Neysluvatn - 32020L2184

Directive (EU) 2020/2184 of the European Parliament and of the Council of 16 December 2020 on the quality of water intended for human consumption


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.02 Vatn

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/2184 frá 16. desember 2020 um gæði neysluvatns

Nánari efnisumfjöllun

Neysluvatns tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/2184 endurspeglar nýjustu vísindalegu þekkingu, ásamt því að taka mið af breyttum viðhorfum og væntingum almennings til umhverfisverndar og lýðheilsu. Markmiðið með þessari tilskipun er að vernda heilbrigði manna gegn skaðlegum áhrifum frá mengun neysluvatns, með því að tryggja það að vatnið sé heilnæmt og hreint, ásamt því að bæta aðgengi almennings að hreinu og öruggu neysluvatni.  Til að tryggja bætt gæði neysluvatns kveður tilskipunin á um strangari viðmiðunarmörk fyrir ákveðin mengandi efni, svo sem blý og króm. Auk þess eru ný efni tekinn inn til vöktunar svo sem PFAS (flúorsambönd), sem þekkt eru fyrir að safnast upp í líkamanum, innkirtlatruflandi efni eins og bisfenól A,  og örplasts (microplastic). Þessi efni eru talin geta haft skaðleg áhrif á heilsu manna og skulu því sæta reglubundnu eftirliti. Jafnframt hefur verið endurskoðað og uppfært hvaða mæliþættir, svo sem örverur og efni, skuli metnir við greiningu á gæðum neysluvatns.Tilskipunin kveður á um að beita skuli áhættumiðaðri nálgun við öryggisstjórnun neysluvatns. Framkvæma skal áhættumat og innleiða áhættustjórnun vegna efna og vara sem koma í snertingu við neysluvatn, allt frá vatnstökusvæðum til vatnsveitukerfa og innanhússdreifikerfa. Ef áhættumat á dreifikerfum innanhús leiðir í ljós hugsanlega hættu fyrir heilbrigði manna vegna legíónellu t.d. í baðvatni eða loftræstikerfum, skal gripið til ráðstafana þá sérstaklega ef um er að ræða „athafnasvæði í forgangi“, sem stjórnvöld skulu skilgreina hver eru. Áhættumiðuð nálgun felur jafnframt í sér ákveðinn sveigjanleika hvað varðar rannsóknarviðmið og tíðni greininga.Lágmarkskröfur um efni í vörum sem komast í snertingu við neysluvatn miða að því að tryggja að skaðleg efni losni ekki út í vatnið. Stefnt er að því að koma á fót samevrópskum jákvæðum lista, sem mun fela í sér samræmda skrá yfir þau efni sem heimilt er að nota í slíkar vörur. Efni sem hafa verið metin samkvæmt ströngum stöðlum og hlotið viðeigandi samþykki.Tilskipunin kveður skýrt á um að bæta aðgengi allra að neysluvatni og stuðla að notkun kranavatns. Jafnframt ber að gera viðeigandi ráðstafanir, sérstaklega með tilliti til jaðarhópa, til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru. Tilskipunin leggur einnig sérstaka áherslu á sjálfbæra vatnsnotkun og umhverfisvernd með því að hvetja til aukinnar notkunar á kranavatni og þar með draga úr plastnotkun og úrgangi sem tengist flöskuvatni.Fjallað er um upplýsingagjöf og gagnsæi sem miðar að því að tryggja almenningi aðgang að fullnægjandi og uppfærðum upplýsingum um gæði neysluvatns. Þar undir falla meðal annars niðurstöður um gæði, möguleg hættuefni og þær viðeigandi ráðstafanir sem gripið hefur verið til.Tilskipunin markar mikilvægt framfaraskref í verndun neysluvatns. Samræmdar reglur innan Evrópu stuðla að auknu trausti til neysluvatns milli aðildarríkja, ásamt heildaröryggi og heilnæmi neysluvatnsins í öllum aðildarlöndum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Ný reglugerð sett með stoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli.
Fella þarf úr gildi reglugerð 536/2001.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar UOS, HMST, ATRN, HES, Veitur, HÍ

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Veiturnar munu þurfa bera einhvern kostnað af áhættumati og áhættustýringu en á móti mun koma meiri sveigjanleiki hvað varðar tíðni sýnatöku og fjölda rannsóknarþátta. Reynslan hefur sýnt að ekki er þörf á þeim viðamiklu rannsóknum á neysluvatninu, sem tilskipunn gerir ráð fyrir.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020L2184
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 435, 23.12.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2017) 753
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

72023L2668CZE_232054 measure national implementing implements
72022L0431CZE_232054 measure national implementing implements
72020L2184HUN_30381 measure national implementing implements
72020L2184CZE_246817 measure national implementing implements
72020L2184CZE_232054 measure national implementing implements

Breytir (Modifies)

COM(2017) 753
52017PC0753
adopts Directive (EU) 2020/2184 of the European Parliament and of the Council of 16 December 2020 on the quality of water intended for human consumption Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32015L1787 repeals Commission Directive (EU) 2015/1787 of 6 October 2015 amending Annexes II and III to Council Directive 98/83/EC on the quality of water intended for human consumption Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009R0596 amends
32003R1882 amends
31998L0083 repeals Council Directive 98/83/EC of 3 November 1998 on the quality of water intended for human consumption Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex

Flokkun (Classifications)