Hagtölur um orkuverð - 32016R1952
Regulation (EU) 2016/1952 of the European Parliament and of the Council of 26 October 2016 on European statistics on natural gas and electricity prices and repealing Directive 2008/92/EC
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 21 Hagskýrslugerð |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð um hagtölur um orkuverð. Gerðin setur fram sameiginlegan lagalegan ramma fyrir kerfisbundna framleiðslu evrópskra hagtalna um verð á raforku og jarðgasi. Samkvæmt þeim ramma skal skila gögnum árlega og hálfsárslega þar sem orkuverð er brotið upp eftir geira (heimilum og atvinnugeirum), neysluböndum, sköttum, gjöldum og álögum, og öðrum tilteknum þáttum. Gerðin miðar að því að samræma evrópska hagskýrslugerð um verðlag raforku og jarðgass. Helsti ávinningur gerðarinnar felst í betri samanburði orkuverðs milli Evrópulanda, aðallega þegar kemur að raforkuverði, auknu gagnsæi fyrir orkuneytendur og aukin greining á áhrifum mismunandi skatta, gjalda og annara þátta á orkuverð.
Nánari efnisumfjöllun
Í gildi er ákveðin undanþága fyrir skilum gagna um verðlag jarðgass þar sem að jarðgas er almennt ekki í sölu eða notkun sem orkugjafi á Íslandi fyrir heimili eða atvinnugeirann.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Uppfæra þarf reglugerð 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar en reglugerðin á sér stoð í lögum 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing í vinnslu |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Kostnaður við verðtölfræði orku er mjög tengdur eiginlegri orkutölfræði (reglugerð (EU)1099/2008) sem þarf að innleiðaÍ tæpan áratug hefur verið kyrrstaða á innleiðingu evrópskrar orkutölfræði og hafa a.m.k. 7 reglugerðir í orkutölfræði ekki verið samþykktar innan EFTA þótt þær séu óumdeilt hluti af alþjóðlegum skuldbindingum á sviði orkutölfræði. Að þessar gerðir hafi ekki verið teknar upp í tölfræðiviðauka EES sáttmálans er ekki bara vandamál fyrir Ísland heldur einnig Noreg og Liechtenstein auk þess sem Evrópusambandið lítur í auknu máli á málið sem vanefndir. Þá er sérstök áhersla á orkutölfræði hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ljóst að fleiri reglugerðir tengdar orkumálum eru í vinnslu en í núverandi stöðu er enginn sem gætir íslenskra hagsmuna málaflokksins í þeirri þróunarvinnu. Þessi kyrrstaða í málaflokknum er því slæm fyrir alla aðila og við það verður ekki unað. Hagstofa Íslands hefur rætt við Orkustofnun og Umhverfis- og orkuráðuneyti um tilhögun þessara mála og eru allir aðilar sammála um að best sé að Hagstofa Íslands sjái um þessa tölfræði líkt og aðra opinbera evrópska hagskýrslugerð. Þá muni Hagstofan einnig sjá um skil til IEA (International Energy Agency) enda sé um að ræða mjög álíka tölfræði og í minna niðurbroti en evrópsku reglugerðirnar kveða á um. Með því að Hagstofan framleiði umrædda tölfræði verða til samlegðaráhrif við aðra tölfræðigerð við stofnunina sem eykur gæði útblásturstölfræði auk þess sem gögnin nýtast við gerð annarrar umhverfistölfræði, svo sem umhverfisreikninga. Einnig er orkutölfræði mikilvæg stærð fyrir tölfræði um atvinnuvegina og mun því bætt orkutölfræði gagnast bæði fyrirtækjatölfræði og þjóðhagsreikingum. Því til viðbótar má nefna að hægt yrði að hagnýta önnur gögn Hagstofunnar eftir þörfum. Þetta fyrirkomulag væri heppilegra fyrir Orkustofnun sem sinnir eftirlitshlutverki á raforkumarkaði en það hlutverk fer illa saman með hagskýrslugerð. Búið er að greina gerðirnar 7 með tilliti til undanþága og mögulegri þörf á sértækri orkutölfræði fyrir íslenska notendur með lykil haghöfum. Bæði eru kröfur í gerðunum sem Ísland getur málefnalega beðist undan en einnig er sumt af evrópskri orkutölfræði í svo grófu niðurbroti að ekkert gagn er að því fyrir íslenskt hagkerfi, á meðan skautað er yfir aðra mikilvæga þætti. Hagstofa Íslands hefur fengið styrk til 1 árs frá Eurostat til undirbúnings á uppbyggingu orkutölfræði og til að kortleggja gagnaflæði en fjármagna þarf bæði uppbyggingu gagnasöfnunar, vinnslukerfi og rekstur íslenskrar orkutölfræði. Ný gagnaöflun og -vinnsla fyrir uppbyggingu orkutölfræði felur í sér nokkra verkþætti: • Í fyrsta lagi eru þarfir skilgreindar, meðal annars með því að eiga í samráði við hagaðila. Einnig er komið á góðu samstarfi við gagnaveitendur til geta fangað hvaða gagnalindir eru til staðar, metið gæði og aðgengileika gagna og tryggt að gögnin uppfylli þær þarfir sem hafa komið fram. • Í öðru lagi eru sett upp markmið, gerðir samningar við gagnaveitendur og skilgreind hugtök á grundvelli vinnu í lið a. • Í þriðja lagi er ferli og kerfi hönnuð og smíðuð samræmi við skilgreindar þarfir fyrir gagnaöflun, eftirlit og sannprófun gagna til að hámarka skilvirkni og lágmarka svarbyrði. • Í fjórða lagi eru skilvirk úrvinnslu- og greiningarferli hönnuð og smíðuð til að vinna áfram gögnin til frekari hagnýtingu og miðlunar. Tryggja þarf að miðlun gagna sé í takt bæði við innlendar þarfir og alþjóðlegar aðferðir. • Í fimmta lagi er gagnaflæðið sett í rekstur sem felur í sér gangsetningu, gögn flæða reglulega í gegnum örugga samskiptaleið á milli kerfa, stafræn eftirlitskerfi fylgjast með gagnaflæði, gæðatékk og auðgun gagna er framkvæmd svo hægt sé að hagnýta gögnin til frekari hagnýtingar. Í rekstrinum felst einnig umsýsla gagna og regluleg aðstoð og samskipti við gagnaveitendur, greining og miðlun. Talverður breytileiki getur verið í umfangi hvers þáttar og því ákveðin óvissa varðandi gagnaöflunarhluta þótt ljóst sé að hann sé umfangsmikill. Styrkur frá Eurostat mun að öllum líkindum ná yfir fyrsta þáttinn og mögulega ef vel gengur annan þátt gagnaöflunar. Kostnaðarmat Varanlegur kostnaður við innleiðingu og rekstur orkutölfræði (1099/2008) og orkuverðtölfræði (2016/1952) er áætlaður 46 m.kr. Einnig er gert ráð fyrir 30 m.kr. einskiptis kostnað vegna uppbyggingu á gagnaflæði. Mikil samlegðaráhrif eru af því að innleiða gerðirnar með þessum hætti. Áhrif Ísland myndi standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi framleiðslu á orkutölfræði. Íslenskir haghafar myndi hafa aðgang að samanburðarhæfri tölfræði um orku og orkuverð en orka er sérstaklega mikilvæg lykilatvinnuvegum Íslands og almennri umræðu. Þá eru orkumál nátengd umhverfismálum og mun umhverfistölfræði einnig batna við tilkomu orkutölfræði og klár samlegð í gagnaflæði við umhverfisreikninga. Sértaklega er þessi tölfræði vel til stefnumótunar í orkumálum og afleiddum málaflokkum. Haghafar Stjórnsýslan (sérstaklega umhverfis og orkuráðuneytið, atvinnuvegaráðuneytið), umhverfis og orkustofnun, iðnaður og hagsmunasamtök s.s. Samtök iðnaðarins. Stærstu notendur orku á Íslandi. Orka og orkubúskapur snertir mjög öll umhverfismál. Almenningur en gagnsæi á orku og sérstaklega á orkuverði varðar almenning. Markaðsaðilar innan EES. Framkvæmdastjórn ESB (Eurostat). |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Forsætisráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Hagstofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32016R1952 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 311, 17.11.2016, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2015) 496 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar |
|---|
Breytt af (Modified by)
| 32018D1734 | based on, derogates | Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar |
Breytir (Modifies)
| 32008L0092 | repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
