32024R1109

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/1109 of 10 April 2024 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council as regards competent authority requirements and administrative procedures for the certification, oversight and enforcement of the continuing airworthiness of certified unmanned aircraft systems, and amending Implementing Regulation (EU) 2023/203


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1109 frá 10. apríl 2024 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar kröfur fyrir lögbær yfirvöld og stjórnsýslumeðferðir varðandi vottun, eftirlit og framfylgd í tengslum við áframhaldandi lofthæfi vottaðra, ómannaðra loftfarskerfa og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 148/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að setja reglur og verklagsreglur sem yfirvöldum ber að fylgja við að meta hvort ástand ómannaðra loftfara sem þurfa vottun sé samræmi við kröfur svo veita megi þeim áframhaldandi vottun um að lofthæfi sé fullnægjandi. Jafnframt að það sé gert með samræmdum og fullnægjandi hætti. Áhrif eðlileg og til góðs. Kostnaður innan marka reglubundinnar starfsemi.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með reglugerðinni er að setja reglur og verklagsreglur sem yfirvöldum ber að fylgja við að meta hvort ástand ómannaðra loftfara sem þurfa vottun sé samræmi við kröfur svo veita megi þeim áframhaldandi vottun um að lofthæfi sé fullnægjandi.Efnisútdráttur: Reglugerð (ESB) 2024/1107 er viðbót, e. supplements, við reglugerð 2018/1139 en með henni voru innleiddar kröfur um vottun CAO.UAS, e. combined airworthiness organisation, um  áframhaldandi lofthæfi og viðhald ómannaðra loftfara.Í 58. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139 voru settar ítarlegar kröfur um áframhaldandi lofthæfi fyrir ómönnuð loftför (UAS) í svokölluðum sérstökum flokki sem og fyrir þau loftför sem þurfa lofthæfisvottorð. Í sérstakan flokk loftfara af þessari tegund falla meðal annars þau loftför sem gera þarf strangari kröfu til en ella væri vegna notkunar þeirra og gerðar en einnig þau sem hægt er að gera mildari kröfur til af sömu ástæðum. Með þeirri reglugerð sem hér er til umfjöllunar, 2024/1109, á að setja reglur og verklagsreglur til að tryggja að eftirlit með því að ástand loftfara sé í samræmi við öryggiskröfur sé samræmt og tryggja þannig örugga notkun þeirra.Þá eru gerðar breytingar á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203. Með þeim eru reglur um stjórnun upplýsingaöryggis og framkvæmd eftirlits með ómönnuðum loftförum eru víkkaðar út og taka nú einnig til þeirra yfirvalda sem bera ábyrgð á þessum þáttum.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Helstu breytingar sem reglugerðin hefur í för með sér og varða Samgöngustofu fjalla um áframhaldandi lofthæfi ómannaðra loftfara.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 20., 72., 83., 93., 152., 167. og 188 gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri reglugerð.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Samgöngustofa mun þurfa að innleiða nýjar reglur í sitt stjórnkerfi, uppfæra eldri verklagsreglur og útbúa nýjar, auk eyðublaða og gátlista. Um er að ræða töluverða vinnu auk þjálfunar fyrir starfsmenn sem þarf hugsanlega að fara fram á námskeiðum erlendis. Kostnaður getur orðið töluverður í vinnustundum starfsmanna kostnaður vegna þjálfunar og námskeiða. Sá kostnaður var metinn er gerð var grein fyrir reglugerð 2023/203 en reglugerð 2024/1109 er breyting á þeirri reglugerð. Ekki sérstakur kostnaður við þessa tilteknu gerð og fellur hann innan marka reglubundinnar starfsemi Samgöngustofu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: NeiHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoðin er 20., 72., 83., 93., 152., 167. og 188 gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglurnar með nýrri reglugerð
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1109
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1109, 23.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 55
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1836, 2.10.2025

Breytir (Modifies)

32023R0203 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2023/203 of 27 October 2022 laying down rules for the application of Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council, as regards requirements for the management of information security risks with a potential impact on aviation safety for organisations covered by Commission Regulations (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664, and for competent authorities covered by Commission Regulations (EU) No 748/2012, (EU) No 1321/2014, (EU) No 965/2012, (EU) No 1178/2011, (EU) 2015/340 and (EU) No 139/2014, Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 and amending Commission Regulations (EU) No 1178/2011, (EU) No 748/2012, (EU) No 965/2012, (EU) No 139/2014, (EU) No 1321/2014, (EU) 2015/340, and Commission Implementing Regulations (EU) 2017/373 and (EU) 2021/664 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)