32023R1769

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1769 of 12 September 2023 laying down technical requirements and administrative procedures for the approval of organisations involved in the design or production of air traffic management/air navigation services systems and constituents and amending Implementing Regulation (EU) 2023/203


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1769 frá 12. september 2023 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir varðandi samþykkt fyrirtækja sem tengjast hönnun eða framleiðslu kerfa og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 147/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmið með gerðinni er að setja samræmdar kröfur um eftirlit með hönnunar- og framleiðslufyrirtækjum. Um er að ræða nýja framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir vottun fyrirtækja sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfum fyrir flugumferðastjórn og flugleiðsögu og á íhlutum í slík kerfi. Gerðin hefur töluverð áhrif hér á landi. Kröfur sem settar eru fram með henni snúa að hönnunarfyrirtækjum sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfa fyrir flugumferðastjórn / flugleiðsöguþjónustu. Ekki gert ráð fyrir kostnaði fyrir hið opinbera.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmið með gerðinni er að setja samræmdar kröfur um eftirlit með hönnunar- og framleiðslufyrirtækjum. Um er að ræða nýja framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir vottun fyrirtækja sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfum fyrir flugumferðastjórn og flugleiðsögu og á íhlutum í slík kerfi.Aðdragandi: Með reglugerðinni er gerð krafa um að Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) verði stjórnsýslulegt yfirvald, votti hönnunar- og framleiðslufyrirtæki og hafi eftirliti með þeim. Þessar kröfur voru áður að hluta í  reglugerð (ESB) nr. 552/2004. Hún var felld úr gildi 11. september 2018. Ákveðnar greinar og tilvísanir í innleiðingarreglugerðir giltu þó áfram en máttu ekki gilda lengur en til 12. september 2023.Efnisútdráttur: Reglugerðin kveður á um tæknilegar kröfur og stjórnsýsluaðferðir fyrir samþykki fyrirtækja sem taka þátt í hönnun eða framleiðslu kerfa og íhluta fyrir flugumferðarstjórnun/flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) og eru háð vottun í samræmi við 4. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1768 eða hönnunaryfirlýsingum í samræmi við 5. gr. sömu reglugerðar.Með vísan til 1. og 4. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139 og með vísan til eðlis og áhættu sem fylgir starfsemi fyrirtækja sem taka þátt í hönnun eða framleiðslu kerfa og íhluta fyrir flugumferðarstjórnun/flugleiðsöguþjónustu (ATM/ANS) skulu slík fyrirtæki vera vottuð.Reglugerðin mælir fyrir um reglur og verklag við útgáfu, viðhald, breytingu á, takmarkanir eða afturköllun skírteina fyrir slík fyrirtæki. Þá fjallar gerðin einnig um réttindi og skyldur slíkra fyrirtækja sem skírteinishafa og samræmt eftirlit með þeim sem framkvæmt er af Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Gerðin hefur töluverð áhrif hér á landi. Kröfur sem settar eru fram með henni snúa að hönnunarfyrirtækjum sem koma að hönnun og framleiðslu á kerfa fyrir flugumferðastjórn / flugleiðsöguþjónustu.Tern ehf. og Isavia ANS eru fyrirtæki sem hanna og framleiða flugleiðsögubúnað.Samkvæmt gerðinni þarf eftirfarandi búnaður vottun frá EASA:-      búnaður sem styður fjarskipti milli flugumferðarstjóra og flugmanna-      búnaður sem styður flugumferðarþjónustu við að beita aðskilnaði eða koma í veg fyrir árekstur flugvéla-      búnaður sem þarf yfirlýsingu um hönnunarsamræmi-      búnaður sem styður G/G fjarskipti-      búnaður sem styður kögun og leiðsöguSamkvæmt gerðinni þarf að tilkynning EASA um samræmi vegna:-      búnaður sem styður ATS, CNS, ASM, ATFM, AIS eða MET þjónustuÁhrif á Samgöngustofu eru takmörkuð en felast einkum í uppfærslu verkferla og þjálfun starfsfólks.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna innleiðingar gerðarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Isavia ANS, Isavia ohf., TERN og Veðurstofa ÍslandsHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R1769
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 228, 15.9.2023, p. 19
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 53
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1839, 2.10.2025

Breytir (Modifies)

32023R0203 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2023/203 of 27 October 2022 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council, as regards requirements for the management of information security risks with a potential impact on aviation safety for organisations covered by Commission Regulations (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664, and for competent authorities covered by Commission Regulations (EU) No 748/2012, (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340 and (EU) No 139/2014, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 and amending Commission Regulations (EU) No 1178/2011, (EU) No 748/2012, (EU) No 965/2012, (EU) No 139/2014, (EU) No 1321/2014, (EU) 2015/340, and Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)