Undanþága fyrir brettafilmu og ólar frá endurnotkunarkröfu sem gerð er í reglugerð (ESB) 2025/40 - 32026D0429
Commission Delegated Decision (EU) 2026/429 of 25 February 2026 on supplementing Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council by exempting certain economic operators that use pallet wrappings and straps from the 100 % reuse requirements of these packaging formats
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Ákvörðun |
| Nánari tegund gerðar | Framseld ákvörðun |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.17 Umhverfisvernd |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins leggur kvöð á rekstraraðila að sjá til þess að endurnotkunarhlutfall fyrir flutningsumbúðir sem notaðar eru við flutning vöru innan fyrirtækjasamstæðu og/eða innan aðildarríkis sé 100%. Ákvörðunin undanskilur brettafilmu og ólar sem eru notaðar á vörubretti frá þessu 100% markmiði og í stað mun hið almenna 40% endurnotkunarmarkmið gilda fyrir þessar umbúðagerðir.
Nánari efnisumfjöllun
Í 29. grein reglugerðar (ESB) 2025/40 (umbúðareglugerðin) er kveðið á um að 40% flutningsumbúða skuli alla jafna vera endurnotanlegar árið 2030 og 70% árið 2040. Jafnframt er kveðið á um 100% endurnotkunarmarkmið fyrir flutningsumbúðir fyrir umbúðir sem notaðar eru við flutninga innan sömu fyrirtækjasamstæðu og/eða innan eins aðildarríkis. Þessi markmið ná ekki yfir flutning hættulegra efna, stórra tækja eða sérhannaðra vara, ýmsar snertiumbúðir né pappakassa. Fjölnota brettafilmur sem nota má til að umvefja vörustæður á brettum eða búa um þær að öðru leyti fyrir flutning eru til á markaði. Einskiptiskostnaður fellur á rekstraraðila við kaup á slíkum filmum og í sumum tilvikum þarf að endurhanna pökkunarlínur til að nota megi fjölnota filmur í stað einnota plastfilma. Vegna þessa kostnaðar og hættu á rofi á virðiskeðjum, er það mat Evrópusambandsins að sem stendur gegni það ekki meðalhófi að leggja kvöð á rekstraraðila að nota einungis fjölnota filmur. Ákvörðunin inniheldur tvær greinar: 1. grein kveður á um að brettafilma og ólar sem notuð eru til að verja vörur á vörubrettum og gera þær stöðugri við flutning eru undanskilin frá markmiði um 100 endurnotkun flutningsumbúða. 2. grein kveður á um gildistöku ákvörðinarinnar.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Allur kostnaður fellur til innan kerfis framlengdrar framleiðendaábyrgðar. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Gerðin sparar íslenskum rekstraraðilum fé til skemmri tíma en ekki til langs tíma. Gerðin eykur notkun flutningsumbúða úr einnota plasti í stað fjölnota umbúða. Engir sérhagsmunir Íslands í húfi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026D0429 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/429, 6.5.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2026)0511 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32025R0040 | based on, completes | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32025R0040 | Regulation (EU) 2025/40 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 on packaging and packaging waste, amending Regulation (EU) 2019/1020 and Directive (EU) 2019/904, and repealing Directive 94/62/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
