32026R1972

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/1972 of 7 September 2026 amending Regulation (EU) 2019/1021 of the European Parliament and of the Council as regards long-chain perfluorocarboxylic acids, their salts and related compounds


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðarbreytingin felur í sér að bæta efnahópnum langkeðju, perflúorkarboxýlsýrur (e. long-chain perfluorocarboxylic acids, C9–C21 PFCAs), sölt þeirra og skyld efnasambönd við I. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni og þar með banna framleiðslu, markaðssetningu og notkun þess nema að uppfylltum ákveðnum undanþáguskilyrðum. 

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni innleiðir skuldbindingar sambandsins samkvæmt Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni. Samningurinn var uppfærður á árlegum aðildarfundi í maí 2025 m.t.t. að bæta efnahópnum langkeðju, perflúorkarboxýlsýrur (e. long-chain perfluorocarboxylic acids, C9–C21 PFCAs), sölt þeirra og skyld efnasambönd við lista efna sem skulu hætta í framleiðslu, notkun, innflutning og útflutning. Með þessari reglugerð er nýrri færslu um langkeðju, perflúorkarboxýlsýrur (e. long-chain perfluorocarboxylic acids, C9–C21 PFCAs), sölt þeirra og skyld efnasambönd bætt við A-hluta I. viðauka reglugerðarinnar.Ákvæði reglugerðarinnar taka til línulegra og greinóttra perflúorkarboxýlsýra með 9–21 kolefnisatóm, salta þeirra og skyldra efnasambanda sem geta brotnað niður eða umbreyst í slík efni. Tiltekin efnasambönd sem þegar falla undir takmarkanir vegna ákvæða um PFOA eru undanskilin skilgreiningunni. Sett eru almenn styrkleikamörk þegar þau koma fyrir sem óviljandi snefilaðskotaefni, annars vegar 0,025 mg/kg fyrir samanlagðan styrk C9–C21 PFCAs og salta þeirra og hins vegar 0,26 mg/kg fyrir samanlagðan styrk skyldra efnasambanda í efnum, efnablöndum og hlutum. Jafnframt eru sett sértæk styrkleikamörk og undanþágur vegna tiltekinnar notkunar: Einangruð milliefni: Styrkleikamörk allt að 10 mg/kg fyrir samanlagðan styrk C-9 – C21 PFCAs, sölt þeirra og skyldra efnasambanda við tiltekna framleiðslu flúorefna með perflúorkolefniskeðju sem inniheldur 6 kolefnisatóm eða færri undir strangri stýringu og eftirliti sem nánar er kveðið á um. Flúorplast og flúorteygjuefni: Sett eru ákveðin styrkleikamörk sem gilda hvað lengst til 2030. PTFE-örduft: Sérstök styrkleikamörk fyrir PTFE-örduft sem framleitt er með jónandi geislun eða varmarofi og fyrir efnablöndur og hluti til notkunar í atvinnuskyni sem innihalda slíkt duft. Strangari mörk taka gildi 17. desember 2030. Slökkvifroða: Sérstök styrkleikamörk fyrir slökkvifroðu sem þegar er í slökkvikerfum og er ætluð til að slökkva elda í eldfimum eldsneytisvökvum (tegund B) eru sett til 3. ágúst 2028. Einnig eru sett sérstök mörk fyrir leifar efnanna í flúorfrírri slökkvifroðu sem stafa af slökkvibúnaði sem hefur verið hreinsaður samkvæmt bestu fáanlegu tækni. Hálfleiðarar: Tímabundnar undanþágur fyrir notkun efnanna í hálfleiðurum í varahlutum og viðgerðum á rafeindabúnaði, eftir því hvaða efnaflokkar eiga í hlut, til 30. desember 2030 eða 16. desember 2031. Reglugerðin heimilar áframhaldandi notkun hluta sem innihalda C9–C14 PFCAs, sölt þeirra og skyld efnasambönd, ef þeir voru þegar í notkun innan Evrópusambandsins fyrir 31. desember 2023. Samsvarandi ákvæði gildir um hluti sem innihalda C15–C21 PFCAs og voru þegar í notkun fyrir 17. desember 2026. Þá er kveðið á um að koma skuli í veg fyrir losun C9–C21 PFCAs sem myndast óviljandi við framleiðslu og notkun tiltekinna flúorfjölliða og PTFE-ördufts eða draga úr henni eins og tæknilega og raunhæft er. Reglugerðin skal taka gildi frá 16. desember 2026. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð nr. 954/2013. Lagastoð er í 11. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 26. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Þessi reglugerð bætir nýju efni í hóp þeirra sem háð eru banni á framleiðslu, markaðssetningu og notkun. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R1972
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/1972, 12.11.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2026)6059
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32019R1021 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi