32021R1958

Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1958 of 23 June 2021 supplementing Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council by laying down detailed rules concerning the specific test procedures and technical requirements for the type-approval of motor vehicles with regard to their intelligent speed assistance systems and for the type-approval of those systems as separate technical units and amending Annex II to that Regulation


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1958 frá 23. júní 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur um sértækar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur fyrir gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja að því er varðar skynvædd hraðastillingarkerfi þeirra og fyrir gerðarviðurkenningu þeirra kerfa sem aðskildar tæknieiningar og um breytingu á II. viðauka við þá reglugerð
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 267/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Stuttur:

Verið er að gera kröfur um svokallaða snjall-hraðahjálp, e. The Intelligent Speed Assistance, ISA, verði í nýjum ökutækjum frá miðju ári 2022. Kerfið mun vekja athygli ökumanns á því hvenær ekið er yfir hámarkshraða. Með því eykur það umferðaröryggi. Í reglugerðinni eru settar fram kröfur og prófunaraðferðir fyrir viðurkenningu á ökutækjum sem hafa ISA. Óbein áhrif, kostnaður óverulegur.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að auka umferðaröryggi. snjall-hraðahjálpar kerfi, e. The Intelligent Speed Assistance, ISA, er eitt af þeim kerfum sem gerð er krafa um að verði í nýjum ökutækjum frá miðju ári 2022. Þessi krafa er sett fram í endurskoðaðri útgáfu af reglugerð (EB) 2019/2144, e. General Vehicle Safety Regulation. Kerfið mun vekja athygli ökumanns á því hvenær ekið er yfir hámarkshraða. Með því eykur það umferðaröryggi. Í reglugerðinni eru settar fram kröfur og prófunaraðferðir fyrir viðurkenningu á ökutækjum sem hafa ISA.Aðdragandi: Í 6. gr. reglugerðar (EB) 2019/2144 er gerð krafa um að einkabifreiðar, hópbifreiðar, sendibifreiðar og vörubifreiðar, þ.e. ökutæki í flokkum M og N, séu búin þró�ðum ökutækjakerfum. Þar á meðal eru snjall-hraðahjálpar kerfi (ISA). Í viðauka II við reglugerð (EB) 2019/2144 eru settar fram grunnkröfur fyrir gerðarviðurkenningar á vélknúnum ökutækjum með tilliti til þessara kerfa.Nauðsynlegt er að setja nákvæmar reglur um prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur fyrir gerðarviðurkenningu á vélknúnum ökutækjum með tilliti til kerfanna sem og fyrir gerðarviðurkenningu á slíkum kerfum einum og sér.Í samræmi við 3. mgr. 3. gr. reglugerðar (EB) 2019/2144 á kerfið að aðstoða ökumann við að halda viðeigandi aksturshraða miðað við aðstæður með því að veita sérhæfða og viðeigandi endurgjöf. Sem stendur eru nokkrir tæknilegir möguleikar til að nota endurgjafar aðferð, e. feedback methodology, sem grunn í þessu kerfi. Aftur á móti er ekki hægt að nota alla þessa möguleika í öllum vélknúnum ökutækjum vegna tæknilegra eiginleika þeirra. Þess vegna er nauðsynlegt að tilgreina þær endurgjafar aðferðir sem eru sambærilega öruggar og skilvirkar þrátt fyrir mun á virkni þeirra. Viðeigandi væri að heimila margar slíkar aðferðir og leyfa framleiðendum að velja hverja sem er til að byggja sín eigin kerfi á.Nauðsynlegt er að koma á fót skrá yfir umferðarmerki í hverju aðildarríki til að prófa tæknilega möguleika ISA-kerfisins. Upplýsingarnar í slíkri skrá ættu að vera notaðar til að veita og meta gerðarviðurkenningar og með svigrúmi til að hafa hliðsjón af gildandi umferðarreglum í hverju landi.Mat á skilvirkni hinna mismunandi endurgjafar aðferða og mismunandi virkni þessara kerfa við raunverulegar aðstæður mun aðeins vera mögulegt þegar nokkur fjöldi ökutækja með slík kerfi eru fáanleg. Á hinn bóginn er nauðsynlegt að mat á frammistöðu kerfanna, byggt á mismunandi endur gjafar aðferðum sé framkvæmt án tafar. Það þarf að gera eigi síðar en 31. desember 2025 til að ná upplýsingum um alla mögulega umferðaröryggiskosti þessara kerfa. Viðeigandi tækni og reynsla við raunverulegar aðstæður má gera ráð fyrir að verði í boði frá því í júlí 2024.Til að gefa framkvæmdastjórninni kost á að meta frammistöðu endur gjafar aðferðanna sem gert er ráð fyrir í þessari reglugerð eins fljótt og mögulegt er er nauðsynlegt að krefjast þess að framleiðendur leggi fram viðeigandi upplýsingar til þess viðurkenningaryfirvalds sem veitti gerðarviðurkenninguna. Þess yrði jafnfrat krafist að viðkomandi viðurkenningaryfirvald safni saman upplýsingunum og komi þeim til framkvæmdastjórnarinnar.Í töflu í II. viðauka við reglugerð (EB) 2019/2144 sem inniheldur lista yfir kröfur sem vísað er til í grein 4(5) og 5(3) í reglugerðinni eru engar tilvísanir til reglugerðarákvæða um snjall-hraðahjálpar kerfin. Þess vegna er nauðsynlegt að bæta við tilvísun í þessa reglugerð í þeim viðauka.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleitt í reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021R1958
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 409, 17.11.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2021)4455
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 28
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/546, 24.4.2025

Breytt af (Modified by)

32023R1675 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2023/1675 of 26 June 2023 correcting certain language versions of Delegated Regulation (EU) 2021/1958 supplementing Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council by laying down detailed rules concerning the specific test procedures and technical requirements for the type-approval of motor vehicles with regard to their intelligent speed assistance systems and for the type-approval of those systems as separate technical units Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32019R2144 amends, based on, completes Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2019 on type-approval requirements for motor vehicles and their trailers, and systems, components and separate technical units intended for such vehicles, as regards their general safety and the protection of vehicle occupants and vulnerable road users, amending Regulation (EU) 2018/858 of the European Parliament and of the Council and repealing Regulations (EC) No 78/2009, (EC) No 79/2009 and (EC) No 661/2009 of the European Parliament and of the Council and Commission Regulations (EC) No 631/2009, (EU) No 406/2010, (EU) No 672/2010, (EU) No 1003/2010, (EU) No 1005/2010, (EU) No 1008/2010, (EU) No 1009/2010, (EU) No 19/2011, (EU) No 109/2011, (EU) No 458/2011, (EU) No 65/2012, (EU) No 130/2012, (EU) No 347/2012, (EU) No 351/2012, (EU) No 1230/2012 and (EU) 2015/166 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi