32022R1379
Commission Regulation (EU) 2022/1379 of 5 July 2022 amending Regulation (EU) 2017/2400 as regards the determination of the CO2 emissions and fuel consumption of medium and heavy lorries and heavy buses and to introduce electric vehicles and other new technologies
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1379 frá 5. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2400 að því er varðar ákvörðun koltvísýringslosunar og eldsneytisnotkunar meðalþungra og þungra vöruflutningabifreiða og þungra hópbifreiða og til að innleiða rafknúin ökutæki og aðra nýja tækni
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 040/2023 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með reglugerðinni er að þær upplýsingar sem aflað er um losun ýmissa meðalþungra og þungra ökutækja veiti betri vitneskju um hver losunin er í raun og veru. Því eru gerðar breytingar á reglugerð 2017/2400 í þá veru að gera kröfur um að niðurstöður sem hafa fengist með hermitóli séu sannreyndar með prófi á vegum úti. Því til viðbótar er verið að gera leiðréttingar og breytingar gera reglugerð 2017/2400 skýrari. Lítil áhrif og eingöngu óbein. Kostnaður óverulegur.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með reglugerðinni er að þær upplýsingar sem aflað er um losun ýmissa meðalþungra og þungra ökutækja veiti betri vitneskju um hver losunin er í raun og veru.Aðdragandi og efni: Með reglugerð (ESB) 2017/2400 var mælt fyrir um sameiginlega aðferð til að reikna út og bera saman losun þungra ökutækja sem sett eru á markað innan Sambandsins. Tekin voru upp svokölluð hermitól sem nota á til að ákvarða og gefa upp losunina. Hermitólið er einnig notað til að leggja skyldur á herðar yfirvalda í aðildarríkjum þar sem framleiðendur eru. Auk þungra vöruflutningabifreiða ná ákvæði reglugerðar 2017/2400 til meðalstórra vöruflutningabifreiða og þungra strætisvagna.Í reglugerðinni er jafnframt kveðið á um vottun íhluta sem hafa áhrif á losun.Til þess að ná á viðeigandi hátt yfir losun frá bifreiðum sem búin eru tækni sem enn er tiltölulega ný var nauðsynlegt að gera viðbótarkröfur til bifreiða sem þannig eru gerðar. Hér er verið að taka á tækni eins og er í tvinn-bifreiðum, hreinum rafökutækjum, tvíbrenni-ökutækjum, e. dual-fuel vehicle, glatvarmaendurvinnslu-kerfum og háþróuðum hjálparkerfi fyrir ökumenn.Sannprófun á vegum hefur reynst mikilvægt tæki til að sannreyna útreikninga á koltvísýringslosun og eldsneytisnotkun. Því er rétt að gera kröfur um slíka prófun fyrir meðalstóra vöruflutningabíla og bifreiðar búnar nýrri tækni. Það er gert í þeirri reglugerð sem nú er til umfjöllunar, þ.e. 2022/1379. Undantekning er hins vegar gerð fyrir þunga strætisvagna. Þá er ekki hægt að prófa á sama hátt vegna þess hversu flókið fjölþrepa framleiðslu- og viðurkenningarkerfi gildir fyrir þá.Auk ofangreindrar breytinga er með reglugerð 2022/1379 verið að gera ýmsar skilgreiningar og kröfur í reglugerð (ESB) 2017/2400 skýrari. Þar á meðal er frekari aðlögun að stöðlum um koltvísýringslosun fyrir ný ökutæki sem mælt er fyrir um í reglugerð (ESB) 2019/1242.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Engir framleiðendur ökutækja eru á Íslandi eins og er og hefur reglugerðin því lítil sem engin áhrif hér á landi eins og stendur.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er a-lið 4. mgr. 69. gr. gr. umferðalaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður við innleiðingu þessarar reglugerðar er metinn óverulegur sem enginn.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Tengsl við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið en ekki bein skörun.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er a-lið 4. mgr. 69. gr. gr. umferðalaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32022R1379 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 212, 12.8.2022, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 77, 26.10.2023, p. 26 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/2369, 26.10.2023 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytt af (Modified by)
| 32024R1257 | implicitly repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32017R2400 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32009R0595 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 595/2009 frá 18. júní 2009 um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja og hreyfla með tilliti til losunar frá þungum ökutækjum (Euro VI) og um aðgang að upplýsingum um viðgerðir og viðhald ökutækja og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 715/2007 og tilskipun 2007/46/EB og um niðurfellingu á tilskipunum 80/1269/EBE, 2005/55/EB og 2005/78/EB Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
