Tilskipun um þjónustuaðila og kaupendur lána í verulegum vanskilum - 32021L2167

Directive (EU) 2021/2167 of the European Parliament and of the Council of 24 November 2021 on credit servicers and credit purchasers and amending Directives 2008/48/EC and 2014/17/EU


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipun (ESB) 2021/2167 mælir fyrir um sameiginlegar reglur fyrir þjónustuaðila og kaupendur lána í verulegum vanskilum, með það að markmiði að efla skilvirkni á markaði fyrir lán í verulegum vanskilum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Tilskipunin setur ramma um starfsemi þessara þjónustuaðila, m.a. skilyrði fyrir starfsleyfi, eftirlit og gagnsæi. Markmið tilskipunarinnar eru að stuðla að órofinni vernd skuldara vegna neytendalána og fasteignalána, greiða fyrir samkeppni og gera lánveitendum kleift að selja lánin á skilvirkum, samkeppnishæfum og gagnsæjum eftirmarkaði til annarra aðila.

Nánari efnisumfjöllun

Tilskipunin fjallar um starfsemi lánaþjónustuaðila (e. credit servicers) og kaupenda lána í alvarlegum vanskilum(e. credit purchasers). Markmið hennar er að skapa sameiginlegt regluverk fyrir viðskipti með vanskilalán frá lánastofnunum, styrkja virkni innri markaðarins og tryggja vernd neytenda. Hún breytir jafnframt tilteknum ákvæðum tilskipunar 2008/48/EB um neytendalán og tilskipunar 2014/17/ESB um fasteignalán til neytenda. Gerðar eru kröfur um hæfi og áreiðanleika stjórnenda, eftirlit með starfseminni og gagnsæ samskipti við neytendur, þar á meðal upplýsingar um réttindi og kvörtunarleiðir.Tilskipunin kveður einnig á um upplýsingaskyldu við sölu lána í alvarlegum vanskilum og auðveldar framsal þeirra milli aðildarríkja. Tilskipuninni er ætlað að bæta meðferð vanskilamála og stuðla að stöðugra fjármálakerfi.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Nei
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf lög um starfsemi lánaþjónustuaðila, breyta þarf lögum um neytendalán nr. 33/2013 og lögum um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32021L2167
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 438, 8.12.2021, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

72023L2673CZE_240015 measure national implementing implements
72023L2225CZE_240015 measure national implementing implements
72021L2167HUN_214673 measure national implementing implements
72021L2167CZE_240015 measure national implementing implements
72019L2121HUN_214673 measure national implementing implements

Breytir (Modifies)

COM(2018) 135
52018PC0135
adopts Proposal for a Directive of the European Parliament and of the Council on credit servicers, credit purchasers and the recovery of collateral No timeline
32014L0017 amends Directive 2014/17/EU of the European Parliament and of the Council of 4 February 2014 on credit agreements for consumers relating to residential immovable property and amending Directives 2008/48/EC and 2013/36/EU and Regulation (EU) No 1093/2010 - MCD Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32008L0048 amends Directive 2008/48/EC of the European Parliament and of the Council of 23 April 2008 on credit agreements for consumers and repealing Council Directive 87/102/EEC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex