Breyting á reglugerð varðandi sniðmát og efni útboðslýsinga - 32026R0773
Commission Delegated Regulation (EU) 2026/773 of 4 March 2026 amending Delegated Regulation (EU) 2019/980 as regards the reduced content and the standardised format and sequence of the EU Follow-on prospectus and the EU Growth issuance prospectus
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framseld reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin breytir framseldri reglugerð (ESB) 2019/980 og einfaldar og samræmir kröfur um útboðslýsingar, einkum fyrir svonefndar EU Follow-on og EU Growth issuance lýsingar. Markmiðið er að gera innihald þessara skjala styttra og skýrara, auk þess að staðla uppbyggingu, röð og framsetningu upplýsinga þannig að ferlið verði einfaldara og aðgengilegra bæði fyrir útgefendur og fjárfesta. Breytingarnar eiga að stuðla að minni stjórnsýslubyrði og meiri skilvirkni við útgáfu verðbréfa. Jafnframt er leitast við að tryggja áfram fullnægjandi upplýsingagjöf og gagnsæi á markaði, án þess að kröfur verði óþarflega íþyngjandi.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin breytir framseldri reglugerð (ESB) 2019/980 og einfaldar og samræmir kröfur um útboðslýsingar, einkum fyrir svonefndar EU Follow-on og EU Growth issuance lýsingar, með einfaldaðri form útboðslýsinga. Markmiðið er að draga úr umfangi og innihaldi þessara skjala með því að minnka upplýsingakröfur þar sem það á við, forðast endurtekningar á upplýsingum sem þegar eru aðgengilegar á markaði og einfalda framsetningu þeirra.Jafnframt er kveðið á um staðlaða uppbyggingu og fasta röð framsetningar upplýsinga, meðal annars með skýrari áherslu á áhættuþætti og lykilupplýsingar fyrir fjárfesta, auk þess sem í sumum tilvikum eru sett bein hámark á lengd skjala. Þessi stöðlun á að auðvelda samanburð milli útboða og bæta læsileika og skiljanleika fyrir fjárfesta.Breytingarnar miða þannig að því að gera ferlið við útgáfu verðbréfa hraðara, einfaldara og hagkvæmara fyrir útgefendur, sérstaklega með því að draga úr stjórnsýslubyrði og kostnaði sem fylgir gerð útboðslýsinga. Á sama tíma er leitast við að viðhalda nægilegu gagnsæi og vernd fjárfesta með því að tryggja að allar mikilvægar upplýsingar fyrir upplýsta fjárfestingarákvörðun komi fram, án þess að kröfurnar verði óþarflega íþyngjandi eða flóknar.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 274/2020 um innleiðingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 um sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Gerðin byggir á ákvæðum sem komu inn í reglugerð (ESB) 2017/1129 með Listing Act (reglugerð (ESB) 2024/2809), því þarf við lögfestingu Listing Act að bæta þeim ákvæðum við reglugerðarheimild 19. gr. laga nr. 14/2020. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Nú þegar er í gildi reglugerð nr. 274/2020 um innleiðingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 um sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og breytir þessi reglugerð ákveðnum þáttum hennar. Breytingin er einföldun á regluverkinu og ætti að leiða til lægri kostnaðar fyrir útgefendur og aðra markaðsaðila sem undirbúa lýsingar, en einnig til minni umsýslukostnaðar fyrir eftirlitsaðila við athugun og staðfestingu þeirra. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Nú þegar er í gildi reglugerð nr. 274/2020 um innleiðingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/980 um sniðmát, efni, athugun og staðfestingu lýsinga sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og breytir þessi reglugerð ákveðnum þáttum hennar. Breytingin er einföldun á regluverki. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Seðlabanki Íslands |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R0773 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/773, 15.6.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2026)1372 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32019R0980 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32017R1129 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
