32016D0339

Commission Implementing Decision (EU) 2016/339 of 8 March 2016 on the harmonisation of the 2010-2025 MHz frequency band for portable or mobile wireless video links and cordless cameras used for programme making and special events

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 153/2016
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin lýtur að því annars vegar að samræma notkun tíðnibandsins á alþjóðlegum grundvelli og hins vegar að taka frá tiltekið tíðnibil fyrir þráðlausar vídeó-tengingar og þráðlausar myndavélar sem notaðar eru til þáttagerðar og til notkunar við sérstaka atburði. Eins og fram kemur hér á eftir hefur þegar verið gert ráð fyrir þessum atriðum við áætlanir um notkun tíðnirófsins á Íslandi.
Í áætlun Alþjóðafjarskiptasambandsins, þ.e. International Telecommunications Union – ITU, um notkun -tíðnibandsins 2010-2025 MHz er gert ráð fyrir að tíðnibandsins verði notað fyrir eftirfarandi tækni:

Nánari efnisumfjöllun

Ákvörðunin lýtur að því annars vegar að samræma notkun tíðnibandsins á alþjóðlegum grundvelli og hins vegar að taka frá tiltekið tíðnibil fyrir þráðlausar vídeó-tengingar og þráðlausar myndavélar sem notaðar eru til þáttagerðar og til notkunar við sérstaka atburði. Eins og fram kemur hér á eftir hefur þegar verið gert ráð fyrir þessum atriðum við áætlanir um notkun tíðnirófsins á Íslandi.
Í áætlun Alþjóðafjarskiptasambandsins, þ.e. International Telecommunications Union – ITU, um notkun -tíðnibandsins 2010-2025 MHz er gert ráð fyrir að tíðnibandsins verði notað fyrir eftirfarandi tækni:
• FIXED; þráðlaus búnaður sem svarar til þráðlausra fastasambanda á milli tveggja staða fyrir sjónvarp eða þráðlausar myndavélar
• MOBILE; UMTS, þ.e. Universal Mobile Telecommunications Systems yfir gervihnetti
Í áætlunum um notkun tíðnibandsins 2010-2025 MHz á Íslandi hefur þessum tillögum Alþjóðafjarskiptasambandsins verið fylgt. Tekinn var frá hluti tíðnibandsins fyrir notkun á MOBILE (UMTS/3G) þjónustu en engin úthlutun hefur þó átt sér stað til dagsins í dag á þessu tíðnibandi. Ekki var gert frá fyrir notkun FIXED-búnaðar á tíðnibandinu í tillögu sambandsins og var ekki heldur gert ráð fyrir henni á Íslandi eftir innleiðingu á UMTS (3G) hér á landi. Hætt var að nota eldri FIXED þráðlaus fastasambönd til að rýma fyrir UMTS.
Engar áætlanir eru um aðra notkun á tíðnisviðinu á Íslandi en hér er fjallað um. Þar sem notkun eldri kerfa sem notuðu voru á þessu tíðnibandi hefur verið hætt og engar úthlutanir hafa átt sér stað á þessu tíðnibandi fyrir Mobile/UMTS á Íslandi fram að þessu er tíðnibandið laust til framtíðarnotkunar fyrir þann búnað sem hér er tilgreindur. Gerðin fer því saman við þær áætlanir sem gerðar hafa verið hér á landi að teknu tilliti til alþjóðlegrar stefnumörkunar Alþjóðafjarskiptasambandsins

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Ábyrg stofnun Fjarskiptastofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016D0339
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 63, 10.3.2016, p. 5
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 16, 15.3.2018, p. 32
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 73, 15.3.2018, p. 28

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Hvít: Ekki þörf á laga- eða reglugerðabreytingum til að innleiða gerðina

Breytir (Modifies)

32002D0676 based on Decision No 676/2002/EC of the European Parliament and of the Council of 7 March 2002 on a regulatory framework for radio spectrum policy in the European Community (Radio Spectrum Decision) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex