Reglugerð (ESB) 2024/1083 um fjölmiðlafrelsi - 32024R1083

Regulation (EU) 2024/1083 of the European Parliament and of the Council of 11 April 2024 establishing a common framework for media services in the internal market and amending Directive 2010/13/EU (European Media Freedom Act)


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 11 Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið, 11.05 Þjónusta tengd hljóð- og myndvinnslu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2024/1083 setur sameiginlegan ramma um fjölmiðlaþjónustu á innri markaði og hefur að markmiði að efla fjölmiðlafrelsi, ritstjórnarlegt sjálfstæði og fjölbreytni fjölmiðla innan ESB. Með reglugerðinni eru festar í sessi sameiginlegar lágmarksreglur um vernd ritstjórnarlegs sjálfstæðis, gagnsæi um eignarhald og fjármögnun fjölmiðla, auk viðeigandi varna gegn ótilhlýðilegum afskiptum af starfsemi fjölmiðla. Jafnframt er lögð áhersla á að tryggja réttmæti og fyrirsjáanleika á markaði fyrir fjölmiðlaþjónustu yfir landamæri. Reglugerðin felur einnig í sér skýrari kröfur til aðildarríkja um skipan og starfshætti opinberra fjölmiðla og stjórnsýslu sem tengist fjölmiðlamarkaði, með það fyrir augum að efla traust og sanngjarna samkeppni. Þá er tilskipun 2010/13/ESB breytt að því leyti sem tengist nýjum reglum um fjölmiðlaumhverfið. Heildaráhrif reglugerðarinnar eru að styrkja vernd fjölmiðla sem lýðræðislegrar stoðar, bæta skilyrði fyrir starfsemi fjölmiðla innan EES og stuðla að samræmdari framkvæmd á innri markaði.

Nánari efnisumfjöllun

Það athugast að stór hluti reglugerðar 2024/1083 um fjölmiðlafrelsi hefur verið hluti af íslenskri löggjöf frá 2011, t.d. reglur um samþjöppun og gagnsæi eignarhalds fjölmiðla, reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og reglur um vernd heimildarmanna.Með þeim fyrirvara eru helstu breytingar sem felast í reglugerð um fjölmiðlafrelsi eftirfarandi:1. Reglur um að stjórnvöld skuli virða ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og sé óheimilt að hafa afskipti af ritstjórnarstefnu og ritstjórnarákvörðunum fjölmiðla, sbr. 6. gr. EMFA. (Ákvæði um ritstjórnarlegt sjálfstæði þegar lögfest í 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011).2. Reglur um sjálfstæði almannaþjónustufjölmiðla (hér á landi Ríkisútvarpið). Gerðin felur í sér að tryggja verði fjármögnun og ritstjórnarlegt sjálfstæði almannaþjónustumiðla og gagnsæi við skipan stjórna slíkra miðla, sbr. 5. gr. EMFA.  3. Reglur um gagnsæi eignarhalds og hagsmunaskráningu á fréttamiðlum, sbr. 6. gr. EMFA. Vísað er til þess að gagnsæi eignarhalds sé mikilvægt til að koma í veg fyrir samþjöppun eignarhalds á fjölmiðlamarkaði og stuðli þannig að fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. (Ákvæði um eignarhald fjölmiðla, þ.m.t. samþjöppun og gangsæi eignarhalds þegar lögfest hér á landi, sbr. e-lið 1. mgr. 21. gr. og X. kafla A laga um fjölmiðla nr. 2011.) 4. Vernd gegn brottnámi fjölmiðlaefnis af samfélagsmiðlum sem er ekki réttlætanlegt, sbr. 18. gr. EMFA. Skylda til að tryggja að sérsjónarmið eigi við þegar til skoðunar kemur að fjarlægja efni fjölmiðla á grundvelli reglugerðar um stafræn málefni (Digital Services Act, DSA). 5. Fyrirmæli um að notendum fjölmiðla verði kleift að breyta uppsetningu skjáviðmóts í stafrænu sjónvarpi eftir þörfum, sbr. 20. gr. EMFA.6. Reglur um gagnsæi og hlutlægni við framkvæmd fjölmiðlamælinga, sbr. 24. gr. EMFA.7. Reglur um gagnsæi og sanngirni í auglýsingakaupum hins opinbera, sbr. 25. gr. EMFA.8. Samráðshópur evrópskra eftirlitsstofnana á sviði hljóð- og myndmiðlunar (European Regulators Group for Audiovisual Media Services, ERGA) lagður niður og í stað hans kemur European Board for Media Services, EBMS og hefur eftirlit með samræmdri framkvæmd EMFA, sbr. 8.-13. gr. EMFA. Fjölmiðlanefnd hefur tekið þátt í starfi ERGA fyrir hönd Íslands frá stofnun hans árið 2014 og vænta má að nefndin/innlendur eftirlitsaðili taki einnig þátt í starfi EBMS.Ekki tekið upp í EES-samninginn/utan gildissviðs EES-samningsins, skv. fyrirliggjandi drögum að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:- Reglur um vernd heimildarmanna fjölmiðla og bann við því að beita fjölmiðlafólk þvingunar- og rannsóknarúrræðum í því skyni að knýja það til að veita upplýsingar um heimildarmenn sína. Einnig bann við notkun njósnabúnaðar af nokkru tagi til að hafa eftirlit með blaðamönnum eða fjölskyldum þeirra. (Vernd heimildarmanna fjölmiðla er þegar lögfest í 25. gr. laga um fjölmiðla, auk þess sem nafnleynd heimildarmanna er að nokkru varin í ákvæðum réttarfarslaga, sbr. 119. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og 53. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, og nýtur verndar 73. stjórnarskrár Íslands).

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyting á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011.
Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013.

Gerðin kann einnig að kalla á breytingu á lögum sem heyra undir atvinnuvegaráðuneyti; t.d. lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005, auk þess sem hún hefur þýðingu við innleiðingu og túlkun á reglugerð (ESB) 2022/2065 um stafræn málefni (Digital Services Act).
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Einkareknir fjölmiðlar, Ríkisútvarpið, Aðrir hagaðilar á fjölmiðlamarkaði, t.d. Gallup og e.a. önnur fyrirtæki sem sinna fjölmiðlamælingum., Blaðamannafélag Íslands

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Ríkir hagsmunir af því að tryggja samræmi í löggjöf Íslands er snýr að fjölmiðlafrelsi við sambærilega löggjöf á EES-svæðinu. Ekki þörf á sérstakri hagsmunagæslu með tilliti til sérhagsmuna eða sérstakra kringumstæðna.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1083
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1083, 17.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 457
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32010L0013 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Samantekt EUR-Lex