32026R1770
Commission Delegated Regulation (EU) 2026/1770 of 14 July 2026 on supplementing Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council as regards derogations for the removability and replaceability of portable batteries
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framseld reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin breytir lista yfir þau raftæki sem mega innihalda rafhlöður án þess að um þau gildi þær hönnunarreglur að almenningur geti fjarlægt rafhlöðuna með ósérhæfðum verkfærum.
Nánari efnisumfjöllun
Færanlegar rafhlöður eru sífellt meira notaðar í allskonar tækni og vörur. Bæði rafhlöður og raftæki innihalda þýðingarmikil hráefni sem eru til af skornum skammti og mikilvægt er að lágmarka það magn sem er sóað. Þar sem rafhlöður eru gjarnan sá hluti raftækja sem úreldist fyrst, var í 11. grein reglugerðar (ESB) 2023/1542 gerð sú krafa að raftæki með færanlegum rafhlöðum yrðu alla jafna hönnuð þannig að hægt sé að skipta um rafhlöðu í tækinu og að almenningur getu sjálfur fjarlægt rafhlöður úr raftækjum án þess að þurfa til þess sérstök verkfæri eða að kalla til fagfólk.Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, samkvæmt grein 11(4) í reglugerð (ESB) 2023/1542, er heimilt að leggja fram og uppfæra lista yfir raftæki þar sem heimilt er að víkja frá þeirri almennu kröfu að almenningur geti sjálfur fjarlægt rafhlöður úr raftækjum án þess að þurfa til þess sérstök verkfæri eða að kalla til fagfólk. Síðan reglugerð um rafhlöður var sett hafa ýmis raftæki orðið algengari, sérsniðnar og rafhlöður orðið minni, jafnvel þannig að það, að fjarlægja þær úr tækinu, getur haft í för með sér verulega hættu á að annað hvort rafhlaðan eða tækið sjálft verði fyrir skemmdum.Reglugerð (ESB) 2025/2509 um öryggi leikfanga sem hefur ekki verið tekin upp í EES-Samninginn, leggur kvaðir á leikfangahönnuði að sjá til þess að ekki verði hægt frá og með 1. ágúst 2030 að fjarlægja rafhlöður úr leikföngum nema verkfæri séu notuð til þess. Til að gæta samræmis í regluverki er gefin tímabundin undanþága frá reglugerð um rafhlöður.Ekki er heldur talin ástæða til að gera þá kröfu að rafhlöður í hitamælum sem eru í snertingu við matvæli séu fjarlægjanlegar þar sem slíkt getur falið í sér hættu ef þéttingar við rafhlöðuna gefa sig við notkun.Ekki er heldur talið að hönnunarkröfur um að hægt sé að fjarlægja færanlegar rafhlöður úr raftækjum falli vel að markmiðum tilskipunar 2014/34/ESB um búnað sem ætlað er að starfi í sprengifimu lofti og sem tekin hefur verið upp í EES-Samninginn. Það sama gildir um líf- og læknisfræðilegar vörur sem notandinn klæðist eða festir við líkama sinn til að fylgjast með lífsmörkum eða til að dæla lyfjum undir húð. Í báðum tilvikum gætu slíkar hönnunarkröfur valdið hættu fyrir notandann.Um búnað sem notaður er í fjarskiptatækni og er festur á þök landbúnaðar- eða bygginarinnviða sem hristast eða eru notaðar eru í rykugu og/eða blautu umhverfi gildir að það gæti verið slæmt að bæta aðgengi að rafhlöðum því það eykur einnig hættu á tjóni.Fyrir tæki sem eru í eðli sínu notuð af sérþjálfuðu starfsfólki gildir að það er ekki þörf á því að gera það auðvelt fyrir almenning að fjarlægja rafhlöður úr tækjunum.Vegna ofangreinds er í þessari reglugerð lagður fram uppfærður listi yfir undanþegnar vörur. Fyrir fram eru tvær vörur á listanum yfir undanþegnar vörur: Vörur sem ætlaðar eru til notkunar í vatni eða þar sem vatn skvettist reglulega og eru hannaðar þannig að hægt sé að bleyta þeir og skola.Myndavélar og geislameðferðarbúnaður sem notuð eru í læknisfræðilegum tilgangi samkvæmt grein 2(1) í reglugerð (ESB) 2017/745 um lækningatæki. Einnig lækningatæki samkvæmt grein 2(2) í reglugerð 2017/746 um tilraunastofutæki.Reglugerðin bætir eftirfarandi vörum á listann yfir undanþegnar vörur:Raftæki sem fólk klæðist er bætt við tölulið nr. 1 (t.d. snjallúr eða líkamsmyndavélar).Ýmis tæki sem fólk klæðist sem eru of smá til að hægt sé að gera kröfu um að fjarlægja megi rafhlöður úr tækjunum eða sem eru innsigluð þannig að ryk eða högg geta skemmt tækið (t.d. snjallgleraugu).Tímabundin undanþága til 31. júlí 2030 er gefin fyrir leikföng sem innihalda hleðslurafhlöður.Þráðlausir hitamælar sem ætlað er að vera í beinni snertingu við matvæli.Tæki sem er ætlað að starfa í sprengifimu lofti og falla undir 1. grein tilskipunar 2014/34/ESB.Tæki sem eru áföst líkama og eru hönnuð til að skammta lyfjum undir húð.Fjarskiptatæki sem eru fest á þök í landbúnaðar- eða byggingarinnviðum og sem hristast, þurfa að þola ryk eða bleytu (t.d. loftnet á traktora, GPS-tæki á byggingarvélum.Grein 1 inniheldur upptalningu á þeim vörum sem eru undanþegnar kröfu um að rafhlöður séu auðveldlega fjarlægjanlegar.Grein 2 kveður á um gildistöku reglugerðarinnar. Hún hefur þegar tekið gildi.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Innleiða þarf rafhlöðureglugerðina (2023/1542) sem þessar undanþágur snúast að inn í íslenskt regluverk með heildarendurskoðun á reglugerð um rafhlöður og rafgeyma nr. 1020/2011. Taka skyldi tillit til reglugerðarinnar sem hér er fjallað um í innleiðingunni. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun |
| Niðurstöður samráðs | Óskað var eftir greiningu frá HMS um hvort að reglugerðin hefði augljósa snertifleti við reglugerðir á málefnasviði stofnunarinnar. HMS skoðaði sérstaklega tengingar við rafmagnsöryggi og var niðurstaðan að ekki þurfi að breyta löggjöf sem er á forræði HMS er snýr að rafmagnsöryggi. Þar sem ekki liggur fyrir hvernig markaðseftirliti með nýrri rafhlöðureglugerð verður háttað getur stofnunin ekki svarað því hvernig samlegðin eða snertifletir verða fyrr en vinna við innleiðingu á 2023/1542 hefst. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Enginn kostnaður fellur til hjá hinu opinbera. Framleiðendur sem undanþágan nær til spara sér hönnunarkostnað en kostnaður við meðhöndlun raf- og rafeindatækja er líklegur til að vera hærri en ella þar sem við úrgangsmeðhöndlun þarf að safna heilum raftækjum með rafhlöðum innanborðs. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Engir sérhagsmunir Íslands eru í húfi. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R1770 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1770, 22.10.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2026)5031 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32023R1542 | amends, based on | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32023R1542 | Regulation (EU) 2023/1542 of the European Parliament and of the Council of 12 July 2023 concerning batteries and waste batteries, amending Directive 2008/98/EC and Regulation (EU) 2019/1020 and repealing Directive 2006/66/EC Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | spare part, market approval, derogation from EU law, electricity storage device, technical specification, maintenance |
|---|---|
| Subject matter | Safety at work and elsewhere, Waste |
