnar. Framkvæmdastjórn skal halda utan um og birta lista um lögbær stjórnvöld innan CBAM kerfisins. Lögbært stjórnvald þarf að deila öllum upplýsingum sem eru nauðsynlegar fyrir framkvæmd CBAM kerfisins með framkvæmdastjórn. Þá segir í 12. gr. að framkvæmdastjórnin skuli aðstoða lögbær stjórnvöld með framkvæmd CBAM kerfisins, stuðla að samstarfi og upplýsingaflæði og gefa út leiðbeiningar sem snúa að stjórnsýslu CBAM kerfisins. Allar upplýsingar sem lögbær stjórnvöld og framkvæmdastjórnin afla skal meðhöndla sem trúnaðarupplýsingar. Upplýsingarnar mega þó fara á milli lögbærs stjórnvalds, framkvæmdastjórnarinnar og/eða Evrópusaksóknara í tengslum við framfylgd CBAM kerfisins, svo og til tollayfirvalda. Framkvæmdastjórnin heldur utan um CBAM skráningarkerfið sem heldur utan CBAM tilkynnendur og öll þau gögn er það varða. Gögnin verða aðgengileg bæði tollayfirvöldum og lögbæru stjórnvaldi í rauntíma. CBAM skráningarkerfi og vottun fagaðila Framkvæmdastjórnin þarf einnig að gera áhættumat á gögnum og færslum í kerfinu til að sjá til þess að ekki sé misræmi í kaupum og sölu á CBAM skírteinum, sbr. 14. gr. reglugerðarinnar. Þegar framkvæmdastjórnin kemur auga á misræmi lætur það lögbært stjórnvald vita tafarlaust svo að hægt sé að laga það. Rekstraraðilar fá CBAM númer og aðgang að eigin reikning í CBAM skráningarkerfinu. Þegar rekstraraðili fær vottað CBAM skírteini, kemur í hlut lögbærs stjórnvalds að færa það inn í CBAM skráningarkerfið. Lögbært stjórnvald þarf einnig að meta umsókn frá rekstraraðila. Til þess að CBAM umsækjandi geti öðlast aðgang að CBAM skráningarkerfinu þarf viðkomandi að uppfylla skilyrðin sem tilgreind eru í 2. mgr. 17. gr. sem eru: a) Rekstraraðili má ekki hafa brotið tollalög, skattalöggjöf, stundað markaðsmisnotkun og má ekki hafa verið á sakaskrá í tengslum við starfsemi fyrirtækisins undangengin 5 ár; b) rekstraraðili þarf að sýna fram á að hann geti staðið undir þeim skyldum sem útlistaðar eru í reglugerð; c) rekstraraðili þarf að vera staðsettur í því aðildarríki sem hann sækir um í; og d) rekstraraðili þarf að vera með EORI númer. Séu þessi skilyrði ekki uppfyllt má lögbært stjórnvald synja rekstraraðila um CBAM leyfi með rökstuðningi og möguleika á áfrýjun, sbr. 3. mgr. 17. gr. Þegar lögbært stjórnvald hefur tekið ákvörðun um að veita rekstraraðila CBAM leyfi er það fært til bókar í skráningarkerfinu ásamt helstu upplýsingum um rekstraraðila. Tryggingin er sem nemur heildarfjölda CBAM skírteina sem rekstraraðilinn mun þurfa að kaupa. Lögbært stjórnvald má endurkalla CBAM leyfið ef rekstraraðili annað hvort mætir ekki þeim kröfum sem í því felast eða biður um afturköllun. Rekstraraðili fær tækifæri til málsvarnar og ráðgjafar ef kröfum er ekki mætt. Vottunaraðilar sem hlotið hafa vottun samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/2067 skulu einnig vera vottaðir í samræmi við kröfur reglugerðarinnar, með vísan í 18. gr. CBAM skírteini Í 19. gr. kemur fram að framkvæmdastjórnin hefur yfirsjón með CBAM skírteina kerfinu og getur yfirfarið skírteini allt að fjórum árum eftir útgáfu. Rekstraraðilar fá reikning í skráningarkerfinu. Framkvæmdastjórn og lögbær stjórnvöld hafa aðgang að skráningarkerfinu. Ef lögbært stjórnvald lítur svo á að rekstraraðili hafi ekki lagt fram réttan fjölda CBAM skírteina getur hann farið fram á rétt magn, með hliðsjón af upplýsingum frá framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórn getur einnig gert athugasemdir við fjölda CBAM skírteina frá rekstraraðila og kemur greiningu um það áleiðis til lögbærs stjórnvalds. Lögbært stjórnvald lætur rekstraraðila vita hvað vantar mörg CBAM skírteini en tilkynningunni fylgir rökstuðningur. Þetta er fært til bókar í skráningarkerfinu. Rekstraraðili fær einn mánuð til að færa fjölda CBAM skírteina til betri vegar. Aðildarríki skulu selja CBAM skírteini á miðlægum vettvangi til vottaðra CBAM tilkynnenda í heimaríki og fær hvert skírteini einkennisnúmer, sbr. 20. gr. reglugerðarinnar. Framkvæmdastjórn og lögbær stjórnvöld hafa aðgang að öllum viðeigandi upplýsingum í CBAM skráningarkerfinu. Verð skírteinanna mun byggja á nýjasta meðallokunarverði ETS heimilda á uppboði, sbr. reglugerð (ESB) 1031/2010. Rekstraraðili getur farið fram á að ríkið þar sem hann keypti skírteinið kaupi þau skírteini til baka sem hann notaði ekki. Ekki er hægt að endurselja meira en þriðjung skírteina á almanaksári. Endursöluverðið er það sama og skírteinishafi borgaði. 1. júlí verða öll skírteini sem voru hvorki notuð né endurseld afskrifuð án greiðslu, sbr. 23. gr. Þá skal framkvæmdastjórnin 1. júlí hvert ár afskrifa þau skírteini í skráningarkerfinu sem tilkynnendur notuðu ekki á síðasta ári. Þetta er gert án greiðslu til CBAM tilkynnenda, sbr. 24. gr. reglugerðarinnar. Reglur um innflutning, viðurlög og undanskot Samkvæmt 25. gr. geta einungis CBAM skírteinishafar flutt inn vörur. Tollayfirvöld hafa eftirlit með innflutningi og koma upplýsingum um er það varðar til framkvæmdastjórnar sem kemur upplýsingunum til lögbærs stjórnvalds. sbr. 1. og 2. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar. Nái rekstraraðili ekki að skila inn CBAM skírteinum fyrir 31. maí sem nemur kolefnisnotkun hans er honum gert að greiða stjórnvaldssekt sem nemur umfram losun líkt og í 3. mgr. 16. gr. ETS tilskipunarinnar. Greiðsla stjórnvaldssektar leysir rekstraraðila ekki undan þeirri skuldbindingu að afhenda útistandandi fjölda CBAM skírteina, sbr. 1. mgr 26. gr í reglugerð. Ákvörðun um stjórnvaldssekt er í höndum lögbærs stjórnvalds og skal m.a. byggja á eðli brotsins, umfangi þess og ásetningi, sbr. 3. mgr. 26. gr. Ef innflutningsaðili sem ekki er með CBAM vottun flytur vörur inn á tollasvæði án þess að fylgja boðum og bönnum reglugerðar er viðbúið að sá hinn sami þurfi að sæta stjórnvaldssektum, sjá 2. mgr 26. greinar í reglugerð. Lögbært stjórnvald skal færa rökstuðning og upphæð sekta til bókar í CBAM skráningarkerfinu, sjá 6. mgr. 26 gr. Framkvæmdastjórn mun kerfisbundið fylgjast með CBAM skráningarkerfinu m.a. til að koma auga á undanskot frá kerfinu. Ef til þess kemur að framkvæmastjórnin líti svo á að undanskot séu að eiga sér stað, t.d. þannig að vörum sé breytt til að komast fram hjá CBAM regluverkinu eða að skipt sé stórum sendingum niður í minni einingar til að nýta þröskuld sem snýr að lágmarksstærð sendinga, sbr. 2. mgr. 27. gr. Aðildarríki eða hver sá sem verður fyrir áhrifum af þeim undanskotum sem koma fram í reglugerðinni geta komið því áleiðis til framkvæmdastjórnarinnar að viðkomandi gögn og/eða tölfræði leiði líkur að undanskotum. Óháðir mega einnig hafa samband við framkvæmdastjórnina hafi þeir gögn sýna mögulega fram á undanskot. Framsal og nefndarstarf Framkvæmdastjórnin hefur heimild til að aðlaga greinar þessarar tilskipunar innan ákveðinna marka. Framkvæmdastjórnin getur t.d. lagt til kröfur og skyldur á herðar þriðju landa og svæða sem hafa verið fjarlægð úr viðauka III til þess að regluverkið nái til raforkumarkaða þar. Enn fremur getur framkvæmdastjórnin gert breytingar á listanum yfir þriðju lönd eða svæði ef það mætir ekki kröfum þessarar reglugerðar. Framkvæmdastjórnin ákveður jafnframt hvaða kröfur eru gerðar til vottunaraðila, hvaða reglur liggja vottun til grundvallar og hefur yfirsýn yfir vottunaraðila. Aðlögun endurgjaldslausra losunarheimilda að CBAM og skyldur tilkynnenda Samkvæmt 31. gr. reglugerðarinnar mun fjöldi CBAM skírteina sem tilkynnendur láta af hendi endurspegla umfang endurgjaldslausra losunarheimilda í ETS kerfinu í samræmi við 10. gr. ETS tilskipunarinnar hvað varðar rekstraraðila sem framleiða vörur og aðföng sem eru útlistaðar í viðauka I í reglugerðinni. Framkvæmdastjórnin getur þó lagt til innleiðingarákvæði sem snúa að aðlögun að endurgjaldslausum CBAM skírteinum, sbr. 2. mgr. sama ákvæðis. Reglurnar byggja á sömu viðmiðum og byggt er á í ETS kerfinu í tengslum við úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila sem framleiða vörur sem tilgreindar eru í viðauka I í þessari reglugerð. Aðlögunartímabil og innleiðing Fyrsti fasi CBAM aðlögunar verður frá 1. október 2023 og fram til desember 2025, sbr. 32. gr. Í fyrsta aðlögunarfasa CBAM kerfisins verður kerfið einfaldara og skyldur innflutningsaðila einskorðaðar við skýrslugjöf og upplýsingagjöf um innflutning á ársfjórðungsfresti til framkvæmdarstjórnarinnar, sbr. 33.-35. gr. reglugerðarinnar. Til ársins 2026 verður því einungis lögð á rekstraraðila, skylda til að skila inn CBAM skýrslu til lögbærs stjórnvalds um hvað var flutt inn. Flest ákvæði reglugerðarinnar munu aftur á móti ekki taka gildi fyrr en 1. janúar 2026, sbr. b-lið 2. mgr. 36. gr. Um er að ræða greinar 2(2), 4, 6, 9, 15, 19, 20(1), 20(3), 20(4) og 20(5) ásamt greinum 21, 27 og 31. Greinar þessar fjalla m.a. um að frá 1. janúar 2026 muni reglugerðin ná til vara sem eru útlistaðar í viðauka 1 og koma frá þriðja landi, einungis vottaðir CBAM tilkynnendur mega flytja vörur inn á tollasvæðið, CBAM skráningarkerfið kemst á laggirnar, ákvæði um kolefnisgjald í þriðja landi kemur til framkvæmda, framkvæmdastjórn hefur áhættumat á gögnum og færslum í CBAM kerfinu og komið verður á eftirliti með CBAM skírteinum. Jafnframt munu aðildarríki byrja að selja CBAM skírteini á miðlægum vettvangi í heimalandi, allar upplýsingar er það varða verða settar inn í CBAM skráningarkerfið, skírteini verða seld CBAM tilkynnendum á verði í samræmi við 21. grein í reglugerð og framkvæmdastjórn sér til þess að öll CBAM skírteini fái einkennisnúmer og gerir ráðstafanir til þess að koma auga á og fyrirbyggja undanskot frá kerfinu. Það kemur í hlut tollayfirvalda að upplýsa innflutningsaðila eða óháðan tollafulltrúa um þær skyldur sem útlistaðar eru í 35. gr. reglugerðarinnar eigi síðar en þegar vörur fara í umferð. Tollayfirvöld munu kerfisbundið koma upplýsingum til framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um innfluttar vörur, og aðföng (e. Processed products from outward processing procedure). Framkvæmdarstjórnin mun kerfisbundið senda lista yfir innflutningsaðila og óháða tollafulltrúa í heimalandi til lögbærs stjórnvalds. Þá mun framkvæmdastjórnin upplýsa lögbær stjórnvöld um að ef CBAM skýrsla er ófullkominn eða röng eða hefur samband við óháðan tollfulltrúa í samræmi við 32. gr. og upplýsir um hvaða upplýsingar vantar eða hvað þarf að leiðrétta til þess að CBAM skýrslan verði fullnægjandi. Þá kemur í hlut lögbærs stjórnvalds að hefja leiðréttingarferlið og mun upplýsa rekstraraðila eða, í tilfelli 32 greinar, tollafulltrúa um það. Því næst þarf rekstraraðili eða tollafulltrúi að skila inn leiðréttri skýrslu til lögbærs stjórnvalds. Ef óháður tollafulltrúi eða rekstraraðili hefur ekki tekið rétt skref til að leiðrétta CBAM skýrslu líkt og lögbært stjórnvald fer fram á mun það koma í hlut hins síðarnefnda að ákvarða stjórnvaldssekt sem hæfir. Umhverfisstofnun bendir á að gagnlegt væri að fá upplýsingar frá tollayfirvöldum um hugsanlegt umfang kerfisins, miðað við innflutning á þeim vörum sem fram koma í viðauka I. og einnig er ljóst að þetta nýja kerfi kallar á töluverða samvinnu tollayfirvalda og þess sem aðila sem mun teljast vera lögbært stjórnvald, ef sá aðili verða ekki tollayfirvöld sjálf. Ákveða þarf hvaða stofnun mun hafa hlutverk lögbærs stjórnvalds, hvort það verði Umhverfisstofnun eða einhver annar aðili. Í fyrstu sýn virðist skráningarkerfi með CBAM vottorð mega vera í höndum sama aðila og fer með umsjón kerfisins, en umfang mun velta á fjölda innflytjenda. EES-gerðin kallar á lagasetningu.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis | |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiðing á ákvæðum reglugerðarinnar krefst þess að setja þurfi ný lög og þá kunna ákvæði reglugerðarinnar um sem varða tollyfirvöld að kalla á breytingu á tollalögum nr. 88/2005 og/eða reglugerðum settum samkvæmt þeim |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Samkvæmt minnisblaði fulltrúa fjármála- og efnahagsráðherra í Brussel um CBAM er þó talið að innleiðing kerfisins muni hafa „tiltölulega lítil áhrif á verð innflutnings hér á landi þegar á heildina er litið.“ Ljóst er að frekari greining þarf að fara fram á þeim skrifstofukostnaði sem reglugerðin mun óumflýjanlega skapa. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Af framangreindu er ljóst að CBAM kerfið kallar á töluvert utanumhald með tilheyrandi kostnaði. Þeim kostnaði verður ekki mætt með tekjum af gjaldtöku fyrr en í fyrsta lagi árið 2027 þegar sala CBAM skírteinanna hefst. Af texta CBAM reglugerðarinnar má ráða að tollyfirvöldum í hverju ríki fyrir sig sé ætlað að annast framkvæmd kerfisins, þ.m.t. sölu CBAM skírteina og upplýsingasöfnun. Það leiðir væntanlega af þeirri staðreynd að í dag eru tollayfirvöld þegar að safna ýmis konar upplýsingum um innfluttar vörur samkvæmt tollskrárnúmerum, auk þess að innheimta hvers kyns aðflutningsgjöld af innflutningi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R0956 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 130, 16.5.2023, p. 52 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 564 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) | Ísland |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2025) 989 52025PC0989 |
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council .../... amending Regulation (EU) 2023/956 as regards the extension of its scope to downstream goods and anti-circumvention measures | Tillaga sem gæti verið EES-tæk |
| COM(2025) 087 52025PC0087 |
Breytt af (Modified by)
| COM(2025) 087 52025PC0087 |
proposes to amend | ||
| 32025R2621 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2621 of 16 December 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and the Council as regards the establishment of default values | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32025R2620 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2620 of 16 December 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council as regards the calculation of the free allocation adjustment to the number of CBAM certificates to be surrendered | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32025R2619 | based on | Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2619 of 16 December 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council as regards the information communicated by customs authorities | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32025R2551 | based on, completes | Commission Delegated Regulation (EU) 2025/2551 of 20 November 2025 supplementing Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council by specifying the conditions for granting accreditation to verifiers, for the control and oversight of accredited verifiers, for the withdrawal of accreditation and for mutual recognition and peer evaluation of accreditation bodies | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 564 52021PC0564 |
adopts | Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 12016E192 | based on |
