Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar um útreikning leiðréttingar CBAM-skírteina vegna endurgjaldslausrar úthlutunar - 32025R2620

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2620 of 16 December 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council as regards the calculation of the free allocation adjustment to the number of CBAM certificates to be surrendered


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með tilkomu kolefnisjöfnunarkerfi á landamærum (CBAM) munu endurgjaldslausar losunarheimildir fasa út úr viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS). Á meðan endurgjaldslausum losunarheimildum er enn úthlutað innan ETS er með þessari reglugerð tryggt að það leiði ekki til hagstæðari meðhöndlunar á vörum innan Sambandsins samanborið við vörur sem fluttar eru inn á tollasvæði Sambandsins. Í því samhengi skulu CBAM vottorð sem skila þarf inn leiðrétt til að endurspegla magn losunarheimilda sem úthlutað er endurgjaldslaust í ETS. Reglugerðin sem hér er til umfjöllunar setur fram reglur um  útreikninga á aðlögun á endurgjaldslausum fjölda CBAM vottorða sem og vöruviðmið fyrir hvern vörukóða (CN kóða). Einnig eru settar fram reglur um notkun raungilda sem og  notkun sjálfgefinna gilda við útreikning endurgjaldslausrar úthlutunnar og reglur um útreikninga á innbyggðri endurgjaldslausri úthlutun flókinna vara þar sem forefni kemur frá mismunandi starfsstöðvum. ETS vöruviðmið eru gefin út árið 2026, en hægt er að áætla með nokkurri vissu þau vöruviðmið sem eru viðeigandi vegna CBAM. Þessi vöruviðmið skulu endurskoðuð í síðasta lagi mánuði eftir að ETS viðmiðin hafa verið gefin út fyrir árin 2026-2030 og skulu CBAM vöruviðmið sem byggjast á nýútgefnum ETS vöruviðmiðum taka gildi 1. janúar 2027. 

Nánari efnisumfjöllun

CBAM tilkynnendur þurfa að gefa upp innbyggða losun í vörum sem þeir flytja inn. Útreikningar á losuninni getur byggt á annaðhvort sjálfgefnum gildum eða raunverulegri losun og skal aðlögun að úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda endurspegla þá reglu og samsvara endurgjaldslausri úthlutun í ETS. Engin aðlögun að endurgjaldslausri úthlutun skal eiga sér stað vegna raforku. Sértæk innbyggð endurgjaldslaus úthlutun skal reiknuð út frá raungögnum í samræmi við 3. lið viðaukans. Ef sjálfgefin gildi eru notuð fyrir tiltekna innbyggða losun í CBAM yfirlýsingunni skal aðlögun á endurgjaldslausri úthlutun reiknuð út frá sjálfgefnum gildum í samræmi við leiðbeiningar um útreikninga sem koma fram í 4. hluta viðaukans. Fyrir starfsstöð sem framleiðir flóknar vörur með forefni (e. precursor) frá mismunandi starfstöðvum gildir, að innbyggð endurgjaldslaus úthlutun flókinna vara skuli ákvörðuð með sjálfgefnum gildum. Fyrir þann hluta endurgjaldslausrar úthlutunar sem innbyggð er í  forefnin þá skal nota vegið meðaltal allra forefna sem notuð eru nema í þeim tilfellum sem rekstraraðili geti sýnt fram á, með fullnægjandi hætti, að tiltekið framleiðsluferli eigi uppruna sinn að rekja til einnar og sömu starfsstöðvarinnar eða ákveðnum undirhópi starfsstöðva (e. subset of installation). Þá mætti ákvarða innbyggða endurgjaldslausa úthlutun forefna sem notuð eru hvert um sig á grundvelli innbyggðrar endurgjaldslausrar úthlutunnar forefna sem fengin eru frá þeirri stöð. Viðauki:Viðauki við reglugerðina inniheldur reglur um útreikninga á aðlögun að endurgjaldslausri úthlutun og útreikninga á sérstakri innbyggðri endurgjaldslausri úthlutun (specific embedded free allocation - SEFA) vara þar sem notuð eru sjálfgefin gildi eða þar sem notuð eru raungildi. Þá er að finna í viðaukaukanum reglur um hvernig skal velja viðeigandi CBAM vöruviðmið þar sem notuð eru raungögn eða sjálfgefin gildi. CBAM vöruviðmið eru gefin út og flokkuð eftir CN kóðum og CN vörulýsingum. Fyrir ákveðnar vörur eru þau gildi merkt 1 eða 2 , þar sem 1 stendur fyrir framleiðsluárin 2026-2027 og 2 stendur fyrir framleiðsluárin 2028-2030. Þá er töflunni einnig skipt upp í A og B dálka þar sem A merkir ferilsbundið CBAM viðmið fyrir framleiðsluferlið og B er sjálfgefið viðmið. CBAM vöruviðmiðin sem sett eru fram í viðaukanum eru reiknuð út frá ETS vöruviðmiðum, varma – og eldsneytisviðmiðum og varaaðferðum. Varaaðferðir eru notaðar þar sem ekki er hægt að nota önnur viðmið en þá eru ákveðnum framleiðsluferlum úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum skv. undirstöð fyrir ferlilosun (e. process emission sub-installation) sem byggist á sögulegu starfsemisstigi.CBAM vöruviðmiðin skulu að lokum endurskoðuð eigi síðar enn mánuði eftir útgáfu ETS vöruviðmiða enn þau viðmið sem hér koma fram skulu notuð fyrir vörur framleiddar fram til 1. janúar 2027. Reglugerðin öðlast gildi á þriðja degi eftir að hún birtist í stjórnartíðindum ESB, hún gildir frá og með 1. Janúar 2026.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf heildstæð lög um CBAM kerfið og í kjölfarið af því sett ný reglugerð þar sem m.a. þyrfti að innleiða efni þessarar reglugerðar.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Enginn fyrirséður aukakostnaður vegna þessarar reglugerðar, en ljóst er að innleiðing og upptaka CBAM kerfisins í heild sinni mun leiða til verulegs aukins kostnaðar fyrir hið opinbera, en samkvæmt áformaskjali um lagasetningu mun þeim kostnaði aftur á móti vera mætt með gjaldtöku.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2620
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2620, 22.12.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R0956 based on Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi