Útdráttur
Með ákvörðuninni er breytt tilskipunum 2009/12/EB, 2009/33/EB, (ESB) 2022/1999 og 96/67/EB í samræmi við breytingar á kröfum um skýrslur um samgöngur á vegum og flug. Markmið með ákvörðuninni er að einfalda kröfur og draga þannig úr stjórnsýslubyrði en tryggja jafnframt að markmiðum um eftirlit og framfylgd reglna verði náð. Auk þess á að samræma þau tímabil sem skýrslurnar eiga að vera miðaðar við. Breytingarnar taka mið af Commission’s Communication of 16 March 2023 entitled ’Long-term competitiveness of the EU looking beyond 2030. Einfölduð eru ákvæði ýmissa gerða Evrópusambandsins um skýrslugjöf. Áhrif til einföldunar. Ekki kostnaður fyrir innviðaráðuneytið og stofnanir þess.
Nánari efnisumfjöllun
Breytingar á tilskipun 2009/12/EB um flugvallargjöld (flug)Ákvæði 3. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar fellur brott. Í því felst að skylda aðildarríkjanna til að birta skrá yfir flugvelli á yfirráðasvæði sínu sem eiga undir tilskipunina er afnumin. Þessar upplýsingar eru þegar aðgengilegar almenningi hjá flugvöllum, samtökum flugvalla og Eurostat.Breytingar á tilskipun 2009/33/EB (umferð)Tilskipun 2009/33/EB fjallar um kaup á hreinum og orkusparandi ökutækjum fyrir almenningssamgöngur í Evrópusambandinu. Ákvörðun (ESB) 2024/1254 hefur áhrif á þessa tilskipun þar sem að með henni eru kröfur um skil á skýrslum einfaldaðar. Skýrslur skulu nú vera lagðar fram á fimm ára fresti í stað þriggja áður. Skýrslur frá aðildarríkjum skulu innihalda upplýsingar um aðgerðir sem hafa verið teknar til að innleiða tilskipunina, framtíðaráætlanir og fjölda og tegundir ökutækja sem falla undir samninga samkvæmt henni. Upplýsingarnar skulu vera byggðar á gögnum frá framkvæmdastjórninni og skulu settar fram samkvæmt flokkum sem skilgreindir eru í reglugerð (EB) nr. 2195/2002. Þá skal framkvæmdastjórnin skila skýrslum til Evrópuþingsins og ráðsins á fimm ára fresti, í stað þriggja áður.Breytingar á tilskipun (ESB) 2022/1999 (umferð)Skýrslugjöf frá aðildarríkjunum um beitingu tilskipunarinnar verður nú á tveggja ára fresti í stað árlega áður. Skýrslur skulu innihalda upplýsingar um hve oft eftirlit hefur verið viðhaft, fjölda ökutækja sem hafa verið skoðuð eftir skráningarlöndum, þ.m.t. ökutæki skráð innanlands, í öðrum aðildarríkjum eða í löndum utan sambandsins, fjölda brota eftir áhættuflokkum og tegundir og fjölda viðurlaga sem hafa verið beittKröfu um að skýrslur innihaldi upplýsingar heildarmagn hættulegra vara fluttar á vegum er aflétt þar sem Eurostat veitir nú þegar áreiðanlegar upplýsingar um þetta.Breytingunum er ætlað að stuðla að einföldun og aukinni skilvirkni í eftirliti með flutningi hættulegs varnings á vegum innan ESB. Breytingar á tilskipun 96/67/EB (flug)4. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar er felld brott. Með breytingunni er kröfu um árlega birtingu lista yfir flugvelli sem falla undir tilskipunina aflétt, þar sem upplýsingar eru þegar aðgengilegar almenningi.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Hvað flug varðar hefur ákvörðunin engin áhrif hér á landi. Tilskipun 2009/33/EB hefur verið innleidd með lögum nr. 62/2015 um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012. Óskað var umsagnar Umhverfisstofnunar sem gerði ekki athugasemdir við upptöku ákvörðunarinnar.Óskað var eftir umsögn Lögreglu um áhrif tilskipunar 2022/1999, enda fer hún með eftirlit skv. reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi. Lögreglan taldi gerðina ekki vera á sínu sviði.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Tilskipun 2009/12/EB er innleidd með d-lið 256. gr. loftferðalaga nr. 80/2022.Innleiðing á breytingu á tilskipun 96/67/EB hefur stoð í 4. mgr. 257. gr. loftferðalaga nr. 80/2022, sbr. reglugerð nr. 370/2018.