32020R1055
Regulation (EU) 2020/1055 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 amending Regulations (EC) No 1071/2009, (EC) No 1072/2009 and (EU) No 1024/2012 with a view to adapting them to developments in the road transport sector
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 077/2022 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Breyta á gildissviði reglugerðanna 1071/2009 og 1072/2009 með þeim hætti að samræmdar reglur sem gilda um farmflutninga á ökutækjum yfir 3,5 tonnum muni einnig gilda um farmflutninga á ökutækjum frá 2,5 til 3,5 tonn þegar ökutækin stunda m.a. flutninga á milli ríkja. Einnig er verið að breyta ýmsum öðrum ákvæðum, sem dæmi ákvæðum um landsskrá, þ.e. skrá yfir þá sem hafa leyfi til flutninga í hverju ríki, sem og ákvæðum um upplýsingaskipti milli ríkja. Borið hefur á erfiðleikum í framkvæmd og ósamræmi við að framfylgja ákvæðum. Aukið álag á Samgöngustofu og líklegur kostnaðarauki.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Breyta á gildissviði reglugerðanna 1071/2009 og 1072/2009 með þeim hætti að samræmdar reglur sem gilda um farmflutninga á ökutækjum yfir 3,5 tonnum muni einnig gilda um farmflutninga á ökutækjum frá 2,5 til 3,5 tonn þegar ökutækin stunda m.a. flutninga á milli ríkja. Einnig er verið að breyta ýmsum öðrum ákvæðum, sem dæmi ákvæðum um landsskrá, þ.e. skrá yfir þá sem hafa leyfi til flutninga í hverju ríki, sem og ákvæðum um upplýsingaskipti milli ríkja.
Aðdragandi: Í reglugerð 1071/2009/EB er aðildarríkjunum veitt svigrúm við að beita ákveðnum ákvæðum um léttari ökutæki.
Borið hefur á erfiðleikum við að tengja flutningsaðila við yfirvöld í aðildarríkjum. Sérstaklega á þetta við um svo kölluð skúffufyrirtæki. Því þarf að gera strangari og skýrari þá kröfu að ökutækin séu sannanlega í því aðildarríki sem fyrirtækið er skráð í. Þetta á að gera með því að ákveða með skýrum hætti þann lágmarks tíma sem ökutæki þurfa að vera í tilteknu ríki milli verkefna þar. Þessari kröfu þarf að framfylgja í samræmi við þá kröfu sem fram kemur í reglugerð nr. 561/2006/EB um að bílstjórum sé gert kleift að snúa heim á 4 vikna fresti.
Hugtakið gott orðspor umsækjanda um farmflutningaleyfi er líka til umfjöllunar. Það þarf að skýra og endurskoða sem og það hvað gerist eftir að flutningsaðili glatar góðu orðspori. Alvarleg brot á innlendri skattalöggjöf eru nú sett á lista yfir það sem meta skal þegar gott orðspor er metið. Við mat á góðu orðspori er jafnframt bætt við ákvæði um að meta skuli alvarleg brot á reglum Sambandsins um útsenda ökumenn, innanlandsflutninga, e. cabotage og lög sem gilda um samningsskuldbindingar.
Innlend stjórnvöld hafa átt í erfiðleikum með að skilgreina hvaða gögn flutningsaðili á að skilað til að sannreyna fjárhagsstöðu, sérstaklega ef ekki er um ársreikninga að ræða. Vegna þessa þarf að skýra þær reglur.
Að mati framkvæmdastjórnarinnar ættu að gilda vægari fjárhagskröfur fyrir þá sem stunda flutninga á ökutækjum sem eru á milli 2,5 og 3,5 tonn en fyrir þá sem stunda flutninga á þyngri ökutækjum. Gera á kröfu um strangari fjárhagskröfur ef heildarþyngd ökutækjanna, þ.e. með farmi, fer yfir 3,5 tonn.
Aðildarríki eiga engu að síður að mati framkvæmdastjórnarinnar að fá leyfi til að gera hærri fjárhagskröfur fyrir minni aðilana til að tryggja há viðmið.
Til að tryggja áreiðanlega flutninga og bæta innheimtu skulda við hið opinbera ættu aðildarríkin að hafa þann möguleika að geta krafist þess að opinber gjöld, svo sem virðisaukaskattur og tryggingagjald séu greidd sem og að geta krafist þess að Viðkomandi fyrirtæki komist ekki í skjól vegna greiðsluvandræða á meðan opinber aðili gerir tilraun til að innheimta hjá honum skuldir.
Upplýsingar um flutningsaðila sem finna má í innlendum rafrænum skrám eiga að vera eins heildstæðar og vel uppfærðar og mögulegt er til að gera innlendum yfirvöldum kleift að framfylgja viðeigandi reglum og hafa fullnægjandi yfirsýn yfir þá sem eru til rannsóknar. Sérstaklega er mikilvægt að reglur um skráningarnúmer ökutækja og áhættumat rekstraraðila séu þannig að yfirvöldum sé kleift að framfylgja ákvæðum reglugerða nr. 1071/2009/EB og nr. 1072/2009/EB á milli ríkja. Breyta þarf reglum um rafrænu landsskrána til að ná því markmiði.
Til að tryggja samræmd skilyrði fyrir framkvæmd þessarar reglugerðar ber að fela framkvæmdastjórninni framkvæmdavald til að samþykkja meðal annars tæknilegar aðferðir við rafrænt samráð við milli rafrænna landsskráa aðildarríkja. Þetta gæti falið í sér nauðsynlegar verklagsreglur til að tryggja að lögbær yfirvöld geti haft aðgang að samræmdu áhættumati skv. 9. gr. tilskipunar 2006/22/EB meðan á vegaeftirliti stendur. Þessum valdheimildum skal beitt í samræmi við reglugerð nr. 182/2011/ESB.
Þau brot sem teljast alvarlegust þegar farið er yfir leyfilegan daglegan hámarksaksturstíma samkvæmt IV. viðauka reglugerðar nr. 1071/2009/EB passa ekki við brot af sama tagi sem teljast alvarlegust samkvæmt reglugerð nr. 561/2006/EB. Þetta ósamræmi leiðir til óvissu og þess að samskonar brot eru meðhöndluð með mismunandi hætti í sama ríki. Það leiðir síðan til þess að erfiðara er að beita reglunum. Vegna þessa þarf að laga þessa skilgreiningu.
Evrópska verkalýðsstofnunin, e. The European Labour Authority, mun gegna veigamiklu hlutverki við að aðstoða aðildarríkin að framfylgja ákvæðum þessarar reglugerðar. Hjálpin mun t.d. felast í skoðunum, samvinnu og upplýsingaskiptum á milli aðildarríkja o.fl.
Með hliðsjón af markaðsþróun og tækniframförum ætti að fela framkvæmdastjórninni vald til að breyta viðaukum I, II og III við reglugerð nr. 1071/2009/EB og viðaukum við reglugerð nr. 1072/2009/EB. Þetta yrði gert í samræmi við 29. gr. Í samræmi við sáttmálann um starfshætti Evrópusambandsins. Þá er sérstaklega mikilvægt að framkvæmdastjórnin hafi viðeigandi samráð meðan á undirbúningsvinnu breytinga stendur. Þar með talið að hafa samráð við sérfræðinga. Samráðið þarf að fara fram í samræmi við þær meginreglur sem mælt er fyrir um í Interinstitutional Agreement um betri lagasetningu einkum til að tryggja jafna þátttöku í undirbúningi framseldra gerða.
Efnisútdráttur:
Með Reglugerð 2020/1055 (ESB) er gerður fjöldi breytinga á Reglugerð 1071/2009/EB og 1072/2009/EB auk minniháttar breytinga á 1024/2012. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Grein 1 fjallar um breytingar á reglugerð nr. 1071/2009/EB. Verið að víkka út gildissvið fyrir farmflutninga með breytingu á 1. gr. þannig að reglugerðin gildi líka fyrir ökutæki undir 3,5 en yfir 2,5 tonn sem er ekki eingöngu notað í innlendum flutningi í sínu aðildarríki.
Með 3. gr. er gerð breyting á viðauka I við Reglugerð (ESB) 1024/2012 þannig að Reglugerð 1071/2009/EB er bætt við lista yfir gerðir þar sem notast skal við IMI við samstarf milli aðildarríkja og milli aðildarríkja og Framkvæmdastjórnarinnar.
5. gr. reglugerðarinnar er skipt út fyrir nýja grein. Gerðar eru nýjar kröfur til flutningsaðila um að hafa fasta starfstöð í aðildarríki. Þá eru gerðar fleiri nýjar kröfur til gagnaskila og skatta í aðildarríkjum.
7. gr. reglugerðarinnar er breytt á þá vegu að fjárhagskröfurnar eru aðrar og vægari fyrir ökutæki sem vega á milli 2,5 tonn og 3,5 tonn. Þar er fjallað um að aðildarríki eigi að upplýsa framkvæmdastjórnina um ákveðna þætti. Þar þarf að óska aðlögunar í þá veru að Ísland upplýsi Eftirlitsstofnun EFTA. Verið að lýsa með nákvæmari hætti hvernig viðeigandi stjórnvald eigi að meta fjárhagsstöðu flutningsaðila.
9. gr. reglugerðarinnar er breytt á þá vegu að aðildarríkjum er veitt heimild til að lækka kröfur til flutningsaðilum við útgáfu rekstrarleyfis ef viðkomandi hefur verið stundað flutninga á vegum í 10 ár á ökutæki sem fer ekki yfir 3,5 tonn. Viðeigandi stjórnvöld eiga að hafa eftirlit með flutningsaðilum. Tölfræði sem fjallað er um í a-d 1. mgr. 16. gr. skal vera aðgengileg almenningi.
Ný 10. gr. a. gerir það m.a. að skyldu að viðhafa skipulagt eftirlit á vegum með gestaflutningum a.m.k. 2 á ári. 17. gr. fjallar um skýrslur og upplýsingagjöf sem aðildarríkin þurfa að standa skil á til framkvæmdastjórnarinnar. Þar þarf aðlögun þannig að miðað sé við Eftirlitsstofnun EFTA í tilviki Íslands.
Ný 18. gr. fjallar um upplýsingaskipti á milli aðildarríkja og auknar skyldur á aðildarríki að veita aðgang að ákveðnum upplýsingum til annarra yfirvalda. 26. gr. er breytt á þá vegu að á 2 ára fresti skal aðildarríki senda inn skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar skv. 4. og 9. mgr. 18. gr. um svör frá öðrum aðildarríkjum og hvernig brugðist hefur verið við á grundvelli upplýsinga sem hafa borist. Þar þarf að gera þá breytingu að miðað sé við Eftirlitsstofnun EFTA í tilviki Íslands. eftir beiðni
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Breyting á því að léttari ökutæki þurfi að fá leyfi kallar á aukna vinnu hjá Samgöngustofu. Erfitt er að segja til um umfang en tekjur myndu að öllum líkindum einnig aukast. Hvert leyfi kostar 15.000 kr. Þar sem lítið er um farþegaflutninga og farmflutninga með ökutækjum til og frá Íslandi er líklegt að breytingar á gildissviði hafi lítil áhrif. Breyting á landsskránni getur kallað á frekari forritunarvinnu vegna fjölgunar á atriðum sem þarf að skrá og halda utan um. Upplýsingaskiptin hafa ekki verið mjög virk hingað til þar sem Ísland hefur eingöngu gefið út örfá Bandalagsleyfi en ef þau aukast þá kallar þessi grein á frekari vinnu.
Verið að bæta inn í 16. gr. reglugerðar nr. 1071/2009/EB frekari upplýsingum sem flutningsaðilar þurfa að veita landsbundnu yfirvaldi. Það gæti kallað á reglugerðarbreytingu þar sem þær kröfur eru betur tilgreindar. Sem dæmi að gefa þarf upp fjölda starfsmanna ár hvert.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Innleitt í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður í aukinni vinnu við fleiri leyfisumsóknir og við forritunarvinnu við að uppfæra landsskrána og við mögulega aukin upplýsingaskipti.
Kostnaður fyrir þá sem stunda farþegaflutninga eða farmflutninga á léttari ökutækjum milli ríkja (milli 2,5 og 3,5 tonn).
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Dómsmálaráðuneytið
Tilgreining á hagsmunaaðilum: Þeir sem stunda vöruflutninga á vegum. Lögreglan.
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða:
Á nokkrum stöðum er talað um að senda eigi skýrslu eða tilkynna eigi til framkvæmdastjórnarinnar. Þarf að vera ESA í tilviki Íslands.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er í 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Innleitt í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32020R1055 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 249, 31.7.2020, p. 17 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2017) 281 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 51 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 182, 7.7.2022, p. 63 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytt af (Modified by)
| 32020R1055R(03) | amends |
| 32020C0731(01) | work related to work |
Breytir (Modifies)
| COM(2017) 281 52017PC0281 |
adopts | Regulation (EU) 2020/1055 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 amending Regulations (EC) No 1071/2009, (EC) No 1072/2009 and (EU) No 1024/2012 with a view to adapting them to developments in the road transport sector | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32012R1024 | amends | Regulation (EU) No 1024/2012 of the European Parliament and of the Council of 25 October 2012 on administrative cooperation through the Internal Market Information System and repealing Commission Decision 2008/49/EC (‘the IMI Regulation’) | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009R1072 | amends | Regulation (EC) No 1072/2009 of the European Parliament and of the Council of 21 October 2009 on common rules for access to the international road haulage market | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009R1071 | amends | Regulation (EC) No 1071/2009 of the European Parliament and of the Council of 21 October 2009 establishing common rules concerning the conditions to be complied with to pursue the occupation of road transport operator and repealing Council Directive 96/26/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E091 | based on |