Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð sú sem hér er til greiningar er sett á grundvelli 7. mgr. 35. gr. og 6. mgr. 14. gr. CBAM-stofnreglugerðarinnar, en 35. gr. varðar skýrslugjöf á aðlögunartímabili CBAM-kerfisins og í 14. gr. er mælt fyrir um að framkvæmdastjórnin skuli setja á fót CBAM-skráningarkerfi. Í reglugerð þessari er því að finna nánari reglur er varða skyldu til skýrslugjafar og útreikninga þar að lútandi, reglur um yfirferð á CBAM-skýrslum af hálfu framkvæmdastjórnarinnar og lögbærs stjórnvalds, ákvæði um viðurlög og reglur um CBAM-skráningarkerfið á aðlögunartímabilinu (e. CBAM Transitional Registry, nefnt CBAM-skráningarkerfið í greiningu þessari). Varðandi nánari umfjöllun um CBAM-stofnreglugerðina vísast til greiningar Umhverfisstofnunar sem fyllt var inn í EES-gagnagrunninn 31. ágúst sl. Skilgreiningar, sbr. 2. gr.„Tilkynnandi“ (e. reporting declarant) getur verið eftirfarandi:Innflutningsaðili sem skilar inn tollskýrslu fyrir dreifingu á vörum í eigin nafni.Einstaklingur með leyfi til þess að skila inn tollskýrslu, sbr. 1. mgr. 182. gr. reglugerðar (ESB) nr. 952/2103.Óbeinn tollfulltrúi, þar sem tollskýrslan er lögð fram af óbeinum tollfulltrúa sem er skipaður í samræmi við 18. gr. reglugerðar (ESB) nr. 952/2013, þegar innflutningsaðilinn er utan ESB eða þegar óbeini tollfulltrúinn samþykkir að sinna gagnaskilum í samræmi við gr. 32 í reglugerð 2023/956/ESB „Frádráttur“ (e. rebate) er upphæð sem dregst frá skuld eða upphæð sem aðili greiðir í kolefnisgjald, fyrir greiðslu eða eftir, í formi peninga eða annars. Réttindi og skyldur tilkynnanda er snúa að gagnaskilum Gagnaskil tilkynnanda, sbr. 3. gr.Hverjum tilkynnanda er gert að skila inn gögnum sem hann fær frá rekstraraðila er snúa að innflutningi á þeim ársfjórðungi sem CBAM skýrsla tekur til. Hér er átt við allt það sem er útlistað í viðauka III í reglugerð þessari og í viðauka I í CBAM-stofnreglugerðinni.. Þar þarf að koma framMagn innfluttrar vöru niður á megavattstund af rafmagniTegund vöru miðað við CN kóða. Enn fremur þarf framteljandi skila inn gögnum í samræmi við viðauka áðurnefndra gerða í CBAM skýrslu sem inniheldur eftirfarandi upplýsingar:Upprunaland innfluttrar vöruVerksmiðju þar sem varan var framleidd niður á eftirfarandi:SÞ kóða fyrir viðskipti og flutningsstaðNafn fyrirtækis sem sér um framleiðslu og staðsetningu og enskt lýsingu á starfsemiLandfræðileg hnit og megin kolefnisstraum starfseminnar.Röð aðgerða í framleiðslu, sjá skilgreiningu í 3 hluta reglugerðar þessarar, sem endurspeglar þá tækni sem notuð eru í framleiðslu vörunnar og upplýsingar um þær breytur sem ákvarða röð aðgerða sem valin er líkt og skilgreint er í 2 hluta í viðauka IV, til þess að ná utan um undirliggjandi beina losun kolefnis.Sértæka undirliggjandi beina losun vara, sem er ákvörðuð með því að umbreyta beinni losun framleiðsluferla yfir í losun sem á við tiltekna vöru niður CO2e per tonn í samræmi við hluta F og G í viðauka III þessarar reglugerðar. Kröfur um gagnaskil sem hafa áhrif á undirliggjandi losun vara, sjá hluta 2 í viðauka IV þessarar gerðar.Tilkynnandi þarf að gefa upp eftirfarandi fyrir innflutt rafmagn:Útblástursstuðul fyrir notað rafmagn í tonnum per megavattstund, sjá hluta H í viðauka III í reglugerð þessari.Upplýsingar um hvaðan gögn um útblástur eru fengin eða aðferð sem notað er til að ákvarða losunarstuðul rafmagnsins.g) Fyrir stál þarf að gefa upp einkennisnúmer þarf að gefa upp hvar það var framleitt. Fyrir sértæka undirliggjandi og óbeina losun þarf hver tilkynnandi að skila eftirfarandi upplýsingum í CBAM skýrslu, sbr. lista í viðauka I í reglugerð þessari:a) rafmagnsnotkun framleiðsluferla niður á megavattstund fyrir hvert tonn af framleiddri vöru.b) Taka þarf fram hvort að tilkynnandi eigi við eiginlega losun kolefnis eða fyrirframgefin gildi frá framkvæmdastjórn fyrir aðlögunartímann, sbr. viðauka III hluta D í reglugerð þessari.c) Losunarstuðul rafmagnsins sem er notað.d) Magn sértækra undirliggjandi losunar, sem er ákvörðuð með því umbreyta óbeinni losun framleiðsluferla yfir í óbeina losun vöru niður á CO2e per tonn, sjá hluta F og G í viðauka III í reglugerð þessari. Þegar reglur um gögn eru ekki í samræmi við viðauka III í reglugerð þessari þarf tilkynnandi að koma áleiðis meiri upplýsingum um lýsingu á aðferðafræðilegum grunn reglnanna sem liggja útreikningum á undirliggjandi losun til grundvallar. Reglurnar sem um ræðir skulu leiða að álíka nákvæmni er snýr að losun, sem og mörkum kerfa, framleiðsluferla sem fylgst er með, losunarstuðlum og öðrum aðferðum sem beitt er í útreikningum og gagnaskilum. Tilkynnandi getur farið fram á að rekstraraðili noti rafrænt sniðmát frá Framkvæmdastjórn og skili af sér upplýsingum sem útlistaðar eru í hlutum 1 og 2 í viðauka IV. Útreikningur undirliggjandi losunar, sbr. 4. gr.Útreikningar á undirliggjandi losun skulu grundvallast á einni af eftirfarandi aðferðum en þær byggja einnig á vali á aðferðafræði við vöktunaráætlun, sbr. B.2 í viðauka III í reglugerð þessari. Aðferðafræði við mat á losun er annaðhvort:Að nota gögn um starfsemisstig sem er aflað með mælingum og reiknistuðlum sem byggja rannsóknum eða fyrirframgefnum gildum.Með óbrotnum mælingum á útblæstri sem metur magn gróðurhúsalofttegunda í útblæstrinum ásamt mælingum á magni útblásturs.Veitt er undanþága frá mgr 1 og 2 til 31 desember 2024. Nákvæma undirliggjandi losun vara sem framleiddar hjá rekstraraðila má ákvarða með eftirfarandi vöktunar- og gagnaskilaáætlun ef þær leiða að álíka niðurstöðum og útlistað er í 1 og 2 mgr:Kolefnisverðlagningar kerfi þar sem starfsemi er haldið útiSkyldubundnu útblásturvöktunarkerfi þar sem starfsemin fer framÚtblástursvöktunarkerfi þar sem starfsemi er haldið úti sem getur einnig falið í sér vottun viðurkennds vottunaraðila Veitt er undanþága frá 1. og 2. mgr. til 31. júlí 2024 fyrir innfluttar vörur ef tilkynnandi er ekki með allar upplýsingar sem útlistaðar eru í 2. og 3. mgr. 3. gr. Tilkynnandi má nota aðrar aðferðir til ákvarða losun, þ. á m. stuðla frá framkvæmdastjórninni fyrir aðlögunartímabilið eða stuðla skv. viðauka III. Tilkynnandi þarf að gefa til kynna og vísa í þau gildi í CBAM skýrslu. Önnur undanþága frá 4. gr. gerir tilkynnendum kleift að áætla allt að 20% af heildar undirliggjandi kolefnislosun flókinna vara út frá mati sem gert er af rekstraraðila. Skýrslugjöf fyrir vörur í innri framleiðsluferlum, sr. 6. gr.Tilkynnandi þarf að skila inn ársfjórðungslegi CBAM skýrslu fyrir vörur sem fara í innri framleiðsluferla og þaðan í frjálsa dreifingu sem annað hvort hrávara eða fullunninn vara í samræmi við 257. gr. í reglugerð (ESB) nr. 952/2013. Í greininni er nánar útlistað hvað skal koma fram í skýrslunni. Upplýsingar um skuld á kolefnisgaldi, sbr. 7. gr.Í greininni er mælt fyrir um hvaða upplýsingar er varða skuld á kolefnisgjaldi tilkynnandi skuli setja í CBAM-skýrsluna, þegar við á. Framlagning CBAM-skýrslna, sbr. 8.-9. gr.Tilkynnandi skal skila inn ársfjórðungslegum CBAM-skýrslum frá 1. október 2023 til 31. desember 2025 í gegnum CBAM-skráningarkerfið eigi síðar en mánuði eftir að ársfjórðungi lýkur. Tilkynnandi skal láta frá sér eftirfarandi upplýsingar í CBAM-skráningarkerfið um hvort að:CBAM skýrslan sé fyllt út af innflutningsaðila í eigin nafni af hans hálfu,CBAM skýrslan sé fyllt út af óbeinum tollafulltrúa fyrir hönd innflutningsaðila. Ef að óbeinn tollafulltrúi ákveður að sinna ekki CBAM skýrsluskilum fyrir innflutningsaðila þarf tollafulltrúinn að upplýsa rekstraraðilann um þær skyldur sem lenda á honum, sbr. 1. mgr. 33. gr. CBAM-stofnreglugerðarinnar. CBAM skýrslan þarf að innihalda upplýsingar sem útlistaðar eru í viðauka I í reglugerð þessari. Hver CBAM skýrsla sem fer inn í skráningarkerfið fær einkennisnúmer. Skv. 9. gr. má tilkynnandi leiðrétta CBAM skýrslu allt að tveimur mánuðum eftir settan skiladag. Það er ein undanþágu frá þessu sem felur í sér að tilkynnandi má breyta fyrstu tveimur skýrslunum fram að skilafresti þeirrar þriðju. Leiðrétting eða endurskil á skýrslu getur farið fram innan árs frá skilum fáist samþykki fyrir því hjá lögbæru stjórnvaldi. Það kemur í hlut lögbærs stjórnvalds að hafna eða samþykkja slíka beiðni og að fræða rekstraraðila um rétt þeirra til að áfrýja. Ef að það er deila um CBAM skýrslu er ekki hægt að breyta henni. Það má skipta henni út þegar deila er leidd til lykta. Stjórnsýsla CBAM gagnaskila CBAM-skráningarkerfið, sbr. 10-16. gr.CBAM skráningarkerfið verður staðlaður og öruggur rafrænn vettvangur fyrir gagna- og skýrslu skil á aðlögunartímanum. Vettvangurinn mun stuðla að samskiptum, upplýsingagjöf milli framkvæmdastjórnar og lögbærs stjórnvalds, tollayfirvalda og tilkynnanda í samræmi við kafla V. Framkvæmdastjórn getur athugað hvort að rekstraraðilar hafi uppfyllt allar kröfur um gagnaskil í CBAM skráningarkerfinu á aðlögunartímanum allt að þremur mánuðum eftir skil. Framkvæmdarstjórn mun nota skráningarkerfið til að sinna skyldum sem útlistaðar eru í reglugerð þessari og stofnreglugerð. Framkvæmdastjórn mun senda lögbæru stjórnvaldi lista yfir þá rekstraraðila sem þau telja að hafi ekki mætt kröfum um gagnaskil. Þegar CBAM skýrslan mætir ekki kröfum skv. 3.-7. gr. eða er ókláruð í skilningi 13. gr. reglugerðar þessarar er lögbært stjórnvald í heimalandi rekstraraðila látið vita. Þegar CBAM skýrsluskil tilkynnanda uppfylla ekki kröfur sem útlistaðar eru í viðauka I er skýrslan talin ókláruð. Lögbært stjórnvald hvers aðildarríkis CBAM tilkynnanda skal hafa frumkvæði að yfirferð og mati á gögnum, lista yfir tilkynnendur frá framkvæmdastjórn og leiðbeinandi yfirferð líkt og kemur fram í 12. gr. reglugerð þessarar innan við þremur mánuðum frá samskiptum við framkvæmdastjórn. Lögbært stjórnvald skal nota CBAM skráningarkerfið og upplýsingar þaðan til að framkvæma þau verkefni sem mælt er fyrir um í reglugerð þessari og CBAM-stofnreglugerðinni. Það kemur í hlut lögbærs stjórnvalds á aðlögunartímabilinu að takast á við:Ófullnægjandi eða rangar CBAM skýrslurÞegar CBAM skýrslum er ekki skilað. Þegar lögbært stjórnvald hefur leiðréttingarferli á CBAM skýrslum lætur það rekstraraðila vita að það sé hafið og hvaða upplýsingar rekstraraðilinn þarf að láta frá sér. Beiðni um upplýsingar skal fela í sér þær upplýsingar sem fram koma í 3.-7. gr. reglugerðar þessarar. Tilkynnandi skal skila þeim upplýsingum sem vantar í gegnum CBAM skráningarkerfið.Lögbært stjórnvald og/eða önnur stofnun sem lögbært stjórnvald gefur umboð sér um að veita aðgang að CBAM skráningarkerfinu með hliðsjón af EORI númeri í samræmi við 20. gr. reglugerðar þessarar. Skv. 15. gr. eru allar ákvarðanir og upplýsingar sem lögbært stjórnvald tekur í tengslum við skýrsluskil í CBAM kerfinu meðhöndlaðar sem trúnaðarupplýsingar. Upplýsingar mega ekki fara til þriðja aðila nema fengið sé leyfi eða að heimild sé fyrir því í lögum og að það sé gert í samræmi við boð og bönn um gagnavernd. Lögbært stjórnvald má deila upplýsingunum með tollayfirvöldum. Viðurlög, sbr. 16. gr. Aðildarríki skulu beita viðurlögum í eftirfarandi tilvikum:Þegar tilkynnandi hefur ekki skilað inn CBAM skýrsluÞegar CBAM skýrsla er röng eða ófullnægjandi, sbr. 13. gr. í reglugerð þessari og tilkynnandi hefur ekki sýnt viðleitni til þess að færa það til betri vegar í þeim tilvikum sem lögbært stjórnvald hefur hafið leiðréttingarferli skv.14. gr. reglugerðar þessarar.Umfang sektar skal vera 10 til 50 evrur per tonn af óuppgefinni kolefnislosun. Sektin er bundin vísitölu neysluverðs fyrir Evrópu. Mat lögbærs stjórnvalds á fjárhæð sektarinnar veltur á þeim gildum (e. default values) sem framkvæmdastjórnin gefur út fyrir aðlögunartímabilið og eftirfarandi þáttum:Umfangi óuppgefinnar losunarMagn óuppgefinna vara og kolefnislosun sem af þeim hlýstViðleitni tilkynnanda til að verða við beiðni um upplýsingar eða um að leiðrétta CBAM skýrslu.Ásetning eða vanrækslu tilkynnandaFyrri hegðun tilkynnanda í tengslum við skyldu til gagnaskilaSamstarfsvilja tilkynnanda við úrlausn málsinsHvort að tilkynnandi hafi gert breytingar til að fyrirbyggja svipuð brot í framtíðinni.Hærri sektir skulu ákvarðaðar ef tveimur eða fleiri ófullnægjandi eða röngum CBAM skýrslum sbr. 13. gr. er skilað í röðeða ef tilkynnandi skilar skýrslu síðar en 6 mánuðum eftir skilafrest. Tæknileg atriði varðandi CBAM-skráningarkerfið á aðlögunartímabilinu Í 17.-39. gr. eru ítarlegar reglur m.a. um uppbyggingu, virkni, tengsl við önnur kerfi, þróun, viðhald, eignarhald og öryggi CBAM-skráningarkerfisins og tengdra kerfa ásamt reglum um vernd upplýsinga, þ. á m. persónuupplýsinga. Framkvæmdastjórn og aðildarríki skulu ákvarða tengipunkta fyrir þau miðlægu kerfi sem vísað er til í 17. gr. til þess að skiptast á upplýsingum, tryggja samræmda þróun, starfsemi og viðhald á kerfunum. Framkvæmdastjórn og aðildarríki munu upplýsa hvort annað um allar breytingar er það varðar. Framkvæmdastjórn leggur til skilmála samstarfs, þjónustusamning og öryggisáætlun til samþykktar hjá lögbærum stjórnvöldum. Framkvæmdastjórn sér um CBAM skráningarkerfið á grundvelli þessara samþykkta en tilkynnendur skulu skila inn CBAM skýrslum í gegnum kerfið og fá þar upplýsingar um eftirfylgd þeirra. Framkvæmastjórn sér um aðgengi að skráningarkerfinu og veitir lögbæru stjórnvaldi aðgang sem síðan veitir CBAM tilkynnendum í sínu heimalandi aðgang. Lögbært stjórnvald getur valið að nota skilríkja- og aðgangskerfi sem er sett upp í þeirra heimalandi, sbr. 26. gr. reglugerðar þessarar, sem veitir aðgang að CBAM skráningarkerfinu. Sett verður upp CBAM gátt fyrir lögbær stjórnvöld sem taka þátt í CBAM kerfinu en þau munu nota gáttina til að framkvæma þau verkefni sem mælt er fyrir um í reglugerð þessari og í CBAM-stofnreglugerðinni. Framkvæmdastjórnin hefur milligöngu um aðgengi tilkynnenda og lögbærs stjórnvalds að skráningarkerfinu í gegnum aðgangsstýringarkerfi, sbr. 26. gr. Framkvæmastjórnin setur einnig upp vottun og framsal, auðkenningu tilkynnenda og annara fyrir aðgang að stafrænum kerfum. Aðildarríki setja upp eigin aðgangsstýringarkerfi sem halda utan um innskráningar og gögn tilkynnenda ásamt öruggum skiptum á undirrituðum og dulkóðuðum gögnum tilkynnenda og annarra. Ef að kerfin bila mun framkvæmdastjórn láta aðildarríki og tilkynnendur vita og finna aðrar leiðir fyrir tilkynnendur til að skila gögnum á annan hátt. Skv. 36. gr. hefur framkvæmdastjórnin yfirumsjón með CBAM-skráningarkerfinu og skal sjá til þess að það sé öruggt. Aðildarríki og framkvæmdastjórnin skulu:Koma í veg fyrir að óviðkomandi aðili fái aðgang að upplýsingum í kerfinu.Koma í veg fyrir að óviðkomandi aðili geti slegið inn gögn, breytt eða eytt gögnum í kerfinu.Greina þau tilvik sem gætu fallið undir a- og b-lið . Aðildarríki og framkvæmdarstjórn skulu upplýsa hvort annað um allt sem kann að valda öryggisbrestum í CBAM skráningar kerfinu og skulu gera öryggisáætlanir. Lögbært stjórnvald og framkvæmdastjórn skulu geyma CBAM skýrslur í fimm ár frá skilum. Ef það eiga sér stað málaferli er snúa að gögnunum verða þau geymd uns málið er leitt til lykta. Aðildarríki og lögbært stjórnvald þurfa að gera úttekt á sínum hluta af skráningarkerfinu og þá einkum hvað varðar öryggi og trúnað. Framkvæmdarstjórn og aðildarríki munu upplýsa hvort annað um niðurstöðu úttektanna. Gildistaka Reglugerð þessi tók gildi hjá ESB þann 16. september sl. Viðaukar Viðauki I lýsir uppbyggingu CBAM skýrslna sem rekstraraðilar munu þurfa að fylla út á aðlögunartímanum. Það verður ekki reifað hér en formið er aðgengilegt í viðauka I í reglugerð þessari. Viðauki II fer fyrir skilgreiningar er snúa að viðaukunum sem koma eftir á það verður ekki reifað hér en þó verður farið yfir mikilvægar skilgreiningar síðar í skjalinu þegar það er nauðsynlegt. Í viðauka II er einnig útlistun á CN kóðum fyrir ólíka vöruflokka. Í hluta 3 í sama viðauka er farið yfir framleiðsluaðferðir. Mörk kerfa og undanfara sem falla undir regluverkið. Reglur þvert á atvinnugreinar:Notast er við jöfnur 50 og 51 í hluta F.1 í viðauka III til að meta framleitt magn og vöktunarreglur í hluta F.2 í viðauka III. Þegar margir framleiðsluferlar eru notaðir til að framleiða vörur með sama CN kóðann þá er undirliggjandi kolefnislosun reiknuð fyrir hvern framleiðsluferil. Hvað varðar vöktun beinnar losunar þá munu allar losunaruppsprettur[1] og straumar sem tengjast framleiðsluferlinu verða vöktuð með hliðsjón af auka ráðstöfunum í hlutum 3.2-3.19 í viðauka II. Þegar beitt er kolefnisföngun er miðað við hluta B.8.2 í viðauka III. Fylgst verður með raforkunotkun fyrir hvert framleiðsluferli innan kerfismarka fyrir vöktun með óbeinum útblæstri gróðurhúsalofttegunda, sjá hluta 3.2-3.19 í viðauka III og hluta A.4. í viðauka III. Notað verður viðeigandi losunarstuðla[2] fyrir rafmagn í samræmi við hluta D.2 í viðauka III. Hlutar 3.2-3.19 lýsa kerfismörkum, framleiðsluaðferðum og viðeigandi undanförum. Þar er að finna nákvæma útlistun er snýr að brenndum leir, steypusteinum, sementi, ál sementi, vetni, ammoníaki, saltpétursýru, þvagefni, blönduðum áburði, járngrýti, járn mangan, járn krómíum, nikkel, svínjárni, hrjárni, hrástáli, járn eða stál vörur, óunnið ál, álvörur og rafmagn. Viðauki III lýsir reglum sem ákvarða gögn um útblástur staðbundins iðnaðar, útblástur framleiðsluferla og undirliggjandi útblástur vara. Viðauki IV lýsir upplýsingum sem mælt er til að rekstraraðilar skili til CBAM tilkynnenda. Viðauki V snýr að EORI gögnum. Gögnin sem um ræðir munu innihalda upplýsingar um rekstraraðila og munu virka með CBAM skráningarkerfinu. Viðauki VI fer inn á hvaða upplýsingar tollurinn mun þurfa að leggja til en þær munu vinna með upplýsingum úr CBAM skráningarkerfinu í samræmi við 17 gr. í reglugerð þessari. Viðauki VII lýsir þeim alþjóðlegum kerfis upplýsingum sem eiga að virka með CBAM skráningarkerfinu. Viðauki VIII lýsir staðal stuðlum sem notaðir eru við vöktun á beinni losun hjá rekstraraðila. Viðauki IX lýsir viðmiðunargildum fyrir framleiðslu rafmagns og hita.
[1] Er aðgreinanlegur hluti af rekstrareiningu eða ferli innan rekstrareiningarinnar sem losar gróðurhúsalofttegundir er falla undir reglugerð þessa.[2] Meðallosun gróðurhúsalofttegunda miðað við magn eldsneytis og annarra hráefna sem notað er í framleiðslu ferli niður á terajúl, massa per tonn eða magn í rúmmetrum eftir því hvað á við.