32026R1738

Regulation (EU) 2026/1738 of the European Parliament and of the Council of 8 July 2026 on circularity requirements for vehicle design and on management of end-of-life vehicles, amending Regulations (EU) No 168/2013, (EU) 2018/858, (EU) 2019/1020 and (EU) 2023/1542 and repealing Directives 2000/53/EC and 2005/64/EC


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Nýtt regluverk um ökutæki og hringrásarhagkerfið. Reglugerðin fjallar um hönnun ökutækja og förgun þeirra. Nýmæli í reglugerðinni snúa m.a. að framlengdri framleiðendaábyrgð á ökutækjum.

Gerðin á jafnframt undir innviðaráðuneytið en að litlum hluta. Gerðar eru kröfur til bifreiðaframleiðenda um gerð og búnað ökutækja, skil á skjölum og svo framvegis. Áhrif af þessu hér á landi eingöngu óbein. Kostnaður vegna þessa óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

 Greining Umhverfisstofnunar nær yfir kafla 1 (samhengi) og 3 (áhrifamat). Greining Umhverfisstofnunar nær ekki yfir kafla 2 (lagagrundvöllur) og 4 (fjármál). Aðrir kaflar eru greindir að hluta.Reglugerðin hefur fimm markmið:1. Að stuðla að hringrásarhönnun ökutækja.
2. Að endurunnin hráefni (plast, stál, þýðingarmikil hráefni og ál) séu notuð í meiri mæli í ökutæki.
3. Að efla endurnotkun og endurvinnslu hráefna frá úr sér gengnum ökutækjum.
4. Að úr sér gengin ökutæki skili sér betur til endurvinnslu.
5. Að skipta kostnaði við meðhöndlun úr sér genginna ökutækja sanngjarnt.Fleiri flokkar ökutækja eru teknir inn í þessa reglugerð miðað við þá sem er í gildi núna. Flutningabílar, hópbifreiðar og mótorhjól falla undir þessa reglugerð en féllu ekki undir þá gömlu.Í reglugerðinni er lagt til að kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar nái til ökutækja þvert á landamæri Evrópu. BakgrunnurReglugerðardrögin eru í takt við stefnur Evrópu EU Green Deal og Towards Zero Pollution for Air, Water and Soil. Drögin beina einnig sjónum að mikilvægi þýðingarmikilla hráefna (e. Critical raw materials) sem hafa efnahagslegt, þjóðaröryggislegt og umhverfislegt mikilvægi fyrir evrópska efnahagssvæðið. Eftir því sem bílafloti Evrópu rafvæðist verður sífellt meiri þörf fyrir þýðingarmikil hráefni og önnur hráefni sem notuð eru í verulegum mæli í ökutækjaframleiðslu í Evrópu, t.d. stál, plast, ál, kopar, gúmmí og gler. Umhverfisáhrif af ökutækjaframleiðslu verða að miklu leyti vegna hráefnanotkunar. Sífellt flóknari innihaldsefni í ökutækjum, eins og samsett efni, geta valdið áskorunum við endurnotkun, endurvinnslu og endurnýtingu ökutækja.Fyrra regluverki um rafbíla, tilskipun 2000/53/EC, hefur ekki verið viðhaldið nægilega með uppfærslum og nær ekki nógu vel utan um afdrif ökutækja við enda notkunartíma. Tilskipun 2005/64/EC um markaðssetningu ökutækja inniheldur sömu markmið og tilskipun 200/53/EC. Báðar tilskipanir falla úr gildi með setningu þessarar reglugerðar sem mun færa regluverk um ökutæki í átt að hringrásarhagkerfishugsun með því að bæta virkni samevrópska markaðarins, draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá ökutækjaframleiðslu og styðja við betri úrvinnslu ökutækja.Drögin tengjast reglugerð (EU) 2018/858 um eftirlit með ökutækjamarkaði þannig að sett verða viðmið um hringrásarhönnun ökutækja. Drögin tengjast einnig væntanlegri reglugerð um rafhlöður og um visthönnun vara. Drögin eru í takt við stenumörkun ESB í loftslagsmálum, markmið um kolefnishlutleysi árið 2050 og Fit for 55 markmiðið. Drögin eru í takt við fyrri stefnumörkun ESB eins og sértæk viðmið um CO2-útblástur frá ökutækjum, Euro 7 staðalinn fyrir ný ökutæki, endurskoðun þriggja tilskipana í Roadworthiness-pakkanum og setningu laga um þýðingarmikil hráefni.Ex-post áskoranir og samráðHönnun og framleiðsla nýrra ökutækja styður ekki við markmið í loftslagsmálum, hreinleika lofts og hringrásarhagkerfi.Meðhöndlun úr sér genginna ökutækja er ekki eins góð og hún gæti raunhæft verið til að viðhalda efnisgæðum og þeim verðmætum sem felast í hráefnunum.Stór hluti úr sér genginna ökutækja skila sér ekki til meðhöndlunar í Evrópu heldur stuðla að mengun í þriðju ríkjum.Engin samræmd stefnuvið eru í gildi um hringrásarhönnun ökutækja (fyrir utan tilskipun 2000/53/EC) en þar felast tækifæri til að ná markmiðum EU-Green Deal.Í samráðsferlinu fagnaði endurvinnslugeirinn skilyrðum um hringrásarhönnun reglugerðardraganna, og vildu jafnvel ganga lengra í kröfunum. Almennt var mikil samstaða um markmið um að auka endurnotkun og endurvinnslu ökutækja og bílaparta en endurvinnsluaðilar höfðu þó áhyggjur af því að slík meðhöndlun yrði kostnaðarsöm. Nokkur ágreiningur var milli framleiðenda og endurvinnsluaðila varðandi hvort innleiða ætti framlengda framleiðendaábyrgð á ökutæki og snerist sá ágreiningur um hvort úrvinnsla ökutækja samkvæmt regluverkinu yrði fjárhagslega sjálfbær eða ekki.Stefnan í drögunum er sett á að hanna ökutæki í samræmi við markmið hringrásarhagkerfisins, t.d. með því að birta auðskiljanlegar leiðbeiningar um hvernig á að sundurhluta og endurvinna úr sér gengin ökutæki, hvernig endurheimta megi þýðingarmikil hráefni úr ökutækjum, að reikna út fræðilega endurvinnslugetu og endurnýtingargetu nýframleiddra ökutækja (þ.e. hversu mikið er hægt að endurvinna og endurnýta af innihaldi ökutækjanna) og að auðvelda rakningu notaðra ökutækja og bílaparta. Ný ökutæki ættu að innihalda að lágmarki 25% af endurunnu plasti árið 2030 sem endurvinna má síðar í lokaðri hringrás. Sett verður svipað markmið um endurvinnslu stáls. Farið verður betur með ökutækjaúrgang og endurheimt hráefna verði auðvelduð og aukin. Fjárhagslegir og skipulagslegir hvatar til bættrar meðferðar úr sér genginna ökutækja verði auknir. Regluverkið nær sömuleiðis til fleiri gerða ökutækja en núgildandi regluverk.Efnahagslegt umfang ávinningsins af reglugerðinni er metið sem 2,8 milljarðar evra í gegnum forðaða kolefnislosun, 5,4 milljón tonn af hráefnum (aðallega plasti, stáli, áli og kopar) fá aukið verðgildi eða sparast og 350 tonn af þýðingarmiklum segulmálmum munu safnast árið 2035. Reglugerðin hefur mælanleg áhrif á heimsmarkmið 9 (nýsköpun og uppbygging), 12 (ábyrg neysla og framleiðsla) og 13 (aðgerðir í loftslagsmálum). Kostnaðaraukning við framleiðslu hvers ökutækis er metinn á 66 evrur árið 2035. Reglugerðin mun skapa 22.100 störf. Reglugerðin færir ökutækjaframleiðslu í átt að sjálfbærni og eflir sjálfstæði Evrópu hvað varðar innflutning á hráefnum.Umfjöllun um einstaka kafla reglugerðardragannaAð neðan er umfjöllun um kafla reglugerðardraganna og stuttleg umfjöllun um helstu greinar sem koma til að með að skipta verulegu máli. Rýni var takmörkuð en fór fram á þeim köflum sem snúa að starfssviði Umhverfisstofnunar og því voru ekki allir kaflar rýndir. Tekið er fram í umfjöllun um kafla ef þeir hlutu ekki rýni Umhverfisstofnunar.Kafli I fjallar um almenn ákvæði. Þar er m.a. fjallað um hvaða ökutæki heyra undir hvern hluta reglugerðarinnar (grein 2).Kafli II fjallar um hönnunarkröfur ökutækja svo þær falli að áherslum hringrásarhagkerfisins, til dæmis endurnotkun, endurvinnslu og endurnýtingu ökutækja (grein 4), takmörkun á notkun eiturefna (grein 5), töluleg markmið um endurvinnslu hráefna (grein 6) og kvaðir á endurvinnsluaðila (grein 7) (ekki rýnt af Umhverfisstofnun).Kafli III fjallar um upplýsingagjöf framleiðenda, til dæmis upplýsingar um hlutfall endurvinnsluefna (grein 10), leiðbeiningar um hvernig taka eigi úr sér gengin ökutæki í sundur á réttan hátt til að hámarka nýtingu varahluta og hráefna (grein 11) og um rafræna rakningu varahluta (grein 13) (ekki rýnt af Umhverfisstofnun).Kafli IV fjallar um hvernig meðhöndla eigi úr sér gengin ökutæki. Fyrst er fjallað um hvernig lögunum sé framfylgt og réttbært yfirvald með framlengdri framleiðendaábyrgð ökutækja (grein 14) og leyfisveitingaferli (grein 15). Heill undirkafli fjallar um framlengda framleiðendaábyrgð ökutækja (grein 16-22). Síðan er fjallað er um söfnun úr sér genginna ökutækja (grein 23-26) og hvaða kröfur gilda um úrvinnslu þeirra (grein 27-36).Kafli V fjallar um útflutning úr sér genginna ökutækja.Kafli VI fjallar um eftirfylgni með lögunum, til dæmis um eftirlit (grein 46) og gagnaskil til framkvæmdastjórnarinnar (grein 49) (ekki rýnt af Umhverfisstofnun).Kafli VII er staðlaður kafli (ekki rýnt af Umhverfisstofnun).Kafli VIII inniheldur viðbætur við reglugerð (EU) 2019/1020 og reglugerð (EU) 2018/858. Þetta þarf að skoða vel og innleiða þarf breytingar á þessum reglugerðum í íslenskt regluverk von bráðar.Kafli IX er staðlaður kafli um endurskoðun reglugerðarinnar og innleiðingu hennar (ekki rýnt af Umhverfisstofnun).Gerðin á jafnframt undir innviðaráðuneytið en að litlum hluta. Gerðar eru kröfur til bifreiðaframleiðenda um gerð og búnað ökutækja, skil á skjölum og svo framvegist. Áhrif af þessu hér á landi eingöngu óbein. Kostnaður vegna þessa óverulegur.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð um úr sér gengi ökutæki.
Reglugerðin breytir reglugerð (EU) 2019/1020 um markaðseftirlit og stöðlun vara (hefur ekki verið innleidd) (ekki innan ábyrgðarsviðs Umhverfisstofnunar).
Reglugerðin breytir reglugerð (EU) 2018/858 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum og eftirvögnum þeirra og á kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum sem ætlaðar eru í slík ökutæki, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 715/2007 og (EB) nr. 595/2009 og niðurfellingu tilskipunar 2007/46/EB. Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar um upptöku reglugerðar 2018/858 hefur verið samþykkt en hefur ekki öðlast gildi (ekki innan ábyrgðarsviðs Umhverfisstofnunar).

Lagastoð INR: umferðarlög. Innleiðing í reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður, Innviðaráðuneyti
Niðurstöður samráðs Umhverfisstofnun greinir bara þann hluta sem snýr að starfsemi stofnunarinnar, þ.e. að þeim hluta reglugerðarinnar sem fjallar um ökutæki eftir að þau verða að úrgangi.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Stjórnvöld: Aukinn kostnaður aðildarríkja verður líklega takmarkaður. Hann felst helst í auknu eftirliti með framfylgt reglugerðarinnar, útflutningi á úr sér gengnum ökutækjum og innleiðing skráningarkerfa. Áætlaður meðalkostnaður stjórnvalda er talinn vera 24 milljónir evra, eða um 2 evrur á hvert ökutæki.
Neytendur: Ný ökutæki verða líklega 39 evrum dýrari fyrir neytendur en á móti er endursöluverð talið munu lækka um 12 evrur á hvert ökutæki vegna breytinganna vegna minni útflutnings til þriðju ríkja.
Viðgerðir, aukahlutir og viðhald ökutækja verður ódýrara.
Kostnaður á hvert ökutæki hækkar um 5,45 evrur miðað við one-in, one-out útreikning. Sá kostnaður getur hækkað um 40% eftir því hvort stjórnvöld hafi rafvætt skráningarkerfi og eftirlitsinnviði.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ísland flytur sín úr sér gengnu ökutæki úr landi. Tollurinn hefur átt erfitt með að gera greinarmun á notuðum en ökuhæfum ökutækjum og úr sér gengnum ökutækjum. Í grein 37, í viðauka I og í nokkrum greinum kafla V er gerð grein fyrir því hvernig skera eigi úr um þetta álitamál.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Samgöngustofa, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1738
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1738, 24.7.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 451
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Leggur til breytingar á (Proposes to amend)

32019R1020 Regulation (EU) 2019/1020 of the European Parliament and of the Council of 20 June 2019 on market surveillance and compliance of products and amending Directive 2004/42/EC and Regulations (EC) No 765/2008 and (EU) No 305/2011 Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32018R0858 Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on the approval and market surveillance of motor vehicles and their trailers, and of systems, components and separate technical units intended for such vehicles, amending Regulations (EC) No 715/2007 and (EC) No 595/2009 and repealing Directive 2007/46/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32005L0064 Directive 2005/64/EC of the European Parliament and of the Council of 26 October 2005 on the type-approval of motor vehicles with regard to their reusability, recyclability and recoverability and amending Council Directive 70/156/EEC. Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32000L0053 Directive 2000/53/EC of the European Parliament and of the Council of 18 September 2000 on end-of life vehicles - Commission Statements Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytt af (Modified by)

SEC(2023) 257
52023SC0257
work related to work
SEC(2023) 256
52023SC0256
work related to work
SEC(2023) 255
52023SC0255
work related to work
AE(2023) 3741
52023AE3741
contains eesc opinion on

Breytir (Modifies)

COM(2023) 451
52023PC0451
adopts Regulation (EU) 2026/1738 of the European Parliament and of the Council of 8 July 2026 on circularity requirements for vehicle design and on management of end-of-life vehicles, amending Regulations (EU) No 168/2013, (EU) 2018/858, (EU) 2019/1020 and (EU) 2023/1542 and repealing Directives 2000/53/EC and 2005/64/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32023R1542 amends Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32023L0544 implicitly repeals Commission Delegated Directive (EU) 2023/544 of 16 December 2022 amending Directive 2000/53/EC of the European Parliament and of the Council as regards the exemptions for the use of lead in aluminium alloys for machining purposes, in copper alloys and in certain batteries Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020L0363 implicitly repeals Commission Delegated Directive (EU) 2020/363 of 17 December 2019 amending Annex II to Directive 2000/53/EC of the European Parliament and of the Council on end-of-life vehicles as regards certain exemptions for lead and lead compounds in components Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020L0362 implicitly repeals Commission Delegated Directive (EU) 2020/362 of 17 December 2019 amending Annex II to Directive 2000/53/EC of the European Parliament and of the Council on end-of-life vehicles as regards the exemption for hexavalent chromium as anti-corrosion agent of the carbon steel cooling system in absorption refrigerators in motor caravans Tekin upp í EES-samninginn og í gildi