32015L0413
Directive (EU) 2015/413 of the European Parliament and of the Council of 11 March 2015 facilitating cross-border exchange of information on road-safety-related traffic offences
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/413 frá 11. mars 2015 um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við umferðarlagabrot sem tengjast umferðaröryggi
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 030/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með gerðinn er að auka umferðaröryggi með því að koma í veg fyrir að ökumenn sleppi við viðurlög vegna umferðarlagabrota sem framin eru í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins en því ríki sem ökutæki er skráð í. Er þannig leitast við að tryggja jafna meðferð ökumanna sem fremja umferðarlagabrot, óháð þjóðerni/búsetu. Í stuttu máli felur tilskipunin í sér að aðildarríki skuli tryggja gagnkvæman aðgang annarra ríkja að tilteknum upplýsingum úr ökutækjaskrá, svo ríki geti framfylgt viðurlögum. Ekki er um að ræða viðurlög af hálfu stofnana á vegum Evrópusambandsins, né samræmingu í þeim efnum. Eingöngu er um að ræða viðurlög aðildarríkjanna sjálfra vegna umferðarlagabrota sem framin eru á þeirra yfirráðasvæði.
Nánari efnisumfjöllun
Markmiðið með gerðinn er að auka umferðaröryggi með því að koma í veg fyrir að ökumenn sleppi við viðurlög vegna umferðarlagabrota sem framin eru í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins en því ríki sem ökutæki er skráð í. Er þannig leitast við að tryggja jafna meðferð ökumanna sem fremja umferðarlagabrot, óháð þjóðerni/búsetu.Aðdragandann má rekja til þess að borið hefur á því að ökumenn á ökutækjum skráðum í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins en því ríki sem umferðarlagabrot er framið í, hafa sloppið við viðurlög vegna brots. Tilskipuninni er ætlað að auðvelda aðildarríkjum þar sem brot er framið að nálgast upplýsingar um það ökutæki sem við á í hvert skipti.Í stuttu máli felur tilskipunin í sér að aðildarríki skuli tryggja gagnkvæman aðgang annarra ríkja að tilteknum upplýsingum úr ökutækjaskrá, svo ríki geti framfylgt viðurlögum. Ekki er um að ræða viðurlög af hálfu stofnana á vegum Evrópusambandsins, né samræmingu í þeim efnum. Eingöngu er um að ræða viðurlög aðildarríkjanna sjálfra vegna umferðarlagabrota sem framin eru á þeirra yfirráðasvæði.Verða nú helstu ákvæði tillögunnar reifuð nánar:Í 2. gr. er í 8 málsliðum talið upp til hvers konar umferðarlagabrota tilskipunin á að taka til. Hér er um að ræða hraðakstur, áfengis- og vímuefnaakstur, akstur gegn rauðu ljósi, brot gegn skyldu til að vera með sætisbelti o.þ.h. Í öllum tilfellum er um að ræða brot sem lögregla sektar fyrir hér á landi.Í 4. gr. er kveðið á um skyldu ríkja til að tryggja rafrænan aðgang annarra ríkja að tilteknum upplýsingum um ökutæki og ökumenn. Umræddar upplýsingar eru nánar skilgeindar í viðauka I. Í 4. gr. er einnig kveðið á um að kerfin skuli uppfylla sams konar öryggiskröfur og krafist er skv. 2. og 3. tölul. 3. kafla viðauka Council Decision 2008/615/JHA of 23 June 2008 on the stepping up of cross-border cooperation, particularly in combating terrorism and cross-border crime. (Prüm Decision).Í 5. gr. er fjallað um hvernig aðildarríki skulu haga framfylgd viðurlaga þegar brot er framið á ökutæki skráðu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins.Í 6. gr. er kveðið á um að aðildarríki beri að skila skýrslu á tveggja ára fresti um framfylgd viðurlaga skv. tilskipuninni.Í 7. gr. er kveðið á um meðferð gagna, en að töluverðu leyti er um persónuupplýsingar að ræða og skal tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/46/EB frá 24. október 1995 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga, gilda um meðferð þeirra. Þær stofnanir sem að málinu koma eru ríkislögreglustjóri, lögregluembætti, Samgöngustofa og Persónuvernd.Kostnaður af innleiðingu tilskipunarinnar er enn óljós.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunarinnar er 72. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Kostnaður við að koma upp og starfrækja skrána sem um ræðir. Kostnaður er enn óljós. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32015L0413 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 68, 13.03.2015, p. 9 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2014) 476 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein) |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 51 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/732, 8.5.2025 |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
| COM(2023) 126 52023PC0126 |
Directive (EU) 2024/3237 of the European Parliament and of the Council of 19 December 2024 amending Directive (EU) 2015/413 facilitating cross-border exchange of information on road-safety-related traffic offences | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytt af (Modified by)
| 72015L0413HUN_245372 | measure national implementing implements |
| 71995L0050HUN_245372 | measure national implementing implements |
| 71989L0491CZE_26584 | measure national implementing implements |
| 71989L0459CZE_26584 | measure national implementing implements |
| 71989L0297CZE_26584 | measure national implementing implements |
Breytir (Modifies)
| COM(2014) 476 52014PC0476 |
adopts | Directive (EU) 2015/413 of the European Parliament and of the Council of 11 March 2015 facilitating cross-border exchange of information on road-safety-related traffic offences | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32011L0082 | replaces | ||
| 12012E091 | based on |
Samantekt EUR-Lex
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | cross-border cooperation, road safety, exchange of information, cross-frontier data flow, administrative sanction, traffic offence |
|---|---|
| Subject matter | Transport |
