32024R0404

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/404 of 30 January 2024 amending Implementing Regulation (EU) No 923/2012 as regards the updates of relevant ICAO provisions, the completion of the radio communication failure procedure and removing the supplement to the Annex to that Regulation


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/404 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar að uppfæra viðeigandi ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, að ljúka við gerð verklags sem gildir um bilun í þráðlausum fjarskiptum og að fella brott viðbæti viðaukans við þá reglugerð
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 245/2024
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með reglugerðinni er að samræma reglur Evrópusambandsins (ESB) við nýjustu staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og tryggja þannig öryggi og skilvirkni í flugumferð innan sambandsins. Með því að innleiða þessar nýju breytingar er stefnt að því að bæta reglur um flugleiðsögu, svo sem í flugumferðarstjórn, um veðurupplýsingar, um gagnatengingarkerfi og um starfsaðferðir ef bilanir verða á fjarskiptasambandi. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með reglugerðinni er að samræma reglur Evrópusambandsins (ESB) við nýjustu staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og tryggja þannig öryggi og skilvirkni í flugumferð innan sambandsins. Með því að innleiða þessar nýju breytingar er stefnt að því að bæta reglur um flugleiðsögu, svo sem í flugumferðarstjórn, um veðurupplýsingar, um gagnatengingarkerfi og um starfsaðferðir ef bilanir verða á fjarskiptasambandi.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerð (ESB) nr. 923/2012 er ekki beitt á Íslandi í ljósi landfræðilegs gildissviðs þeirrar reglugerðar.ICAO viðauki 2 er innleiddur á Íslandi með íslenskri reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.  Hann er hins vegar innleiddur af Evrópusambandinu í reglugerð 923/2012. Reglur Evrópusambandsins gilda hér á landi. Æskilegt er að beita reglugerð (ESB) nr. 923/2012 beint þar sem innleiðing ESB á ICAO viðaukum er ekki „hrein“. Ákveðin ákvæði Viðauka 11 eru sem dæmi innleidd með reglugerð (ESB) nr. 923/2012 en önnur með (ESB) 2017/373. Við þetta hefur orðið til ákveðið misræmi á innleiðingu ICAO ákvæða hér á landi. Misræmi myndast einnig þegar í tilteknum gerðum sambandsins í flugi sem gilda hér á landi og er beitt hér er vísað í kröfur sem gerðar eru í reglugerð 923/2012. Samgöngustofa hefur af þessu tilefni gert greiningu á beitingu (ESB) nr. 923/2012. Ekki er að sjá að beiting reglugerðarinnar muni valda vandkvæðum vegna þeirrar gerðar sem hér er til umfjöllunar. ICAO viðauki 2 mun áfram gilda utan lofthelgi þar sem Ísland er bundið af því að beita ICAO stöðlum yfir úthafinu. Greining Samgöngustofu leiddi jafnframt í ljós að beiting reglugerðar (ESB) nr. 923/2012 hér á landi er að séríslensk ákvæði um fis sem eru nú í reglugerð 770/2010 þarf að finna annan stað. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 665/2015 um breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 923/2012.Reglugerð Evrópusambandsins 923/2012 er innleidd með breytingu á reglugerð 770/2010. Með vísan í framangreindar athugasemdir um beitingu (ESB) nr. 923/2012 væri heppilegt að fella reglugerð. 770/2010 úr gildi og innleiða 923/2012 með síðari breytingum með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei. Tilgreining á hagsmunaaðilum: Notendur loftrýmis (flugmenn, flugrekendur), veitendur flugleiðsöguþjónustu/rekstrarstjórnunar flugumferðar. Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei, ekki nema að rétt er að gefa aðlögunartíma milli þess sem reglugerðin tekur gildi á Íslandi og þar til breyttum ákvæðum skal beitt.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 152. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á reglugerð nr. 665/2015 um breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 923/2012.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R0404
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/404, 11.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 9, 20.2.2025, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/228, 20.2.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32012R0923 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)