Útdráttur
Reglugerðarbreytingin felur í sér að bæta efnahópnum klóruð paraffín með miðlungslanga keðju (e. MCCP) við I. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni og þar með banna framleiðslu, markaðssetningu og notkun þeirra nema að uppfylltum ákveðnum undanþáguskilyrðum.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk lífræn efni innleiðir skuldbindingar sambandsins samkvæmt Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni. Samningurinn var uppfærður á árlegum aðildarfundi í maí 2025 m.t.t. að bæta efnahópnum klóruð paraffín með miðlungslanga keðju (e. MCCP) við lista efna sem skulu hætta í framleiðslu, notkun, innflutning og útflutning. I. viðauki við reglugerðina er því uppfærður m.t.t. ofangreindra breytinga á samningnum en í viðaukanum er að finna lista yfir efni sem bannað er að framleiða, markaðssetja og nota. MCCPs eru skilgreind sem tiltekin klóruð alkön með 14–17 kolefnisatóm (C14–C17). Sett eru styrkleikamörk þegar þau koma fyrir sem óviljandi snefilaðskotaefni í efnum, efnablöndum og hlutum, að hámarki 1.000 mg/kg (0,1% miðað við þyngd) fyrir heildarsummu efnanna. Sérstök undanþága heimilar allt að 20.000 mg/kg (2% miðað við þyngd) af heildarsummu MCCPs í endurunnu efni úr rafköplum og hlutum sem framleiddir eru úr slíku efni, þegar þau eru notuð í vegbúnað eða undirstöður girðinga. Undanþágan gildir til 16. desember 2028. Jafnframt eru skilgreindar tímabundnar undanþágur frá takmörkunum á framleiðslu, markaðssetningu og notkun MCCPs, meðal annars fyrir: Málmvinnsluvökva sem notaðir eru við tilteknar iðnaðaraðstæður, til 31. desember 2036. Fjölliður og gúmmí í varahlutum og viðgerðum á tilteknum ökutækjum, vélbúnaði, lækningatækjum, mælitækjum og búnaði fyrir flug-, geim- og varnariðnað, til loka endingartíma eða í síðasta lagi til 31. desember 2041. Sveigjanlegt pólývínylklóríð (e. PVC) í vírum og köplum í byggingariðnaði, til 16. desember 2028, og í tilteknum lækningatækjum, til 16. desember 2031. Tiltekin lím, þéttiefni, vatnsheld húðun og húðun til ryðvarnar, með undanþágum til áranna 2028 eða 2031. Tiltekna notkun í flug-, geim- og varnariðnaði, með mismunandi tímamörkum og skilyrðum. Gerðin heimilar áframhaldandi notkun tiltekinna hluta sem innihalda MCCPs og eru þegar í notkun við lok viðkomandi undanþágutímabils. Einnig er kveðið á um áframhaldandi markaðssetningu og notkun tiltekinna varahluta sem eru fyrir hendi innan Evrópusambandsins fyrir 1. janúar 2042. Þá eru settar kröfur um að koma í veg fyrir losun MCCPs út í umhverfið við framleiðslu, iðnaðar- og atvinnubundna notkun sem fellur undir undanþágur, eða draga úr losun eins og kostur er, og takmarka útsetningu starfsmanna. Framleiðendum, birgjum og innflytjendum klóraðra paraffína er jafnframt gert að tilgreina upplýsingar um styrk viðkomandi efna í öryggisblöðum og þegar styrkurinn fer yfir 0,1% um viðeigandi áhættustjórnunarráðstafanir og notkunarskilyrði. Kveðið er á um notkun fullgiltra greiningaraðferða og skyldu til að afhenda lögbærum yfirvöldum upplýsingar um greiningaraðferðir og niðurstöður samkvæmt beiðni. Reglugerðin tekur gildi frá 16. desember 2026.