Sjálfgefin losunargildi fyrir kolefnisjöfnunarkerfi við landamær - 32025R2621

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/2621 of 16 December 2025 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and the Council as regards the establishment of default values


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/2621 fjallar um ákvörðun sjálfgefinna gilda (e. default values) fyrir innbyggða losun gróðurhúsalofttegunda í vörum sem falla undir kolefnisjöfnunarkerfi við landamæri (CBAM) þegar raunveruleg losunargögn liggja ekki fyrir. Reglugerðin kveður á um sjálfgefin gildi fyrir bæði beina og óbeina innbyggða losun og setur nánari reglur um notkun þeirra í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) 2023/956. 

Nánari efnisumfjöllun

Samkvæmt 7. gr. reglugerðar (ESB) 2023/956 um kolefnisjöfnunarkerfi við landamæri (CBAM) er kveðið á um notkun sjálfgefinna gilda við útreikning á innbyggðri losun gróðurhúsalofttegunda í vörum að undanskildu rafmagni sem og við útreikning á óbeinni innbyggðri losun. Reglugerðin sem hér er til umfjöllunar felur í sér ákvörðun slíkra sjálfgefinna gilda.  Í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) 2023/956 skulu sjálfgefin gildi reiknuð á grundvelli þeirrar aðferðarfræði sem mælt er fyrir um í IV. viðauka þeirrar reglugerðar. Jafnframt er kveðið á um að gildin skuli uppfærð reglulega og byggð á nýjustu og áreiðanlegustu gögnunum þannig að þau endurspegli sem best raunverulega losun sem tengist framleiðslu viðkomandi vara.  Til að tryggja að sjálfgefin gildi leiði ekki til vanmats á innbyggðri losun er bætt við álagi. Álagið byggist á skekkjumörkum sem endurspegla frávik í losun milli einstakra framleiðslueininga, með hliðsjón af gögnum um losun frá framleiðslu innan Evrópusambandsins.  Til að veita CBAM-tilkynnendum og rekstraraðilum svigrúm til að aðlagast nýju kerfi er kveðið á um að álagið verði innleitt stigvaxandi á tímabilinu til ársins 2028. Jafnframt er þessi stigvaxandi innleiðing talin stuðla að því að halda verði CBAM-vottorða stöðugu á fyrstu árum kerfisins, þegar CBAM er að komast til framkvæmda.  Við innflutning vöru eða forefnis (e. precursors) þar sem uppruni framleiðslunnar er ekki þekktur er samkvæmt reglugerðinni kveðið á um að beita skuli hæsta viðeigandi sjálfgefna gildi fyrir viðkomandi forefni. Markmiðið með þessu ákvæði er að koma í veg fyrir kolefnisleka og fyrirbyggja misnotkun CBAM-kerfisins.  Að lokum er kveðið á um að framkvæmdastjórnin skuli endurskoða og, eftir atvikum, uppfæra sjálfgefin gildi og viðeigandi álagningu eigi síðar en í lok árs 2027. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagagrundvöllur:

Reglugerð (ESB) 2023/956, einkum 7. gr., einkum 7. mgr., sem heimilar framkvæmdastjórninni að setja nánari reglur um notkun staðgildisgilda við ákvörðun innbyggðrar losunar.

Sáttmáli um starfshætti Evrópusambandsins (TFEU), sem almennur formlegur lagastoð framkvæmdarvalds ESB.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar CBAM tilkynnendur, þ.e. innflytjendur sem hafa leyfi til innflutnings á vörum sem falla undir CBAM., Umhverfis‑ og orkustofnun, sem mun gegna hlutverki lögbærs stjórnvalds og bera ábyrgð á stjórnsýslu, eftirliti og framkvæmd CBAM‑kerfisins á landsvísu, Fjársýslan, Skatturinn eða annar tilgreindur aðili sem hefur með höndum rekstur og umsýslu uppboðsvettvangs fyrir sölu CBAM‑vottorða fyrir Íslands hönd.

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Gerðin hefur áhrif á ETS‑kerfið á Íslandi, einkum að því leyti að hún er hluti af umfangsmeira CBAM‑vottorðakerfi. Kerfið mun hafa áhrif á innflutning tiltekinna vara hingað til lands frá löndum utan EES

Einnig minnkar gerðin líkur á kolefnisleka og eykur samkeppnishæfni rekstraraðila sem eru nú þegar innan ETS kerfisins

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R2621
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2621, 31.12.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R0956 based on Regulation (EU) 2023/956 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a carbon border adjustment mechanism Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi