32024R1610

Regulation (EU) 2024/1610 of the European Parliament and of the Council of 14 May 2024 amending Regulation (EU) 2019/1242 as regards strengthening the CO2 emission performance standards for new heavy-duty vehicles and integrating reporting obligations, amending Regulation (EU) 2018/858 and repealing Regulation (EU) 2018/956


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með reglugerðinni er að stuðla að því að Evrópusambandið nái markmiðum um hreinna umhverfi, bætta heilsu og velferð borgara, dýra og vistkerfa innan Evrópusambandsins. Með reglugerðinni eru sett viðmið um losun CO2 frá nýjum þungum ökutækjum. Settar eru sameiginlegar kröfur og stjórnsýslufyrirmæli um gerðarviðurkenningu og markaðseftirlit um losun, eldsneytis- og raforkunotkun auk endingar rafhlaðna. Með innleiðingu reglugerðarinnar verða kröfur auknar það mikið að innflutningur annarra ökutækja en þeirra sem eru frá ríkjum sem hafa heildargerðarviðurkenningu verður torveldur. Hægt er að setja séríslenskar reglur um slík ökutæki. Taka þarf sérstaka afstöðu til þessa hér á landi. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með reglugerðinni er að stuðla að því að Evrópusambandið nái markmiðum um hreinna umhverfi, bætta heilsu og velferð borgara, dýra og vistkerfa innan Evrópusambandsins. Með reglugerðinni eru sett viðmið um losun CO2 frá nýjum þungum ökutækjum. Settar eru sameiginlegar kröfur og stjórnsýslufyrirmæli um gerðarviðurkenningu og markaðseftirlit um losun, eldsneytis- og raforkunotkun auk endingar rafhlaðna.Aðdragandi: Reglugerðin er þáttur í þeirri stefnumótun ESB að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Tekið var mið af tækniframförum í framleiðslu þungra farartækja til að tryggja að losunarviðmið væru bæði viðeigandi og samanburðarhæf.Efnisútdráttur: Reglugerðin tekur til fólks-, hóp-, sendi- og vörubifreiða, auk eftirvagna sem skráðir eru fyrir heildarþunga frá 750 til 10.000 kg.Settar eru strangar kröfur til útblástursmælinga og endingar rafhlaða. Innleidd eru kerfi til að hindra og greina svik. Reglugerðin kveður á um notkun ýmissa eftirlitskerfa og tækja innan ökutækja, svo sem kerfa sem fylgjast með og skrá losun og orkunotkun. Það kemur í hlut framleiðenda að hanna og smíða ökutæki þannig að þau standist kröfur um útblástur og orkunotkun.Eftirlitsstjórnvöldum er falið það hlutverk að gera prófanir og athuganir til að tryggja að framleiðendur uppfylli kröfur um framleiðslusamræmi og þjónustueftirlit. Reglur til að koma í veg fyrir fölsun á mengunargildum og breytingu á kerfum ökutækja eru settar fram. Sérstakar dagsetningar eru settar fyrir samþykki nýrra tegunda ökutækja og fyrir bann við skráningu, sölu eða notkun ökutækja sem ekki uppfylla kröfur reglugerðarinnar.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi:Með innleiðingu reglugerðarinnar verða kröfur auknar það mikið að innflutningur annarra ökutækja en þeirra sem eru frá ríkjum sem hafa heildargerðarviðurkenningu verður torveldur. Án slíkrar viðurkenningar er ekki tryggt að ökutæki uppfylli ekki umræddar kröfur. Mæla þarf fyrir um þær reglur sem gilda eiga til þess að fá skráð hér á landi ökutæki frá slíkum ríkjum s.s. ökutæki frá Bandaríkjunum og Kína. Séu settar sveigjanlegri kröfur fyrir þau ökutæki þarf að gera það með því að setja sér-íslenskar kröfur. Í gegnum tíðina hafa séríslenskar tilslakanir verið innleiddar í reglugerð um gerð og búnað ökutækja og þá einkum með bandaríska bíla í huga. Taka þarf sérstaka afstöðu til þessa hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: NeiSkörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur, almenningur.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Framkvæmdastjórnin getur lagt á stjórnvaldssektir sem geta numið allt að 30.000 EUR fyrir hvert ökutæki á framleiðendur.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 4. mgr. 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1610
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1610, 6.6.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 88
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

COM(2023) 088
52023PC0088
adopts
32022R0247 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2022/247 of 14 December 2021 amending Regulation (EU) 2018/956 of the European Parliament and of the Council as regards the data on new heavy-duty vehicles to be monitored and reported by Member States and by manufacturers and the reporting procedure Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32021R1429 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2021/1429 of 31 May 2021 amending Regulation (EU) 2018/956 of the European Parliament and of the Council as regards the data on new heavy-duty vehicles to be monitored and reported by Members States Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32020R1589 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2020/1589 of 22 July 2020 amending Annex I to Regulation (EU) 2018/956 of the European Parliament and of the Council as regards the data on new heavy-duty vehicles to be monitored and reported by Member States and by manufacturers Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32019R1242 amends, implicitly repeals Regulation (EU) 2019/1242 of the European Parliament and of the Council of 20 June 2019 setting CO2 emission performance standards for new heavy-duty vehicles and amending Regulations (EC) No 595/2009 and (EU) 2018/956 of the European Parliament and of the Council and Council Directive 96/53/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi