32026R1975
Commission Implementing Regulation (EU) 2026/1975 of 8 September 2026 authorising an exemption pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, with regards to the use of fluorinated greenhouse gases in certain equipment used for drying compressed air
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Nánari tegund gerðar | Framkvæmdarreglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með reglugerðinni er veitt tímabundin undanþága frá banni reglugerðar (ESB) 2024/573 við markaðssetningu tiltekins kæli- og loftræstibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt (GWP) 150 eða hærri. Undanþágan tekur til tiltekins búnaðar sem notaður er til þurrkunar þrýstilofts (CARD-búnaðar), að uppfylltum skilyrðum um merkingar. Undanþágan gildir frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2030.
Nánari efnisumfjöllun
Í b-lið 7. liðar í IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 er lagt bann við markaðssetningu kyrrstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt (GWP) upp á 150 eða meira, og hefur kæligetu allt að 12 kW, frá og með 1. janúar 2027, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Frá sama degi er, samkvæmt b- og d-liðum 8. liðar í IV. viðauka við reglugerðina, bannað að setja á markað sjálfstæðan loftræstibúnað með tilgreindri afkastagetu samkvæmt þeim liðum, sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með GWP 150 eða hærra, eða þar sem virkni byggist á slíkum lofttegundum, nema þess sé krafist til að uppfylla öryggiskröfur á notkunarstað. Í samræmi við 5. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 lagði þýska lögbæra yfirvaldið fram beiðni til framkvæmdastjórnarinnar um leyfi fyrir undanþágu sem heimilar markaðssetningu á tilteknum búnað sem notaður er til þurrkunar þrýstilofts (Compressed Air Refrigerated Dryers - CARD-búnað). Framkvæmdastjórnin taldi að skilyrði 5. mgr. 11. gr. væru uppfyllt og heimilar því undanþágu frá framangreindum bönnum fyrir CARD-búnað með kæligetu allt að og með 12 kW og sjálfstæðan loftræstibúnað með afkastagetu allt að og með 50 kW, að því tilskildu að búnaðurinn sé merktur í samræmi við 2. mgr. 12. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573. Reglugerðin var samþykkt 8. september 2026. Hún kemur til framkvæmda 1. janúar 2027 og gildir til 31. desember 2030.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerð (ESB) 2024/573 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki verið innleidd hér á landi. Þessi reglugerð leyfir undanþágur frá ákvæðum í reglugerð (ESB) 2024/573 og því ekki hægt að innleiða hér á landi fyrr en grunnreglugerðin hefur verið innleidd. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32026R1975 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1975, 9.9.2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32024R0573 | based on, derogates | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32024R0573 | Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 on fluorinated greenhouse gases, amending Directive (EU) 2019/1937 and repealing Regulation (EU) No 517/2014 Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
