Uppfærsla á lýsigögnum, notkun ESAP og heimild til tilvísana skjala - 32026R0395

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/395 of 23 February 2026 amending the regulatory technical standards laid down in Delegated Regulation (EU) 2019/979 as regards updating the list of data necessary for the classification of prospectuses and the list of information that can be incorporated by reference into prospectuses


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér breytingar þannig að lýsigögn (metadata) í skráningarkerfi ESMA eru uppfærð til samræmis við nýjar lýsingategundir sem Listing Act kynnti. Bætt er við lýsigögnum fyrir EU Follow-on og EU Growth issuance lýsingar. Þá er útgefendum nú heimilt að vísa í tvær viðbótartegundir skjala í stað þess að taka efnið upp beint í lýsinguna: annars vegar skjöl sem voru samþykkt eða lögð fram hjá lögbæru yfirvaldi samkvæmt lýsingartilskipuninni (2003/71/EB), og hins vegar valkvæð ESG-upplýsingagjöf fyrir græn skuldabréf og sjálfbærnitengd skuldabréf samkvæmt EuGB-reglugerðinni.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerðin felur í sér breytingar þannig að lýsigögn (metadata) í skráningarkerfi ESMA eru uppfærð til samræmis við nýjar lýsingategundir sem Listing Act kynnti. Bætt er við lýsigögnum fyrir EU Follow-on og EU Growth issuance lýsingar. Þá er útgefendum nú heimilt að vísa í tvær viðbótartegundir skjala í stað þess að taka efnið upp beint í lýsinguna: annars vegar skjöl sem voru samþykkt eða lögð fram hjá lögbæru yfirvaldi samkvæmt lýsingartilskipuninni (2003/71/EB), og hins vegar valkvæð ESG-uppljóstrunargögn fyrir græn skuldabréf og sjálfbærnitengd skuldabréf samkvæmt EuGB-reglugerðinni. Þá er einnig ákvæði sem leyfir yfirvöldum að notast við ESAP til að senda gögn til ESMA.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglum Seðlabanka Íslands Nr. 1590/2021 frá 22. desember 2021 um helstu fjárhagsupplýsingar í samantekt lýsingar verðbréfa, birtingu og flokkun lýsinga, auglýsingar verðbréfa, viðauka við lýsingu, tilkynningagáttina og tilkynningu um almennt útboð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Seðlabanki Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0395
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/395, 2.6.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)1021
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

32019R0979 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi