Breytingar á innflutnings skilyrðum á tilteknum samsettum matvælum frá 3ju ríkjum með hliðsjón að lýðheilsu - 32023R2652

Commission Delegated Regulation (EU) 2023/2652 of 15 September 2023 amending and correcting Delegated Regulation (EU) 2022/2292 with regard to requirements for the entry into the Union of honey, meat, highly refined products, gelatine capsules, fishery products and requirements for private attestation and amending Delegated Regulation (EU) 2021/630 as regards private attestation requirements for composite products exempted from official controls at border control posts


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2652 frá 15. september 2023 um breytingu og leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2022/2292 að því er varðar kröfur um komu hunangs, kjöts, mikið unninna afurða, gelatínhylkja og lagarafurða inn í Sambandið og kröfur um eigin staðfestingu og um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/630 að því er varðar kröfur um eigin staðfestingu vegna samsettra afurða sem eru undanþegnar opinberu eftirliti á landamæraeftirlitsstöðvum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 195/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2652 frá 15. september 2023 um breytingu og leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2022/2292 að því er varðar kröfur um skilyrði fyrir innflutning inn í sambandið á hunangi, kjöti, mikið unnum (hreinsuðum) vörum, gelatínhylkjum, fiskafurðum, og kröfur sem varða „Eigin staðfestingar “(Private Attestation), og um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/630 að því er varðar kröfur um „Eigin staðfestingar“ fyrir tilteknar samsettar vörur sem eru undanþegnar opinberu eftirliti á landamærastöðvum.

Nánari efnisumfjöllun

Breytingar á innflutningsskilyrðum með hliðsjón að lýðheilsu:Reglugerðin (EU 2023/2652) breytir tveimur reglugerðum, þ.e annars vegar EU 2022/2292 (ekki innleidd), og hins vegar EU 2021/630:Breyting og leiðrétting á reglugerð EU 2022/2292 að því er varðar:kröfur um skilyrði fyrir innflutning inn í sambandið á hunangi, kjöti, mikið unnum (hreinsuðum) vörum, gelatínhylkjum, fiskafurðum.kröfur sem lúta að „eigin staðfestingum “(Private Attestation)Reglugerðin hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn en hún kveður á um innflutningsskilyrði fyrir tiltekin matvæli. Bent hefur verið á þörf á frekari skýringum til að tryggja samræmda framkvæmd.Breyting á reglugerð EU 2021/630 (sem innleidd er með reglugerð 937/2022) að því er varðar:kröfur um „Eigin staðfestingu“ (Private Attestation– eyðublað) fyrir tilteknar samsettar vörur sem undanþegnar eru opinberu eftirliti á landamærastöðvum.Reglugerðin setur skilyrði fyrir samsett matvæli sem eru undanþegin opinberu eftirliti á landamærastöðvum. „Eigin staðfesting rekstaraðila þarf að fylgja tilteknum samsettum matvælum við skoðun á landamærastöð sem koma inn í sambandið 3ju ríkjum. Um er að ræða samsett matvæli, sem eru stöðug við stofuhita og innihalda ekki kjötafurð, (samsett matvæli sem um getur í c-lið 2. mgr. 12 gr. í reglugerð EU 2017/625 Reglugerð EU 2023/2652 er innleidd með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995 og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma, varnir gegn þeim og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum og plöntum 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Verið er að breyta tveimur EB gerðum: EU 2023/2652 (ekki innleidd) og EU 2021/630 sem innleidd er með reglugerð nr. 937/2022
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2652
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2652, 28.11.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2023)6136
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 92, 19.12.2024, p. 30
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3062, 19.12.2024

Breytir (Modifies)

32022R2292 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32021R0630 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32017R0625 based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi