Nánari efnisumfjöllun
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2830 um viðbætur við tilskipun 2003/87/EB (hér eftir nefnd ETS-tilskipunin) að því er varðar reglur um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti í tengslum við uppboð á heimildum til losunar gróðurhúsalofttegunda, sem hér er til greiningar, fjallar um uppboð losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (hér eftir nefnt ETS-kerfið). Er reglugerðin sett m.a. á grundvelli 3. mgr. 3. gr. d ETS-tilskipunarinnar, sem fjallar um uppboð losunarheimilda fyrir flugstarfsemi, 4. mgr. 10. gr. sem fjallar um uppboð losunarheimilda fyrir staðbundinn iðnað, sbr. 3. mgr. 3. gr. ga sem mælir fyrir um að 10. gr. tilskipunarinnar um uppboð skuli einnig gilda fyrir sjóflutninga (sjá þó 2. undirgrein þeirrar málsgreinar) og 30. gr. d sem fjallar um uppboð losunarheimilda fyrir starfsemi sem tilgreind er í III. viðauka tilskipunarinnar (byggingar, vegasamgöngur og viðbótargeirar, hér eftir nefnt ETS2-kerfið). Sjá einnig 3. og 4. mgr. 10. gr. a og 10. gr. d ETS-tilskipunarinnar um uppboð fyrir nútímavæðingarsjóðinn (e. Modernisation Fund), 8. mgr. 10. gr. a um uppboð fyrir nýsköpunarsjóðinn (e. Innovation Fund), 8. mgr. b í 10. gr. a um uppboð fyrir félagslega loftslagssjóðinn (e. Social Climate Fund) og 10. gr. e um uppboð fyrir „the Recovery and Resilience Facility“.Fyrirrennari reglugerðar þessarar var reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 sem var upphaflega sett innan ESB um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti í tengslum við uppboð á heimildum til losunar gróðurhúsalofttegunda samkvæmt ETS-tilskipuninni (hér eftir nefnd fyrri reglugerð). Í ljósi umfangs þeirra breytingar sem nauðsynlegar voru til samræmingar við þær breytingar sem orðið hafa á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir undanfarið, sbr. tilskipun (ESB) 2023/959, var ákveðið að setja nýja reglugerð um uppboð losunarheimilda, þ.e. reglugerð (ESB) 2023/2830 sem hér er til greiningar, sem fellir fyrri reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 úr gildi.Helstu breytingar á reglum er varða uppboð losunarheimilda eru vegna innleiðingar sjóflutninga í ETS-kerfið, stofnun ETS2-kerfisins og stofnunar félagslega loftslagssjóðsins (e. Social Climate Fund) í tengslum við ETS2-kerfið. Gerðar eru breytingar í sambandi við ákvæði 10. gr. e ETS-tilskipunarinnar sem kom inn með breytingum skv. reglugerð (ESB) 2023/435 og fjallar um „the Recovery and Resiliance Facility“, sem var sett á fót með reglugerð (ESB) 2021/241 vegna áhrifa af COVID-19 faraldrinum og stríðs Rússlands gegn Úkraínu. Einnig skal hér tekið fram að vegna nýlegra breytinga á skilgreiningu „almennra losunarheimilda“ í reglugerð (ESB) 2019/1122 um skráningarkerfi með losunarheimildir, þar sem allar losunarheimildir gefnar út eftir 1. janúar 2025 fyrir staðbundinn iðnað, sjóflutninga og flugstarfsemi skulu vera almennar losunarheimildir, þ.e. sérsakar losunarheimildir fyrir flug detta út, var nauðsynlegt að tryggja í reglugerð þessari að þær losunarheimildir verði boðnar upp sameiginlega í sömu tilboðsgluggum frá 1. janúar 2025, sbr. 10. tölul. formálsorða reglugerðar þessarar. Losunarheimildir fyrir ETS2-kerfið verða boðnar upp sérstaklega þar sem um aðskilið kerfi er að ræða, sbr. 19. tölul. formálsorðanna. Til viðbótar eru í ljósi reynslunnar af framkvæmd fyrri reglugerðar gerðar ýmsar breytingar til að skýra betur og fínpússa ákveðin atriði í tengslum við uppboð. Verður nú farið yfir efni reglugerðar þeirrar sem hér er til greiningar og vakin sérstök athygli á þeim breytingum sem orðið hafa frá fyrri reglugerð. I. KAFLI – Almenn ákvæðiEfni, gildissvið og skilgreiningarÍ reglugerð þessari er kveðið á um reglur um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti við uppboð losunarheimilda skv. ETS-tilskipuninni, sbr. 1. gr. og gildir hún um úthlutun losunarheimilda með uppboði skv. sömu tilskipun, sbr. 2. gr. 3. gr. reglugerðarinnar inniheldur skilgreiningar og eru helstu breytingar frá fyrri reglugerð eftirfarandi:Skilgreiningu á hugtakinu „two-day spot“, sem var í fyrri reglugerð þýtt sem staðgreiðslusamningur með tveggja daga afgreiðslufresti, er breytt. Er nú notast við hugtakið „two-day spot contracts“ sem er skilgreint sem „samningar um losunarheimildir sem boðnar er upp til afhendingar á samþykktri dagsetningu eigi síðar en á öðrum viðskiptadegi eftir uppboðið“, sbr. 1. tölul.Skilgreining á „fimm daga framtíðarsamningum“ dettur út þar sem ekki er lengur notast við slíka tegund samninga heldur einungis staðgreiðslusamninga með tveggja daga afgreiðslufresti.Skilgreiningu á „uppboðsferli“ (e. auction process) er breytt þar sem „millifærslu uppboðstekna“ (e. transfer of auction proceeds) er bætt við skilgreininguna, sbr. 13. tölul.Sett er inn ný skilgreining á uppboðsvettvangi (e. auction platform), sbr. 17. tölul., sem eru allir opinberir eða einkaaðilar tilnefndir til að sinna þeim verkefnum sem vísað er til í 27., 28., 30. og 31. gr. reglugerðarinnar.Sett er inn skilgreining á hinum almenna uppboðsvettvangi (e. common auction platform), sbr. 18. tölul. sem er uppboðsvettvangur tilnefndur í kjölfar sameiginlegs innkaupaferlis framkvæmdastjórnarinnar og aðildarríkja, sem samningsyfirvalda, skv. 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar.Sett er inn skilgreining á sérupppboðsvettvangi (e. opt-out auction platform), sbr. 19. tölul., sem er uppboðsvettvangur tilnefndur af aðildarríki sem ekki tekur þátt í þeim sameiginlegu aðgerðum sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar, sem eigin uppboðsvettvangur skv. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.Hugtakinu „tilnefndur geymslureikningur“ (e. nominated holding account) er breytt og er nú notast við hugtakið „tilnefndur reikningur í skráningarkerfi Sambandsins“ (e. nominated Union Registry account), sbr. 21. tölul., og er hér vísað í hvers konar reikning í skráningarkerfi Sambandsins sem sett er á fót með framseldri reglugerð (ESB) 2019/1122.Einhver breyting er gerð á orðalagi skilgreininga á hugtökunum „greiðslumiðlun“ (e. clearing), sbr. 33. tölul., „tryggingarþekja“ (e. margining), sbr. 34. tölul., „milligönguaðili“ (e. central counterparty), sbr. 36. tölul. og „uppgjörskerfi“ (e. settlement system), sbr. 37. tölul.Skilgreiningu á „starfsstöð“ (e. establishment) er breytt í „aðildarríki starfsstöðvar“ (e. Member State of establishment), sjá 43. tölul. II. KAFLI – Útfærsla uppboða4. gr. fjallar um uppboðsvörur, sem eru losunarheimildir, en hvert aðildarríki skal bjóða upp losunarheimildir í formi staðgreiðslusamninga með tveggja daga afhendingarfresti (e. two-day spot contracts). Er hér um að ræða breytingu frá fyrri reglugerð þar sem aðildarríki gátu annars vegar beitt staðgreiðslusamningum með tveggja daga afhendingarfresti og hins vegar fimm daga framtíðarsamningum (e. five-day futures). 5. gr. fjallar um snið uppboða og er óbreytt frá fyrri reglugerð.Í 6. gr. er mælt fyrir um framlagningu og afturköllun tilboða (e. bids) og er hún sambærileg 6. gr. fyrri reglugerðar. Skv. 1. mgr. er lágmarksfjöldi losunarheimilda sem boðið er í einn uppboðsliður (e. one lot) af 500 losunarheimildum, en tekin er út 2. undirgrein 1. mgr. fyrri reglugerðar um að einn uppboðsliður sem boðinn er upp af uppboðsvettvangi sem tilnefndur er skv. sameiginlegri aðgerð framkvæmdastjórnarinnar og aðildarríkja eða séruppboðsvettvangi skuli vera 500 losunarheimildir.Í 2. mgr. er talið upp í fjórum stafliðum hvað skuli koma fram í tilboði. Skv. 3. mgr. er einungis hægt að leggja fram, breyta eða draga til baka tilboð innan tiltekins frests áður en tilboðsglugginn lokar, sem viðkomandi uppboðsvettvangur skal auglýsa á vefsíðu sinni a.m.k. fimm viðskiptadögum fyrir opnun tilboðsgluggans. Tilboð sem lagt er fram skal vera bindandi, nema það sé afturkallað eða því breytt í samræmi við 3. mgr. eða afturkallað skv. 4. mgr. sömu greinar. 4. mgr. 6. gr. mælir fyrir um tilvik þar sem viðkomandi uppboðsvettvangur getur metið sem svo að tilboð hafi verið lagt fram fyrir raunveruleg mistök og því megi, að beiðni bjóðandans, fara um það sem um afturkallað tilboð væri að ræða, hafi uppboðsverðið ekki verið ákvarðað. Samkvæmt 5. mgr. 6. gr. skal móttaka, sending og framlagning tilboðs af hálfu fjárfestingarfyrirtækis eða lánastofnunar á uppboðsvettvangi teljast sem fjárfestingarþjónusta og starfsemi í merkingu 2.-liðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB.Í 7. gr. er fjallað um uppboðsverð og meðhöndlun jafnhárra tilboða, en uppboðsverðið skal ákvarðað þegar tilboðsglugganum hefur verið lokað, sbr. 1. mgr. Einnig er í greininni fjallað um tilvik þar sem uppboðsverð er umtalsvert lægra en verð á almennum markaði og hætta skal við uppboðið af þeim sökum, sbr. 6. mgr. Í 7. mgr. er fjallað nánar um 6. mgr. í framkvæmd. Gerðar eru breytingar á 8. mgr. 7. gr. frá fyrri reglugerð og tveimur málsgreinum bætt við, 9. og 10. mgr. Í 8. mgr. reglugerðar þessarar kemur fram að 6. og 7. mgr. 8. gr. gildi ekki um uppboð skv. 13. gr. reglugerðarinnar (ETS2) í tvo mánuði frá fyrsta uppboði slíkra losunarheimilda, en hægt er að lengja það tímabil eftir samráð við viðeigandi samningsstjórnvald sem vísað er til í 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar. Sjá nánari umfjöllun hvað varðar þessa undanþágu vegna ETS2-kerfisins í 15. tölul. formálsorða reglugerðarinnar. III. KAFLI – UppboðsalmanakTímasetning og tíðni uppboða og miðlun losunarheimilda8. gr. fjallar um tímasetningu, tíðni og miðlun (e. distribution) á fjölda losunarheimilda (e. the volume of allowances). Hver uppboðsvettvangur heldur uppboð gegnum sína eigin reglubundnu tilboðsglugga, sbr. 1. mgr. Tilboðsgluggi vegna uppboðs losunarheimilda fyrir ETS2-kerfið sem vísað er til í 13. gr. og haldið er af hinum almenna uppboðsvettvangi, skal vera aðgreint frá tilboðsgluggum vegna uppboðs losunarheimilda fyrir staðbundinn iðnað og sjóflutninga skv. 10. gr. og flugstarfsemi skv. 11. gr. Tilboðsgluggar skulu opnast og lokast á sama viðskiptadegi og skulu vera opnir í a.m.k. tvo klukkutíma. Tilboðsgluggar vegna uppboðs á losunarheimildum skv. 10. gr., 11. gr. og 13. gr. skulu ekki skarast. Frá 1. janúar 2025 skulu losunarheimildir skv. 10. gr. (sjóflutningar og staðbundinn iðnaður) og losunarheimildir skv. 11. gr. (flug) boðnar upp í sömu tilboðsgluggum, sbr. 1. mgr. 8. gr.Uppboðsvettvangurinn skal ákvarða dagsetningu og tímasetningu uppboða, sbr. 2. og 3. mgr. 8. gr. Uppboð skv. 10. og 13. gr. reglugerðarinnar skulu haldin a.m.k. vikulega og uppboð skv. 11. gr. a.m.k. annan hvern mánuð, sbr. 4. mgr. 8. gr. Í 4. og 5. mgr. 8. gr. er fjallað nánar um tíðni uppboða og miðlun losunarheimilda á uppboð.9. gr. fjallar um aðstæður sem geta komið í veg fyrir uppboðshald. Losunarheimildir sem bjóða skal upp fyrir sjóflutninga og staðbundinn iðnaðÍ 10. gr. er fjallað um þann árlega fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp fyrir sjóflutninga, sbr. 3. gr. ga ETS-tilskipunarinnar, og staðbundna starfsemi, sbr. III. kafla sömu tilskipunar, en hann skal ákvarðaður í samræmi við 1. mgr. 10. gr. og 1. mgr. 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar, sbr. 1. mgr. 10. gr. reglugerðar þeirrar er hér er til greiningar. Greinin er töluvert breytt frá fyrri reglugerð því hún fjallaði áður einungis um heimildir sem féllu undir III. kafla ETS-tilskipunarinnar, þ.e. staðbundna starfsemi, en nú hafa sjóflutningar bæst við kerfið og því einnig vísað til þeirra í greininni. Auk þess er nú að finna ítarleg ákvæði í greininni um miðlun losunarheimilda sem bjóða skal upp fyrir nýsköpunarsjóðinn og breytingar hvað varðar markaðsstöðugleikavarasjóðinn (e. market stability reserve).Skv. 2. mgr. 10. gr. skal fjöldi losunarheimilda sem hvert aðildarríki býður upp á hverju almanaksári byggja á þeim fjölda sem ákvarðaður er skv. 1. mgr. 10. gr. reglugerðar þessarar og hlutfalls losunarheimilda viðkomandi aðildarríkis sem ákvarðað er skv. 3. mgr. 3. gr. ga og 2. mgr. 10. gr. ETS-tilskipunarinnar.Í 3. mgr. 10. gr. eru talin upp þau ákvæði ETS-tilskipunarinnar, ákvörðunar (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikavarasjóð og reglugerðar (ESB) 2018/842 (Effort Sharing Regulation) sem geta haft áhrif á þann fjölda losunarheimilda sem boðinn er upp.Í 4. mgr. er tekið fram að allar breytingar sem verða á fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp á hverju ári, utan við breytingar skv. 14. gr. reglugerðar þessarar, geta haft áhrif á þann fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp á árinu á eftir. Auk þess skal sá fjöldi losunarheimilda sem ekki var hægt að bjóða upp á tilteknu ári vegna þess sem fram kemur í 1. mgr. 6. gr. tekinn með í reikninginn hvað varðar fjölda losunarheimilda sem boðinn verður upp á árinu á eftir.Í 5. mgr. 10. gr. er fjallað um miðlun losunarheimilda sem bjóða skal upp fyrir nýsköpunarsjóðinn skv. 8. mgr. 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar og talin upp þau ákvæði tilskipunarinnar sem geta haft áhrif á ákvörðun um miðlun slíkra heimilda.6. mgr. 10. gr. fjallar um upphaflegan árlegan fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp skv. 2. og 3. mgr. 10. gr. e ETS-tilskipunarinnar, sem fjalla um „Recovery and Resilience Facility“. Losunarheimildir sem bjóða skal upp fyrir flug11. gr. fjallar um þann árlega fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp fyrir flug, sbr. 3. gr. b ETS-tilskipunarinnar, en hann skal ákvarðaður í samræmi við 3. gr. c og d sömu tilskipunar, sbr. 1. mgr. 11. gr. reglugerðar þessarar. Skv. 2. mgr. 11. gr. skal fjöldi losunarheimilda sem hvert aðildarríki býður upp á hverju almanaksári byggja á þeim fjölda sem ákvarðaður er skv. 1. mgr. 11. gr. reglugerðar þessarar og hlutfalls losunarheimilda viðkomandi aðildarríkis sem ákvarðað er skv. 3. mgr. 3. gr. d ETS-tilskipunarinnar.3. og 4. mgr. 11. gr. eru sambærilegar 4. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar er varðar sjóflutninga og staðbundinn iðnað. Uppboðsalmanak vegna einstakra uppboða skv. 10. og 11. gr. sem haldin eru af almenna uppboðsvettvanginumÍ 12. gr. er fjallað um uppboðsalmanak vegna einstakra uppboða á losunarheimildum sem vísað er til í 10. og 11. gr. reglugerðarinnar og skulu boðnar upp af almenna uppboðsvettvanginum. Er um breytingu á uppsetningu að ræða frá fyrri reglugerð þar sem slík grein var annars vegar í 11. gr. hvað varðaði losunarheimildir fyrir staðbundinn iðnað og hins vegar í 13. gr. hvað varðaði losunarheimildir fyrir flug.Skv. 1. mgr. skal almenni uppboðsvettvangurinn, eftir að hafa ráðfært sig við framkvæmdastjórnina, ákveða og birta upplýsingar er varða losunarheimildir skv. 10. og 11. gr. og bjóða skal upp á einstökum uppboðum á hverju almanaksári. Birta skal uppboðsalmanakið fyrir 31. júlí á árinu á undan, eða eins fljótt og hægt er þar á eftir, svo lengi sem framkvæmdastjórin hefur fyrirskipað miðlæga stjórnanda skráningarkerfis Sambandsins að skrá viðeigandi uppboðstöflu (e. auction table) í skráningarkerfið skv. reglugerð (ESB) 2019/1122, sbr. 2. mgr. 12. gr.Frá og með 1. janúar 2025 skal almenni uppboðsvettvangurinn gera og birta sameiginlegt uppboðsalmanak fyrir losunarheimildir skv. 10. og 11. gr. í samræmi við reglugerð (ESB) 2019/1122. Losunarheimildir og uppboðsalmanak fyrir einstök uppboð hvað varðar ETS2Í 13. gr. reglugerðarinnar, sem er ný, er fjallað um árlegan fjölda losunarheimilda og almanak fyrir einstök uppboð hvað varðar byggingar, vegasamgöngur og viðbótargeira, sbr. 30. gr. a ETS-tilskipunarinnar. Árlegur fjöldi losunarheimilda sem boðinn skal upp frá 2027 skal ákvarðaður í samræmi við 30. gr. c og d sömu tilskipunar, sbr. 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar.Skv. 2. mgr. 13. gr. skal fjöldi losunarheimilda sem hvert aðildarríki býður upp á hverju almanaksári byggja á þeim fjölda sem ákvarðaður er skv. 1. mgr. 13. gr. reglugerðar þessarar og hlutfalls losunarheimilda viðkomandi aðildarríkis sem ákvarðað er skv. 5. mgr. 30. gr. d ETS-tilskipunarinnar.Í 3. mgr. 13. gr. er tekið fram að ákvæði 3. mgr. 30. gr. e, 30. gr. h og 30. gr. j ETS-tilskipunarinnar og 1. gr. a ákvörðunar (ESB) 2015/1814 um markaðsstöðugleikavarasjóð gætu haft áhrif á árlegan fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp skv. 13. gr.4. mgr. 13. gr. er sambærileg 1. og 2. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar, og fjallar um skyldu almenna uppboðsvettvangsins til að ákveða og birta upplýsingar um almanak og uppboð fyrir losunarheimildir skv. 2. mgr. 13. gr.Árlegur fjöldi losunarheimilda sem vísað er til í 3. og 4. mgr. 30. gr. d ETS-tilskipunarinnar skal boðinn upp ásamt viðkomandi árlegum fjölda losunarheimilda skv. 1. mgr. 13. gr. reglugerðar þessarar fyrir 31. ágúst á hverju ári, sbr. 5. mgr. 13. gr. Upphaflegur fjöldi losunarheimilda sem bjóða skal upp 2027 skv. 3. og 4. mgr. 30. gr. d ETS-tilskipunarinnarskal vera 350 milljónir heimilda.Í 6. mgr. 13. gr. segir að ef 75% af þeirri árlegu hámarksupphæð tekna sem vísað er til í 4. mgr. 30. gr. d ETS-tilskipunarinnar hefur ekki verið aflað fyrir 30. júní á viðkomandi ári, skuli auka árlegan fjölda þeirra losunarheimilda sem boðnar skulu upp fyrir félagslega loftslagssjóðinn (e. Social Climate Fund) á tímabilinu september til desember á því ári. Hins vegar, ef hámarksupphæð tekna er náð fyrr en upphaflega var áætlað í uppboðsalmanakinu, skal öllum síðari uppboðum losunarheimilda fyrir félagslega loftslagssjóðinn frestað (suspended) skv. viðeigandi ákvæðum þar um í reglugerð (ESB) 2019/1122 um skráningarkerfið. Í báðum framangreindum tilvikum skal uppboðsalmanakinu breytt til samræmis án tafar, skv. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar þessarar, til að annaðhvort fjölga þeim losunarheimildum sem bjóða skal upp fyrir félagslega loftslagssjóðinn á tímabilinu september til desember á viðkomandi ári eða til að aðildarríki geti boðið upp umframheimildir. Breytingar á uppboðsalmanaki og fjölda losunarheimilda sem bjóða skal uppÍ 14. gr. reglugerðarinnar eru í stafliðum a-p talin upp þau tilvik þar sem heimilt er að gera breytingar á árlegum fjölda losunarheimilda sem bjóða skal upp, á tilboðsgluggum, miðlun losunarheimilda, dagsetningum, uppboðsvöru, greiðslu og dagsetningum afhendingar í tengslum við einstök uppboð skv. 10., 11. og 13. gr. og 3. mgr. 31. gr. reglugerðar þessarar. IV. KAFLI – Aðgangur að uppboðumÍ 15. gr. er fjallað um aðila sem mega gera tilboð beint á uppboði, í 16. gr. um aðgangsleiðir og í 17. gr. um þjálfun og aðstoð.Aðilar sem sækja mega um leyfi til að gera tilboð og kröfur slíks leyfisÍ 18. gr. kemur fram hvaða aðilar eru hæfir til að sækja um leyfi til að gera tilboð og eru þeir taldir upp í liðum a-e í 1. mgr. Þar er einungis a-liðurinn breyttur frá fyrri reglugerð, þar sem skipafélagi og eftirlitsskyldum aðila hefur verið bætt við. 2. undirgrein 1. mgr. 18. gr. er ný en skv. henni mega rekstraraðilar, flugrekendur og skipafélög einungis taka þátt í uppboðum losunarheimilda sem vísað er til í 10. og 11. gr. en eftirlitsskyldir aðilar mega einungis taka þátt í uppboðum sem vísað er til í 13. gr., þ. á m. þegar þeir nýta sér þjónustu þeirra aðila sem taldir eru upp í b-e-liðum 1. mgr. 18. gr. til að gera tilboð fyrir þeirra hönd.2. mgr. 18. gr. er óbreytt frá fyrri reglugerð. Í 3. mgr. eru ákvæði sambærileg 3. mgr. 19. gr. í fyrri reglugerð, en málsgreinin fjallar um skilyrði sem aðilar í b- og c-lið 1. mgr. 18. gr. og 2. mgr. 18. gr. sem gera tilboð fyrir hönd viðskiptavina sinna, skulu tryggja að séu uppfyllt.Í 4. mgr. 18. gr. eru þeir aðilar taldir upp sem vegna hlutverka sinna í tengslum við uppboðin eru ekki hæfir til að sækja um leyfi til að gera tilboð beint á uppboði og mega ekki taka þátt í uppboðum með milligöngu aðila sem hafa heimild til að gera tilboð skv. 19. og 20. gr. reglugerðar þessarar, hvort sem það er fyrir eigin hönd eða hönd annarra. Er hér um að ræða uppboðshaldarann, uppboðsvettvanginn o.fl.Í 19. gr. er fjallað um kröfur varðandi leyfi til að gera tilboð og er greinin efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð utan við að skipafélögum og eftirlitsskyldum aðilum er bætt við og efni 3. mgr. er nú að finna í 3. mgr. 18. gr. reglugerðar þessarar.20. gr. fjallar um framlagningu og afgreiðslu umsókna um leyfi til að gera tilboð. Greinin er efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð utan við að 7. mgr. fyrri reglugerðar er tekin út.Í 21. gr. er fjallað um synjun, afturköllun eða tímabundna synjun um leyfi til að gera tilboð og er greinin efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð. V. KAFLI – Tilnefning uppboðshaldara (e. auctioneer) og verkefni hans 22. gr. fjallar um tilnefningu uppboðshaldara og er greinin efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð, utan við að 5. mgr. fyrri reglugerðar er tekin út. Hvert aðildarríki skal tilnefna uppboðshaldara áður en losunarheimildir eru boðnar upp, en sami uppboðshaldari getur verið tilnefndur af fleiri en einu aðildarríki, sbr. 1. mgr. 22. gr.í 23. gr. er fjallað um verkefni (e. tasks) uppboðshaldarans (í fyrri reglugerð var heiti greinarinnar hlutverk (e. functions) uppboðshaldarans) og eru verkefni hans talin upp í a-c-lið 1. mgr. Hann skal bjóða upp losunarheimildir, taka við uppboðstekjunum og greiða út uppboðstekjurnar að því er varðar hvert aðildarríki sem tilnefndi hann sem uppboðshaldara. Í reglugerð þessari hefur því verið bætt við að uppboðshaldari skuli einnig sinna þessum verkefnum er varðar hvern þann sjóð eða stöð (e. facility) sem skal móttaka viðkomandi uppboðstekjur skv. lögum Sambandsins. VI. KAFLI – Losunarheimildir sem skal bjóða upp fyrir sjóði og ógilding losunarheimilda.Í 24. gr. er fjallað um losunarheimildir sem bjóða skal upp fyrir nýsköpunarsjóðinn, nútímavæðingarsjóðinn, „the Recovery and Resilience Facility“ og félagslega loftslagssjóðinn. Greinin er breytt frá fyrri reglugerð þar sem tveir síðasttöldu sjóðirnir hafa nú bæst við. Í 1. mgr. segir að Fjárfestingarbanki Evrópu (the European Investment Bank) skuli vera uppboðshaldari fyrir losunarheimildir sem bjóða skuli upp frá og með 2021 skv. 8. og 9. mgr. 10. gr. a, 10. gr. d og 10. gr. e ETS-tilskipunarinnar á sameiginlega uppboðsvettvanginum (e. the common auction platform).Skv. 3. mgr. 24. gr. skal framkvæmdastjórnin vera uppboðshaldari þeirra losunarheimilda sem skulu boðnar upp skv. 8. mgr. b 10. gr. a og 3. og 4. mgr. 30. gr. ETS-tilskipunarinnar (þ.e. fyrir félagslega loftslagssjóðinn) á sameiginlega uppboðsvettvanginum. Í 3. mgr. er tekið fram að 2., 3. og 4. mgr. 22. gr., 23. gr., 35. og 36. gr. og 1. mgr. 43. gr. reglugerðar þessarar skuli gilda „mutatis mutandis“ hvað varðar framkvæmdastjórnina.Skv. 4. mgr. 24. gr. skal árlegur fjöldi þeirra losunarheimilda sem vísað er til í 1. mgr. 24. gr. reglugerðar þessarar og 8. mgr. b í 10. gr. a ETS-tilskipunarinnar boðnar upp ásamt viðkomandi árlegum fjölda losunarheimilda sem vísað er til í 10. gr. reglugerðar þessarar á uppboðunum sem haldin eru af sameiginlega uppboðsvettvanginum og skal honum miðlað jafnt í samræmi við fyrstu undirgrein 4. mgr. 8. gr. reglugerðar þessarar.25. gr. fjallar um málsmeðferð við ógildingu losunarheimilda (e. cancellation of allowances) á grundvelli 4. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar sem hvetur aðildarríki til að ógilda losunarheimildir ef til þess kemur að það lokast fyrir raforkuframleiðslugetu á yfirráðasvæði þeirra vegna landsbundinna viðbótarráðstafana. Breyting á 25. gr. frá fyrri reglugerð er sú að einni undirgrein hefur verið bætt við 1. mgr. þar sem mælt er fyrir um tilkynningu aðildarríkis til framkvæmdastjórnarinnar um þann fjölda losunarheimilda sem er ógiltur á tilteknu tímabili, og nýrri 2. mgr. hefur verið bætt við þar sem mælt er fyrir um að ætli aðildarríki ekki að ógilda losunarheimildir á grundvelli 4. mgr. 12. gr. ETS-tilskipunarinnar skuli tilkynna framkvæmdastjórninni um ástæður þess. VII. KAFLI – Tilnefning og þjónusta hins almenna uppboðsvettvangs (e. the common auction platform)Í VII. kafla reglugerðar þessarar er fjallað um almenna uppboðsvettvanginn og er þar átt við uppboðsvettvang sem tilnefndur er eftir sameiginlegt innkaupaferli framkvæmdastjórnarinnar og þeirra aðildarríkja sem taka þátt í sameiginlegu aðgerðinni skv. þessari grein, sbr. 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar. Um er að ræða sama uppboðsvettvang og mælt var fyrir um í 26. gr. fyrri reglugerðar en nú hefur hann hlotið heitið „the common auction platform“, sbr. skilgreiningu í 18. tölul. 3. gr. reglugerðar þessarar. Greinin er efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð.27. gr. fjallar um þá þjónustu sem sameiginlegi uppboðsvettvangurinn veitir aðildarríkjum, og er hún talin upp í stafliðum a-g. Greinin er efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð.28. gr. fjallar um þá tæknilegu þjónustu sem sameiginlegi uppboðsvettvangurinn veitir framkvæmdastjórninni og eru gerðar nokkrar breytingar frá fyrri reglugerð, sbr. b- og c-lið. VIII. KAFLI – Tilnefning og verkefni séruppboðsvettvanga (e. opt-out auction platforms)Í VIII. kafla reglugerðarinnar er fjallað um séruppboðsvettvanga og er þar átt við þau tilvik þar sem aðildarríki kjósa að taka ekki þátt í sameiginlega uppboðsvettvangingum heldur hafa sína eigin uppboðsvettvanga. Um er að ræða sömu tegund uppboðsvettvanga og fjallað var um í 30. gr. fyrri reglugerðar en nú hafa þeir verið skilgreindir sérstaklega sem „opt-out auction platforms“, sbr. skilgreiningu í 19. tölul. 3. gr. reglugerðar þessarar.29. gr. reglugerðarinnar fjallar um tilnefningu séruppboðsvettvanga af hálfu aðildarríkja og er greinin efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð. 30. gr. fjallar um verkefni séruppboðsvettvanga og er sambærileg 31. gr. fyrri reglugerðar.31. gr. fjallar um uppboðsalmanak fyrir séruppboðsvettvanga og er sambærileg 32. gr. fyrri reglugerðar. 1. mgr. er sambærileg 1. mgr. fyrri reglugerðar að öllu leyti nema talan 1,5 milljón í síðari málsl. 1. mgr. fyrri reglugerðar er breytt í 1 milljón í lokamálsl. 1. mgr. í reglugerð þessari. 2. mgr. 31. gr. reglugerðar þessarar er einnig sambærileg 2. mgr. 32. gr. fyrri reglugerðar nema að bætt hefur verið við nýrri 2. undirgrein sem segir að frá og með 1. janúar 2025 skuli þau ákvæði 1. mgr. 31. gr. sem gilda um losunarheimildir sem vísað er til í 10. gr. reglugerðar þessarar, einnig gilda um losunarheimildir sem vísað er til í 11. gr.Fyrsta undirgrein 3. mgr. 31. gr. fjallar um skyldu séruppboðsvettvangsins, eftir samráð við framkvæmdastjórnina, til að ákveða og birta upplýsingar um uppboðsalmanak og einstök uppboð fyrir losunarheimildir á hverju almanaksári. Fjöldi losunarheimilda á hverju uppboði skal ákvarðaður í samræmi við 10. og 11. gr., sbr. fyrstu undirgrein 4. mgr. 32. gr. fyrri reglugerðar sem er eins að efni til. Í 2. undirgrein 3. mgr. 31. gr. reglugerðar þessarar segir að séruppboðsvettvangur skuli birta uppboðsalmanak fyrir viðkomandi ár fyrir 31. júlí árið á undan hvað varðar losunarheimildir sem vísað er til í 10. og 11. gr., eða eins fljótt og unnt er eftir þá dagsetningu, að því tilskildu að framkvæmdastjórnin hafi gefið miðlægum stjórnanda skráningarkerfis Sambandsins fyrirmæli um að færa viðkomandi uppboðstöflu inn í skráningarkerfið í samræmi við reglugerð (ESB) 2019/1122. Skv. 3. undirgrein 3. mgr. skulu séruppboðsvettvangar ákvarða og birta uppboðsalmanökin eftir að almenni uppboðsvettvangurinn hefur birt sín almanök í samræmi við 12. gr., nema slíkur uppboðsvettvangur hafi ekki enn verið tilnefndur. Leyfilegt er fyrir báðar tegundir uppboðsvettvanga að birta almanök sín samtímis. Birt almanök skulu samræmast reglum í III. viðauka reglugerðar þessarar, sbrt. 4. undirgrein 3. mgr. 31. gr.Skv. 4. mgr. 31. gr. reglugerðar þessarar skal í þeim tilvikum sem uppboð haldið af séruppboðsvettvangi er fellt niður skv. 5. eða 6. mgr. 7. gr. eða 9. gr., miðla uppboðnum fjölda losunarheimilda annaðhvort skv. 8. mgr. 7. gr. eða, ef viðkomandi uppboðsvettvangur heldur færri en fjögur uppboð á almanaksári, yfir næstu tvö uppboð sem á dagskrá eru hjá sama uppboðsvettvangi. IX. KAFLI – Kröfur vegna tilnefningar uppboðshaldara og kröfur til uppboðsvettvanga32. gr. reglugerðarinnar fjallar um kröfur vegna tilnefningar uppboðshaldara og er efnislega óbreytt frá 34. gr. fyrri reglugerðar.33. gr. fjallar um kröfur vegna tilnefningar uppboðsvettvanga og er sambærileg 35. gr. í fyrri reglugerð. Greinin er efnislega óbreytt fyrir utan að hugtakið „fimm daga framtíðarsamningar“ er tekið út, sbr. 2. mgr. og 4. mgr. 35. gr. fyrri reglugerðar. X. KAFLI – Skýrslugjöf um viðskipti34. gr. fjallar um skyldu til að tilkynna viðskipti og er greinin efnislega óbreytt frá 36. gr. fyrri reglugerðar, nema að nú er í 4. mgr. sérstaklega talið upp hvað skuli helst koma fram í slíkri skýrslu. XI. KAFLI – Greiðsla og millifærsla uppboðstekna35. gr. fjallar um greiðslur frá hlutskörpustu bjóðendunum og millifærslu tekna til aðildarríkjanna. 36. gr. fjallar um afleiðingar vegna greiðslu sem berst of seint eða vanskila. Greinarnar eru efnislega óbreyttar frá 44. og 45. gr. fyrri reglugerðar. XII. KAFLI – Afhending uppboðinna losunarheimildaÍ XII. kafla um afhendingu uppboðinna losunarheimilda er í 37. gr. fjallað um millifærslu uppboðinna losunarheimilda, í 38. gr. er fjallað um afhendingu þeirra og í 39. gr. um síðbúna afhendingu þeirra. Greinarnar eru óbreyttar frá fyrri reglugerð, sbr. 46., 47. og 48. gr. hennar, utan við vísan í „reikning í skráningarkerfinu“ (e. Union Registry account) sem var áður vísan í „geymslureikning“ (e. nominated holding account). XIII. KAFLI – Umsjón með tryggingumÍ kaflanum er annars vegar fjallað um tryggingu sem bjóðandinn leggur fram sbr. 40. gr., sem er örlítið ítarlegri en í fyrri reglugerð, sbr. 49. gr. hennar, og hins vegar tryggingu sem uppoðshaldari leggur fram sbr. 41. gr., en 1. mgr. 41. gr. er ítarlegri en sambærilegt ákvæði í 1. mgr. 50. gr. fyrri reglugerðar, og segir nú að fjölda og afhendingardag losunarheimilda sem setja á sem tryggingu skuli tiltaka í uppboðstöflum. Búið er að taka út vísan í „fimm daga framtíðarsamninga“ í kaflanum. XIV. KAFLI – Gjöld og kostnaðurÍ kaflanum er annars vegar að finna 42. gr. sem fjallar um tegund og upphæð gjalda og hins vegar 43. gr. sem fjallar um kostnað vegna uppboðsferlisins. Ákvæðin eru efnislega óbreytt frá fyrri reglugerð, sbr. 51. og 52. gr. hennar. XV. KAFLI – Eftirlit með uppboðum, ráðstafanir til úrbóta og viðurlögÍ 44. gr. er mælt fyrir um vöktun uppboða og er greinin efnislega óbreytt frá 53. gr. fyrri reglugerðar, utan við 2. mgr., þar sem Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA) hefur verið bætt við upptalninguna á því hvert uppboðsvettvangur skuli skila skýrslu skv. 1. mgr. sömu greinar, og utan við 5. og 6. mgr. þar sem ESMA hefur einnig verið bætt við yfir þá sem skulu eiga samvinnu sín á milli og við framkvæmdastjórnina.Í 45. gr. er mælt fyrir um vöktun á tengslum við bjóðendur og 46. gr. fjallar um tilkynningar um peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka eða glæpastarfsemi. Greinarnar eru efnislega óbreyttar frá 54. og 55. gr. fyrri reglugerðar.Í 47. gr. er fjallað um tilkynningu um markaðssvik og er greinin efnislega óbreytt frá 56. gr. fyrri reglugerðar utan við að í 2. mgr. hefur ESMA verið bætt við hvað varðar skyldu uppboðsvettvangs til að láta vita um tilkynningu skv. 1. mgr., til viðbótar við framkvæmdastjórnina.48. gr. fjallar um hámarksstærð tilboða og aðrar ráðstafanir til úrbóta og 49. gr. fjallar um reglur um hegðun á markaði og annað samningsbundið fyrirkomulag. Greinarnar eru efnislega óbreyttar frá 57. og 58. gr. fyrri reglugerðar. Einnig er 50. gr. reglugerðarinnar, sem fjallar um reglur um hegðun aðila sem hafa heimild til að gera tilboð fyrir hönd annarra, nánast óbreytt frá fyrri reglugerð, sbr. 59. gr. hennar. XVI. KAFLI – Gagnsæi og þagnarskylda51. gr. mælir fyrir um það sem uppboðsvettvangur skal birta á vefsíðu sinni í tengslum við uppboð og er efnislega óbreytt frá fyrir reglugerð, sbr. 60. gr. hennar.Í 52. gr. er mælt fyrir um yfirlýsingu og tilkynningu uppboðsvettvangs um niðurstöður uppboðs og talið upp í 1. mgr. hvað skal koma fram í yfirlýsingunni, en sú breyting er gerð frá fyrir reglugerð, sbr. 1. mgr. 61. gr. hennar, að skv. g-lið skal koma fram skipting heildarteknanna milli aðildarríkjanna og þeirra sjóða sem vísað er til í 24. gr., ef um er að ræða almenna uppboðsvettvanginn. Í fyrri reglugerð var ekki vísað til sjóða skv. 24. gr. í þessari málsgrein. Að öðru leyti er greinin óbreytt.53. gr. fjallar um verndun trúnaðarupplýsinga og er óbreytt frá fyrri reglugerð, sbr. 62. gr. hennar.54. gr. fjallar um val á tungumáli. XVII. KAFLI - LokaákvæðiÍ 55. gr. er mælt fyrir um rétt til áfrýjunar og er greinin óbreytt frá fyrri reglugerð, sbr. 64. gr. hennar.Í 56. gr. er fjallað um leiðréttingu á villum.Skv. 57. gr. er fyrri reglugerð, þ.e. reglugerð (ESB) nr. 1031/2010 felld úr gildi. Samsvörunartöflu má finna í IV. viðauka við reglugerð þessa.Reglugerð þessi hefur þegar tekið gildi hjá ESB, sbr. 58. gr.