32024R1110

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/1110 of 10 April 2024 amending Regulation (EU) No 748/2012 as regards the initial airworthiness of unmanned aircraft systems subject to certification and Implementing Regulation (EU) 2019/947 as regards the rules and procedures for the operation of unmanned aircraft


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1110 frá 10. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar fyrsta lofthæfi ómannaðra loftfarskerfa sem eru háð vottun og á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/947 að því er varðar reglur og verklagsreglur fyrir starfrækslu ómannaðra loftfara
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 103/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Markmiðið með gerðinni er að tryggja samræmi í framkvæmd reglna um lofthæfi og rekstur ómannaðra loftfara í Evrópu. Með reglunum á að bæta öryggi og draga úr áhættu auk þess að tryggja að umhverfisverndarkröfur séu uppfylltar. Gerð er sú krafa að ómönnuð loftför sem þurfa vottun þurfa lofthæfisvottorð áður en notkun hefst. Þá er gerð sú krafa á rekstraraðila að tryggja að öll skilyrði fyrir notkun þeirra séu uppfyllt, þ.m.t. umhverfiskröfur og öryggiskröfur. Auk þess þurfa rekstraraðilar að tilkynna öll öryggisatvik eða hættulegar aðstæður og taka upp viðeigandi öryggisaðgerðir í samræmi við fyrirmæli frá yfirvöldum eða EASA. Áhrif hér á landi eingöngu óbein. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að tryggja samræmi í framkvæmd reglna um lofthæfi og rekstur ómannaðra loftfara (UAS) í Evrópu. Með reglunum á að bæta öryggi og draga úr áhættu sem hlýst af því að nota ómönnuð loftför. Þá er ætlunin að tryggja að öryggis- og umhverfisverndarkröfur séu uppfylltar við notkun ómannaðra loftfara sem þarf lofthæfisvottorð eða takmarkað lofthæfisvottorð fyrir.Aðdragandi: Með vaxandi notkun ómannaðra loftfara þótti nauðsynlegt að setja reglur til þess að tryggja öryggi, umhverfiskröfur og eftirlit.Efnisútdráttur: Með reglugerðinni eru gerðar breytingar á eldri reglugerðum um upphaflegt lofthæfi, e. initial airworthiness, ómannaðra loftfara (UAS) og rekstur þeirra.Gerð er sú krafa að ómönnuð loftför í þeim flokkum þar sem krafa er gerð um vottun þurfa að fá lofthæfisvottorð eða takmarkað lofthæfisvottorð áður en notkun hefst. Þá er gerð sú krafa á rekstraraðila UAS að tryggja að öll skilyrði fyrir notkun þeirra séu uppfyllt, þ.m.t. umhverfiskröfur og öryggiskröfur. Enn fremur er gerð krafa að rekstraraðilar tilkynni öll öryggisatvik eða hættulegar aðstæður til viðkomandi yfirvalda auk þess að taka upp viðeigandi öryggisaðgerðir í samræmi við fyrirmæli frá yfirvöldum eða EASA.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Helstu breytingar sem gerðin hefur í för með sér verður fyrir EASA og framleiðendur ómannaðra loftfara.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Innleiðing verði með reglugerð um um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: NeiSkörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiðTilgreining á hagsmunaaðilum: Framleiðendur UAS, rekstraraðilar UASHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Innleiðing verði með reglugerð um um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara o. sv. frv.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1110
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1110, 23.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 21
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1369, 24.7.2025

Breytir (Modifies)

32019R0947 amends Commission Implementing Regulation (EU) 2019/947 of 24 May 2019 on the rules and procedures for the operation of unmanned aircraft Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32018R1139 based on Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32012R0748 amends Commission Regulation (EU) No 748/2012 of 3 August 2012 laying down implementing rules for the airworthiness and environmental certification of aircraft and related products, parts and appliances, as well as for the certification of design and production organisations Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)