Tilskipun um jarðvegsvöktun - 32025L2360

Directive (EU) 2025/2360 of the European Parliament and of the Council of 12 November 2025 on soil monitoring and resilience (Soil Monitoring Law)


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Tilskipun
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.01 Almenn atriði

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ný tilskipun (soil monitoring and resilience directive) sem hefur að geyma fyrstu heildarlöggjöf Evrópusambandsins sem helguð er jarðvegi og jarðvegsvernd. Hún var samþykkt 12. nóvember 2025 og birt í Stjórnartíðindum ESB 26. nóvember 2025. Tilskipunin markar tímamót þar sem fyrsta sinn er settur sameiginlegur lagarammi um vöktun jarðvegs og aðgerðir til að bæta jarðveg. Markmið tilskipunarinnar er að tryggja að allur jarðvegur í ESB verði kominn í heilbrigt ástand fyrir árið 2050, sem er liður í Græna samkomulaginu (The European Green Deal). Heilbrigður jarðvegur mun svo vinna að markmiði sambandsins að ná kolefnishlutleysi.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt Með tilskipun um jarðvegsvöktun, hefur verið sett heildarlöggjöf um jarðveg og jarðvegsvernd. Markmið tilskipunarinnar er að sporna gegn rýrnun jarðvegs gæða og ná fram heilbrigðum jarðvegi í allri Evrópu eigi síðar en árið 2050. Tilskipunin nær til alls jarðvegs á yfirráðasvæði aðildaríkjanna en helstu meginþættir reglugerðarinnar eru 1. vöktun jarðvegs, 2. stuðningur við viðnám og vernd jarðvegs og 3. skráning og meðhöndlun mengaðra svæða.  Meginþættir reglugerðarinnarMeginþættir tilskipunarinnar eru 1. Vöktun og mat á heilbrigði jarðvegs, 2. Stuðningur og hvatar til aukningu á viðnámsþoli og heilbrigði jarðvegs og 3. skráning og meðhöndlun mengaðra svæða. Vöktun jarðvegs og samræmd gagnaöflunTilskipunin setur af stað umfangsmikið vöktunarkerfi fyrir jarðveg. Hvert ríki skal koma á fót kerfisbundnu jarðvegseftirliti sem nær yfir landsvæði þess í heild.-Skipting lands í umdæmi og jarðvegseiningarRíki skulu afmarka jarðvegseiningar út frá jarðvegsgerð, loftslagi og umhverfi. Skipulagðri jarðvegsvöktun skal komið á með jarðvegsumdæmum en  jarðvegsumdæmi samanstanda af einni eða fleiri jarðvegseiningum. -Sameiginlegir mælikvarðar – jarðvegsvísarRíki skulu setja sér sameiginlega mælikvarða, svokallaða jarðvegsvísa, þar sem tilgreindur eru þeir þættir sem að skylt er að mæla. Sem dæmi um ýmsa eðlis-, efna og líffræðilega þætti jarðvegs sem að ber að vakta má nefna lífrænt kolefni í jarðvegi, jarðvegsþjöppun, jarðvegsmengun o.s.frv.-Viðmið um heilbrigði jarðvegsHvert ríki skal skilgreina heppileg gildi fyrir sameiginlegu mælikvarðana, þ.e. viðmiðunargildi fyrir heilbrigðan jarðveg og þröskuldsgildi sem merkja slæmt ástand jarðvegs.-Aðferðarfræði og samræmingEvrópusambandið mun gefa út sameiginlega aðferðafræði við sýnatöku og gagnaúrvinnslu. Notast verður við starfræna gagnagátt til að vista og deila öllum gögnum. Upplýsingagrunnurinn mun svo nýtast í stefnumótun og frekari rannsóknir.-Tímamörk og skýrslugjöfAðildaríki hafa til lok árs 2028 til að innleiða vöktunarkerfið í landsrétt. Fyrstu heildstæðu mælingarnar á jarðvegsástandi skulu liggja fyrir árið 2028. Ríki skulu skila skýrslu á 6 ára fresti inn í gagnagátt ESB. Stuðningur við sjálfbæra landnýtingu viðnámsþol jarðvegsÖnnur meginstoð reglugerðarinnar snýr að því að efla jarðvegsvernd og viðnámsþol jarðvegs með jákvæðum kvötum og ráðstöfunum. Ríki skal hvetja landeigendur til að bætaheilbrigði jarðvegs. Tilskipunin færir ríkjum fulla stjórn á hvaða leiðir eru farnar til að ná markmiðum. Neðangreind upptalning er á leiðum sem ríki geta farið til að ná markmiðum.-Ráðgjöf og fræðslaSem dæmi geta ríki tryggt aðgang að hlutlausri ráðgjöf og fræðslu um jarðvegsvernd. Ríki skulu efla þekkingu þeirra sem vinna með landið og gera jarðvegsvernd hluta af daglegum landbúnaði og skógrækt.-Efnahagslegir hvatarKveðið er á um fjárstuðning til þeirra sem innleiða sjálfbæra landnýtingu og bændum jafnvel boðin ókeypis jarðvegsgreining og ráðleggingar um nýtingu niðurstaðna. Hér gæti verið fyrir hendi styrkjafyrirkomulag þar sem landeigandi gæti átt rétt til greiðslu fyrir að taka upp aðra ræktunaraðferð eða bætur fyrir að láta af ósjálfbærri jarðvegsnotkun.-Sjálfbær landnýtingMarkmiðið er sjálfbær landnýting og ríki skulu setja sér viðmið um landnýtingu og áhrif á jarðveg.-Aflokun jarðvegs og landnýting (land-take mitigation)Kveðið á um vöktun og stefnumörkun varðandi aflokun jarðvegs, þ.e. malbikun, steypa o.þ.h. og landnýtingu, t.d. uppbygging mannvirkja eða varanleg eyðsla jarðvegs. Kveðið er á um stefnumarkandi aðgerðir eins og að ef leggja á land undir byggingar þá skuli forðast að fórna mjög frjósömum jarðvegi og ef ekki verður komist hjá því þá reyna að bæta upp fyrir það með því að flytja jarðveginn eða endurheimta rofið land í jöfnum mæli. Tilskipunin leggur ekki blátt bann við neinu og gengur ekki á skipulagsvald ríkja heldur kveður á um vöktun og stefnumarkandi aðgerðir til að ná markmiðum tilskipunarinnar.-Rannsóknir og nýsköpunReglugerðin styður við frekara rannsóknastarf með sérstakri tilvísun í Mission soil en með honum er verið að þróa nýjar mæliaðferðir, tól og gagnagrunna sem að ríki geta nýtt við innleiðingu.Samandregið er áhersla tilskipunarinnar í þessum efnum að stuðla að sjálfbærri meðferð jarðvegs með fræðslu, fjárstuðningi og samvinnu. Tilskipunin fléttast inn í núverandi kerfi og að jarðvegur fái svipað vægi og aðrir umhvefisþættir í stefnumótun t.d. að jarðvegsgæði verði sjálfsagður hluti af mati á árangri landbúnaðar, skógræktar og framkvæmda. skráning og meðhöndlun mengaðra svæðaMeð skráningu og meðhöndlun svæða er ætlað að taka á menguðum jarðvegi sem getur ógnað heilsu og umhverfi. Jarðvegur getur hafa mengast vegna iðnaðar, útblásturs, urðunar, notkunar eitraðra efna o.fl. Slík mengun getur haft alvarlega hættu í för með sér t.d. ef þungmálmar eða eiturefni síast í grunnvatn eða komast í fæðukeðjuna. Hvað þennan þátt varðar þá eru eftirfarandi lágmarkskröfur gerðar:-Kerfisbundin greining mengaðra svæða Ríki skulu finna og skrásetja öll svæði sem grunur leikur á að séu menguð. Á grundvelli greiningar skal setja saman skrá yfir hugsanlega menguð svæði innan 10 ára frá gildistöku reglugerðarinnar. Ríki skulu því eigi síðar en 2035 vera búin að kortleggja hugsanleg mengunarsvæði og birta skrá yfir þau. Skráin skal vera opinber og aðgengileg með ákveðnum undantekningum.-Mat og forgansröðunÞegar hugsanlega menguð svæði hafa verið skráð skulu ríki framkvæma frekari rannsóknir á þessum svæðum. Notað skal áhættumat við að meta hvort mengun sé óásættanleg  fyrir heilsu manna og umhverfi. Út frá rannsóknum verða svæði flokkuð í annars vegar hugsanlega menguð svæði (potentially contaminated sites) og staðfest menguð svæði (contaminated sites).-Úrbætur og hreinsunEf að jarðvegsmengun á tilteknum stað felur í sér óásættanlega áhættu þá skal gripið til viðeigandi hreinsunaraðgerða. Fylgja skal meginreglunni um að mengunarvaldur greiðir (polluter pays). Ef enginn ábyrgur finnst þá er það ríkisins að sjá til þess að gripið verði til aðgerða. Framkvæma þarf úrbætur sem koma áhættunni sem stafar frá svæðinu undir þau mörk sem teljast ásættanleg fyrir heilsu manna og umhverfis.-Nýrri mengunarvaldarReglugerðin gerir ráð fyrir að nýir mengunarvaldar í jarðvegi verði vaktaðir. Gefinn verður út listi af framkvæmdastjórnninni yfir helstu jarðvegsmengunarvalda s.s. þungmálma, pfas efni, skordýraeitur o.þ.h.-UpplýsingagjöfAlmenningi skal tryggður greiður aðgangur að upplýsingum um menguð svæði. Skrá yfir menguð svæði skal gerð aðgengileg á netinu án endurgjalds. Slík vefsíða er þegar til á íslandi.Ákvæði reglugerðarinnar stefna á að tryggja yfirsýn yfir jarðvegsmengun í Evrópu og stuðla að sameiginlegri lausn. Menguð svæði skulu skráð, metinn og reynt að leysa úr þeim með skipulögðum hætti. Vitneskjan mun opna á tækifæri fyrir endurheimt lands. Framkvæmd, eftirlit og endurskoðun tilskipunarinnarReglugerðin tók formlega gildi 16. desember 2025 og aðildarríki hafa til 17. desember 2028 til að innleiða hana í landslög. Reglugerðin gerir ráð fyrir að hvert ríki útdeili einstaka verkefnum til stofnunar eða stofnana sem að fyrir eru eða eru settar á stofn í tengslum við löggjöfina.Ríkjum ber að standa skil á skýrslum til framkvæmdastjórnar ESB í gegnum stafræna gagnagátt. Samræmd skráning tryggir yfirsýn og stöðu jarðvegs í Evrópu allri. Um mitt ár 2033 mun framkvæmdastjórnin leggja fram formlega úttekt á lögunum þar sem árangur löggjafarinnar er metinn og hvort þörf sé á breytingum.Framkvæmdastjórn ESB getur sett ítarlegri reglur um tæknilega þætti. Framkvæmdastjórnin getur gefið út framkvæmdafyrirmæli eða delegated acts til að uppfæra lista yfir jarðvegsvísa, aðlaga aðferðafræði mælinga, bæta menginarvöldum á lista o.s.frv. Þetta getur framkvæmdastjórnin gert án frekari lagasetningar.Fjármögnun og styrkirReglugerðin getur kallað á kostnaðarsamar aðgerðir. ESB mun bjóða upp á styrki eða fjárhagslegan stuðning til að létta byrðar af aðildarríkjum. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagt er til að tilskipunin verði innleidd með nýjum lögum.
Mögulegar breytingar á:
-lögum um landgræðslu nr. 155/2018
-reglugerð 670/2024 um sjálfbæra landnýtingu
-reglugerð um mengaðan jarðveg nr. 1400/2020
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Landgræðslan, land og skógur

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Tilskipunin gerir ráð fyrir uppsetningu "soil monitoring framework".
Tilskipunin kallar á töluverða vinnu við mælingar á gæði jarðvegs
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Landmælingar Íslands

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025L2360
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2360, 26.11.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 416
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Samantekt EUR-Lex

Flokkun (Classifications)