STS-reglugerðin - 32017R2402

Regulation (EU) 2017/2402 of the European Parliament and of the Council of 12 December 2017 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation, and amending Directives 2009/65/EC, 2009/138/EC and 2011/61/EU and Regulations (EC) No 1060/2009 and (EU) No 648/2012 - STS


iceland-flag
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 145/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2017/2402 kveður á um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun (STS-reglugerðin). Verðbréfun er ein tegund fjármögnunarviðskipta fjármálastofnana og álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi. Innleidd með lögum nr. 71/2025 um verðbréfun.

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð (ESB) 2017/2402 kveður á um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun (STS-reglugerðin). Verðbréfun er ein tegund fjármögnunarviðskipta fjármálastofnana og álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi. STS-reglugerðin tók gildi í ESB í ársbyrjun 2019.Með verðbréfun er átt við viðskiptasamning eða kerfisfyrirkomulag þar sem greiðslufallsáhætta tengd kröfu eða kröfusafni (áhættuskuldbindingu eða safni áhættuskuldbindinga), t.d. lánasafni, er lagskipt í hluta (áhættulög) og umbreytt í framseljanlegar verðbréfaðar afurðir sem seldar eru til fjárfesta. Hagnaður fjárfestis er háður afkomunni af undirliggjandi kröfu eða kröfusafni og forgangsröðun áhættulaga ákvarðar dreifingu taps á líftíma viðskiptasamningsins eða kerfisfyrirkomulagsins. Verðbréfun er ein tegund fjármögnunarviðskipta fjármálastofnana og álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi. Verðbréfun gerir mögulega breiðari dreifingu áhættu innan fjármálageirans og getur hjálpað til að losa um fjármagn á efnahagsreikningi upphafsaðila, sem aftur gerir frekari lánveitingar til atvinnulífsins mögulegar, eins og segir í 4. lið inngangsorða STS-reglugerðarinnar. Almennt geti verðbréfun aukið skilvirkni fjármálakerfisins og stuðlað að auknum fjárfestingartækifærum.Markmið STS-reglugerðarinnar er að koma á styrkri lagaumgjörð í kringum verðbréfunarviðskipti með það að markmiði að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Í reglugerðinni eru helstu lykilhugtök verðbréfunar skilgreind og settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar, auk þess sem settar eru fram sértækar kröfur til nýrrar og staðlaðrar tegundar verðbréfunar, svokallaðrar STS-verðbréfunar (e. simple, transparent and standardized).Af almennum kröfum STS-reglugerðarinnar til allra tegunda verðbréfunar má nefna að sala til almennra fjárfesta er háð takmörkunum (3. gr.), kröfur um áreiðanleikakönnun gilda um alla stofnanafjárfesta (5. gr.), gerð er krafa um eftirhald áhættu (6. gr.), gagnsæiskröfur skilgreindar og skulu upplýsingar gerðar tiltækar verðbréfunarskrá (7. gr.), bann lagt við endurverðbréfun (8. gr.) og kveðið á um beitingu sömu viðmiða um lánveitingu á áhættuskuldbindingar sem til stendur að verðbréfa og þeim sem upphafsaðili, umsýsluaðili og upphaflegir lánveitendur beita á óverðbréfaðar skuldbindingar (9. gr.).Sértækar kröfur eru skilgreindar til einfaldrar, gagnsærrar og staðlaðrar verðbréfunar í 4. kafla STS-reglugerðarinnar (með áorðnum breytingum) og ekki heimilt að nota auðkenninguna ´STS´ um aðra verðbréfunargerninga en rúmast innan gildissviðs hans:Í fyrsta lagi er um að ræða hefðbundna STS-verðbréfun án eignatryggðra skammtímaskuldabréfa (19.-22. gr.).Í öðru lagi STS-verðbréfun eignatryggðra skammtímaskuldabréfa (23.-26. gr.).Í þriðja lagi STS-verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila, þ.e. svokölluð gerviverðbréfun sem uppfyllir kröfur 26. gr. a-26. gr. e.Verðbréfunaraðilum í EFTA ríkjunum innan EES ber að tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um að STS-verðbréfun uppfylli kröfur samkvæmt framangreindu (þ.e. svonefnd STS-tilkynning, sbr. 27. gr.), svo og án tafar ef breyting verður þar á, og skal birta opinberlega lista yfir allar verðbréfanir sem STS-tilkynningar berast um. Fela má þriðja aðila, með starfsleyfi samkvæmt 28. gr. STS-reglugerðarinnar, að sannprófa að STS-viðmið séu uppfyllt.Ákvæði 3. kafla STS-reglugerðarinnar (10.-17. gr.) fjalla um skilyrði og verklag við skráningu verðbréfunarskrár hjá Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA). Að því er EFTA ríkin innan EES-varðar gegnir Eftirlitsstofnun EFTA hlutverki ESMA, með vísan til laga um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017. Afleiðuviðskiptaskrá sem þegar er skráð skv. reglugerð (ESB) nr. 648/2012 (sbr. lög nr. 15/2018 um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár) getur óskað eftir framlengingu skráningar sem verðbréfunarskrá.Áhersla er lögð á að efla bæði eindar- og þjóðhagsvarúðareftirlit með verðbréfamarkaði í STS-reglugerðinni, enda brýnt að taka tillit til mögulegrar áhættu af aukinni innbyrðis samtengingu og óhóflegri skuldsetningu sem verðbréfun getur skapað. Samkvæmt reglugerðinni ber aðildarríkjum að tryggja lögbærum yfirvöldum allar nauðsynlegar valdheimildir til að þau geti sinnt eftirliti með því að farið sé að kröfunum auk þess sem Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA) og Evrópska kerfisáhætturáðinu (ESRB) eru falin tiltekin eftirlitshlutverk.STS-reglugerðin tók gildi í ESB 1. janúar 2019. Henni var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 er miðaði sérstaklega að því að gera lánastofnunum kleift að draga út kostnaði og losa um fjármagn fyrir endurbótaferlið eftir efnahagslega áfallið sem heimsfaraldur kórónuveiru hefur valdið. Upphafleg STS-reglugerð heimilaði eingöngu að verðbréfanir með raunverulegu framsali væru merktar sem STS, en með breytingareglugerðinni var opnað á verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila, að uppfylltum nánari skilyrðum. Hún er innleidd hér á landi með lögum nr. 71/2025 um verðbréfun.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög nr. 71/2025 um verðbréfun
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Já
Samráðsgátt https://island.is/samradsgatt/mal/3497
Niðurstöður samráðs Birt voru áform um lagasetningu vegna STS-pakkans, sumarið 2023. Engar umsagnir/athugasemdir bárust. Framlagning frumvarp er áformuð á haustþingi 2024.

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Markmið STS-reglugerðarinnar er að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum. Með nýjum lögum verður gagnsæi aukið, samkeppni jafnast, alþjóðleg samleitni meiri og eftirlit styrkt. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands hefur ekki verið mikið um verðbréfun hér á landi á undanförnum árum, en styrkari lagaumgjörð kann að gera þetta álitlegri kost við fjármögnun en ella. Ekki er gert ráð fyrir
fjárhagsáhrifum á ríkissjóð. Hugsanlega verður þó þörf á hækkun eftirlitsgjaldsins sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga. Fyrirhuguð löggjöf ætti að hafa jákvæð áhrif á fjármálastöðugleika, með vísan til aukinna krafna um upplýsingagjöf, stöðlun og áhættuþátttöku þeirra sem koma að verðbréfun. Verðbréfun gerir mögulega breiðari dreifingu áhættu innan fjármálageirans og getur hjálpað til að losa um fjármagn á efnahagsreikningi upphafsaðila, sem aftur gerir frekari lánveitingar til atvinnulífsins mögulegar, eins og segir í 4. lið inngangsorða STS-reglugerðarinnar. Almennt geti verðbréfun aukið skilvirkni fjármálakerfisins og stuðlað að auknum fjárfestingartækifærum.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Seðlabanki Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32017R2402
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 347, 28.12.2017, p. 35
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2015) 472
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Liechtenstein)
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland)
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 72, 3.10.2024, p. 45
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2433, 3.10.2024

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 943
52025PC0943
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) No 1095/2010, No 648/2012, No 600/2014, No 909/2014, 2015/2365, 2019/1156, 2021/23, 2022/858, 2023/1114, No 1060/2009, 2016/1011, 2017/2402, 2023/2631 and 2024/3005 as regards the further development of capital market integration and supervision within the Union Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 826
52025PC0826
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulation (EU) 2017/2402 of the European Parliament and of the Council of 12 December 2017 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2020) 282
52020PC0282
Regulation (EU) 2021/557 of the European Parliament and of the Council of 31 March 2021 amending Regulation (EU) 2017/2402 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation to help the recovery from the COVID-19 crisis Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytt af (Modified by)

SEC(2020) 120
52020SC0120
based on
COM(2020) 282
52020PC0282
proposes to amend Regulation (EU) 2021/557 of the European Parliament and of the Council of 31 March 2021 amending Regulation (EU) 2017/2402 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation to help the recovery from the COVID-19 crisis Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
COM(2020) 284
52020DC0284
based on
32024R1700 completes Commission Delegated Regulation (EU) 2024/1700 of 5 March 2024 supplementing Regulation (EU) 2017/2402 of the European Parliament and of the Council with regard to regulatory technical standards specifying, for simple, transparent and standardised non-ABCP traditional securitisation, and for simple, transparent and standardised on-balance-sheet securitisation, the content, methodologies and presentation of information related to the principal adverse impacts of the assets financed by the underlying exposures on sustainability factors Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32024R0920 completes Commission Delegated Regulation (EU) 2024/920 of 13 December 2023 supplementing Regulation (EU) 2017/2402 of the European Parliament and of the Council with regard to regulatory technical standards specifying the performance-related triggers and the criteria for the calibration of those triggers Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

COM(2015) 472
52015PC0472
adopts Regulation (EU) 2017/2402 of the European Parliament and of the Council of 12 December 2017 laying down a general framework for securitisation and creating a specific framework for simple, transparent and standardised securitisation, and amending Directives 2009/65/EC, 2009/138/EC and 2011/61/EU and Regulations (EC) No 1060/2009 and (EU) No 648/2012 - STS Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012R0648 amends, does deletion of, does insertion of, does replacement of Regulation (EU) No 648/2012 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2012 on OTC derivatives, central counterparties and trade repositories - EMIR Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32011L0061 amends, does replacement of Directive 2011/61/EU of the European Parliament and of the Council of 8 June 2011 on Alternative Investment Fund Managers and amending Directives 2003/41/EC and 2009/65/EC and Regulations (EC) No 1060/2009 and (EU) No 1095/2010 - AIFMD Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009R1060 amends, does deletion of, does replacement of Regulation (EC) No 1060/2009 of the European Parliament and of the Council of 16 September 2009 on credit rating agencies Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009L0138 amends, does deletion of, does replacement of Directive 2009/138/EC of the European Parliament and of the Council of 25 November 2009 on the taking-up and pursuit of the business of Insurance and Reinsurance (Solvency II) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex