Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2025/2650 Evrópuþingsins og ráðsins frá 19. desember 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1115 að því er varðar tilteknar skyldur rekstraraðila og kaupmanna. Reglugerðin felur einkum í sér frestun á gildistöku tiltekinna skyldna samkvæmt EUDR, einföldun upplýsingaskila og minni stjórnsýslubyrði fyrir tiltekna rekstraraðila og kaupmenn.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin felur í sér breytingar á reglugerð (ESB) 2023/1115 um að bjóða fram á markaði Sambandsins og flytja út frá Sambandinu tilteknar hrávörur og vörur sem tengjast eyðingu og hnignun skóga (EUDR). Um er að ræða afmarkaðar breytingar á tilteknum skyldum rekstraraðila og kaupmanna. Markmiðið er einkum að einfalda tiltekin skilyrði, draga úr stjórnsýslubyrði og fresta gildistöku ákveðinna skyldna samkvæmt EUDR.Meginmarkmið EUDR er að draga úr skógareyðingu og hnignun skóga. Reglugerðin tekur til vara sem innihalda eða eru framleiddar úr kakói, kaffi, nautgripum, olíupálma, gúmmíi, soja og timbri. Hún kveður á um þrjú meginskilyrði fyrir því að heimilt sé að bjóða slíkar vörur fram á innri markaðinum, setja á markað eða flytja út frá ESB. Í fyrsta lagi má framleiðsla vörunnar ekki hafa leitt til skógareyðingar eða verulegrar hnignunar skóga. Í öðru lagi skal varan hafa verið framleidd með lögmætum hætti í samræmi við lög upprunalands. Í þriðja lagi skal vörunni fylgja yfirlýsing um áreiðanleikakönnun (e. due diligence statement) frá rekstraraðila. Þar skal staðfest að viðkomandi hafi framkvæmt viðeigandi úttekt og telji engar eða óverulegar líkur á að varan brjóti gegn reglugerðinni.Helstu ástæður breytinganna eru annars vegar þörf á einföldun reglna og hins vegar ófyrirséð umfang og álag á upplýsingakerfi EUDR. Í aðfararorðum reglugerðarinnar kemur fram að áætlanir um fjölda væntanlegra aðgerða og samskipta í upplýsingakerfinu hafi leitt til umtalsverðs endurmats á álagi kerfisins, þar sem fyrirséð væri að mun meiri umferð yrði um kerfið en áður hafi verið gert ráð fyrir. Þá er í aðfararorðunum vísað til niðurstaðna skýrslunnar „The future of European competitiveness“ frá 2024, þar sem fram kemur að vaxandi fjöldi reglna og aukið flækjustig þeirra geti takmarkað svigrúm fyrirtækja í ESB og dregið úr samkeppnishæfni þeirra. Reglugerðin miðar því að því að einfalda málsmeðferð og skyldur samkvæmt EUDR og draga úr óþarfa stjórnsýslubyrði, án þess að vikið sé frá meginmarkmiðum EUDR. Í reglugerðinni er meðal annars kveðið á um að fresta gildistöku tiltekinna skyldna samkvæmt EUDR, svo rekstraraðilar fái lengri tíma til undirbúnings. Breytingarnar eiga einnig að draga úr álagi á upplýsingakerfi EUDR með því að einfalda skil á áreiðanleikakönnunum og yfirlýsingum. Þá bætast við nýjar skilgreiningar á tilteknum flokkum rekstraraðila. Annars vegar er um að ræða litla rekstraraðila efst í aðfangakeðjunni (e. micro or small primary operators) og hins vegar rekstraraðila neðar í aðfangakeðjunni (e. downstream operators). Breytingarnar fela í sér einfaldari og takmarkaðri skyldur fyrir þessa aðila. Sem dæmi er dregið úr skyldu til að skila yfirlýsingum um áreiðanleikakönnun og til að miðla tilvísunarnúmerum áfram í aðfangakeðjunni. Þá er kveðið á um einfaldari yfirlýsingu fyrir tiltekna litla rekstraraðila efst í aðfangakeðjunni. Reglugerðin hefur því einkum áhrif á umfang upplýsingaskila, rekjanleikakröfur og framkvæmd skyldna tiltekinna rekstraraðila og kaupmanna samkvæmt EUDR.