Lágmarkslaun - 32022L2041
Directive (EU) 2022/2041 of the European Parliament and of the Council of 19 October 2022 on adequate minimum wages in the European Union
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 18 Öryggi og hollustuhættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti kynjanna |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framkvæmdastjórnin hefur sett fram tillögu sem á að tryggja að launafólki innan ESB séu tryggð sanngjörn lágmarkslaun, hvort sem er í formi kjarasamninga eða með lögum. Tillögunni er ætlað að bæta vinnuskilyrði og lífsviðurværi ESB borgara og að auka jöfnuð á vinnumarkaði og stuðla að hagkvæmri og félagslegri þróun. Tillagan byggir á Evrópustoð félagslegra réttinda (European Pillar of Social Rights). 6. meginregla stoðarinnar mælir fyrir um að sanngjörn lágmarkslaun og um gagnsæ og fyrirsjáanleg launakjör. Í kjölfarið setti framkvæmdastjórnin fram framkvæmdaráætlun um hvernig hægt væri að innleiða stoðina þar á meðal hvernig væri hægt að tryggja sanngjörn lágmarkslaun.
Nánari efnisumfjöllun
Framkvæmdastjórnin hefur sett fram tillögu sem á að tryggja að launafólki innan ESB séu tryggð sanngjörn lágmarkslaun, hvort sem er í formi kjarasamninga eða með lögum. Tillögunni er ætlað að bæta vinnuskilyrði og lífsviðurværi ESB borgara og að auka jöfnuð á vinnumarkaði og stuðla að hagkvæmri og félagslegri þróun. Tillagan byggir á Evrópustoð félagslegra réttinda (European Pillar of Social Rights). 6. meginregla stoðarinnar mælir fyrir um að sanngjörn lágmarkslaun og um gagnsæ og fyrirsjáanleg launakjör. Í kjölfarið setti framkvæmdastjórnin fram framkvæmdaráætlun um hvernig hægt væri að innleiða stoðina þar á meðal hvernig væri hægt að tryggja sanngjörn lágmarkslaun.Framkvæmdatstjórnin hefur nú sett fram tillögu að tilskipun sem mælir fyrir um viðeigandi lágmarkslaun innan ESB. Markmið með tillögunni er að setja reglur sem tryggja að lágmarkslaun séu virt og að launafólki séu tryggð viðeigandi vernd þegar kemur að launum og ákvörðun launa, hvort sem það er á grundvelli kjarasamninga eða samkvæmt lögum. Tillagan byggir á þeim að rökum að viðeigandi lágmarkslaun séu til bóta fyrir bæði atvinnurekendur og launafólk, til að mynda auki það samkeppnisstöðu, auki framleiðni og efli hagræna og félagslega þróun. Auk þess séu slíkum reglum ætlað að minnka kynjaójöfnuð þegar kemur að launakjörum. Í tillögunni er mælt með eflingu kjarasamningamódelsins (sjá grein 4). í tillögunni eru settar fram þær reglur sem lagasetning varðandi laun þarf að uppfylla, til að mynda eru sett fram ákveðin skilyrði og lögð áhersla á þátttöku aðila vinnumarkaðarins að slíkri lagasetningu (sjá grein 5). Samkvæmt tillögunni ber ríkjunum einnig að tilkynna til framkvæmdastjórnarinnar árlega um laun.Tillagan hefur verið umdeild, einkum hjá Norðurlöndunum og meðal fulltrúa launafólks. Fylgjast þarf grannt með tillögunni og þróun hennar, með tilliti til gildissviðs og efnis. Meta þarf einnig hvort tillagan sé EES-tæki og falli undir gildissvið EES-samningsins.Málið var á forgangslista ríkisstjórnarinnar 2020-2022.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Á ekki við |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Engar laga- eða reglugerðabreytingar |
|---|---|
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Félags- og húsnæðismálaráðuneyti |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32022L2041 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 275, 25.10.2022, p. 33 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2020) 682 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
