Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/787 um breytingar á framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/2830 um tímasetningu, stjórnun og önnur atriði er lúta að uppboði á losunarheimildum - 32026R0787

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/787 of 8 April 2026 amending Delegated Regulation (EU) 2023/2830 as regards rules on the timing, administration and other aspects of auctioning of greenhouse gas emission allowances


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/787 gerir breytingar á framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/2830 hvað varðar tímasetningar, stjórnun og önnur atriði sem tengjast uppboði á losunarheimildum. Helstu breytingar fjalla um tímasetningar uppboða og fjölda uppboðsheimilda er varðar losunarheimildir vegna ETS2 og fjármögnunar félagslegs loftslagssjóðs (e. Social Climate Fund).

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/787 gerir breytingar á framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/2830 hvað varðar tímasetningar, stjórnun og önnur atriði sem tengjast uppboði á losunarheimildum. Þá er vert að nefna að framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/2830 hefur enn ekki verið tekin upp í EES-samninginn á þeim tímapunkti sem greining þessi er rituð.Helstu breytingar eru eftirfarandi:Breytingar á tímasetningum uppboða og fjölda uppboðsheimildaBreytingar eru gerðar á 8. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um tímasetningu, tíðni og dreifingu á magni uppboðsheimilda.Í 3. og 4. undirmálsgrein 4. mgr. er bætt við tilvísun í hvaða heimilda er verið að vísa til varðandi uppboðsheimildir, þ.e. að um sé að ræða losunarheimildir sem vísað er til í 10. og 11. gr. reglugerðarinnar. Sömuleiðis er orðunum „öðrum uppboðsvettvöngum“ skipt út fyrir „séruppboðsvettvangur“ sem er gert til að koma í veg fyrir að ekki sé hægt að bjóða upp losunarheimildir innan ETS1 og ETS2, sem þarf að vera hægt að gera sbr. 2. lið aðfararorða.Orðalagsbreytingar eru gerðar á 5. mgr. sem skipta einni undirmálsgrein upp í tvær og segja til um að í stað þess að uppboðsheimildir sem gefnar verða út vegna ETS2 á fyrsta ári uppboðs verði þeim dreift jafnt yfir tímabilið 1. janúar 2027 til 31. desember 2028, en ekki frá upphafi uppboðs og til 31. maí 2028 líkt og stóð áður.Á 13. gr. eru gerðar nokkrar breytingar. Í 1. og 2. mgr. er orðinu „á“ skipt út fyrir „fyrir“ eða „vegna“ (in skipt út fyrir for) þannig að vísað er til þeirra losunarheimilda sem eru settar á uppboð fyrir hvert ár en ekki á hverju ári. Einnig hefur vísun til ársins 2027 verið tekin út í 1. mgr.5. mgr. tekur fram að árlegt uppboðsmagn losunarheimilda sem vísað er til í 3. og 4. mgr. 30. gr. d tilskipunar 2003/87/EB (ETS-tilskipun) skuli vera boðið upp samhliða þeim losunarheimildum sem vísað er til í 1. mgr. þessarar greinar (13. gr. reglugerðarinnar sem hér um ræðir), sem og hvert upprunalegt magn losunarheimilda skuli vera. Breytingar felast í því að búið er að taka út klausu um að árlegt uppboðsmagn skuli vera boðið upp fyrir 31. ágúst hvert ár og að búið er að breyta hvert upprunalegt uppboðsmagn skuli vera og hvert tímabilið er, magnið hækkar um 100 milljónir heimilda (350 í 450 milljónir) og tímabilið breytist úr árinu 2027 í tímabilið 1.1.2027 til 31.12.2028.Töluverðar breytingar eru gerðar á 6. mgr. sem fjallar um breytingar á magni losunarheimilda sem eru boðnar upp til fjármögnunar félagslega loftslagssjóðsins (e. Social Climate Fund). Hægt er að aðlaga magn losunarheimilda sem boðið er upp til að ná upp í fjármögnun félagslega loftslagssjóðsins til að tryggja að markmiðum 30. gr. d ETS-tilskipunarinnar sé náð. Fyrir slíka aðlögun skal taka tillit til meðalverðs losunarheimilda síðustu 6 mánaða og hversu langt sé til loka árs 2032 og svo aðlaga uppboðsdagatal.Ef markmiðum um fjármögnun félagslega loftslagssjóðsins er náð áður en síðasta áætlaða uppboð losunarheimilda til fjármögnunar sjóðsins skal hætta við þau uppboð sem eftir eru og aðlaga uppboðsdagatalið.Nýrri 7. mgr. er bætt við 13. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt henni skal ekki bjóða upp það magn ETS2-losunarheimilda sem annars yrði boðið upp fyrir hönd viðkomandi ríkis fyrr en ríkið hefur innleitt í landsrétt skyldu eftirlitsskyldra aðila samkvæmt ETS2-kerfinu til að standa skil á losunarheimildum og viðurlög vegna umframlosunar. Heimildum sem haldið hefur verið eftir af þessum sökum skal bætt aftur við uppboðsmagnið þegar viðkomandi reglur hafa verið teknar upp í landsrétt. Hinu uppsafnaða magni skal þá dreift yfir jafnlangt tímabil og það tímabil sem heimildirnar voru ekki boðnar upp.Gerðar eru tvær breytingar á 14. gr. sem fjallar um aðlaganir á uppboðsdagatölum og magn losunarheimilda sem skal gera upp. Báðar breytingarnar eru gerðar á 1. mgr. sem segir að ekki skuli gera breytingar á uppboðum nema í ákveðnum tilvikum. Tveimur slíkum tilvikum er bætt við, að breytingar hafi verið gerðar á tilnefndum uppboðsstjórnendum (e. auctioneer) eða aðlaganir á magni uppboðsheimilda sbr. 7. mgr. 13. gr., sem fjallað er um hér að ofan.Uppboðsstjórnendur (e. auctioneer)Breytingar eru gerðar á 1. mgr. 22. gr. sem felast í því að í stað þess að ríki skulu tilnefna einn uppboðsstjórnanda skulu þau tilnefna a.m.k. einn slíkan.Aðilar sem fá leyfi til að bjóða í losunarheimildir fyrir hönd annarraGerðar eru breytingar á 4. og 5. mgr. 50. gr. sem fjallar um hátternisreglur aðila sem hafa fengið leyfi til að bjóða í losunarheimildir fyrir hönd annarra. Slíkir aðilar þurfa ekki að fá leyfi frá lögbæru stjórnvaldi viðkomandi ríkis (e. competent national authorities) til slíks og hafa kvaðir um slíkt því verið teknar út úr málsgreinunum. Breytingar hafa sömuleiðis verið gerðar á kröfum til lögbærra stjórnvalda þar sem þau þurfa ekki lengur að gefa slíkt leyfi en þurfa að tryggja eftirlit með aðilum sem eru skráðir í sama ríki og geta bannað aðilum að bjóða í losunarheimildir fyrir hönd annarra uppfylli þeir ekki hátternisreglurnar sem koma fram í greininni.Reglugerðin tók gildi í ESB daginn eftir birtingu í lögbirtingarblaði ESB, 9. apríl 2026. Ástæðan fyrir svo hraðri gildistöku var til að hægt væri að birta uppboðsdagatal ársins 2027 innan rétts tímaramma m.t.t. þeirra breytinga sem þessi reglugerð gerir á magni uppboðsheimilda og uppboðsdagatölum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf reglugerðina með reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sbr. 19. gr. laga nr. 96/2023.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Reglugerðin kann að leiða til nokkurs aukins kostnaðar hjá íslenskum stjórnvöldum vegna undirbúnings og umsýslu með uppboðum ETS2-losunarheimilda, þ.m.t. vegna aðlögunar uppboðsdagatala og umsýslu uppboðsstjórnenda. Sá kostnaður leiðir þó að meginstefnu af framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/2830 og innleiðingu ETS2-uppboðskerfisins sem slíks. Breytingarnar samkvæmt reglugerð (ESB) 2026/787 virðast því einar og sér ekki fela í sér verulegan viðbótarkostnað umfram þann kostnað sem þegar má gera ráð fyrir vegna grunngerðarinnar.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ákvæði 5. og 6. mgr. 13. gr. tengjast fjármögnun Félagslega loftslagssjóðsins (e. Social Climate Fund) með tekjum af uppboði ETS2-losunarheimilda. Í 5. mgr. er mælt fyrir um það magn losunarheimilda sem boðið skal upp í því skyni, en 6. mgr. fjallar um aðlögun uppboðsmagnsins með hliðsjón af þeim tekjum sem þegar hafa fengist og markmiðum um fjármögnun sjóðsins. Við upptöku tilskipunar (ESB) 2023/959 í EES-samninginn var sérstaklega tekið fram að upptakan hefði ekki áhrif á mat EFTA-ríkjanna á því hvort reglugerð (ESB) 2023/955 félli innan gildissviðs EES-samningsins. Reglugerð 2023/955, sem setur nánari reglur um Félagslega loftslagssjóðinn, er enn til skoðunar hjá EES/EFTA-ríkjunum. Verði reglugerð (ESB) 2023/955 ekki tekin upp í EES-samninginn verður að öllum líkindum nauðsynlegt að aðlaga 5. og 6. mgr. 13. gr. þannig að ákvæði um uppboð losunarheimilda til fjármögnunar Félagslega loftslagssjóðsins taki ekki til EFTA-ríkjanna.
Ný 7. mgr. 13. gr. tekur fram að ekki skuli bjóða upp það magn ETS2-losunarheimilda sem annars yrði boðið upp fyrir hönd viðkomandi ríkis fyrr en ríkið hefur innleitt í landsrétt skyldu eftirlitsskyldra aðila samkvæmt ETS2-kerfinu til að standa skil á losunarheimildum og viðurlög vegna umframlosunar. Frestun á upptöku ETS2 í landslög hefur því áhrif á það hvenær tekjur vegna uppboðs á losunarheimildum koma inn í ríkissjóð.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0787
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/787, 15.6.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)2119
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32023R2830 amends Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun