32023R2590

Commission Delegated Regulation (EU) 2023/2590 of 13 July 2023 supplementing Regulation (EU) 2019/2144 of the European Parliament and of the Council by laying down detailed rules concerning the specific test procedures and technical requirements for the type-approval of certain motor vehicles with regard to their advanced driver distraction warning systems and amending that Regulation


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2590 frá 13. júlí 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 með því að mæla fyrir um ítarlegar reglur um sértækar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur fyrir gerðarviðurkenningu tiltekinna vélknúinna ökutækja að því er varðar háþróað truflunarvarakerfi þeirra og um breytingu á þeirri reglugerð
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.01 Vélknúin ökutæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 268/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að setja nákvæmar reglur um tæknilegar kröfur og prófanir á ADDW kerfi, e. Advanced Driver Distraction Warning. Kerfið fylgist með augnhreyfingum ökumanns og varar hann við verði hann annars hugar. Áhrif hér á landi eingöngu óbein. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Verið er að setja nákvæmar reglur um tæknilegar kröfur og prófanir á ADDW kerfi, e. Advanced Driver Distraction Warning. Kerfið fylgist með augnhreyfingum ökumanns og varar hann við verði hann annars hugar.Aðdragandi: Framkvæmdastjórninni er heimilt að setja ítarlegar reglur um sérstakar prófunaraðferðir og tæknilegar kröfur til truflana viðvörunarkerfis fyrir ökumenn sem hluta af gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja. Það er gert með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar.Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 felur í sér að vélknúin ökutæki sem hönnuð eru til fólks- og vöruflutninga, þ.e. í flokkum M og N, skulu búin háþróaðri truflunarviðvörun ökumanns, þ.e. ADDW-kerfinu. Kerfið skal vera frá 7. júlí 2024 komið í nýjar gerðir ökutækja og frá 7. júlí 2026 í öll ný ökutæki. ADDW er skilgreint sem kerfi sem hjálpar ökumanni að halda athyglinni vakandi og varar hann við verði hann annars hugar.Þær reglur sem hér er verið að setja er næsta skref í átt að hinni svokölluðu „núllsýn“ e. Vision Zero, en áætlað er að á milli 10%-30% slysa í Evrópu séu að völdum truflana. The National Highway Traffic Safety Administration (NHTSA) áætlar að truflun ökumanna valdi allt að 16% banvænna árekstra, 21% allra skaðlegra árekstra og 22% allra árekstra í Bandaríkjunum. Líklegt er að þessar tölur séu vanmetnar í ljósi þess hversu erfitt er að meta alla þá þætti sem valda árekstri.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Verið er að setja nákvæmar reglur um tæknikröfur og prófanir á ADDW kerfi, e. Advanced Driver Distraction Warning. Kröfurnar eru fyrir bílaframleiðendur og þá sem prófa búnað bifreiða vegna gerðarviðurkenningar. Krafa verður svo gerð um að búnaðurinn sé til staðar í tilteknum bílum.Áhrif á Samgöngustofu eru engin og áhrif á hagaðila, þ.e. þá sem flytja inn bifreiðar, eru lítil og eingöngu óbein. Ökutækin munu koma með búnaði samkvæmt þessum nýju kröfum frá framleiðendum.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Innflutningsaðilar.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2590
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2590, 22.11.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2023)4523
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 35
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/605, 24.4.2025