Reglugerð (ESB) 2023/955 sem setur á stofn Félagslegan loftslagssjóð og breytir reglugerð (ESB) 2021/1060. - 32023R0955
Regulation (EU) 2023/955 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a Social Climate Fund and amending Regulation (EU) 2021/1060
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð ESB 2023/955 setur á fót svokallaðan félagslegan loftslagssjóð (e. Social Climate Fund) fyrir tímabilið 2026-2032 í tengslum við innleiðingu bygginga og vegasamgangna í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (hér eftir nefnt ETS2), sbr. IV. kafla a. í tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (hér eftir nefnd ETS-tilskipunin).
Aðildarríkin skulu leggja fyrir framkvæmdastjórnina félagslegar loftslagsáætlanir sem eiga að innihalda nýjar eða núverandi ráðstafanir og fjárfestingar til að takast á við áhrif kolefnisverðlagningar á viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna. Greiðslur úr sjóðnum til aðildarríkjanna eru inntar af hendi þegar viðeigandi samþykktum áföngum og markmiðum sem tilgreind eru í áætluninni er náð.
Aðildarríki greiða 25% af kostnaði við áætlanir sínar.
Aðildarríkin skulu leggja fyrir framkvæmdastjórnina félagslegar loftslagsáætlanir sem eiga að innihalda nýjar eða núverandi ráðstafanir og fjárfestingar til að takast á við áhrif kolefnisverðlagningar á viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna. Greiðslur úr sjóðnum til aðildarríkjanna eru inntar af hendi þegar viðeigandi samþykktum áföngum og markmiðum sem tilgreind eru í áætluninni er náð.
Aðildarríki greiða 25% af kostnaði við áætlanir sínar.
Nánari efnisumfjöllun
Greining á Reglugerð ESB 2023/955:Framkvæmdastjórn ESB lagði í júlí 2021 fram svokallaðan „Fit for 55“-aðgerðapakka, sem skal stuðla að því að ESB nái markmiðum sínum um kolefnishlutleysi árið 2050, þ.m.t. áfangamarkmiði um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, miðað við losun ársins 1990. Pakkinn samanstendur af fjölmörgum tillögum að nýjum lagagerðum og breytingum á gildandi reglum ESB á sviði loftslags- og orkumála þar sem m.a. eru sett fram uppfærð markmið varðandi losun frá tilteknum geirum og uppsprettum. Hver og ein tillaga pakkans felur í sér framlag til heildarstefnu ESB í loftslagsmálum og er mikilvægt að líta til þeirra í samhengi þar sem þær tengjast allar innbyrðis. Reglugerðin sem hér er til umfjöllunar (hér eftir nefnd „reglugerðin“) er hluti „Fit for 55“ og felur í sér stofnun nýs sjóðs – „félagslegs loftslagssjóðs“ (e. Social Climate Fund, hér eftir nefndur „sjóðurinn“). Reglugerðin breytir einnig reglugerð (ESB) 2021/1060 en sú reglugerð hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. Reglugerðin er sett sem hluti af því að ná markmiðum um kolefnishlutleysi en þær breytingar sem þau hafa í för með sér fela í sér mismunandi félagsleg og efnahagsleg áhrif. Viðbúið er t.d. að kostnaður heimila hækki þegar að losun frá byggingum og vegasamgöngum fellur undir tilskipun ESB 2003/87.Fram kemur í formála reglugerðarinnar að sú endurskoðun sem í gangi er á tilskipun ESB 2010/31 um orkunýtni bygginga (e. energy efficiency of buildings) skuli höfð til hliðsjónar við innleiðingu reglugerðarinnar.Helstu atriði reglugerðarinnar: 1. kafli: Efni og gildissvið, markmið o.fl. (1. – 3. gr.): Reglugerð (ESB) 2023/955 setur á stofn Félagslegan loftslagssjóð (e. Social Climate Fund) fyrir tímabilið 2026-2032. Þessi sjóður skal veita fjárhagslegan stuðning til aðildarríkja til framkvæmda og fjárfestinga sem getið er í svokölluðum félagslegum loftslagsáætlunum (e. Social Climate Plans) (hér eftir loftslagsáætlun eða áætlun). Þær framkvæmdir og fjárfestingar sem eru styrktar með sjóðnum skulu vera til þess fallnar að gagnast heimilum, örfyrirtækjum (e. micro enterprises) og notendum samgangna – sem eru viðkvæmir og verða sérstaklega fyrir áhrifum af því að losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingum og vegasamgöngum falli undir gildissvið tilskipunar 2003/87/EB (ETS-tilskipunin), þetta á sérstaklega við um heimili sem búa við orku- eða samgöngufátækt (e. energy poverty/transport poverty).2. gr. reglugerðarinnar listar upp skilgreiningar sem að gilda í sambandi við reglugerðina sjálfa. Þar eru m.a. skilgreiningar á orkufátækt, samgöngufátækt, örfyrirtækjum, heimili, o.fl. Fram kemur í formála reglugerðarinnar að mögulegt sé að skilgreining á orkufátækt verið uppfærð til að endurspegla niðurstöður úr samningaviðræðum um tilskipun um orkunýtni (e. energy efficiency).Markmið sjóðsins eru tiltekin í 3. gr. reglugerðarinnar. Almenn markmið sjóðsins eru að stuðla að sanngjörnum skiptum í átt að loftslagshlutleysi með því að taka á félagslegum áhrifum sem að hljótast af því að losun frá byggingum og vegasamgöngum falli undir ETS-tilskipunina.Sérstök markmið sjóðsins eru að styðja við viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna með tímabundnum beinum stuðningi og með stuðningi í gegnum framkvæmdir og fjárfestingar til að auka orkunýtni bygginga og aðgengi að samgöngum með enga eða litla losun, minnka kolefnislosun vegna hitunar og kælingar bygginga o.fl. sem tilgreint er í 3. gr. reglugerðarinnar. 2. kafli: Félagslegar loftslagsáætlanir (4. gr. – 6. gr.): Í 4. gr. reglugerðarinnar kemur fram að aðildarríkin skulu leggja fyrir framkvæmdastjórnina „félagslega loftslagsáætlun“. Áætlunin á að innihalda nýjar eða núverandi ráðstafanir og fjárfestingar til að takast á við áhrif kolefnisverðlagningar á viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna til að tryggja hita, kælingu og hreyfanleika á viðráðanlegu verði, og á sama tíma vinna að því að ná loftslagsmarkmiðum ESB. Fram kemur í reglugerðinni að aðildarríki skulu tryggja samræmi milli félagslegrar loftslagsáætlunar og orku- og loftslagsáætlunar sem að getið er í 2. mgr. 14. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999. Í formála reglugerðarinnar kemur fram að aðildarríkin skuli skila inn áætlun til framkvæmdastjórnarinnar fyrir 30. júní 2025.Frekari útskýringar á hverskonar framkvæmdir eða fjárfestingar skulu eða geta verið hluti af félagslegri loftslagsáætlun eru settar fram í 3. – 5. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar.Í 5. gr. reglugerðarinnar kemur fram að aðildarríki, áður en áætlanir eru sendar til framkvæmdastjórnarinnar, skulu hafa opinbert samráð við staðar- og svæðisyfirvöld, þátttakendur í atvinnulífinu (e. representatives of economic and social partners), félagasamtök, ungmennasamtök og aðra hagsmunaaðila. Slíkt samráð skal gert í samræmi við 10. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999 og samkvæmt landslögum viðkomandi ríkis. Ákveðin atriði sem varða opinbera samráðið þurfa að koma fram í áætlun, þ. á. m. samantekt á því samráði sem fór fram og hvernig tillögur (e. input) þeirra hagaðila sem að tóku þátt í samráði eru endurspeglaðar í áætluninni. Framkvæmdastjórnin mun leggja mat á það hvort að áætlun hafi verið þróuð í samráði við hagaaðila og hún skal styðja við aðildarríkin með því að útvega dæmi um „góð vinnubrögð“ (e. good practices) við samráð – í samræmi við 4. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar.Í 6. gr. reglugerðarinnar er nánar fjallað um innihald áætlana.Þar koma fram, í 1. mgr. 6. gr., ýmis atriði sem þurfa að vera í áætlun. Það eru t.d. upplýsingar um framkvæmdir og fjárfestingar sem vinna að samdrætti á þeim áhrifum sem að hækkun á verði, í kjölfar þess að losun frá byggingum og vegasamgöngum fellur undir ETS-tilskipunina, hefur á heimili og hvernig slíkar framkvæmdir og fjárfestingar styðja við þau markmið sem sett eru í 3. gr.; upplýsingar um núverandi eða áætlaða fjármögnun framkvæmda og fjárfestinga af ESB, alþjóðlega, af hinu opinbera eða, eins og við á, af einkaaðilum (e. private sources) sem leggja eitthvað að mörkum við þær framkvæmdir og fjárfestingar sem að fram koma í áætlun; áætluð áhrif á heimili og örfyrirtæki af hækkuðu verði, sem hlýst af því að losun frá byggingum og vegasamgöngum fellur undir ETS kerfið; áætlaður fjöldi viðkvæmra heimila, viðkvæmra örfyrirtækja og viðkvæmra notenda samgangna; útskýring á hvernig skilgreining á orku fátækt og samgöngu fátækt skuli vera beitt á landsvísu; fyrirséðir áfangar og markmið og tímatafla fyrir innleiðingu þeirra, sem skal ljúka fyrir 31. júlí 2032; áætlaður kostnaður við áætlun; hvernig aðildarríki muni leggja til kostnað við áætlun; útskýring á hvernig ríki koma í veg fyrir, greina og leiðrétta svik, spillingu og hagsmunaárekstra þegar um er að ræða fjármagn úr sjóðnum og hvernig er áætlað að koma í veg fyrir tvöfalda styrkveitingu frá sjóðnum og öðrum verkefnum ESB (e. double funding); upplýsingar um opinbert samráð o.fl.Í 3. mgr. 6. gr. kemur fram að áætlun skuli vera í samræmi við þær upplýsingar sem að fram koma í - og í samræmi við þær skuldbindingar sem aðildarríki hafa undirgengist með neðan greindum gerðum og áætlunum.European Pillar of Social Rights Action Plan;its cohesion policy programmes under Regulation (EU) 2021/1060;its recovery and resilience plan under Regulation (EU) 2021/241;its building renovation plan under the Directive of the European Parliament and of the Council on the energy performance of buildings (recast);its updated integrated national energy and climate plan under Regulation (EU) 2018/1999;its territorial just transition plans under Regulation (EU) 2021/1056.Í undirbúningi áætlana skal framkvæmdastjórnin skipuleggja vettvang fyrir skoðanaskipti (e. exchange of good practices). Aðildarríki geta óskað eftir tæknilegri aðstoð í samræmi við European Local Energy Assistance (ELENA), sem sett var upp á milli framkvæmdastjórnarinnar og Evrópska fjárfestingabankans (e. European Investment Bank) árið 2009 og undir Technical Support Instrument, sem sett var upp með reglugerð ESB 2021/240. Varðandi l. lið. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar, skal framkvæmdastjórnin veita tæknilegar leiðbeiningar til aðildarríkja hvað varðar að ráðstafanir og fjárfestingar séu í samræmi við meginregluna um „að valda ekki verulegum skaða“ (e. do no significant harm) í meiningu 17. gr. reglugerðar (ESB) 2020/852, sbr. 5. mgr. 6. gr. Framkvæmdastjórnin skal einnig útvega sameiginlegt gildi (e. common value) til að nota sem áætlað kolefnisverð vegna þess að losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingum, vegasamgöngum og öðrum geirum fellur undir ETS-tilskipunina – sbr. 6. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar.Í viðauka V við reglugerðina er sniðmát fyrir áætlun sem aðildarríkin skulu nota. 3. kafli: Styrkir úr sjóðnum fyrir loftslagsáætlanir (7. – 21. gr.): Samkvæmt 7. gr. reglugerðarinnar skal sjóðurinn notaður til stuðnings við aðildarríki til að fjármagna þau verkefni eða fjárfestingar sem að fram koma í áætlunum þeirra. Skilyrði fyrir greiðslu úr sjóðnum eru að áföngum og markmiðum, við framkvæmdir og fjárfestingar í áætlunum, í samræmi við 8. gr. reglugerðarinnar, sé náð. Þessir áfangar og markmið skulu vera í samræmi við loftslagsmarkmið ESB og þau markmið sem sett eru í reglugerð ESB 2021/1119, og skulu sérstaklega taka til:orkunýtniendurnýjunar byggingahreyfanleika eða samgangna með enga eða litla losunsamdráttar í losun gróðurhúsalofttegundafækkun viðkvæmra heimila, og sér í lagi heimila sem búa við orkufátækt, viðkvæmra örfyrirtækja og viðkvæmra notenda samgangna.Sjóðurinn skal einungis nýttur til að fjármagna ráðstafanir og fjárfestingar sem að eru í samræmi við meginregluna um að valda ekki verulegum skaða (e. do no significant harm) í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) 2020/852..Í 4. mgr. 7. gr. kemur fram að þær framkvæmdir og fjárfestingar sem að eru studdar skulu draga úr þörfinni á að reiða sig á jarðefnaeldsneyti og, eins og við á, leggja að mörkum til innleiðingar á Evrópskri stoð félagslegra réttinda (e. European Pillar of Social Rights).8. gr. reglugerðarinnar fjallar um framkvæmdir og fjárfestingar sem gjaldgengar eru og aðildarríki mega setja undir áætlaðan kostnað við áætlanir sínar, að því gefnu að þau séu miðuð að viðkvæmum heimilum, örfyrirtækjum og notendum samgangna. Í 1. mgr. greinarinnar er t.d. eftirfarandi tiltekið: styðja við endurnýjun bygginga; styðja við aðgang að orkusparneytnu húsnæði, þar á meðal félagslegu húsnæði; veita aðgang að hjólum eða bifreiðum með enga eða litla losun; styðja við opinbera aðila og einkaaðila, þar á meðal þá sem útvega félagslegt húsnæði, í að þróa og bæta aðgengi að orkusparandi lausnum á viðráðanlegu verði og viðeigandi fjármögnunartæki (e. funding instruments); hvetja til notkunar á almenningssamgöngum á viðráðanlegu verði og styðja við opinbera aðila og einkaaðila við þróun og við að veita aðgengi að sjálfbærum samgöngum (e. providing sustainable mobility) o.fl.Í áætlanir má líka setja undir áætlaðan kostnað, kostnað við tímabundinn beinan stuðning við viðkvæm heimili, og notendur samgangna til að draga úr áhrifum af hækkun kostnaðar við hitun og samgöngur. Slíkar framkvæmdir skulu ekki telja meira en 37,5% af áætluðum heildarkostnaði við áætlun. Þetta er frekar útlistað í 2. mgr. 8. gr.Kostnað við tæknilega aðstoð má einnig hafa í áætlun. Hér getur verið um að ræða kostnað sem tengist þjálfun , vöktun, úttektum o. fl., sem er nauðsynleg vegna stjórnunar sjóðsins og til að ná markmiðum hans, en slíkur kostnaður má ekki nema meira en 2,5% af áætluðum heildarkostnaði við áætlun, sbr. 3. mgr. 8. gr.Í 9. gr. er fjallað um möguleika á miðlun ávinnings til heimila, örfyrirtækja og notenda samgangna (e. Pass-on of benefits to households, micro-enterprises and transport users). Þar kemur m.a. fram að aðildarríki geti sett í áætlanir sínar stuðning sem veittur er í gegnum opinbera aðila eða einkaaðila (e. public or private entities), sem ekki eru viðkvæm heimili, örfyrirtæki eða notendur samgangna að því gefnu að ávinningur þeirra framkvæmda eða fjárfestinga sem farið er í komi til með að gagnast viðkvæmum heimilum, örfyrirtækjum og samgöngunotendum. Í þessu sambandi skulu aðildarríki setja nauðsynleg lög eða samningsbundnar ráðstafanir (e. statutory and contractual safeguards) til að tryggja að ávinningur fari til viðkvæmra heimila, örfyrirtækja eða notenda samgangna.10. gr. reglugerðarinnar fjallar um fjármagn sjóðsins. Í henni kemur fram að hámark 65 000 000 000 evrur skuli vera tiltækar til innleiðingar á sjóðnum í samræmi við 8. mgr. b. 10. gr. a, 3. mgr. 30. gr. d. og 4. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar fyrir tímabilið frá 1. janúar 2026 – 31. desember 2032. Þetta fjármagn skal teljast sem „external assigned revenue“, í samræmi við 5. mgr. 21. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1046 (Eurotom) en hefur þó ekki áhrif á 6. undirgrein. 4. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar. Þær upphæðir sem að settar eru í sjóðinn árlega (innan þeirra marka sem að getið er í 1. undirgrein, 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar) skulu ekki vera hærri en þær sem að getið er í 4. undirgrein. 4. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar.Ef innleiðingu ETS2, sem sett er upp í samræmi við IV. kafla a. ETS-tilskipunarinnar er frestað til ársins 2028 á grundvelli við 30. gr. k. ETS-tilskipunarinnar, skal hámarks upphæð sem rennur í sjóðinn vera 54 600 000 000 evrur og árlega skulu þær upphæðir sem renna í sjóðinn ekki vera hærri en þær upphæðir sem að tilteknar eru í 5. undirgrein. 4. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar, sbr. 3. undirgrein 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar.Þær fjárhæðir sem tilteknar eru í 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar má einnig nýta til að ná yfir útgjöld sem að koma til t.d. vegna undirbúnings, vöktunar, stjórnunar, úttekta og mats sem eru nauðsynleg við stjórnun sjóðsins og til að ná markmiðum hans, þar á meðal er t.d. tæknibúnaður framkvæmdastjórnarinnar sem að nauðsynlegur er til innleiðingar sjóðsins, sbr. 3. mgr. 10. gr.11. gr. reglugerðarinnar fjallar um fjármagn sem að flutt er til og frá verkefnum sem falla undir sameiginlega stjórnun (e. shared management programmes) og notkun þess. Þar kemur m.a. fram að fjármagn sem úthlutað er til aðildarríkja undir sameiginlegri stjórnun geti, að þeirra beiðni, verið flutt í sjóðinn í samræmi við kröfur reglugerðar (ESB) 2021/1060. Þetta fjármagn skal þá einungis nýtt fyrir viðeigandi aðildarríki.Aðildarríki geta einnig í áætlunum sínum beðið um að fjármagn sé flutt úr sjóðnum í aðra sjóði sem falla undir sameiginlega stjórnun, að hármarki 15% af því fjármagni sem er úthlutað til viðeigandi aðildarríkis árlega. Slíkt fjármagn skal notað í framkvæmdir og fjárfestingar í samræmi við 8. gr. reglugerðar þessarar og skal innleiðing eða framkvæmd vera í samræmi við reglur þeirra sjóða sem að fjármagn er flutt í. Frekar er fjallað um slíkan flutning fjármagns í 3. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar, en þar er m.a. fjallað um möguleika á að fela yfirvaldi ,sem fer með stjórn „cohesion policy programmes“, í samræmi við reglugerð (ESB) 2021/1060, að innleiða framkvæmdir og fjárfestingar sem að njóta góðs af úthlutun úr sjóðnum með ákveðnum skilyrðum. Eins er mögulegt að hafa í áætlun, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, ákveðnar greiðslur til að nota í aukinn tæknilegan stuðning, sem má þó ekki vera hærri en sem nemur 4% af hámarks úthlutun fyrir áætlun.Samkvæmt 12. gr. reglugerðarinnar skal sjóðurinn innleiddur af framkvæmdastjórninni í samræmi við þær reglur sem settar hafa verið samkvæmt 322. gr. Sáttmálans um framkvæmd ESB (e. Treaty on the Functioning of the European Union, TFEU), sér í lagi reglugerð (ESB) 2018/1046 (Euratom) og reglugerð (ESB) 2020/2092 (Euratom) með almennum skilyrðum um vernd fjármagns ESB (e. protection of the Union budget).Í 13. gr. reglugerðarinnar kemur fram að stuðningur úr sjóðnum er auka stuðningur við annars konar stuðning af hálfu ESB, t.d. í gegnum önnur verkefni (e. Union programmes) eða sjóði sem ESB heldur úti. Framkvæmdir og fjárfestingar sem að studdar eru með sjóðnum geta tekið við stuðningi frá öðrum verkefnum eða sjóðum ESB, að því gefnu að sami kostnaður sé ekki studdur af tveimur eða fleiri sjóðum eða verkefnum. Stuðningur úr sjóðnum skal ekki koma í staðinn fyrir endurtekin útgjöld aðildarríkis (e. recurring national budgetary expenditure).Stuðningur úr sjóðnum skal reiknaður fyrir hvert aðildarríki í samræmi við 10. gr. reglugerðarinnar skv. þeim reglum sem fram koma í viðaukum I og II við reglugerðina. Reiknað hefur verið út hámark þeirrar upphæðar sem hvert aðildarríki getur fengið að styrk úr sjóðnum til að innleiða áætlun sína, sbr. 14. gr. reglugerðarinnar.Aðildarríkin skulu leggja til a.m.k. 25% af áætluðum heildarkostnaði við áætlanir sínar, sbr. 15. gr. reglugerðarinnar.Í 16. gr. reglugerðarinnar kemur fram að framkvæmdastjórnin skuli leggja mat á hvort að áætlanir, og breytingar sem gerðar eru á þeim í samræmi við 18. gr. reglugerðarinnar, séu í samræmi við reglugerðina. Við það mat skal haft gott samstarf við viðkomandi aðildarríki. Framkvæmdastjórnin getur sett fram athugasemdir eða beðið um frekari upplýsingar innan tveggja mánaða frá því að áætlun var skilað, sbr. 1. mgr. 16. gr.Framkvæmdastjórnin metur einnig hvort að umbeðinn flutningur samkvæmt 11. gr. sé í samræmi við markmið reglugerðarinnar.Framkvæmdastjórnin skal meta þýðingu, áhrif, skilvirkni, og samræmi í áætlun þar sem hún tekur mið af sérstökum áskorunum og úthlutun fjármagns hvers og eins aðildarríkis. Atriði sem að framkvæmdastjórnin skal líta til við mat á þýðingu, áhrifum, skilvirkni, og samræmi í áætlunum eru frekar útlistuð í 3. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar.17. gr. reglugerðarinnar fjallar um ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar en hún skal taka ákvörðun um áætlanir aðildarríkis, sem byggist á því mati sem að fer fram í samræmi við 16. gr. Slík ákvörðun skal tekin með framkvæmdargerð (e. implementing act), sem sett skal eigi síðar en fimm mánuðum frá því að áætlun var skilað. Þegar að framkvæmdastjórnin metur áætlun á jákvæðan hátt, þá skal framkvæmdagerð innihalda þau atriði sem að fram koma í 2. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar, þ. á. m. eru þær framkvæmdir og fjárfestingar sem að aðildarríki mun innleiða; áætlaður heildarkostnaður; markmið og áfangar; framlag aðildarríkis, tímalína; hámarks úthlutun úr sjóðnum í samræmi við 1. mgr. 14. gr., o.fl.Ef að framkvæmdastjórnin metur áætlun á neikvæðan hátt þá skulu ástæður fyrir neikvæðri niðurstöðu tilteknar í ákvörðun. Aðildarríkið sem að um ræðir skal þá skila inn uppfærðri áætlun eftir að hafa tekið til skoðunar mat framkvæmdastjórnarinnar.Hámarksfjárhæð sem að skal úthluta í samræmi við b. lið. 2. mgr. 17. gr. skal ákveðin á grundvelli áætlaðs kostnaðar við áætlun sem er sett fram af aðildarríki og metin í samræmi við skilyrði 3. mgr. 16. gr., sbr. 3. mgr. 17. gr.Hámarksupphæð skal sett í samræmi við a. – d. lið 3. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar, þar er meðal annars kveðið á um að ef að veikleikar eru í áætlun, sem snerta innra eftirlit, getur framkvæmdastjórnin farið fram á aðgerðir til að takast á við þá. Einnig kemur þar fram að engum fjármunum er úthlutað úr sjóðnum ef að áætlun stenst ekki þær kröfur sem settar eru fram í 3. mgr. 16. gr.Ef að mat framkvæmdastjórnarinnar á áætlun er neikvætt, skal ákvörðun, sem tekin er í samræmi við 1. mgr. 17. gr., innihalda ástæður fyrir neikvæðu mati. Þá skal aðildarríki skila aftur inn áætlun eftir að hafa tekið til skoðunar mat framkvæmdastjórnarinnar.Fram kemur í 18. gr. reglugerðarinnar að ef það kemur í ljós að ekki er lengur hægt að innleiða áætlun, t.d. ef að ljóst er að áföngum og markmiðum verður ekki náð eða þeim þarf að breyta af hlutlægum ástæðum (e. objective circumstances), og sérstaklega vegna beinna áhrifa af því að losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingum og vegasamgöngum falla undir ETS-tilskipunina, skal aðildarríki skila inn breyttri áætlun til framkvæmdastjórnarinnar og færa rök fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á áætlun. Framkvæmdastjórnin metur nýja áætlun, í samræmi við 16. gr. og tekur jákvæða eða neikvæða ákvörðun um hana. Ef matið er jákvætt, skal ákvörðun um áætlun tekin í samræmi við ákvæði 17. gr. reglugerðarinnar og innan þriggja mánaða frá því að breyttri áætlun var skilað. Ef matið er neikvætt skal framkvæmdastjórnin taka ákvörðun um að synja breyttri áætlun innan þriggja mánaða frá því að breytt áætlun er lögð fram, eftir að hafa gefið aðildarríki möguleika á að setja fram athugasemdir sínar innan þriggja mánaða frá því að tilkynnt var um mat framkvæmdastjórnarinnar á breytti áætlun.Samkvæmt 5. mgr. 18. gr. skulu aðildarríki, fyrir 15. mars 2029, skila mati til framkvæmdastjórnarinnar um hvort að áætlanir séu tilhlýðilegar í ljósi beinna áhrifa af því að losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingum og vegasamgöngum falli undir gildissvið ETS-tilskipunarinnar. Þessu mati skulu einnig fylgja integrated national energy and climate progress reports í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/1999. Ákveðnar smávægilegar breytingar á áætlun má tilkynna til framkvæmdastjórnarinnar, sbr. 6. mgr. 18. gr.Eftir að framkvæmdastjórnin tekur ákvörðun um jákvætt mat á áætlun aðildarríkis, skal framkvæmdastjórnin gera samning við hlutaðeigandi aðildarríki í þeim tilgangi að stofna til lagaskuldbindingar (e. individual legal commitment) í skilningi reglugerðar (ESB) 2018/1046 um fjármálareglur sem gilda um fjárlög ESB (Euratom), fyrir tímabilið 2026-2032. Slíkur samningur skal gerður í fyrsta lagi einu ári fyrir það ár þegar hefja skal uppboð í samræmi við IV. kafla a. í ETS-tilskipuninni eða, ef 3. undirgrein 1. mgr. 10. gr. þessarar reglugerðar á við, tveimur árum fyrir það ár. Fjárhagsskuldbindingum (e. budgetary commitments) má skipta niður í árlegar greiðslur (e. instalments) yfir nokkur ár, sbr. 19. gr. reglugerðarinnar. Skv. 20. gr. reglugerðarinnar skulu greiðslur úr sjóðnum inntar af hendi til aðildarríkjanna þegar viðeigandi áföngum og markmiðum áætlunarinnar er náð, sbr. ákvörðun skv. 17. gr. reglugerðarinnar, með fyrirvara um aðgengilegt fjármagn. Aðildarríkin geta sent framkvæmdastjórninni beiðni um greiðslu einu sinni eða tvisvar á ári, fyrir 31. júlí eða fyrir 31. desember.Þegar að aðildarríki hefur sent inn beiðni um greiðslu metur framkvæmdastjórnin hvort að áföngum og markmiðum hafi verið náð. Þegar slíkt mat framkvæmdastjórnarinnar er jákvætt skal hún samþykkja ákvörðun um heimild til greiðslu fjármagns í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/1046 (Euratom), með fyrirvara um að fjármagn sé til taks og jafna meðferð aðildarríkja. Slíka ákvörðun skal taka í fyrsta lagi tveimur mánuðum eftir og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir viðeigandi tímafrest fyrir beiðni um greiðslu í samræmi við 1. mgr. 2. gr. , sbr. 3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar.Ef að mat framkvæmdastjórnarinnar er neikvætt, skal hluta af greiðslum, í samræmi við áfanga og markmið sem ekki hefur verið náð, frestað. Í slíkum tilvikum hefur aðildarríki einn mánuð frá því að tilkynnt var um mat framkvæmdastjórnarinna til að koma fram sínum athugasemdum. Aðeins má afnema slíka frestun ef að markmiðum og áföngum hefur verið náð, sbr. 4. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar. Frestur (e. payment deadline) til að greiða út fjármuni úr sjóðnum hefst á þeim degi sem að tilkynnt er um ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar um að heimila greiðslu úr sjóðnum til viðeigandi aðildaríkis í samræmi við 3. mgr. 20. gr. eða þegar tilkynnt er um að frestun greiðslna er lyft í samræmi við 4. mgr. 20. gr. , sbr. 5. mgr. 20. gr.Frekar er fjallað um hvað það hefur í för með sér ef áföngum og markmiðum áætlunar er ekki náð og ef ekki er til staðar nægilegt fjármagn í sjóðnum til útdeilingar á aðildarríkin í 6. – 10. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar. Þar kemur m.a. fram að ef að markmiðum og áföngum hefur ekki verið náð innan níu mánaða frá því að greiðslu var frestað, í samræmi við 4. mgr. skuli framkvæmdastjórnin lækka hlutfallslega þá upphæð sem að úthluta átti til viðkomandi aðildarríkis. Aðildarríki hefur þá tvo mánuði til að leggja fram athugasemdir sínar, frá þeim tíma sem að tilkynnt var um þá niðurstöðu, sbr. 6. mgr. 20. gr.Í 7. mgr. 20. gr. kemur fram að ef enginn áþreifanlegur árangur hefur orðið í að ná markmiðum og áföngum innan 15 mánaða frá því að samningur var gerður í samræmi við 19. gr., skal framkvæmdastjórnin slíta samningi og fella niður það fjármagn sem að ákveðið hafði verið að veita úr sjóðnum (e. decommit the amount of financial allocation) til viðkomandi aðildarríkis. Framkvæmdastjórnin skal taka ákvörðun um að slíta slíkum samningnum eftir að aðildarríki hefur fengið tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum sínum, sem skulu berast innan tveggja mánaða frá þeim degi sem að tilkynnt var um mat framkvæmdastjórnirnar að ekki hefði náðst tilhlýðilegur árangur. Allar greiðslur úr sjóðnum skulu greiddar út fyrir 31. desember 2033, sbr. 8. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar.Framkvæmdastjórnin skal úthluta til aðildarríkja því fjármagni sem ekki hefur verið notað fyrir 31. desember 2033, í samræmi við reglur um úthlutun heimilda samkvæmt 5. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar, til að ná þeim markmiðum sem lýst er í 3. gr. reglugerðarinnar, sbr. 10. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar.21. gr. reglugerðarinnar fjallar sérstaklega um vernd fjárhagslegra hagsmuna ESB og að aðildarríki skuli, við framkvæmd áætlana sinna, taka ákveðin skref í að vernda þá hagsmuni, m.a. með því að tryggja að notkun fjármagns úr sjóðnum, bæði af opinberum aðilum og einkaaðilum, sé í samræmi við lög ESB og landslög – sér í lagi hvað varðar svik, spillingu og hagsmunaárekstra. Þar eru tilteknar ákveðnar kröfur sem aðildarríkin þurfa að uppfylla í því sambandi, þar á meðal er að leggja til áhrifaríkt kerfi fyrir innra eftirlit, sem frekar er útlistað í III. viðauka við reglugerðina – þar kemur fram hvaða kröfur slíkt kerfi þarf að uppfylla, t.d. þarf að útnefna stjórnvald sem fer með innleiðingu áætlunar, útnefna stjórnvald sem að er ábyrgt fyrir undirritun stjórnunar yfirlýsingar (e. management declaration) sem fylgir kröfu um greiðslu, halda utan um gögn er varða úttektir, framkvæma úttektir í samræmi við alþjóðlega staðla, útnefna stofnun eða aðila sem að framkvæma úttektir og tryggja fjármagn til þeirra, o.fl. Einnig kemur fram að aðildarríki skuli veita framkvæmdastjórninni, OLAF, Evrópska úttektardómstólnum, og í ákveðnum tilfellum EPPO, gögn um hverjir fá fjármagn úr sjóðnum. Ríkin eiga einnig að hafa kerfi til að endurheimta fjármuni sem hafa ranglega verið greiddir eða notaðir.Í 2. mgr. 21. gr. koma fram skyldur aðildarríkja sem að skulu vera í þeim samningum sem gerðir eru í samræmi við 19. gr. Þar á meðal er að athuga reglulega hvort að fjármagn hafi verið notað á réttan hátt og hvort að framkvæmdir eða fjárfestingar í áætlun hafi verið réttilega innleiddar; aðildarríki skulu safna ákveðnum upplýsingum og geyma rafrænt; gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir, koma auga á og bregðast við svikum, spillingu og hagsmunaárekstrum o. fl. Í 2. mgr. 21. gr. er einnig að finna upplýsingar sem skulu vera í beiðni um greiðslur úr sjóðnum. Þar koma einnig fram upplýsingar í tengslum við úttektir og þau gögn sem þarf að taka saman og geyma í því sambandi, t.d. ákveðnar upplýsingar sem gefa þarf upp varðandi þá aðila, verktaka og undirverktaka sem að fá fjármagn sem kemur úr sjóðnum, t.d. VAT númer og skattanúmer, virði samninga og upphæðir þess fjármagns sem að úr sjóðnum kemur, o. fl..Í e. lið. 2. mgr. 21. gr. kemur svo fram að aðildarríki skulu, í þeim samningnum sem gerðir eru samkvæmt 19. gr. reglugerðarinnar, m.a. heimila framkvæmdastjórninni, Evrópsku stofnunni sem vinnur gegn svikum (e. European Anti-Fraud Office, OLAF), Úttektardómstólnum (e. Court of Auditors) og í sumum tilfellum Evrópska ríkissaksóknaranum (e. European Public Prosecutor´s Office, EPPO) að beita rétti sínum í samræmi við 1. mgr. 129. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1046 og leggja skyldur á alla þá sem að fá úthlutað fjármagni í gegnum sjóðinn og aðra sem koma að innleiðingu áætlana.Framkvæmdastjórnin hefur ákveðna heimild til að lækka styrk úr sjóðnum og til að endurheimta fjármuni í tengslum við svik, spillingu eða hagsmunaárekstra, sbr. 4. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar, en slík heimild skal endurspegluð í þeim samningum sem gerðir eru í samræmi við 19. gr. Þegar slík lækkun er ákveðin skal framkvæmdastjórnin hafa í heiðri meginregluna um meðalhóf og skal taka tillit til alvarleika máls sem hefur áhrif á hagsmuni ESB eða brot á skyldum. Aðildarríki skal gefið tækifæri til að koma á framfæri sínum sjónarmiðum áður en slík lækkun er gerð. 4. kafli: Viðbót, eftirlit og mat (22. – 26. gr.): Samkvæmt 22. gr. reglugerðarinnar skulu framkvæmdastjórnin og aðildarríkin, í samræmi við skyldur sínar, tryggja samræmi milli sjóðsins og verkefna sem Sambandið heldur úti (e. Union programmes), þeirra gerninga sem nefndir eru í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar og Nútímavæðingarsjóðs undir 10. gr. d. ETS-tilskipunarinnar. Frekar er fjallað um hvað skal gera í þessu sambandi í a. – c. lið 22. gr.Í 23. gr. kemur fram að aðildarríkin skulu birta opinberlega þau gögn sem getið er í d. lið i, ii og iv, í 2. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar, þessi gögn skal uppfæra eftir þörfum og birta á vefsíðu í samræmi við 1. mgr. 5. gr. tilskipunar (ESB) 2019/1024. Það skal vera mögulegt að flokka, leita, draga fram, bera saman og endurnýta þessi gögn. Þær upplýsingar sem getið er í d. lið i og ii í 2. mgr. 21. gr. skal ekki birta í þeim tilvikum sem tiltekin eru í 3. mgr. 38. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1046 eða í tilfellum þegar um er að ræða tímabundinn beinan stuðning við viðkvæm heimili.Þeir sem taka við stuðningi úr sjóðnum skulu vera meðvitaðir um uppruna fjármagnsins. Slíkum upplýsingum skal fylgja merki ESB og staðfesting á fjármagni (e. funding statement) með eftirfarandi staðhæfingu – fjármagnað af Evrópusambandinu – Félagslegi loftslagssjóðurinn -, á gögnum og samskiptaefni, sbr. 23. gr. reglugerðarinnar. Það að verkefni sé styrkt með fjármagni úr sjóðnum skal almennt vera sýnilegt.Framkvæmdastjórnin skal framkvæma upplýsinga- og samskiptaðgerðir (e. information and communication actions) í tengslum við sjóðinn, þegar við á með samþykki aðildarríkis, og m.a. með sameiginlegum aðgerðum milli framkvæmdastjórnar, aðildarríkis og fulltrúaskrifstofa Evrópuþingsins (e. representation offices), í viðeigandi aðildarríki.Í samræmi við 24. gr. reglugerðarinnar skal hvert aðildarríki á tveggja ára fresti (e. biannually) skila skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar um innleiðingu sinna áætlana (e. progress report). Þessari skýrslu skal skilað með skýrslu um framfarir í orku og loftslagsmálum (e. national energy and climate progress report) í samræmi við 17. og 28. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999. Í þessum skýrslum skulu aðildarríki hafa þá mælikvarðar sem settir eru í IV. viðauka við reglugerðina.Framkvæmdastjórnin vaktar innleiðingu sjóðsins og mælir hvort markmiðum sjóðsins sé náð. Þessi vöktun skal vera hæfileg og miðuð að þeim verkefnum sem unnin eru með styrk úr sjóðnum.Hæfilegar skyldur til að skila skýrslu skulu settar á þá sem þiggja styrki úr sjóðnum. Það er gert í tengslum við gagnasöfnun framkvæmdastjórnarinnar, sem heldur utan um gögn vegna innleiðingu verkefna. Framkvæmdastjórnin skal notast við þá mælikvarða sem að settir eru fram í IV. viðauka, við skýrslugerð varðandi framvindu og við vöktun og mat á sjóðnum og markmiðum hans. Áætlanir aðildarríkja og ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar opinberlega, og eru ákveðin gögn einnig send Evrópuþinginu og ráðinu, sbr. 25. gr. reglugerðarinnar. Ákveðnar nefndir Evrópuþingsins geta boðið framkvæmdastjórninni að veita upplýsingar um stöðu mats framkvæmdastjórnarinnar á áætlunum.Samkvæmt 26. gr. reglugerðarinnar verður settur upp svokallaður „social climate dialouge“ til að auka samtal milli stofnana ESB, sér í lagi framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingsins. Í slíku samtali skal ræða áætlanir aðildarríkjanna, mat framkvæmdastjórnarinnar á áætlunum ríkjanna o.fl. 5. kafli: Lokaákvæði (27. – 29. gr.): 27. gr. reglugerðarinnar fjallar um mat og endurskoðun eða yfirferð á sjóðnum. Tveimur árum eftir að innleiðing áætlana aðildarríkjanna hefst skal framkvæmdastjórnin skila inn matsskýrslu til Evrópuþingsins, ráðsins, efnahags- og félagsmálanefnd og svæðanefnd (e. European Economic and Social Committee and the Committee of the Regions) um innleiðingu og virkni sjóðsins. Við þetta mat verður tekið tillit til fyrstu skýrslna sem að aðildarríkin hafa skilað inn í samræmi við 24. gr. Framkvæmdastjórnin, ef þykir viðeigandi, getur skilað inn tillögum að breytingum á reglugerðinni. Frekari upplýsingar um hvað skuli metið í matsskýrslu framkvæmdastjórnirnar kemur fram í 2. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar.Fyrir 31. desember 2033 skal framkvæmdastjórnin skila „ex post“ matsskýrslu til Evrópuþingsins, ráðsins, efnahags- og félagsmálanefnd og svæðanefnd (e. European Economic and Social Committee and the Committee of the Regions). Sú skýrsla skal innihalda almennt mat á sjóðnum og upplýsingar um áhrif hans.Ef hagnaður af uppboði með losunarheimildir í samræmi við 5. mgr. 30. gr. d. ETS-tilskipunarinnar er séður sem eigið fé ESB í samræmi við 3. mgr. 311. gr. Sáttmálans um framkvæmd ESB, skal framkvæmdastjórnin, ef þykir viðeigandi, leggja fram tillögu þess efnis að áframhald á framkvæmd sjóðsins verði tryggt innan fjárlaga ESB eftir 2027 – en sjóðurinn er nú tímabundinn og með undantekningu fjármagnaður með „external assigned revenue“, sem kemur frá losunarheimildum í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Auk nýrra ákvæða sem sett eru með reglugerð þeirri sem hér er til greiningar breytir hún reglugerð (ESB) 2021/1060, sbr. 26. gr. a. þeirrar reglugerðar. Í henni er fjallað um fjármagn sem flutt er úr Félagslega loftslagssjóðnum. Reglugerð þessi hefur nú þegar öðlast gildi fyrir aðildarríki ESB og kemur til framkvæmda frá 30. júní 2024, sem er sú dagsetning sem að aðildarríki hafa til að koma þeim reglum sem gilda um ETS2 til framkvæmda að landsrétti, sbr. tilskipun (ESB) 2023/959. að því er varðar IV. kafla a. í ETS-tilskipuninni. Eftirfarandi eru þeir viðaukar sem fylgja reglugerð þessari: Í viðauka I er sett fram aðferð til að reikna út hámarks fjármagn sem úthluta má fyrir hvert aðildarríki, í samræmi við 14. gr.Í viðauka II er sett fram hámarks fjárhæð sem úthluta má úr sjóðnum til hvers aðildarríkis í samræmi við 10. og 14. gr. Í viðauk III eru settar fram þær kröfur sem að innra eftirlit aðildarríkja þarf að uppfylla.Í viðauka IV eru settir fram algengir mælikvarðar (e. indicators) fyrir leiðbeinandi (e. indicative) áfanga og markmið fyrir félagslegar loftslags áætlanir aðildarríkja.Í viðauka V má finna sniðmát fyrir félagslega loftslagsáætlun. Greining sem gerð var þegar reglugerðin var á tillögustigi: Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) lagði í júlí 2021 fram svokallaðan „Fit for 55“-aðgerðapakka, sem ætlað er að stuðla að því að ESB nái markmiðum sínum um kolefnishlutleysi árið 2050, þ.m.t. áfangamarkmiði um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, miðað við losun ársins 1990. Pakkinn samanstendur af fjölmörgum tillögum að nýjum lagagerðum og breytingum á gildandi reglum ESB á sviði loftslags- og orkumála þar sem m.a. eru sett fram uppfærð markmið varðandi losun frá tilteknum geirum og uppsprettum. Hver og ein tillaga pakkans felur í sér framlag til heildarstefnu ESB í loftslagsmálum og er mikilvægt að líta til þeirra í samhengi þar sem þær tengjast allar innbyrðis. Tillagan sem hér er til umfjöllunar (hér eftir nefnd „tillagan“) er hluti „Fit for 55“ og felur í sér nýja reglugerð um svokallaðan „félagslegan loftslagssjóð“ (e. Social Climate Fund,hér eftir sjóðurinn).Helstu atriði tillögunnar: Almennt um sjóðinn:Sjóðnum, sem stofnaður er fyrir tímabilið 2025-2032, er ætlað að takast á við félagsleg áhrif og dreifingaráhrif (e. distributional impacts) á viðkvæma hópa vegna útvíkkunar viðskiptakerfis ESB til bygginga og vegasamgangna en sú útvíkkun mun koma til með að hafa í för með sér verðhækkanir á jarðefnaeldsneyti sem gæti haft óhófleg áhrif á viðkvæm heimili, örfyrirtæki og notendur vegasamgangna sem eyða stórum hluta tekna sinna í orku og samgöngur, sem og á þá sem búa á svæðum þar sem ekki er aðgengi að samgöngum á viðráðanlegu verði. Unnt er að nota tekjur af uppboði losunarheimilda viðskiptakerfisins til að létta álagi á þessa viðkvæmu hópa. Þessu ætti að ná með tímabundnum tekjustuðningi, ráðstöfunum og fjárfestingum sem ætlað er að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti til meðallangs eða langs tíma með bættri orkunýtni bygginga, minni notkun jarðefnaeldsneytis til upphitunar og kælingar bygginga, þ.m.t. með því að auka nýtingu orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og stuðla að bættu aðgengi að vegaflutningum og vegasamgöngum sem hafa í för með sér litla eða enga losun, 3. mgr. 1. gr. tillögunnar. Félagslegar loftslagsáætlanir:Aðildarríkin eiga að leggja fyrir framkvæmdastjórnina „félagslega loftslagsáætlun“ (e. Social Climate Plan)(hér eftir áætlunin), ásamt uppfærslu á landsbundnum orku- og loftslagsáætlunum skv. reglugerð (ESB) 2018/1999 (opinber skil skv. þeirri reglugerð eru í lok júní árið 2024). Áætlunin á að innihalda ráðstafanir og fjárfestingar til að takast á við áhrif kolefnisverðlagningar á viðkvæma aðila, sbr. 1. mgr. 3. gr. tillögunnar. Í 4. gr. tillögunnar er nánar fjallað um innihald áætlunarinnar og jafnframt hefur tillagan að geyma yfirlit yfir styrkhæfar (6. gr.) og óstyrkhæfar (7. gr.) aðgerðir.Aðildarríkin eiga að leggja til a.m.k. 50% af áætluðum heildarkostnaði við áætlunina, sbr. 14. gr. Sjóðurinn á einnig að veita aðildarríkjum fjárhagslegan stuðning til að fjármagna þær aðgerðir og fjárfestingar sem fram koma í áætlunum þeirra en greiðslur eru háðar því skilyrði að áföngum og markmiðum áætlanana sé náð, sbr. 5. gr.Framkvæmdastjórnin á að meta mikilvægi og skilvirkni áætlana aðildarríkjanna, sbr. 15. gr. tillögunnar. Ef framkvæmdastjórnin veitir áætlun aðildarríkis jákvætt mat, þá skal hún í framhaldinu taka framkvæmdarákvörðun (e. implementing decision) hvað það varðar, sbr. 16. gr., en ella þarf aðildarríkið að leggja fyrir framkvæmdastjórnina uppfærða áætlun. Eftir veitingu jákvæðs mats skal framkvæmdastjórnin gera samning við hlutaðeigandi aðildarríki í þeim tilgangi að stofna til einstakrar lagaskuldbindingar í skilningi reglugerðar (ESB) 2018/1046 um fjármálareglur sem gilda um fjárlög Evrópusambandsins, sbr. 18. gr. tillögunnar. Umrædd reglugerð hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn. Fjárhagsrammi sjóðsins og úthlutun úr honum:Fyrir tímabilið 2025-2027 mun sjóðurinn hafa að geyma 23,7 milljarða evra og 48,5 milljarða evra fyrir tímabilið 2028-2032, sem á að samsvara 25% af verðgildi losunarheimilda sem boðnar verða upp vegna bygginga og vegasamgangna. Úthlutun úr sjóðnum er gerð í samræmi við 13. gr. og I. og II. viðauka.Greiðslur úr sjóðnum til aðildarríkjanna eru inntar af hendi þegar viðeigandi samþykktum áföngum og markmiðum sem tilgreind eru í áætluninni er náð, sbr. 19. gr. Gildistaka:Reglugerðin mun gilda frá þeim degi sem aðildarríki þurfa að innleiða efni tilskipunar 2003/87/EB fyrir byggingar og vegasamgöngur (IVa kafli), sbr. 26. gr. tillögunnar. Fjallað er um kaflann í einum af tillögum ESB vegna „Fit for 55” (sjá COM(2021) 551 og sömuleiðis greiningu Umhverfisstofnunar á þeirri tillögu).
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Ef ákveðið verður að taka reglugerð þessa upp í EES-samninginn og innleiða hana í íslenskan rétt þarf að breyta lögum um loftslagsmál nr. 70/2012, sem eru núgildandi lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Þó er mikilvægt að hafa í huga að ný lög um viðskiptakerfi ESB hafa verið samþykkt á Alþingi, þau hafa ekki tekið gildi þegar þetta er skrifað, en ljóst er að breytingar þarf að gera á þeim lögum. Setja þarf ný lagaákvæði um félagslegan loftslagssjóð, þ. á. m. reglugerðarheimild til handa ráðherra, þar sem ákvæði um sjóðinn væru útfærð nánar. Meðal annars þyrfti að setja skýra reglugerðarheimild til innleiðingar á framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar um félagslega loftslagsáætlun ríkisins sem sett verður á grundvelli 17. gr. reglugerðarinnar. Gæta þarf þess að reglugerðarheimildin nái yfir þær skyldur ríkisins sem þar munu koma fram ásamt öðrum atriðum, m.a. um hámarksúthlutun til ríkisins úr sjóðnum og skilyrði í tengslum við úthlutun. Gera þyrfti breytingar á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir í samræmi við framangreint. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|---|
| Hvaða hagsmunaaðilar | fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og einstaka undirstofnanir þeirra. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Verði reglugerð þessi innleidd hér á landi mun það hafa í för með sér auka kostnað. Fyrst má nefna að aðildarríkin skulu leggja til a.m.k. 25% af áætluðum heildarkostnaði við áætlanir sínar, sbr. 15. gr. reglugerðarinnar. Eins þarf að ákveða hvaða stjórnvald/stofnun fær það meginhlutverk að útbúa félagslega loftslagsáætlun ríkisins skv. reglugerð þessari og sinna þeim verkefnum sem því tengjast. Helstu verkefnin sem felast í reglugerð þessari eru að útbúa og leggja fram félagslega loftslagsáætlun fyrir 30. júní 2025, sem inniheldur öll þau atriði sem skylt er skv. reglugerð þessari, sjá aðallega 6. gr. reglugerðarinnar. Ljóst er að um umfangsmikla áætlun er að ræða sem inniheldur upplýsingar um þá aðila sem áætlunin nær yfir, aðgerðir, fjárfestingar, áfangamarkmið og lokamarkmið, yfirgripsmikla tímaáætlun, upplýsingar um áætlaðan heildarkostnað sem af áætluninni hlýst skv. rökstuddu kostnaðarmati og um fyrirkomulag við innleiðingu og eftirfylgni áætlunarinnar. Í ferlinu við undirbúning áætlunarinnar þarf að fara fram víðtækt mat á því hvaða aðilar falli undir þau hugtök sem reglugerðin byggir á, þ.e. viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna. Nauðsynlegt er að hafa samráð við sveitarfélög, þátttakendur í atvinnulífinu, félagasamtök, ungmennasamtök og aðra hagsmunaaðila. Að auki skal í áætluninni útskýra hvers konar kerfi er við lýði að landsrétti til að fyrirbyggja, greina og leiðrétta svik, spillingu og hagsmunaárekstra í tengslum við sjóðinn. Ríki ber að veita þeim aðila/stofnun sem fer með hlutverk framkvæmdastjórnarinnar við mat á áætluninni þær viðbótarupplýsingar sem óskað er eftir. Helstu verkefni eftir formleg skil áætlunarinnar eru í fyrsta lagi gerð samnings skv. 19. gr. við þann aðila/stofnun sem fær hlutverk framkvæmdastjórnarinnar í því sambandi um úthlutun til ríkisins úr sjóðnum. Þá ber ríkinu að hafa yfirumsjón og ákveðið eftirlit með framgangi áætlunarinnar og sinna ákveðnum skyldum í því sambandi, s.s. að endurskoða áætlunina og gera á henni nauðsynlegar breytingar þar sem við á og eftir atvikum leggja fram uppfærða áætlun. Á tveggja ára fresti skal skila sérstakri skýrslu um innleiðingu áætlunarinnar til þess aðila/stofnunar sem mun hafa hlutverk framkvæmdastjórnarinnar í því sambandi. Einnig ber ríkið ákveðnar skyldur í tengslum við greiðslur úr sjóðnum, s.s. varðandi beiðni um greiðslu, eftirlit með notkun fjármuna og fyrirbyggjandi aðgerðir hvað varðar svik, spillingu og hagsmunaárekstra. Aðildarríkin þurfa að hafa kerfi fyrir innra eftirlit sem þarf að uppfylla ákveðnar kröfur sem settar eru fram í III. viðauka við reglugerðina. Að lokum má nefna að setja skal upp vefsíðu þar sem upplýsingar skv. 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar eru birtar. Fyrir 15. mars 2029 skal ríkið framkvæma mat á því hvort áætlun sé tilhlýðileg í ljósi beinna áhrifa af því að losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingum og vegasamgöngum falli undir gildissvið ETS-tilskipunarinnar og leggja það fram hjá þeim aðila/stofnun sem mun hafa hlutverk framkvæmdastjórnarinnar í því sambandi. Í ljósi alls framangreinds má gera ráð fyrir að vinna að félagslegri loftslagsáætlun skv. reglugerð þessari útheimti talsverða vinnu í tengslum við gerð og framlagningu áætlunarinnar, innleiðingu hennar og framkvæmd ásamt þeirri eftirfylgni og eftirliti sem nauðsynlegt er. Líklegt er að mesta þörfin á auknu vinnuframlagi felist í þeim verkefnum sem þarf að inna af hendi fram að þeim fresti sem ríki hefur til að leggja áætlun fram, þ.e. við undirbúning, gerð og framlagningu áætlunarinnar. Framangreind atriði eru tiltekin með fyrirvara um að hve miklu leyti reglugerð þessi verður tekin upp í EES-samninginn og þær aðlaganir sem hugsanlega þarf að gera hvað varðar EES EFTA ríkin m.t.t. fjölda þeirra Evrópugerða sem fjallað er um í reglugerð þessari og eiga ekki undir gildissvið EES-samningsins eða hafa ekki verið teknar upp í EES-samninginn af öðrum ástæðum. Eðli máls samkvæmt er óljóst á þessu stigi hvort og þá hvaða kostnaður í tengslum við innleiðingu og framkvæmd reglugerðar þessarar kemur til með að falla á Umhverfisstofnun og er nauðsynlegt að ítarlegra kostnaðarmat fari fram á síðari stigum. Eins er vert er að hafa í huga möguleika á framlengingu sjóðsins, en skv. reglugerðinni er hann tímabundinn og skal starfræktur á tímabilinu 2026-2032. Í 4. mgr. 27. gr. er fjallað um möguleikann á því að framkvæmd sjóðsins verði framhaldið innan fjárlaga ESB eftir 2027. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Telja má líklegt að reglugerðin falli ekki undir gildissvið EES samningsins þar sem um er að ræða nýjan fjármögnunarsjóð, þetta þarf að hafa í huga við ákvörðun um þátttöku Íslands í sjóðnum. Ljóst er að reglugerðin, verði hún tekin upp í EES samninginn og innleidd í íslensk lög, mun hafa í för með sér talsverð áhrif í samfélaginu hvað varðar þá aðila sem undir gildissvið reglugerðarinnar falla, þ.e. viðkvæm heimili, viðkvæm örfyrirtæki og viðkvæma notendur samgangna. Er hér vísað til greiningar á áhrifum innleiðingar tilskipunar (ESB) 2023/959 þar sem ETS2 er innleitt í ETS-kerfið, en með þeim sjóði sem hér er til umfjöllunar skal komið til móts við viðkvæma aðila sem undir tilskipunina falla með tímabundnum beinum stuðningi. Markmiðið er eins og áður segir að stuðla að sanngjörnum skiptum í átt að loftslagshlutleysi með því að taka á félagslegum áhrifum sem að hljótast af því að losun frá byggingum og vegasamgöngum falli undir kerfið. Í þessu sambandi þarf að skoðast sérstaklega hvort og þá að hvaða leyti ákvæði reglugerðar þessarar skulu gilda fyrir Ísland og önnur EES EFTA ríki. Eins þarf að athuga að Ísland tekur þátt í einhverjum verkefnum ESB, en mikilvægt er að hafa í huga mögulega skörun á slíkum verkefnum og þeim verkefnum sem fjármögnuð verða úr félagslega loftslagssjóðnum. Eins er vert að benda á hér að samráð skal haft við ákveðna aðila við gerð félagslegrar loftslagsáætlunar. Ekki þykir að fullu ljóst hvernig opinberir- og einkaaðilar munu að öðru leiti koma til með að taka þátt í gerð eða undirbúningi áætlunar eða í framkvæmd þeirra verkefna sem að fram munu koma í áætlun. Aðildarríkin eru styrkhafar úr sjóðnum en ljóst er að þörf verður á aðkomu annarra aðila við innleiðingu þeirra verkefna sem að sett verða fram í áætlun, þá væntanlega með útdeilingu fjármagns úr sjóðnum, af aðildarríki, til annarra aðila. Við lestur og greiningu reglugerðarinnar þykir ekki með öllu skýrt hvernig slíku yrði hagað í framkvæmd eða hvernig slíku samtali milli ríkisins og einstakra stofnana eða einkaaðila skuli háttað. Vakin er athygli á því sem áður hefur komið fram að skv. reglugerð þessari skal sá aðili/stofnun sem fær hlutverk framkvæmdastjórnarinnar hvað varðar EES/EFTA-ríkin setja sérstaka framkvæmdargerð um samþykkt eða synjun félagslegrar loftslagsáætlunar ríkisins, sbr. 17. gr. reglugerðarinnar. Felur það í sér að ef áætlun er samþykkt er það gert með setningu sérstakrar löggjafar. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R0955 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 130, 16.5.2023, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2021) 568 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Tillögur að breytingum (Proposed amendments)
Breytt af (Modified by)
| XC(2025) 1596 52025XC01596 |
based on | ||
| COM(2025) 565 52025PC0565 |
proposes to amend | ||
| 32023L1791 | amends | Directive (EU) 2023/1791 of the European Parliament and of the Council of 13 September 2023 on energy efficiency and amending Regulation (EU) 2023/955 (recast) | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
Breytir (Modifies)
| COM(2021) 568 52021PC0568 |
adopts | Regulation (EU) 2023/955 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 establishing a Social Climate Fund and amending Regulation (EU) 2021/1060 | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |
| 32021R1060 | amends | ||
| 12016E322 | based on | ||
| 12016E194 | based on | ||
| 12016E192 | based on |
