32017R1902
Commission Regulation (EU) 2017/1902 of 18 October 2017 amending Commission Regulation (EU) No 1031/2010 to align the auctioning of allowances with Decision (EU) 2015/1814 of the European Parliament and of the Council and to list an auction platform to be appointed by the United Kingdom
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1902 frá 18. október 2017 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1031/2010 til að aðlaga uppboð á losunarheimildum að ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/1814 og til að skrá uppboðsvettvang sem Bretland tilnefnir
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 259/2018 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Tilgangur reglugerðarinnar er að samræma uppboð á losunarheimildum við ákvörðun nr. 1814/2015 (ESB) og til að skrá uppboðsvettvang skipaðan af Bretlandi.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1031/2010 kveður á um reglur um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti í tengslum við uppboð á losunarheimildir undir samkvæmt tilskipun nr. 87/2003/EB. Sérstaklega ákvarðar reglugerðin það magn losunarheimilda sem skal vera boðið upp hvert ár. Reglugerðin á að tryggja þannig að uppboð losunarheimilda gangi snuðrulaust fyrir sig.

Nánari efnisumfjöllun
Samkvæmt ákvörðun nr. 1814/2015 (ESB) skal koma á fót markaðsstöðugleikasjóði á árinu 2018 og sem mun hefja starfsemi 1. janúar 2019. Í samræmi við fyrirfram skilgreindar reglur skal magn losunarheimilda sem sett er í eða tekið úr varasjóðnum hafa áhrif á það magn losunarheimilda sem boðið er upp á hverju 12 mánaða tímabili sem hefst 1. september á tilteknu ári. Á fyrsta ári varasjóðsins skal aðlögunin við uppboðshlutfall vera frá 1. janúar til 1. september 2019. Þær 900 milljónir heimilda sem að upphaflega átti að bjóða upp árin 2019 og 2020 skv. reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar nr. 176/2016 verða ekki boðnar upp heldur settar í varasjóðinn. Einnig, losunarheimildir sem að ekki er úthlutað úr sjóði fyrir nýja þátttakendur, eða ekki úthlutað til staðbundinna rekstraraðila vegna lokunar eða stöðvunar reksturs skv. 10.gr. tilskipunar nr. 87/2003/EB, settar í varasjóðinn frekar en boðnar upp.
Ákvörðunin kveður á um breytingar á uppboðsalmanakinu,sem eru fyrirfram ákveðnar dagsetningar og tímasetningar á hvenær uppboð skuli fara fram, auk frekari reglna um framkvæmd uppboða. Almanakið verður aðlagað að magni losunarheimilda sem sett er í eða losað úr varasjóðnum, og breytingar á uppboðsalmanakinu sem stafa af ákvörðun nr. 1814/2015 EB verða gerðar saman með ákvörðun og birtingu uppboðsalmanaks komandi árs.
Einnig inniheldur breytingin nokkrar leiðréttingar á fyrri reglugerð, t.d. um að listi yfir persónur sem mega taka þátt í uppboðum skuli ekki teljast vera trúnaðarupplýsingar, og leiðréttingar á ósamræmi um að skýra að útreikningur á magni losunarheimilda sem bjóða á upp ár hvert taki með í reikninginn sérhverjar breytingar skv. 24 og 27 gr. tilskipunar nr. 87/2003/EB.
Að lokum hefur Bretland upplýst um ákvörðun sína um að taka ekki þátt í sameiginlegum aðgerðum eins og kveðið er á um í 26.gr. reglugerðar nr. 1031/2010 um tilnefningu uppboðsvettvangs með sameiginlegri aðgerð aðildarríkjanna og framkvæmdastjórnarinnar, og að Bretland muni skipa sinn eigin uppboðsvettvang, sem mun vera ICE Futures Europe. Til að tryggja að fyrirhuguð skipan ICE sem annar uppboðsvettvangur Bretlands, og sérstaklega það að gengisreglur ICE uppfylli kröfur reglugerðar nr. 1031/2010, þarf að útvíkka skuldbindingarnar og skilyrðin á ICE sem sett eru fram í viðauka III við Reglugerð 1031/2010.
Ákvæði 30 og 32 í reglugerð 1031/2010 sem fjalla um aðra uppboðsvettvanga en þann samevrópska gilda ekki fyrir Ísland, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar 152/2012.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf reglugerð nr. 525/2013 um tímasetningu, stjórnun og aðra þætti í tengslum við uppboð á heimildum til losunar gróðurhúsalofttegunda um skráningarkerfi fyrir losunarheimildir. Lagastoð er að finna í 28. gr. g laga nr. 70/2012 um loftslagsmál. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Þar sem að uppboð á losunarheimildum er ekki hafið á Íslandi telur Umhverfisstofnun þetta ekki hafa áhrif hér á landi að svo stöddu og er aðlögun því háð niðurstöðum samninga í sameiginlegu EES- nefndinni. Umhverfisstofnun hefur skilið það svo að Fjármála- og efnahagsráðuneytið fari með uppboðsmál er varða losunarheimildir. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32017R1902 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 269, 19.10.2017, p. 13 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D050682/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 62, 23.9.2021, p. 55 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 337, 23.9.2021, p. 59 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|
Breytt af (Modified by)
| 32023R2830 | implicitly repeals | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun |
Breytir (Modifies)
| 32010R1031 | amends, does deletion of, does insertion of, does replacement of | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32003L0087 | Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 13. október 2003 um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Banda- lagsins og um breytingu á tilskipun ráðsins 96/61/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |