32020R1812

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1812 of 1 December 2020 laying down rules on the online data exchange and the notification of EU type-approvals under Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1812 frá 1. desember 2020 um að setja reglur um gagnaskipti á Netinu og um tilkynningu um ESB-gerðarviðurkenningar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 053/2022
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með gerðinni er verið að velja gagnagrunn fyrir upplýsingaskipti aðildarríkja skv. reglugerð 2018/858/ESB. Í 4. mgr. 12. gr. reglugerðar 2018/858/ESB er lögð sú skylda á aðildarríki Evrópusambandsins að nota sameiginlegan gagnagrunn til upplýsingaskipta sín á milli. Tilgangurinn er sá að upplýsingar um gerðarviðurkenningar ökutækja auk upplýsinga um kerfi og tæknilega hluti sem hafa verið samþykktir, breytt, hafnað eða dregnir til baka, verði aðgengilegar almenningi frá 1. september 2022. Þá muni jafnframt liggja fyrir upplýsingar um tækniþjónustuna sem gerði prófin sem voru grundvöllur fyrir gerðarviðurkenninguna. Gerðin hefur lítil áhrif hér á landi. Kostnaður verður óverulegur. Grunn gerðin 2018/858 mun hafa miklar breytingar í för með sér.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Velja gagnagrunn fyrir upplýsingaskipti aðildarríkja skv. reglugerð 2018/858/ESB.
Aðdragandi: Í 4. mgr. 12. gr. reglugerðar 2018/858/ESB sem ekki hefur verið innleidd hér á landi er lögð sú skylda á aðildarríki Evrópusambandsins að nota sameiginlegan gagnagrunn til upplýsingaskipta sín á milli. Tilgangurinn er sá að upplýsingar um gerðarviðurkenningar ökutækja auk upplýsinga um kerfi og tæknilega hluti sem hafa verið samþykktir, breytt, hafnað eða dregnir til baka, verði aðgengilegar almenningi frá 1. september 2022. Þá muni jafnframt liggja fyrir upplýsingar um tækniþjónustuna sem gerði prófin sem voru grundvöllur fyrir gerðarviðurkenninguna.
Í 27. gr. sömu reglugerðar eru aðildarríki skylduð til að nota sama kerfi til að veita framkvæmdastjórninni, þeim sem sinna markaðseftirliti og öðrum ríkjum sambandsins aðgang að ákveðnum skjölum tiltekinna gerðarviðurkenninga. Þetta er gert til að upplýsa viðurkenningaryfirvöld annarra aðildarríkja og framkvæmdastjórnina um það þegar gerðarviðurkenningu hefur verið hafnað ásamt ástæðum fyrir því að henni var hafnað.
Evrópska gerðarviðurkenningarkerfið ETAES, e. The European Type Approval Exchange System, er hugbúnaður sem er aðgengilegur á netinu. Hann er þróaður af aðildarríkjum til að aðstoða gerðarviðurkenningaryfirvöld við innleiðingu á upplýsingaskiptum. Evrópusambandið krefst þess að haldið sé úti miðlægum upplýsingagrunni til að veita aðgang að afritum af svokölluðum Certificates of Conformity, CoC, vottorði á milli ríkja. Við útgáfu slíks vottorðs er staðfest samræmi við tiltekin fyrirmæli og staðla. Það er talið við hæfi að nota ETAES sem þann sameiginlega gagnagrunn til upplýsingaskipta sem fjallað er um í 3. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar.
Til að viðhalda og vernda trúnaðarupplýsingar þarf að skilgreina reglur við að tengjast grunninum og notkun öruggra gagna upplýsingaskipta.
Þar sem ETAES er í núverandi mynd eingöngu samskiptatæki fyrir samvinnu stjórnvalda aðildarríkjanna en ekki opin almenningi er nauðsynlegt að samræma sniðmátið til að uppfylla skilyrði 4. mgr. 12. gr. og til að tryggja að réttar upplýsingar séu gerðar aðgengilegar almenningi.
Efnisútdráttur: 1. gr. fjallar um að European Type Approval Exchange System, ETAES grunnurinn skuli notaður sem sameiginlegur, öruggur, rafrænn upplýsingaskiptagrunnur eins og fjallað er um í 3. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar.
2. gr. fjallar um öryggiskröfur grunnsins. Þar er fjallað um dulkóðun samskipta á milli notanda og grunnsins, netöryggi og aðgangsstýringarkerfi.
3. gr. fjallar um verklag við upplýsingaskipti varðandi gerðarviðurkenningarupplýsingar og hvaða upplýsingar fara á milli.
4. gr. fjallar um lista af EU gerðarviðurkenningu.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi
Gerðin ætti ekki að hafa áhrif hér á landi þar sem Ísland gefur ekki út evrópskar gerðarviðurkenningar. Ísland tekur við þessum gerðarviðurkenningum til að skrá ökutæki inn í landið. Það eina sem gefið er út hér á landi er það sem er kallað individual vehicle approval, eða samþykki fyrir breytingu á ökutæki og þarf sú skráning að fylgja ökutækinu ef það er t.d. flutt á milli landa. Því hefur gerðin lítil áhrif á Íslandi.
Það er þó rétt og mikilvægt að taka fram að reglugerð 2018/858/ESB sem ekki hefur verið innleidd hér á landi mun koma til með að hafa töluverð áhrif á Ísland bæði hvað varðar tíma og kostnað og felast þau áhrif að stærstu leiti í eftirfarandi:
• Uppfæra þarf ökutækjaskrá þannig að skráning ökutækja taki mið af AVI, e. Actual vehicle information, eða það sem kalla mætti samræmda skráning ökutækja
• Uppfæra þarf ökutækjaskrá þannig að hún taki á móti rafrænum CoC vottorðum eða eCoC vottorðum en það verður krafa frá og með árinu 2026.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleitt í reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Þessi gerð hefur óveruleg áhrif hér á landi og því ekki gert ráð fyrir kostnaði en vísað til umsagnar hér að ofan um aðrar breytingar sem 2018/858/ESB hefur í för með sér. Þær breytingar munu vera tímafrekar og hafa kostnað í för með sér. Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um kostnað að svo stöddu.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleitt í reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1812
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 404, 2.12.2020, p. 5
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D069386/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 13
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 182, 7.7.2022, p. 25

Breytir (Modifies)

32018R0858 based on Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2018 on the approval and market surveillance of motor vehicles and their trailers, and of systems, components and separate technical units intended for such vehicles, amending Regulations (EC) No 715/2007 and (EC) No 595/2009 and repealing Directive 2007/46/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi