32022R0868

Regulation (EU) 2022/868 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2022 on European data governance and amending Regulation (EU) 2018/1724 (Data Governance Act)

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.01 Fjarskiptaþjónusta
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 307/2025

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/868 frá 30. maí 2022 um evrópskt stjórnskipulag gagna og um breytingar á reglugerð (ESB) 2018/1724 (DGA).
Markmið reglugerðarinnar er að styrkja gagnahagkerfið með því að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslu opinberra aðila; koma á virkum markaði með gögn með milliliðum og aðilum sem safna og vinna gögn sem veitt eru til almannaheilla.
Í reglugerðinni er mælt fyrir um skilyrði fyrir endurnotkun á innri markaðnum á tilteknum flokkum gagna sem eru í vörslu opinberra aðila, tilkynningar- og eftirlitsramma vegna veitingar gagnamilligönguþjónustu, ramma um valfrjálsa skráningu aðila sem safna og vinna gögn sem gerð eru aðgengileg í þágu gagnavildar og ramma um stofnun Evrópsks gagnanýsköpunarráðs (European Data Innovation Board – EDIB).

Reglugerðin tók formlega gildi innan ESB 23. júní 2022 og kom að fullu til framkvæmda 24. september 2023.

Nánari efnisumfjöllun

Efni og gildissviðReglugerðin er hluti af sýn framkvæmdastjórnar ESB, sem fram kemur í Evrópsku gagnaáætluninni, um sameiginlegt evrópskt gagnasvæði, þ.e. innri gagnamarkað þar sem hægt er að nota gögn óháð því hvar á innra markaðnum þau séu geymd, sem er m.a. lykilatriði fyrir hraða þróun gervigreindartækni. Hún tekur til endurnota tiltekinna flokka gagna sem eru í vörslu hins opinbera, en skapar ekki sjálfstæða skyldu til að heimila endurnot gagna. Þá hefur hún að geyma reglur um gagna milliliði og gagnavild. Í seinni hluta reglugerðarinnar er að finna reglur um Evrópska gagnanýsköpunarráðið, lögbær yfirvöld til að framfylgja regluverkinu og viðurlög við brotum, ásamt reglum um flutning gagna til landa utan ESB.Reglugerðin setur samræmdar reglur um gögn en breytir einnig reglugerð (ESB) 2018/1724 um að koma á sameiginlegri stafrænni gátt til að veita aðgang að upplýsingum, málsmeðferðarreglum og aðstoð og þjónustu til lausnar á vandamálum (miðlæg evrópsk þjónustugátt), sem er á ábyrgð FJR. Endurnot tiltekinna flokka gagna sem eru í vörslu hins opinberaOpinberir aðilar hafa yfir að ráða miklu magni verndaðra gagna (s.s. viðskiptaleyndarmál, persónuupplýsingar eða hugverk) sem ekki er hægt að nota sem opin gögn en sem hægt væri að endurnota samkvæmt sértækum reglum ESB eða landsbundnum reglum. Skilyrði um endurnot skulu m.a. vera án mismununar, gagnsæ, rökstudd og gerð aðgengileg öllum.Gögn sem reglugerðin tekur tilÁkvæði reglugerðarinnar gilda um gögn sem eru í vörslu opinberra aðila og njóta verndar á grundvelli viðskiptaleyndar, trúnaðarkvaðar í hagskýrslum, verndar hugverkaréttinda þriðju aðila eða verndar persónupplýsingalaga, að svo miklu leyti sem slík gögn falla utan gildissviðs tilskipunar (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. Tiltekin gögn eru undanþegin reglugerðinni, s.s. gögn sem eru í vörslu útvarpsrekanda í almannaþágu, menningarstofnana og menntastofnana.Skilyrði fyrir endurnotkunOpinberir aðilar skulu tryggja að eðli gagna sem vernduð gögn sé varðveitt, þrátt fyrir endurnot. Þeir geta kveðið á um að aðgangur að gögnum sé háður eftirfarandi skilyrðum:-      að endurnot séu aðeins heimiluð hafi gögn verið gerð nafnlaus, þegar um persónuupplýsingar er að ræða, og að gögnunum hafi verið breytt, þau hópuð eða meðhöndluð með annarri aðferð til að hindra rekjanleika, ef um er að ræða upplýsinga sem viðskiptaleynd hvílir á.-      að aðgangur að gögnum og endurnot á þeim fari fram í öruggu vinnsluumhverfi sem opinberi aðilinn lætur í té eða stjórnar.-      að aðgangur að gögnum og endurnot á þeim fari fram í húsnæðinu þar sem örugga vinnsluumhverfið er staðsett og í samræmi við stranga öryggisstaðla ef ekki er unnt að heimila fjaraðgang án þess að stofna réttindum og hagsmunum þriðju aðila í hættu.-      Að endurnotandinn virði trúnaðarskyldu, ef ekki gilda sérstakar verndarráðstafanir varðandi þær í lögum.Skilyrðin skulu vera án mismununar, gagnsæ og rökstudd á hlutlægan hátt.Gjöld og bann við einkanytjafyrirkomulagiGjöld fyrir endurnot skulu vera gagnsæ, án mismununar og rökstudd á hlutlægan hátt. Opinberir aðilar sem heimila endurnot geta beitt lækkuðum eða engum gjöldum, t.d. fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, sprotafyrirtæki og menntastofnanir.Lagt er bann við samningum sem veita einkarétt á endurnotum á gögnum í vörslu opinberra aðila vegna þeirra gagna sem eiga undir reglugerðina, nema að því marki sem slíkir samningar eru nauðsynlegir til þess að veita megi þjónustu eða afhenda vöru í almannaþágu sem væri að öðrum kosti ekki mögulegt.Þar til bærir aðilar (e. competent bodies)Aðildarríki tilnefna einn eða fleiri þar til bæra aðila sem aðstoða opinbera aðila við að veita eða synja um aðgang til endurnota á þeim flokkum gagna sem reglugerðin tekur til. Aðstoðin getur falist í því að veita leiðsögn og tæknilegan stuðning, gera tiltækt öruggt vinnsluumhverfi til að veita aðgang og tryggja gagnavinnslu á þann hátt að leynd, trúnaður, heilleiki og aðgengi að upplýsingum í gögnunum séu tryggt á skilvirkan hátt.Miðlæg upplýsingagáttTil að tryggja að hægt sé að finna gögn verða aðildarríki ESB að tryggja að allar viðeigandi upplýsingar um skilyrði fyrir endurnot og um gjöld séu aðgengilegar og aðgengilegar í gegnum einn upplýsingastað. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun síðan samkeyra þessar upplýsingar á data.europa.eu. GagnamilligönguþjónustaÍ reglugerðinni eru settar reglur um þá sem veita gagnamilligönguþjónustu, sem eru hlutlausir þriðju aðilar sem tengja einstaklinga og fyrirtæki sem geyma gögn við aðra sem vilja nota gögnin. Skilyrðin fyrir því að veita slíka þjónustu miða að því að tryggja að slíkir aðilar séu traustir skipuleggjendur gagnamilligöngu.Þeir sem veita gagnamiðlunarþjónustu skulu:-      uppfylla strangar kröfur til að tryggja hlutleysi og forðast hagsmunaárekstra,-      hafa þjónustuna aðgreinda frá annarri þjónustu,-      hafa verðskilmála óháða því hvort hugsanlegur eigandi gagna eða notandi gagna nýtir sér aðra þjónustu, og-      vera skráðir hjá lögbæru yfirvaldi. GagnavildGagnavild er þegar einstaklingar og fyrirtæki veita samþykki sitt eða leyfi til að gera gögnin, sem þau búa til, aðgengileg til notkunar í þágu almennings, af fúsum og frjálsum vilja og án endurgjalds. Slík gögn hafa gríðarlega möguleika til að efla rannsóknir og þróa betri vörur og þjónustu, m.a. á sviði heilbrigðismála, loftslagsaðgerða og samgangna. Aðildarríki geta þróað landsbundnar stefnur til að hvetja til gagnavildar og aðili sem stundar slíkt getur sótt um að vera skráður sem „gagnavildarstofnun sem er viðurkennd í Sambandinu“. Framkvæmdastjórnin mun halda skrá yfir þessar stofnanir á vettvangi Evrópusambandsins en lögbær yfirvöld halda jafnframt landsskrár. Lögbær yfirvöldÍ V. kafla reglugerðarinnar er fjallað um lögbær yfirvöld og málsmeðferðarákvæði. Lögbær yfirvöld á sviði gagnamilligönguþjónustu og lögbær yfirvöld sem annast skráningu gagnavildarstofnana geta verið sama stofnunin. Lögbær yfirvöld skulu vera óháð veitendum slíkrar þjónustu. Lögbær yfirvöld hafa eftirlit og umsjón með því að veitendur gagnamilligönguþjónustu og að viðurkenndar gagnavildarstofnanir uppfylli kröfur reglugerðarinnar. Þau hafa umsjón með skráningu og eftirliti og geta beitt fjárhagslegum viðurlögum. Lögbær yfirvöld skulu halda opinbera landsskrá yfir viðurkenndar gagnavildarstofnanir og skulu veita framkvæmdastjórninni og öðrum lögbærum yfirvöldum innan EES á þessu sviði upplýsingar.Einstaklingar og lögaðilar hafa rétt á að leggja fram kvörtun í tengslum við mál sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Lögbæra yfirvaldið þarf að upplýsa kvörtunaðila um framvindu málsmeðferðar, þá ákvörðun sem er tekin og skilvirk réttarúrræði. Evrópska gagnanýsköpunarráðið (EDIB)Framkvæmdastjórnin hefur komið á fót EDIB (e. European Data Innovation Board) á grundvelli reglugerðarinnar. Meðal verkefna hennar er að veita framkvæmdastjórninni ráðgjöf og aðstoð við þróun samræmdra starfsvenja lögbærra yfirvalda m.a. við úrvinnslu beiðna um endurnotkun gagna, þróa samræmdar aðferðir lögbærra yfirvalda við að framfylgja kröfum sem gilda um veitendur þjónustunnar og auka rekstarsamhæfni gagnamilliliða.Í EDIB eru fulltrúar frá lögbærum yfirvöldum skv. reglugerðinni, Evrópska persónuverndarráðsins, Evrópsku persónuverndarstofnunarinnar, Netöryggisstofnunar ESB (ECCC), framkvæmdastjórnarinnar og sendifulltrúi lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Gagnaflutningur til landa utan ESBÞar sem ópersónuleg gögn geta haft töluvert efnahagslegt gildi, kveður reglugerðin á um verndarráðstafanir til að vernda slík gögn gegn ólögmætum aðgangi yfirvalda landa utan ESB.Endurnotandi sem hyggst flytja verndaðar, ópersónulegar upplýsingar til lands utan ESB þarf því að fylgja sérstökum reglum sem settar eru með reglugerðinni til að tryggja að upplýsingarnar séu verndaðar með sama hætti þrátt fyrir flutninginn. ViðurlögAðildarríki skulu setja reglur um viðurlög við brotum gegn skyldum varðandi:-      miðlun ópersónulegra upplýsinga til þriðju landa,-      tilkynningarskyldu veitanda gagnamilligönguþjónustu og veitingu slíkrar þjónustu, og-      skilyrðum fyrir skráningu sem viðurkennd gagnavildarstofnun. Lagastoð, innleiðing og kostnaðurLagabreytingu þarf til að innleiða reglugerðina í landslög, annað hvort með því að setja sérlög um innleiðingu gerðarinnar eða innleiða hana í gildandi lög, og kemur þá helst til greina að innleiða ákvæðin í lög um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvor leið verður farin. Einhver kostnaður verður af innleiðingu reglugerðarinnar í formi stöðugilda hjá lögbærum yfirvöldum og stofnunum sem aðstoða opinbera aðila við veita aðgang til endurnota á vernduðum gögnum. Ekki er búið að taka afstöðu til hvaða stofnanir taka við hlutverkum samkvæmt reglugerðinni. Þá getur skapast kostnaður við þróun tæknilegra lausna vegna endurnota. Til lengri tíma litið gæti innleiðing reglugerðarinnar haft jákvæð efnahagsleg áhrif með því að stuðla að nýsköpun, bæta aðgengi að gögnum fyrir rannsóknir og fyrirtæki og efla íslenskt gagnahagkerfi. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Sent til Alþingis

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Sérlög um stjórnskipulag gagna eða bæta ákvæðum í gildandi lög.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Hagstofa Íslands
Niðurstöður samráðs Hagstofa Íslands gæti komið til greina sem „þar til bær aðili“ (competent body) þar sem þar er þekking og reynsla af því að halda utan um gögn, vernda gögn og stýra aðgengi að þeim á öruggan hátt. Þar að auki eru stofnanalegir innviðir til staðar hjá Hagstofunni að einhverju marki.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Samkvæmt 6. mgr. 26. gr. skulu lögbær yfirvöld á sviði gagnamilligönguþjónustu og lögbær yfirvöld sem annast skráningu á gagnavildarstofnunum hafa yfir að ráða nægu fjármagni og mannafla til að leysa af hendi þau verkefni sem þeim eru falin, þ.m.t. nauðsynlega tækniþekkingu. Þar til bærir aðilar (competent bodies) skulu hafa fullnægjandi lagaleg, fjárhagsleg og tæknileg úrræði ásamt mannauði til að inna þau verkefni af hendi sem þeim eru falin samkvæmt 3. mgr. 7. gr. Þá skulu aðildarríkin tryggja að opinberir aðilar hafi nauðsynleg úrræði til að veita eða synja aðgang að endurnotum þeirra gagna sem falla undir reglugerðina.

Að framangreindu virtu þarf að öllum líkindum að lágmarki 1,5 stöðugildi til að stuðla að framfylgd reglugerðarinnar.
Þá skulu aðildarríkin tryggja aðgengi að upplýsingum í miðlægri upplýsingagátt þannig að tryggja þarf fjármagn fyrir uppsetningu og rekstri hennar.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Gerðin hefur jákvæð áhrif á nýsköpun, rannsóknir og gagnahagkerfi Íslands.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0868
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 152, 3.6.2022, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2020) 767
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) Ísland
Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur)

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 97
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/621, 16.4.2026

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2025) 837
52025PC0837
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2018/1724, (EU) 2018/1725, (EU) 2023/2854 and Directives 2002/58/EC, (EU) 2022/2555 and (EU) 2022/2557 as regards the simplification of the digital legislative framework, and repealing Regulations (EU) 2018/1807, (EU) 2019/1150, (EU) 2022/868, and Directive (EU) 2019/1024 (Digital Omnibus) Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

COM(2025) 837
52025PC0837
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council amending Regulations (EU) 2016/679, (EU) 2018/1724, (EU) 2018/1725, (EU) 2023/2854 and Directives 2002/58/EC, (EU) 2022/2555 and (EU) 2022/2557 as regards the simplification of the digital legislative framework, and repealing Regulations (EU) 2018/1807, (EU) 2019/1150, (EU) 2022/868, and Directive (EU) 2019/1024 (Digital Omnibus) Tillaga sem gæti verið EES-tæk
32023R1622 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1622 of 9 August 2023 on the design of common logos to identify data intermediation services providers and data altruism organisations recognised in the Union Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

Breytir (Modifies)

COM(2020) 767
52020PC0767
adopts Regulation (EU) 2022/868 of the European Parliament and of the Council of 30 May 2022 on European data governance and amending Regulation (EU) 2018/1724 (Data Governance Act) Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32018R1724 amends Regulation (EU) 2018/1724 of the European Parliament and of the Council of 2 October 2018 establishing a single digital gateway to provide access to information, to procedures and to assistance and problem-solving services and amending Regulation (EU) No 1024/2012 Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

Samantekt EUR-Lex