32022R0694

Commission Implementing Regulation (EU) 2022/694 of 2 May 2022 amending Regulation (EU) 2016/403 as regards new serious infringements of the Union rules which may lead to the loss of good repute by the road transport operator


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/694 frá 2. maí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/403 að því er varðar ný, alvarleg brot á reglum Sambandsins sem geta leitt til þess að óflekkað mannorð flutningsaðila á vegum skaðast
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 025/2023
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Stuttur:
Verið er að skilgreina háttsemi sem með samþykkt reglugerðarinnar verður flokkuð sem brot á reglum og verður því refsiverð. Þá eru innleidd ný viðmið til að skilgreina alvarleika brotanna og tíðni atvika. Fleiri brot munu verða metin alvarleg auk þess sem ýmis háttsemi sem áður var ekki talin brot verður það nú. Kostnaður gæti hlotist af fyrir lögreglu.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið er að skilgreina háttsemi sem með samþykkt reglugerðarinnar verður flokkuð sem brot á reglum og verður því refsiverð. Þá eru innleidd ný viðmið til að skilgreina alvarleika brotanna og tíðni atvika.Aðdragandi: Reglugerð (EB) nr. 1071/2009 frá 21. október 2009 fjallar um sameiginlegar reglur um skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að mega starfa við flutninga á vegum og um niðurfellingu tilskipunar ráðsins 96/26/EB. Einkum a-lið 6. gr.Þar sem:1)    Reglugerð (EB) nr. 1071/2009 var breytt með reglugerð (ESB) 2020/1055. Með reglugerð 2020/1055 var tilgreind háttsemi sem teldist alvarleg. Brotin tengjast atriðum eins og samningsbundnum skyldum, flutningum og starfsmenn sem sendir eru að heiman til að starfa við flutninga á vegum. Þeim var bætt við lista yfir brot sem geta leitt til þess að rekstrarleyfishafi glati því trausti/orðstír sem hann hefur, þ.e. góðu orðspori, e. good repute. Ákvæði um gott orðspor er að finna í b-lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 1071/2009.2)    Með reglugerð (ESB) 2020/1055 voru einnig kynnt viðbótarviðmið sem framkvæmdastjórnin skal leggja til grundvallar þegar hún metur alvarleika brota. Þetta var gert með því að bæta við ákvæði um að tekið skyldi tillit til hættunnar á að raska samkeppni á vegaflutningamarkaði.3)    Með reglugerð (ESB) 2020/1055 var einnig gerð breyting á ákvæðum reglugerðar 1071/2009 um ákvörðun á tíðni endurtekinna brota sem talin eru alvarleg. Tiltekið var að framkvæmdastjórnin ætti að taka tillit til fjölda ökutækja en ekki fjölda ökumanna sem notaðir eru við flutningastarfsemina.4)    Með reglugerð (ESB) nr. 2020/1054 voru sett ný ákvæði um brot sem alvarleg slys og jafnvel banaslys geta hlotist af. Einnig um brot sem geta raskað samkeppni. Þessum brotum ætti að bæta við listann yfir alvarleg brot sem fjallað er um í b-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar (EB) nr. 1071/2009.Efnisútdráttur: Í viðauka I eru sett ákvæði sem verða til að breyta reglugerð (EB) nr. 561/2006. Breytingin er helst sú að töflur yfir flokkun alvarlegra brota eru uppfærðar og brotum bætt við í samræmi við það sem að framan greinir. Í töflunum er alvarlegum brotum skipt í þrjá flokka eftir því hve alvarleg þau eru talin. Það fer eftir því hvort þau geti leitt til í fyrsta lagi alvarlegra slysa, í öðru lagi  banaslysa og í þriðja lagi þess hvort þau séu til þess fallin að raska samkeppni.Í fyrsta hluta er fjallað um brot gegn reglugerð 561/2006/EB á aksturs og hvíldartíma.Í öðrum hluta er uppfærð tafla yfir brot gegn reglugerð (ESB) nr. 165/2014 um ökurita.Í sjötta hluta kemur uppfærð tafla af brotum gegn tilskipun ráðsins 92/6/EEC um tæki sem takmarka hraða.Í tíunda hluta kemur uppfærð tafla af brotum gegn reglugerð (EB) nr. 1072/2009 um aðgang að alþjóðlegum flutningamarkaði.Í ellefta hluta kemur uppfærð tafla af brotum gegn reglugerð (EB) nr. 1073/2009 um aðgang að markaði fyrir langferðabifreiða- og rútuþjónustu.Bætt eru við hlutum 13. og 14. Í 13. hluta eru bætt við brotum gegn reglugerð (EB) nr. 593/2008 um lög sem gilda um samningsbundnar skuldbindingar.Í 14. hluta eru bætt við töflu af brotum gegn tilskipun (ESB) nr. 2020/1057 um starfsmenn sem sendir eru að heiman til að starfa við flutninga á vegum.Viðauki IIÍ viðauka II er fjallað um tíðni alvarlegra brota. Aðildarríkin skulu taka á brotum af meiri alvöru ef þau eru framin ítrekað. Þegar brotin eru metin skal líta til eftirfarandi þátta:a)    alvarleika brotsins (SI: alvarleg brot eða VSI: mjög alvarleg brot)b)    tími (að minnsta kosti eitt ár frá eftirlitsdegi)c)    fjöldi ökutækja sem notuð eru til flutningastarfsemi af flutningastjóra (að meðaltali á ári)2. Að teknu tilliti til hugsanlegrar hættu fyrir umferðaröryggi skal hámarkstíðni alvarlegra brota ákvörðuð með eftirfarandi hætti: alvarleg brot (SI)/á ökutæki/ári = 1 mjög alvarlegt brot (VSI)3 mjög alvarleg brot (VSI)/á ökutæki/ári = sett á laggirnar innlend málsmeðferð um góðan orðstír.3. Fjöldi brota á hvert ökutæki á ári er meðaltal sem er reiknað með því að deila heildarfjölda allra brota af sama alvarleika (SI eða VSI) með meðalfjölda ökutækja sem notuð eru á árinu. Tíðniformúlan kveður á um hámarksþröskuld fyrir alvarleg brot sem teljast skulu alvarlegri. Aðildarríki geta sett strangari viðmiðunarmörk ef gert er ráð fyrir því í innlendum stjórnsýsluferli þeirra til að meta orðspor“.Sú breyting er gerð á II. viðauka að við útreikning á hámarkstíðni alvarlegra brota skal miðuð við fjölda brota á hvert ökutæki á ári í stað fjölda brota á hvern ökumann.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Með gerðinni er verður litið á fleiri atriði sem brot sem geta leitt til þess að rekstrarleyfishafi teljist ekki hafa gott orðspor. Gott orðspor er skilyrði fyrir starfsleyfi slíkra aðila.Gerðin hefur einnig áhrif á hvernig brot eru meðhöndluð.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: 32. og 34. gr. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi.Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Með reglugerð (EB) nr. 1071/2009 er gerð krafa um að hvert aðildarríki haldi rafræna landsskrá yfir rekstrarleyfishafa á vegum.Mögulegur kostnaður vegna breytinga á landsskrá sem er í höndum lögreglu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Dómsmálaráðuneytið, lögreglan. Vegaeftirlit er í höndum lögreglu og því getur gerðin haft áhrif á störf hennar við eftirlit í þessu sambandi.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Lögregla, umferðareftirlit, þeir sem stunda flutninga á vegumHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er í 32. og 34. gr. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi. Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32022R0694
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 129, 3.5.2022, p. 22
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D079458/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 75, 19.10.2023, p. 39
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2302, 19.10.2023

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Breytir (Modifies)

32016R0403 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi