32024R1108

Commission Delegated Regulation (EU) 2024/1108 of 13 March 2024 amending Regulation (EU) No 748/2012 as regards the initial airworthiness of unmanned aircraft systems subject to certification and Delegated Regulation (EU) 2019/945 as regards unmanned aircraft systems and third-country operators of unmanned aircraft systems


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1108 frá 13. mars 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar fyrsta lofthæfi ómannaðra loftfarskerfa sem eru háð vottun og á framseldri reglugerð (ESB) 2019/945 að því er varðar ómönnuð loftfarskerfi og umráðendur ómannaðra loftfarskerfa frá þriðja landi
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 103/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með gerðinni er að uppfæra og aðlaga reglur fyrir loftför til að taka tillit til sérstakra eiginleika og áhættu sem fylgja notkun dróna og ómannaðra loftfara. Gerðinni er ætlað að tryggja að öryggiskröfur, vottunarferlar og umhverfiskröfur fyrir hönnun, framleiðslu og viðhald dróna og tengds búnaðar séu til staðar. Reglurnar miða einnig að því að tryggja samræmi í eftirliti og viðhaldi á slíkum loftförum og tilheyrandi tækjabúnaði innan Evrópu. Lítil áhrif hér á landi. Kostnaður innan marka reglubundinnar starfsemi.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að uppfæra og aðlaga reglur fyrir loftför til að taka tillit til sérstakra eiginleika og áhættu sem fylgja notkun dróna og ómannaðra loftfara. Gerðinni er ætlað að tryggja að öryggiskröfur, vottunarferlar og umhverfiskröfur fyrir hönnun, framleiðslu og viðhald dróna og tengds búnaðar séu til staðar. Reglurnar miða einnig að því að tryggja samræmi í eftirliti og viðhaldi á slíkum loftförum og tilheyrandi tækjabúnaði innan Evrópu.Aðdragandi: Undanfarin ár hefur notkun á ómönnuðum loftförum aukist verulega, bæði til notkunar í viðskiptalegum tilgangi og hjá almennum borgurum. Því er þörf á að aðlaga reglugerðir til að tryggja öryggi og samræmi. Ómönnuð loftför hafa ákveðna eiginleika og af þeim stafar hætta sem ekki á við um hefðbundin loftför. Því var þörf á að gera áhættugreiningu og endurskoða þær kröfur sem gerðar eru til hönnunar, framleiðslu og viðhalds slíkra loftfara.Gerðin byggir á grunnreglum sem settar voru með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 en hún snýr að almennum reglum um flugöryggi. Sá rammi sem þar var settur krafðist þess að sérstök áhersla yrði lögð á ómönnuð loftför til að mæta áskorunum sem fylgja þeim. Ör þróun á tækni hefur haft það í för með sér að uppfæra þarf núgildandi reglur til samræmis við tækniframfarir og tryggja að öryggiskröfur séu fullnægjandi.Efnisútdráttur: Reglugerðin er um breytingar á Evrópureglugerð nr. 748/2012 og framseldri reglugerð (ESB) 2019/945 í tengslum við upphaflegt lofthæfi, e. initial airworthiness, og umhverfisvottun ómannaðra loftfarakerfa (UAS). Í henni er tekið tillit til sérstöðu ómannaðra loftfara, þar á meðal búnaðar til fjarstýringar og eftirlits. Þá eru settar fram kröfur um vottun á hönnun, framleiðslu og viðhaldi slíkra kerfa.Settar eru fram nákvæmar kröfur um vottun ómannaðra loftfarakerfa, þar með talið stjórnar- og eftirlitseininga. Þessar kröfur eru miðaðar við að tryggja að öll ómönnuð loftför og tengdur búnaður uppfylli strangar öryggiskröfur.Nýjar skilgreiningar og kröfur eru settar fram fyrir stjórnar- og eftirlitseiningar, sem eru notaðar til að stjórna ómönnuðum loftförum fjarstýrt. Þessar einingar þurfa að standast sömu kröfur og ómönnuðu loftförin sjálf.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur ekki mikil áhrif hér á landi þar sem vottunin sjálf fellur undir verksvið EASA og ekki eru framleiðslufyrirtæki hér á landi.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 54. gr. og 72. gr. loftferðarlaga nr. 80/2022.Innleiðing verði með breytingu á reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækjaMat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Samgöngustofa mun þurfa að uppfæra verkferla til skráningar þessara loftfara. Þá mun reglugerðin hafa í för með sér að þjálfa þarf eftirlitsmenn sem fylgjast með ómönnuðum loftförum og mun það hafa í för með sér kostnað sem erfitt er að meta að svo stöddu. Hvoru tveggja fellur undir reglubundna starfsemi stofnunarinnar.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur ómannaðra loftfara, flugrekstaraðilar sem nota ómönnuð loftför í atvinnuskyniHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 54. gr. og 72. gr. loftferðarlaga nr. 80/2022. Innleiðing verði með breytingu á reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara o.sv fr.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1108
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1108, 23.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 21
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1369, 24.7.2025

Breytir (Modifies)

32019R0945 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2019/945 of 12 March 2019 on unmanned aircraft systems and on third-country operators of unmanned aircraft systems Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012R0748 amends Commission Regulation (EU) No 748/2012 of 3 August 2012 laying down implementing rules for the airworthiness and environmental certification of aircraft and related products, parts and appliances, as well as for the certification of design and production organisations Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)