32026R1423

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/1423 of 30 June 2026 amending Regulation (EU) 2019/1021 of the European Parliament and of the Council as regards chlorpyrifos


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðarbreytingin felur í sér að bæta efninu klórpýrifos við I. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni og þar með banna framleiðslu, markaðssetningu og notkun þess.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni innleiðir skuldbindingar sambandsins samkvæmt Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni. Samningurinn var uppfærður á árlegum aðildarfundi í apríl 2025 m.t.t. að bæta efninu klórpýrifos við lista efna sem skulu hætta í framleiðslu, notkun, innflutning og útflutning.I. viðauki við reglugerðina er því uppfærður m.t.t. ofangreindra breytinga á samningnum en í viðaukanum er að finna lista yfir efni sem bannað er að framleiða, markaðssetja og nota.Viðmiðunarmark er gefið til að aðstoða við eftirfylgni fyrir klórpýrifos þegar það kemur fyrir sem óviljandi snefilaðskotaefni í efnum, efnablöndum eða hlutum og er það sett sem 0,01 mg/kg (0,000001% af þyngd).Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum ESB.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni. Lagastoð er í 11. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga og 26. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Þessi reglugerð bætir nýju efni í hóp þeirra sem háð eru banni á framleiðslu, markaðssetningu og notkun. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1423
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1423, 10.9.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)4428
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32019R1021 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi